Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 233
Gripur nr 233. Kökudiskur, hvítur, ílangur með blárri rönd og merkt: Jöklar h/f (skipafélaginu). Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 444
Gripur nr. 444. Ljósbrún axlabönd, úr leðri/rússkinni, af gamla laginu.
Minjasafn 466
Gripur nr. 466. Steinkola. Fannst í uppgreftri á bænum Spákonufelli árið 1965. Líklega frá 12. - 13. öld. Gefandi: Kristján Hjartarson Grund, Skagaströnd í maí 1977.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn072
Þorvaldur Skaftason á æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar líklega á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990. Leikstjóri var Hörður Torfason.
Minjasafn750
Síldarsöltun á planinu á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum kringum 1960 og sýnir vel hvernig starfsaðstaðan var. Saltað var úti undir berum himni hvernig sem viðraði ef ræst var út í síld. Eins og sjá má á myndinni vann fjöldi manns á planinu en "söltunarstúlkurnar" - sem stundum voru karlkyns - unnu í akkorði við söltunina og fóru laun þeirra eftir því hve margar tunnur þær söltuðu yfir daginn. Karlarnir á planinu þjónustuðu þær með síld, salt, tómar tunnur og fjarlægðu fullar tunnur frá þeim. Á planinu var líf, fjör og hávaði og margir minnast þessa tíma með gleði. Eins og kemur fram í textanum á myndinni er maðurinn með fötuna fyrir miðri mynd næst okkur, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn 464
Gripur nr. 464. Hvít undirskál, emaleruð með blárri rönd við kantinn. Skálin er frekar djúp og hefur mögulega verið notuð sem, öskubakki.
Minjasafn 22
Gripur nr. 22. Hárklippur með kambi. Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti Skagaströnd
Sigurður Bjarnason - safn 004
Þessir krakkar er öll skyld á einn eða annan máta. Hér eru þau í sparifötunum sínum, sennilega einhverntíma kringum 1960. Frá vinstri: Ingþór Þorfinnsson, Jón Örn Berndsen, Fritz Magnús Bjarnason, Sigrún Kristófersdóttir, Gunnbjörn Valur Berndsen og Sigurður Skagfjörð Bjarnason. Líklega var myndin tekin í Gamla skólanum - Bjarmanesi.
Minjasafn 378
Gripur nr. 378. Mjög gamall og fúinn spegill. Ramminn utan um hann er úr tré o er brún/grænleitur með útskornu munstri.
Minjasafn 509
Gripur nr. 509. Kefli úr tré með svörtu garni vöfðu á.
Minjasafn 588
Gripur nr. 588. Lukt botninn er stállitaður og skermurinn grænn. Er með löngu haldi. Ca 35 cm á hæð.
Minjasafn 666
Gripur nr. 666. Dúkka úr plasti. Vantar á hana handleggina og það er hola inn í magann á henni. Svarthærð og í hvítum skóm.
Minjasafn 196 no2
Gripur nr. 196. Vaskafatakanna frá servanti. Vaskafatið er brotið. Kannan er hvít með rauðum rósum og grænum blöðum á miðri könnu. Hæð 29 cm og ummál 58 cm. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1990.
Minjasafn 459
Gripur nr. 459. Stór, drapp - brúnn diskur.
Minjasafn705
Horfið hús, Sóllundur, stóð þar sem nú er Hólabraut 8. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1994 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Sigurður Bjarnason - safn 027
Anna Bjarnadóttir frá Bjargi.
Minjasafn686
Síldarsöltun á bryggjunni á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndina tók Pétur H.J. Jakobsson en hún er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, gefin af hjónunum Jónasi Tryggvasyni og Þorbjörgu Bergþórsdóttur á Blönduósi.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn120
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Dagnýju Marín Sigmarsdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 253
gripur nr. 253. Mjólkurkanna úr hvítum leir. Er með bláum rósum og einnig er blátt efst á barminum. Hæð 19 cm. Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd og átti móðir hennar könnuna. Gefin í júlí 1994.
Minjasafn 402
Gripur nr. 402. Kassi 19 hefur að geyma fornminjar sem eru óskráðar og þurfa því fagfræðilega greiningu.
