Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn195
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Viggó Magnússon sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 279
Gripur nr. 279. Mjólkurbrúsi, tekur 3 lítra. Hann er úr áli með loki og haldi. Merktur Skafti Fanndal. Öll heimili áttu sína mjólkurbrúsa undir mjólk. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Höfðaskóli069
Börn fædd 1989 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Baldur Magnússon kennari, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Maríanna Ástmarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Þóey Fjóla Aradóttir, Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson.
Minjasafn 578
Gripur nr. 578. Stórt hallamál úr tré, 61 cm á lengd, 6 cm hátt og 3 cm á þykkt.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn009
Myndin var tekin á jóla-barnaballi í Höfðaskóla um jólin 1962. Konan fremst á myndinni er Laufey Sigurvinsdóttir frá Litla Bergi og dóttir hennar K.Hrönn Árnadóttir í ný saumuðum kjól. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 7 no2
Gripur nr. 7. Náttserkur úr hvítu lérefti, lagður með milliverkum yfir brjóst og axlir. Síður. Einnig milliverk framan á ermum, sem eru langar. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn064
Kristjana Jóhannsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Minjasafn 370 no3
Gripur nr. 370. Tvær mjólkurflöskur úr glæru gleri. Á annarri stendur: Mjólkursamsalan 1. En á þeirri minni, sem er alveg eins, stendur: Mjólkursamsalan 1/2.
Guðmundur Guðnason 2 431
<p>Óþekkta fólkið á myndinni lætur fara vel um sig utan við kirkju sem ekki er vitað hver er. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða þekkir kirkjuna, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Minjasafn 589 no2
Gripur nr. 589. Stór glær glerflaska með stút niður úr, víðust um miðjuna en endar í nokkurs konar trekt efst. Glertappi með haldi í trektinni. Tappi í stútnum neðst úr gleri og keramiki. Flaskan er í rauðu járn stativi en neðst á því er stétt úr hvítu gleri þar sem miðjan er laus lítil glerskál sem felld er ofan í stéttina. Á flöskunni stendur: " 1 ml alcohol amylique 20° C". Tapinn efst er brotinn. Hér er um einhvers konar rannsóknartæki að ræða sem gæti hafa verið notað á rannsóknarstofu Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd.
Sigurður Jónsson - safn 001
Guðrún Björnsdóttir frá Mánaskál upphaflega frá Harrastaðakoti.
Minjasafn 462
Gripur nr. 462. Tertuhnífur? úr glæru plasti. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 234
Gripur nr. 234. Kökudiskur á fæti. Fótuinn er málaður blár (ekki stéttin). Tíglamunstur er í glerið á stéttinni og diskinum. Ummál disksins er 15 cm en stéttin er 9 cm. (Brotin) Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Skagaströnd - safn337
Eftir að nýja Hólaneskirkja hafði verið vígð 21. október 1991 var haldið kaffisamsæti í Fellsborg og þar var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Torfhildur Stefánsdóttir, séra Oddur Einarsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir og Sigríður Gestsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn099
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Lárus Ægi Guðmundsson sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hann veislustjóri á þorrablótum á Skagaströnd í 25 - 30 ár fyrir hönd Leikklúbbsins. Eftir Lárus liggur líka bókin: Leiklist á Skagaströnd 1895 til 2015 sem, eins og nafnið bendir til , rekur sögu leiklistar á Skagaströnd þetta tímabil í máli og myndum.
Mindasafn 209
Gripur nr. 209. Skeifuhitamælir. Mælirinn er inni í skeifunni sem er grænleit með gylltum tökkum (hausar á hóffjöðrunum). Hæð 18 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd,
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn086
Líklega hefur þessi mynd verið tekin í sumarferðalagi starfsfólks Hólaness hf einhverntíma á áttunda ártugnum. Ekki er vitað hvar þessi reisulegi sveitabær er en fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna Sjöfn Jónasdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn171
<p>Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Óskar Óskarsson og Þorvaldur Skaftason.</p>
Minjasafn 550
Gripur nr. 550. Álspaði, steikingaspaði.
