Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 80
Gripur nr. 80. Brúnn rammi með gylltum hornum með mynd af Árna Svanberg frá Kambakoti. .
Minjasafn 295
Gripur nr. 295. Borðdúkur 76 x 74 cm. Dúkurinn er saumaður í hvítt léreft. Dregnir hafa verið þræðir úr léreftinu í þrjá bekki yst í dúknum. Hann er saumaður með nokkurs konar harðangri og klaustursaum. Fjórar dúllur eru heklaðar og saumaðar í hvert horn. Þessi dúkur er hreinasta listaverk.
Minjasafn 335
Gripur nr. 335. Kartöflustappari með grænu tréhaldi. Lengd 23 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann Pétrusson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 494
Gripur nr. 494. Kökudiskur. Hvítur með blómaskreytingu í botni. Rimlaður á brúnum. Diskurinn er brotinn en brotin fylgja með þannig að hægt er að líma hann saman aftur.
Minjasafn 572
Gripur nr. 572. Útvarp. Brúnt, stórt með gulleita grind.
Guðmundur Guðnason 2 461
Þessi mynd var líklega tekin í ferðalagi félaga í Alþýðubandalaginu einhverntíma í kringum 1980. Á myndinni er Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) með sólgleraugu og við hlið hans er Sigurður Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 636
Gripur nr. 636. Skrautplatti með upphleyptri mynd af púðluhundi sem stendur á afturfótunum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn123
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Jónas Baldursson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir og lengst til hægri sér í Hallbjörn Hjartarson.
Minjasafn 418
Gripur nr. 418. Falshefill úr tré.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn057
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar.. Þessi mynd var tekin í hléi á sýningu í Fellsborg af Kristjáni Blöndal í gervi sínu sem sjúkraliði.
Minjasafn 551
Gripur nr. 551. Upptakari. "Canada dry" er meitlað í hann. Álupptakari til að opna flöskur með áþrykktum tappa.
Minjasafn 518
Gripur nr. 518. Djúpur, hvítur diskur með breiðri bleikri rönd með barminum. Í botninum er mynd af fólki í rómantískum stíl.
Minjasafn 524
Gripur nr. 524. Sósukanna, dröppuð með gullrönd um miðjuna og aðra mjórri með barminum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn186
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórhildi Jakobsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 617
Gripur nr. 617. Gömul plaköt sem auglýsa Kántrýbæ.
Minjasafn 237
Gripur nr. 237. Sykurkar úr glæru gleri, munstrað. Karið er ílangt og stendur á stétt. Lengd 13 cm, breidd 6,5 cm og hæð 7,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Guðmundur Guðnason 2 386
Jóhanna Bertelsdóttir sennilega á fermingardaginn sinn.
umf Fram 336
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í veislunni eru frá vinstri við borðið næst okkur: Jens Jónsson, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) og Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Við borðið fjær sitja hjónin Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir.
Minjasafn 430
Gripur nr. 430. Járnbox notað undir rakvélablöð. Á lokinu stendur, upphleypt: "ROYALITY".
Minjasafn 387
Gripur nr. 387. Lítill pappakassi með íhlutum úr einhvers slags snúningsvél. Á henni stendur "Spin - fix". Tveir silfurmálaðir bútar/völur voru með í kassanum.
Minjasafn 150
Gripur nr. 150. Vasapeli undan víni, kringlóttur. Brúnn á litinn með hvítu staupi, sem tappa. Hæð 14 cm. Líklega úr eigu Kristmundar Jakobssonar og gæti verið frá 1930 - 1940. Var í Ásbergi. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd 1994.
Minjasafn 640
Gripur nr. 640. Tveir kúlulaga ljósakúplar úr hvítu gleri.
Minjasafn 484 no2
Gripur nr. 484. Dúkar af ýmsum stærðum. Gefandi: Hildigunnur Jóhannsdóttir Stórholti, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn674
Aftan á þessari mynd stendur: "<em>Sigurður Jónsson frá Eivindarstöðum"</em>. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd.
Minjasafn 38
Gripur nr. 38. Hlutabréf í Eimskipafélagi Íslands í ramma. Teikning eftir listamanninn Samúel Eggertsson.
Minjasafn 564
Gripur nr. 564. Ýmsir lyklar sem fundist hafa hér og þar.
Minjasafn 243
Gripur nr. 243. Skónál. Var notuð til að brydda sauðskinnsskó. Er spísslöguð fram. Lengd 5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í mars 1995.
Minjasafn692
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd 1959 eða 1960. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn 419
Gripur nr. 419. Hefill, smíðaður úr tré.
Minjasafn 393
Gripur nr. 393. Lítill plastpoki með gömlum lúðukrókum, úr eigu Brynjólfs?. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð).
Skagaströnd - safn395
Síld landað úr Húna Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en líklega er það Björn Haraldsson - Bangsi (d. 21.9.1988), sem stendur í dökkri skyrtu og horfir fram eftir bátnum. Eins og sjá má þurftu sjómennirnir að moka síldinni með sérstökum netháfum upp í tunnur. Þær voru svo hífðar í land og tæmdar á bílpall eða í handkerrur, sem síðan var ekið til söltunarstúlknanna, sem biðu þess albúnar að breyta silfri hafsins í söltuð verðmæti í tunnum.