Minjasafn767
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Tunnurnar á myndinni hafa líklega verið notaðar í tunnuboðhlaupi sem var lengi einn af föstum viðburðum á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Minjasafn762
<p>Aftan á þessari mynd stendur: <em>"M/b Farsæll ca 6 tonn. Árni Guðmonsson og synir áttu bátinn. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996"</em>. Líklega er myndin af Farsæli St 42 sem eigendurnir fluttu með sér þegar þeir fluttu til Skagastrandar frá Strandasýslu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.</p>
Minjasafn 27
Gripur nr. 27. Mynd af Hallgrími Ottóssyni í brúnum ramma.
Sigurður Bjarnason - safn 042
Ragnar Guðmundsson og Anna Andrésdóttir (d. 4.9.1998) frá Röðli.
Höfðaskóli098
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1950 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Rúnar Þór Ingvarsson, Ingþór Þorfinnsson, Árni Ingibjörnsson, Andrés Árni Baldursson, Stefán Jósefsson og Páll Jónsson skólastjóri. Miðröð frá vinstri: Sólveig Georgsdóttir, Signý Ástmarsdóttir, Sóley Benjamínsdóttir, Alda Jónsdóttir og Særún Jónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Stefanía Guðjónsdóttir, Árný Viggósdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir (d.5.8.2019), Jóhanna Ásmundsdóttir, Matthildur Hafsteinsdóttir og Brynja Axelsdóttir.
Minjasafn 190 no2
Gripur nr. 190. Lampafótur. Járnstétt á þremur fótum. Í miðju er rennt tré með ábrenndri mynd af Skógarfossi. Járnstykki efst. Vantar bæði snúru og perustæði. Hæð 23 cm. Gefandi Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 39
Gripur nr. 39. Óinnrömmuð mynd af brúðhjónum. Fólkið ekki þekkt. ( E.t.v. er um að ræða mynd sem fylgdi römmunum og var tekin úr áður en ný mynd var sett í rammann. )
Minjasafn 426
<p>Gripur nr. 426. Tveir vegglampar. Gyllt umgjörð og blómamynd á skermi. Dálítið kínverskur stíll á þeim. </p>
Höfðaskóli022
Börn fædd 1980 í 6. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn677
Guðmundur Rafnsson (d. 23.9.1968) Sunnuhlíð á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi myndarinnar var Ása Jóhannsdóttir Læjarbakka, Skagaströnd.
Minjasafn 53
Gripur nr. 53. Brúnn rammi sem geymir tvær myndir af systkinunum Birni Ólafssyni og Björgu Ólafsdóttur frá Árbakka. Gefandi: Helga Berndsen.
Minjasafn741
Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 566
Gripur nr. 566. Rakhnífur svartur á lit. Er í svartri pappaöskju. "Gustav Felix Solingen" stendur á öskjunni.
Minjasafn 477
Gripur nr. 477. Pappakassi með hnífapörum, pískara og eggjaskera.
Minjasafn719
Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) Sóllundi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen frá Karlsskála 12. september 1996.
Minjasafn 347
Gripur nr. 347. Hengilás. "L...L Secure self acting sprung Lock " stendur framan á lásnum.
Höfðaskóli018
Börn fædd 1984 í 2. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn 175
Gripur nr. 175. Skeljakassi 20 cm langur og 14 cm breiður. Á kassann eru límdar skeljar og kuðungar. Aðallitur á kassanum er brúnn.
Minjasafn733
María Birgitta Berndsen (d. ?). Aftan á þessari mynd stendur:<em> "María Birgitta Berndsen 01.1940. Gef. Helga Berndsen Karlsskála".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 016
Ernst Berndsen vinnur við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar ásamt fleirum. Maðurinn í baksýn er líklega Kári Lárusson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn217
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þorlák Sveinsson sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 615
Gripur nr. 615. Reiknivél, ljósgrá á litin. Er merkt "FACIT". Með svörtum og rauðum tökkum. Tengist rafmagni.
Minjasafn 244
Gripur nr. 244. Klukka í brúnum viðarkassa. Máluð gyllt á framhlið. Á klukkunni eru rómverskar tölur. Var í eigu móður gefanda (Kristínar Jónsdóttur). Gefandi telur að klukkan sé síðan fyrir aldamót (1898). Klukkan stendur á smá stétt. Lykillinn fylgir með. Breidd 17 cm og 30 cm á hæð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í júní 1980.
