Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn116
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Kristján Blöndal sem lék í sýningu klúbbsins og var einnig tónlistarmaður við sýningu á sínum tíma.
Minjasafn 492
Gripur nr. 492. Mjög fallegur eðal- olíulamp úr postulíni. Aðpallitur er hvítur og svo er hann blár neðst á fæti og ofan á toppi. Er í laginu eins og bikar. Skreyttur rómantískum myndum af pari og blómamyndum í kring. Gylling á eyrum/höldum og á nokkrum öðrum stöðum. Lampaglas úr gleri er með.
Minjasafn 410
Gripur nr. 410. Járnkarfa úr eigu Körlu Helgadóttur með margs konar dóti; bollar, djúpur diskur, snagi, gamalt ilmkerti o.fl.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 018
Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) uppi á þakinu og Kári Lárusson við þakkantinn, vinna við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Minjasafn 534
Gripur nr. 534. Lítið skóhorn úr horni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 009
Ernst Berndsen, yfirvélstjóri á togurum Skagstrendings hf, við vinnu um borð í einum þeirra.
Minjasafn 528
Gripur nr. 528. Áldiskur með upphleyptri mynd af skipum á sjó. Hægt er að hengja diskinn upp.
Minjasafn 661
Gripur nr. 661. Skautapar úr tré og járni. Er með leðurólum til að festa þá á fæturna.
Minjasafn 280
Gripur nr. 280. Lyklahús sem er eins og skápur og er skrárgat í miðju framan á. Lyklahengikrókar eru inni í skápnum og eru tvær hurðir á lömum á framhlið. Skápurinn er úr brúnum við. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 212 no2
Gripur nr. 212. Borðlampi úr gleri. Á honum er mynd af konu í gulum og rauðum kjól. Er með litlum rauðum skermi. Hæð 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1988.
Höfðaskóli024
Börn fædd 1978 í 8. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn 406
Gripur nr. 406. Kúpull fyrir loftljós með einni peru. Hvítt gler með skrúfgangi efst.
Minjasafn 469
Gripur nr. 469. Fjögur stykki eggjabikarar úr plasti. Svartur fótur en staupið sjálft er rautt.
Minjasafn 471
Gripur nr. 471. Einfaldur spegill. Enginn rammi en það er þykk "gullrönd" þvert yfir neðstu og efstu brún spegilsins.
Höfðaskóli020
Börn fædd 1983 í 3. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn202
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Friðberg Stefánsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 623
gripur nr. 623. Lítill trérammi, brúnn með tígulmunstri með rauðu í. Stærð: 10 x 15 cm.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn087
Á myndinni sést vel hluti af síldarfæribandi sem flutti síld frá skipum upp í verksmiðju þegar við átti. Bryggjan var líka vinsæll dorgveiðistaður og ef grannt er skoðað sjást þrír dorgveiðimenn á myndinni. Þeir eru óþekktir nema ljóshærði drengurinn, sem er Ólafur Bernódusson.
Minjasafn800
Gísli Árni RE 375. Stærð 355 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1965 í Noregi. Vél Wichmann 700 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 286
Gripur nr. 286. Kaffikanna úr áli með svörtu haldi og einnig hnúð á loki. Hæð 23 cm. Hringur fylgir einnig með sem er fyrir könnupokann. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey Vindhælishreppi. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Minjasafn777
Þessi mynd af Árnesi var tekin 1947. Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, er nú rekið sem safn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 251 no2
Gripur nr. 251. Útskorin (tálguð) barnagull, líklega úr ýsubeini níu stykki. Þetta er í fuglslíki , smá búkur (engir fætur) og teygja hálsinn upp. Hæð frá 2,1 cm - 3,6 cm. Einnig eru tvö stk. líklega skorin úr viði. Eru líklega kýr. Hæð 3 cm og lengd 3,7 cm. Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi gaf þetta og telur hún líklegt að maður hennar Jón Sumarliðason eða synir hans hafi skorið þetta út. Gefið í mars 1995.
Minjasafn 449
Gripur nr. 449. Heklaður, ílangur dúkur. Hefur sennilega verið hvítur einu sinni en er nú bleik-drappaður.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn044
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þeir Jón Hallur Pétursson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri. í senunni, sem myndin er af, hafði Jón hafði fengið flís í augað og Magnús var að reyna að fjarlægja hana.