Skagaströnd - safn341
Hreppsnefnd Höfðahrepps 1982 - 1986 ásamt sveitarstjóra. Standandi frá vinstri: Magnús B. Jónsson fulltrúi Framsóknarflokks, Gylfi Sigurðsson fulltrúi Sjálfstæðisflokks og Guðmundur Haukur Sigurðsson fulltrúi Alþýðubandalags. Sitjandi frá vinstri: Elín Njálsdóttir fulltrúi Alþýðuflokks, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri og Adolf J. Berndsen oddviti og fulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Minjasafn 255
Gripur nr. 255. Fantur, lítill úr hv´tum leir. Hæð 6 cm en ummál 3,5 cm. Úr Brautarholti frá Ólafi Guðmundssyni.
Minjasafn712
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Fólkið á myndinni er óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 317
Gripur nr. 317. Svört myndavél, 13 cm löng og 8 cm breið. Framan á vélinni stendur: <strong>Rowstart</strong>. Vélinni fylgir ljósbrún leðurtaska með ól. Gefandi fékk vélina í fermingargjöf árið 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Guðmundur Guðnason 2 350
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað <em>" Frá Hestamannamóti hjá Hvammi í Langadal. Þórður á Grund."</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 602
Gripur nr. 602. Skrifpúlt með lokuðu hólfi undir. Skúffulaga, málað myntugrænt. 13 cm þar sem það er dýpst, 38 cm langt og 39 cm breitt. Er með skráargati.
Minjasafn 539
gripur 539. Tveir hraunhnullungar úr Heimaeyjargosinu 1973. Misstórir.
Minjasafn 622
Gripur nr. 622. Áldunkur, bleikdrappaður á lit, ferhyrndur 23 cm á hæð.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn185
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús B. Jónsson sem starfaði að mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hann formaður klúbbsins 1977 - 1979.
Minjasafn 650
Gripur nr. 650. Vigt úr stáli og áli, rauð á litinn, orðin allmikið ryðguð. Vigtar allt að 10 kg.
Minjasafn 491
Gripur nr. 491. Stórt ullarteppi, brúnt, hvítt, grátt og munstrað.
Minjasafn714
Guðmundur Kr. Guðnason (d 21.11.1988) frá Ægissíðu, póstur, ljósmyndari og kirkjuáhugamaður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 569
Gripur nr. 569. Útvarp, lítið brúnt að lit. Bakið er farið af og "innvolsið" er sýnilegt en er laust í.
Minjasafn 526
Gripur nr. 526. Brúnleitur blómavasi/glas úr gleri á hvítum fæti.
Minjasafn 580
Gripur nr. 580. Lítil græn "Facit" reiknivél, handknúin.
Skagaströnd - safn397
Akraborg EA 50 var síldarbátur sem oftkom með síld til Skagastrandar. Hér er hann í höfn með báta í gálgum á báðum síðum. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að vinna að viðgerð á krananum í baksýn. Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Skagaströnd - safn398
Lagt af stað á miðin úr Skagastrandarhöfn með nótabátin aftaní. Báturinn er ÍS 106 en nafnið er óþekkt. Greinilega er ekki gert ráð fyrir löngu stími því að um borð í nótabátnum er maður. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn138
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á einni af fyrstu æfingum á verkinu af þeim Elínu Njálsdóttur til vinstri og Hallbjörgu Jónsdóttur til hægri.
Minjasafn 54
Gripur nr. 54. Lítil mynd af Einari Jónssyni frá Óseyri á Skagaströnd í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Minjasafn 359
Gripur nr. 359. Myndavél. "Braunoptik" stendur á linsunni. "Imperial" stendur framan á henni. Svört á litinn. Brún leðurtaska fylgir með.