Minjasafn757
Um þessar mundir (mars 2023) eru tæp 62 ár síðan óhugur og sorg ríkti meðal fólks á Skagaströnd. Ástæðan var að bræðurnir Hjörtur Hjartarson, sem er til vinstri á myndinni, og Sveinn Hjartarson frá Vík fórust í sjóróðri á Húnaflóa á bát sínum Skíði Hu 8, 22. nóvember 1961. Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt af málinu hinn 23. nóvember 1961: "Óttast að tveir bræður hafi farizt. Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag. — Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa. Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur og sjálfur stundaði sjómennsku.<br>Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi. Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst. Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi og inn, en árangurslaust. Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór og hríð. Varðskipið Óðinn kom á vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun en hafði einskis orðið vart. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn, en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn 484
Gripur nr. 484. Dúkar af ýmsum stærðum. Gefandi: Hildigunnur Jóhannsdóttir Stórholti, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn 324
Gripur nr. 324. Pressujárn. Pressujárnið var hitað á eldavél síðan var pressað með því. <strong>05</strong> stendur aftan á því. Lengd 21 cm. Er frá Lækjarbakka. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í septembr 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn102
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ragnar Jónsson sem var starfsmaður við nokkrar sýningar Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn199
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir William Sillar sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 480
Gripur nr. 480. Dúkur úr hvítum bómullarjafa. Saumaður af Sigríði Þorkelsdóttur frá Barkastöðum. Gæti verið 150- 160 ára gamall.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn210
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðrúnu Bóel Hallgrímsdóttur sem þátt tók í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1987 - 1989.
Minjasafn 11
Gripur nr. 11. Hekluð treyja, ermalaus svört og rauð. Tvíhneppt með silfruðum hnöppum. Hún er síðan um 1880. Eigandi var Ingibjörg Stefánsdóttir frá Engihlíð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 648
Gripur nr. 648. Flaska úr gleri með korktappa. Þrístrend með íhvolfar hliðar.
Minjasafn 223
Gripur nr. 223. Kertastjaki, gylltur með snúnum fæti og 7 cm breiðri stétt. Óli Jónasson frá Fjalli á Skaga átti stjakann og var þetta eini skrauthluturinn sem hann lét eftir sig þegar hann lést. Gefandi var mágkona hans. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 142
Gripur nr. 142. Járn, ekki vitað til hvers notað. Stendur á því <strong>Bjarg</strong>. Gulllitað. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 403
Gripur nr. 403. Lítið sigti úr áli. ca 10 cm á breidd.
Sigurður Bjarnason - safn 012
Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) frá Vík, seinna Blálandi á Skagaströnd, með óþekkt barn sumarið 1971.
Minjasafn 348
Gripur nr. 348. Hengilás, brúnleitur, ryðgaður.
Höfðaskóli046
Börn fædd 1992 í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Þórir Óskar Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson, Elías Kristinn Sæmundsson og Guðjón Karl Guðjónsson. Miðröð frá vinstri: Laufey Inga Stefánsdóttir, Jensína Lýðsdóttir kennari, Berglind Guðmundsdóttir kennari og Þórður Indriði Björnsson. Fremsta röð frá vinstri: Sólrún Ágústa Ingibjörg Magnadóttir og Laufey Sunna Guðlaugsdóttir.
Minjasafn 338
Gripur nr. 338. Hálsfesti. Ljósgrænar og ljósdrapplitaðar perlur og sívalningar. Ekki vitað úr hverju þær eru, etv. úr plasti eða gleri. Lengd 41 cm. Vantar læsingu. Líklega úr eigu Magdalenu Helgadóttur Efri-Læk (d. 1954). Fannst í kommóðu frá Efri-Læk (1994). Kommóðan kom líklega í safnið 1978.
Minjasafn 595
Gripur nr. 595. Áldunkur notaður til að geyma kökur og smábrauð. 17 cm djúpur og 70 cm að ummáli. Er með utanáfelldu loki.
1
…
105
106
107
…
167
Leita í myndasafninu
Leita