Minjasafn 374
Gripur nr. 374. Smellurammi ónotaður. Er enn í pakkningunni en glerið er brotið.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn029
Myndin sýnir fólk við réttastörf í Spákonufellsrétt 1965. Á þessum tíma var mikið um sauðfé á Skagaströnd líklega 2-3000 kindur sem settar voru á á hverjum vetri.
Skagaströnd - safn379
Þetta fólk stoppaði til myndatöku á ferðalagi sínu, sennilega í listigarðinum á Akureyri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Standandi frá vinstri: Guðmundur Guðnason, óþekktur, Ása Hafsteinsdóttir, Úlfar Björnsson (aftar), Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, ?Þorbjörn Jónsson? (d. 2.9.1986), ?Guðmundur Lárusson? (d. 15.10.2002), fjögur óþekkt og Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Þeir sem krjúpa eru óþekktir nema Gylfi Sigurðsson sem er með húfu á höfðinu. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 522
Gripur nr. 522. Handsmíðuð berjatína úr tré með stálgöfflum.
Minjasafn 379
Gripur nr. 379. Mynd í ramma af móður og dóttur. Myndin er mjög máð og er í ramma sem er koparlitaður.
Minjasafn 637
Gripur nr. 637. Flaska úr leir/postulíni. Hvít en er mjög skítug. Líklega var einu sinni í henni korktappi en ekki nú. Flaskan er 16 cm á hæð.
Höfðaskóli023
Börn fædd 1979 í 7. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn 314
Gripur nr. 314. Skæri, sérstaklega blaðlöng, stállituð. Lengd 30 cm. Eigandi var Guðríður Ólafsdóttir frá Höfðahólum á Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 41
Gripur nr. 41. Lítil portrett mynd af manni. Hann er með yfirvaraskegg og röndótt bindi. Ekki er vitað af hverjum myndin er.
Minjasafn 438
Gripur nr. 438. Húfa úr eigu Fritz Magnússonar.Gömul húfa, blá með festingu undir höku. Mögulega gömul reiðhúfa.
Minjasafn 143
Gripur nr. 143. Gjarðishringjur fimm stykki. Ein köntuð, tvær litlar og þrjár rúnnaðar. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn042
Leikárið 1976 - 1977 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Skjaldhamra eftir Jónas Árnason. Á þessari mynd er það fólk sem kom að uppsetningunni á einn eða annan hátt. Fremst frá vinstri: Þórdís Sigurðardóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Ólafur Bernódusson. Miðröð frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, Eðvarð Hallgrímsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Einar Rafn Haraldsson leikstjóri og Guðný Sigurðardóttir. Aftasta röð frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir, Kristján Blöndal, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þórdís Guðmundsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Minjasafn 478
Gripur nr. 478. Prjónuð skotthúfa. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Skagaströnd.
Minjasafn 94
Gripur nr. 94. Gylltur rammi með Lions Club skírteini Guðmundar Guðnasonar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn088
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri á sviðinu: Þorlákur Ómar Guðjónsson, Steindór Haraldsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson, Jón Örn Stefánsson, Fannar Viggósson, Lovísa Vattnes, Elín Njálsdóttir og Hallbjörn Hjartarson. Framan við sviðið eru frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Ólafur Magnússon, Jensína Lýðsdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson, Jóney Gylfadóttir og baksvipinn á Jón Ingvar Valdimarsson.
Minjasafn 76
Gripur nr. 76. Mynd af es Laura á strandstað 1910 í gylltum ramma. Einnig er annað skip á myndinni.
Minjasafn 270
Gripur nr. 270. Glerskál, kínversk með brúnum barmi og mynd af fólki og blómum um allan bekk. Særð 10 x 10 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn158
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Björk Sveinsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn192
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallveigu Ingimarsdóttur sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 442
Gripur nr. 442. Glær plastpoki sem geymir allskonar saumnálar.
Minjasafn 479
Gripur nr. 479. Pappakassi/box sem geymir "skemmtilegt dót" sem fannst í skúffu í borði hjá Fritz Magnússyni.
Minjasafn 510
Gripur nr. 510. Nálapúði á platta. Plattinn er úr ljósum við, fallega útsagaður. Púðinn er dökkrauður og geymir tvær saumnálar.
Minjasafn 537
Gripur nr. 537. Ál-kaffikanna með svörtu haldi og svartan hnapp á lokinu, sem er fest við könnuna með löm.
Minjasafn 415
Gripur nr. 415. Mjólkurpokahaldari úr plasti, lítill hvítur á litinn.
Minjasafn 561
Gripur nr. 561. Flökunarhnífur. Skaftið svart úr plasti, blaðið mjög mjótt af mikilli notkun og brýningum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn175
<p>Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru Einar Haukur Arason og Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) í hlutverkum sínum í verkinu.</p>
Minjasafn694
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) í Höfðatúni á Skagaströnd við bátinn sinn í fjörunni austan við hafnarvogina. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992.
Höfðaskóli016
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 1991 - 1992. Nöfn fólksins eru í myndinni. Á þessum tíma var Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri.
Minjasafn 670
Gripur nr. 266. Sósukanna með sama munstri og gripur 268 (mynd nr. 7593). Með bláum rósum og bekk, orðin ljót að innan og dálítið sprungin á annarri hliðinni. Úr búi Björns Helgasonar Efra Læk á Skagaströnd.
1
…
103
104
105
…
167
Leita í myndasafninu
Leita