Minjasafn 45
Gripur nr. 45. Mynd frá Haukagili í Borgarfirði tekin sumarið 1884. Fólkið á myndinni er ekki þekkt. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 365
Gripur nr. 365. Klukka. Lítil falleg klukka úr postulíni/leir, með blómaskreytingum framan á og gylltum ramma í kringum skífuna. Gylltir vísar. Innbyggð spiladós sem spilar hugljúfa tóna.
Guðmundur Guðnason 2 485
Eldri borgara í heimsókn í Þingeyrarkirkju ásamt nokkrum kvenfélagskonum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Ása Jóhannsdóttir, Jóhanna Jónasdóttir, Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Jónína Valdimarsdóttir, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005) og Friðgeir Ágústsson (d. 17.5.1985).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn145
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu og sýnir Önnu Sjöfn Jónasdóttur, starfsmann við sýninguna, ditta að einni af saumavélunum sem notaðar voru í sýningunni.
Minjasafn 170
Gripur nr. 170. Kertastjaki, sem er með svanshöfuð framúr og vængi til hliðar. Lengd 21 cm. Stendur svanurinn á smá stétt og er kertastjakinn úr gulllituðum málmi (látúni ?). Gefandi: Borghildur Jónsdóttir Álftamýri 40, Reykjavík. Hún er móðir Salóme Jónu Þórarinsdóttur Lundi Skagaströnd. Gefið í júlí 1994.
Minjasafn 490 no2
Gripur nr. 490. Hvít mjólkurkanna með upphleyptu munstri af blómum. Sprungin og skarð í efri brún.
Minjasafn751
Hjónin Jón Pálmason (d. 1.2.1973) þingmaður frá Akri og konan hans Jónína V. Ólafsdóttir (d. 3.1.1980). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 416
Gripur nr. 416. Margnota, rauður, plast- eggjabakki sem hægt er að loka utan um 12 egg.
Minjasafn 83 no2
Gripur nr. 83. Brúnn rammi með portrett mynd af óþekktri konu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn220
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Rúnar Loftsson sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 397
Gripur nr. 397. Stutt reipi með silgjum á sitthvorum enda. (Gætu verið gjarðishringir?)
Minjasafn 488
Gripur nr. 488. Ljósapera - glópera - mjög stór, glær. Ummálið er 38 cm.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn127
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Karlsson Berndsen.
Minjasafn 109
Gripur nr. 109. A: Fantur úr ljósbeis lituðum leir, hæð 11 cm , breidd 7,5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994. B: Fantur´ljósbeis litaður leir, hæð 14 cm. Ekki vitað um gefanda.
Minjasafn 304
Gripur nr. 304. Svunta ísaumuð í hvítt léreft. Handfölduð með drapplituðu garni. Þrjár blómamyndir saumaðar neðst á kantinn á svuntunni. Band er á smekknum yfir hálsinn en smekkurinn er þríhyrndur. Blóm eru saumuð í spíssana og á brjóst. Hæð 70 cm en 64 cm breiðust. Var saumuð af gefanda árið 1939. Gefandi: Ingiríður Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd í júní 1982.
Minjasafn 451
Gripur nr. 451. Lítið rautt box með gylltum stöfum. Í lokinu stendur: "Ólafur Sveinsson, Austurstræti 5, Reykjavík, Talsími 311". Í boxinu er ryðguð nál vafin í bómull.
Minjasafn700
Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) frá Háagerði (seinna Baldursheimi á Skagaströnd). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd tekin 1984.
Minjasafn 463
Gripur nr. 463. Margnota plast-eggjabakki, sem hægt er að loka, gulur á lit. Hýsir 6 egg.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn118
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ara Þórsson sem var starfsmaður við nokkrar sýningar klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 547
Gripur nr. 547. Trésleif 36 cm á lengd.
Minjasafn 373
Gripur nr. 373. Tvö stykki ónotaðir rammar. Rammarnir eru viðarbrúnir með gyllingu yst. Átta form fyrir smámyndir eru í hvorum ramma. E.t.v. verið keyptir fyrir skipulag á fornmununum.
1
…
101
102
103
…
167
Leita í myndasafninu
Leita