Minjasafn 380
Gripur nr. 380. Tvær teiknaðar myndir frá 1950 af manni með undihöku og í jakkafötum. Á annarri horfir hann upp og á hinni horfir hann niður. Myndirnar eru í sinnhvorum brúna rammanum.
Minjasafn 44
Gripur nr. 44. Mynd af fjórum mönnum í smelluramma. Mennirnir eru Björgvin Jónsson, Björn Þorleifsson, Páll Jóhannesson og Pálmi Sigurðsson.
Minjasafn 619
Gripur nr. 619. Platti, brúnn og ljósbrún-drappaður úr leir/postulíni. Á honum stendur: "KÁNTRÝBÆR" "Nashville Cowboy" og fleira.
Minjasafn775
Þessi mynd af Bjarmanesi var tekin 1943. Eftir það var byggt bíslag og tröppur við húsið að austanverðu (hliðin sem snýr að okkur) en síðan var það rifið aftur og húsið sett í sitt upprunalega horf eins og það er á þessarri mynd. Húsið var lengi notað sem skóli en er nú kaffi- og samkomuhús í eigu sveitarfélagsins. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júní 1996.
Minjasafn 277 no2
Gripur nr. 277. Snældustóll, viðarlitaður 29 cm langur, breidd 13,5 cm og 28 cm hár. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd. Björn var fæddur í maí 1897.
Minjasafn 563
Gripur nr. 563. Sláturnálar sem fundist hafa hingað og þangað.
Mindasafn 123
Gripur nr. 123. Gylltur rammi með konumynd, 9 x 15 cm. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í ágúst 1994. Myndin er úr búi foreldra hennar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn184
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru Ólafur Bernódusson og Elín Njálsdóttir í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn374
Haustið 2003 kom forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn til Skagastrandar ásamt fylgiliði. Meðal annars leit hann við í Höfðaskóla við miklar vinsældir nemenda og starfsfólks þar. Á þessari mynd eru krakkarnir í 5. og 6. bekk að syngja fyrir forsetann í íþróttahúsinu. Röðin lengst til vinstri neðan frá og upp: Gunnar Sæmundsson, Ómar Ísak Hjartarson, Ástrós Vilhelmsdóttir, Sunna Gylfadóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Brynja Ágústsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Elna Ragnarsdóttir, óþekkt, Rósa Björg Rúnarsdóttir og Guðjón Örn Arason. Miðröð neðan frá og upp: Kristján Ýmir Hjartarson, Jóhann Örn Stefánsson, óþekktur, Óskar Björnsson, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Jóhann Berry, Helena Velemir, Sunna Guðlaugsdóttir og óþekkt. Röðin til hægri neðan frá og upp: Indriði Björnsson, Laufey Stefánsdóttir, Sólrún Ágústa, Hafrún Kristjánsdóttir, Karen Ósk Sigurðardóttir, Ragnar Björnsson, Sævar Tryggvason og tveir óþekktir.
Minjasafn 531
Gripur nr. 531. Tveir hnífar. A: er stærri með tréhaldi og lengra blaði. B: er minni með tréhaldi og stuttu blaði sem er mjög ryðgað.
Minjasafn 533
Gripur nr. 533. Álplata með skráargati og gati fyrir hurðarhún eða handfang. Hvít með upphleyptum hring meðfram kantinum.
Minjasafn 600
Gripur nr. 600. Tvö stykki fléttaðar bastkörfur. Misstórar með einu handfangi upp úr fyrir miðju. Sú minni er með leðuról þvert yfir, sem heldur köfunni saman.
Minjasafn 192
Gripur nr. 192.Tappatogari úr járni með keilulöguðum hring sem handfang. 10 cm langur. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 053
Vinnufélagarnir Valdimar Viggósson til vinstri og Bergþór Gunnarsson til hægri þvo sér um hendurnar að afloknum vinnudegi á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Minjasafn 168
<p>Gripur nr. 168. Vatnsflaska, glær 20 cm há breiðust í miðju, með mjókkandi stút upp. Vatnsglas fylgdi með þessum flöskum og var því hvolft ofan á stútinn. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.</p>
Minjasafn701
<p>Horfið hús, Rjúpnafell, en þar bjó lengst af Guðberg Stefánsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1988 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 047
Björn Sigmundsson vélstjóri og Ernst Berndsen yfirvélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf, líklega Örvari Hu 21.
