Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 609
Gripur nr. 609. Ferðataska brún og drapplituð í "netmunstri". Hlífðarjárn eru á öllum hornum dálítið ryðguð. Læsingar sitt hvoru megin við haldið dálítið ryðgaðar. Merkispjald bundið við haldið.
Minjasafn732
Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Nikulás Helgason bóndi á Bakka og víðar á Skagaströnd, f. 26/2 1858 í Glaumbæ í Engihlíðarhreppi d. á Blunduósi ?".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 220
Gripur nr. 220. Kassetta með 100 íslenskum kvæðalögum. Kvæðamannafélagið Iðunn flytur. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 626
Gripur nr. 626. Álspaði fyrir steikingapönnur.
Minjasafn 95
Gripur nr. 95. Brúnn rammi með níu myndum af húsum á Skagaströnd, mörg þeirra horfin í dag. Myndirnar tók Guðrún Þ. Guðmundsdóttir af húsunum þegar átti að fara að rífa þau.
Minjasafn 562 no2
Gripur nr. 562. Mjór, lítill hamar. Skaftið er úr tré en hausinn úr járni.
Minjasafn 323
Gripur nr. 323. Skeifa með hóffjöðrum öðru megin. Undan Hólarauð frá Höfðahólum. Rauður var notaður við að hræra steypuna í Lækjarbakka þegar það var byggt 1945. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 139
Gripur nr. 139. Reglustika 40 cm löng úr ljósum viði, hvít málning á helmingi hennar sem sýnir cm kvarða. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994..
Sigurður Bjarnason - safn 032
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn776
Horfið hús. Ægissíða er löngu horfin en húsið stóð á horninu rétt sunnan við Réttarholt. Konan í dyrunum er líklega húsmóðirin í Ægissíðu, Klemensína K. Klemensdóttir (d. 12.6.1966). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Eðvarð Ingvason.
Minjasafn737
Hindenburg Hu 45 í eigu Ole Aamundsen í Lundi kemur úr róðri. Skipstjóri á bátnum var Indriði Brynjólfsson frá Ytri - Ey en hásetarnir eru óþekktir. Hindenburg var tæp fjögur tonn að stærð. Myndin, sem sennilega var tekin einhverntíma kringum 1940, er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn724
Björg Ólafsdóttir (d. 1953) frá Árbakka. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 12. september 1996.
Sigurður Bjarnason - safn 044
Jóhann Skagfjörð Bjarnason (d. 14.9.2015) situr með bróður sinn Fritz Magnús Bjarnason á hnjánum. Þeir bræður voru báðir kenndir við Bjarg á Skagaströnd.
Minjasafn 93 no2
Gripur nr. 93. Brúnn rammi með mynd af Sigurði Jónssyni.
Sigurður Bjarnason - safn 031
Geirlaug Sigfúsdóttir (d. 20.9.1964) í Reykholti.
Minjasafn673
Ballferð í Búðardal 1941 - 1942 farin á vörubíl með tvöföldu húsi. Efst á húsinu stendur NORÐURBRAUT og á skiltinu bak við fólkið stendur : Afgreiðsla Bifreiðastöð Akureyrar. Fólkið á myndinni er, talið frá hægri: Guðrún Sigurðardóttir Brimnesi, óþekktur, Sigurlaug Stefánsdóttir (kona Ragnars Þorsteinssonar), Jörgen Berndsen, Elísabet Berndsen, Elísabet Frímannsdóttir, Hulda Pétursdóttir, Margrét Pétursdóttir, Sveinberg Jónsson bílstjóri, Sigríður Ásgeirdóttir, Sigfús Andrésson , Carla Berndsen, Fritz Berndsen, Bertel Björnsson, Finnur Frímannsson, Hrólfur Jónsson og Hallgrímur Jónsson frá Ljáskógum. Myndin tilheyrir Muna- og Minjasafninu á Skagaströnd en gefandi hennar var Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka, Skagaströnd
Minjasafn 422
Gripur nr 422. Lítill heklaður dúkur, hvítur á lit.
Minjasafn 8 no2
Gripur nr. 8. Tvennar nærbuxur úr hvítu lérefti, tvær stærðir. Þær eru hnésíðar með blúndu á skálmum. Þetta er sýnishorn af nærfatnaði kvenna frá 1905. Þá var ekki horft í tíma og vinnu við gerð þessarar hluta. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur Miðgili Langadal. gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 423
Gripur nr. 423. Platti úr líni. Blátt efni með útsaumuðum gulum blómum. Tveir vasar framan á.