Minjasafn 618 no2
Gripur nr. 618. Hvítur glerplatti merktur:" Kántrýbær - Skagaströnd, Villta vestrið".
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 067
Líklega var þessi mynd tekin á Strandgötu 10, heimili Karls Berndsen, í kaffiboði um jól fyrir starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.21995), Ernst Berndsen, Vilhelm Björn Harðarson og Gísli Snorrason. Næst okkur er hnakkinn á Jóhannesi Sveinssyni.
Minjasafn 26
Gripur nr. 26. Fantur, 14 cm á hæð og 26 að ummáli. Sprunginn á tveimur stöðum, skarð í brún. Leirinn er gulgrár, sléttur að utan með rauf í hring rétt neðan við brúnina. Úr búi Vilborgar og Árna frá Miðgili Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir réttarholti Skagaströnd í febrúar 1977.
Sigurður Bjarnason - safn 024
Hjónin Friðbjörg Oddsdóttir og Ingólfur Skagfjörð Bjarnason (d. 17.1.1967) frá Bjargi.
Höfðaskóli067
Börn fædd 1983 í 9. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Bernódusson kennari, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Jón Oddur Hjálmtýsson, Gunnar Helgason, Vignir Örn Hafþórsson, Marta Kristín Jónsdóttir, Gunnlaugur Már Briem, Guðjón Ebbi Guðjónsson og Elva Mjöll Þórsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eyþór Örn Ernstson, Magnús Filip Sævarsson, Jón Gunnar Einarsson, Adolf Þór Lúðvíksson, Magnús Líndal Þrastarson og María Markovic.
Minjasafn 616 no2
Gripur nr. 616. Minjagripir um Kántrýbæ. Alls konar dót merkt Kántýbæ. M.a. tveir bolir, öskubakki, kveikjari, barmnælur og fleira.
Minasafn 504
Gripur nr. 504. Hárklippur úr stáli. Annað handfangið brotið af.
Minjasafn 476
Gripur nr. 476. Ostabakki úr hvítu plasti með loki yfir.Lokið er skreytt með bláum blómum.
Minjasafn729
Valný Benediktsdóttir (d.?) frá Brandaskarði. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum í október 1994.
Minjasafn 635
Gripur nr. 635. Blár bakki, sennilega eftirrétta - eða kaffibakki.
Minjasafn 481
Gripur nr. 481. Skál úr brúnleitu gleri með skornu munstri. Er sporöskjulaga.
Minjasafn 546
Gripur nr. 546. Skaftpottur, lítill með löngu haldi.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn163
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Jón Arnarson, Þórhildur Jakobsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Viggó Magnússon, Sigrún Jónsdóttir, Bergþór Gunnarsson, William Sillar og Hendrik Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 583
Gripur nr. 583. Mjólkurbrúsi 44 cm á hæð ( frá stút) og 68 cm að ummáli. Er með mjóan stút við opið en enginn tappi.
Minjasafn 133
Gripur nr. 133. Pennastöng, svört, 21 cm á lengd. Flöt á þrjá kanta þar sem maður heldur um. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 574
Gripur nr. 574. Segulbandstæki í brúnni leðurtösku með rennilás, sem passar akkúrat um tækið. Gamalt "spólutæki".
Höfðaskóli051
Börn fædd 1990 í 5. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Alma Eik, Sævarsdóttir og Katrín Björk Guðmundsdóttir. Miðröð frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Unnur Kristjánsdóttir kennari, Sunna Gylfadóttir og Lena Rut Jónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Ragnar Már Björnsson og Jóhann Már Jóhannsson.
Höfðaskóli090
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1968 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Óskarsson, Páll Jónsson, Þórarinn Ingvarsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Ársæll Ottósson, Jón Indriðason og Ingimar Oddsson. Fremri röð frá vinstri: Ingunn Guðríður Kristjánsdóttir, Kristín B. Karlsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn177
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Herborg Þorláksdóttir og Steindór Haraldsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
1
…
106
107
108
…
167
Leita í myndasafninu
Leita