Minjasafn749
Marta Guðmundsdóttir (d. 31.3.1957) frá Lækjarbakka með tvö óþekkt börn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka 1995. Ef þú þekkir börnin á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 089
<p> Einar Haukur Arason til vinstri og Bjarni Ottósson til hægri vinna við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar - eldri hluta.</p>
Höfðaskóli011
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og seinna bókavörður við Höfðaskóla, við vinnu sína.
Minjasafn 115
Gripur nr. 115. Tréklemmur sex stykki með gömlu lagi. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 613
Gripur nr. 613. Reiknivél, svört með handsveif. "VICTOR" stendur framan á henni. Pappírsrúllan er ennþá í.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 072
Myndin var tekin í kaffi á Strandgötu 10, heimili Karls Berndsen, á óþekktum tíma. Frá vinstri: Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001), Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) og Hjörtur Guðbjartsson.
Höfðaskóli019
Börn fædd 1985 í 1. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Höfðaskóli030
Börn fædd 1978 í 5. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Bjarnhildur Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Kolbrún Ragnarsdóttir og Viðar Guðmundsson. Miðröð frá vinstri: Arnar Ólafur Viggósson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Gunnar Ómarsson, Sigurður Berndsen, Elín Ósk Ómarsdóttir, Pétur H. Herbertsson, Jón Örn Stefánsson, Hjörtur Guðmundsson og Hjördís Þórðardóttir kennari. Fremsta röð frá vinstri: Halla Kristín Árnadóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Ólína Laufey Sveinsdóttir og Árný Guðrún Ólafsdóttir.
Minjasafn 527
Gripur nr. 527. Trjábútur sem búið er að líma á nokkrar tegundir jurta úr íslenskri náttúru.
Minjasafn 450
Gripur nr. 450. Hvít postulíns/leir-kanna með glerungi. Rautt munstur meðfram haldi og á brúnum.
Minjasafn 540
Gripur nr. 540. Flatt málm-málband sem rúllast upp á hjól og er í stativi með handfangi svo hægt sé að halda á þessu. Á hliðinni er sveif svo hægt sé að vinda málbandið inn á miðjuhjólið. Krókur er á enda málbandsins.
Minjasafn707
Horfið hús, Stóra-Berg, stóð suð-austur af Hólaneskirkju. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 054
Á þessari mynd, sem var tekin í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf, eru: Gísli Snorrason frá Vélaverkstæði Karls Berndsen, sem beygir sig fram yfir viðfangsefnið, Jón Indriðason vélstjóri, með heyrnahlífarnar, Ernst Berndsen vélstjóri, í ljósbláum samfestingi, og sonur hans Friðvin Ingi Ernstson. Allir eru þeir greinilega að vinna við vél togarans.
Höfðaskóli071
Börn fædd 1987 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Karl Alexander Jóhannsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson og Hanna Rúna Gestsdóttir. Miðröð frá vinstri: Björn Viðar Jóhannsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Friðvin Ingi Ernstson og Unnur Kristjánsdóttir kennari. Fremsta röð frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Rósa Björg Einarsdóttir.
Höfðaskóli043
Börn fædd 1988 í 10. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Björgvin Matthías Hallgrímsson, Sindri Jóelsson, Ívar Gylfason, Arnór Snorri Gíslason, Ómar Ingi Ómarsson, Sigurgeir Snævar Árnason og Jón Atli Magnússon. Miðröð frá vinstri: Óðinn Örn Sævarsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Birkir Rúnar Sigurhjartarson (d. 13.6.2009) kennari, Friðbjörn Óskar Erlingsson og Oddur Aron Valdimarsson. Fremsta röð frá vinstri: Fjóla Dögg Björnsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og Valgerður Guðmundsdóttir.
Minjasafn 473
Gripur nr. 473. Staup /skotglas fyrir áfengi. Glært gler með gylltum röndum og einni rauðri rönd og einni silfraðri rönd.
Minjasafn 523
Gripur nr. 523. Sykurkar, hvítt úr leir með glerungi, orðið ljótt að innan.
Höfðaskóli081
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1953 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Böðvar H. Jónsson, Ólína Bjarnadóttir, Gylfi Jóhannsson og Sveinn Másson. Miðröð frá vinstri: Sigurður Þorbjörnsson, Gísli Bergsson, Jón Geir Jónatansson, Jón Gunnar Jósefsson, Finnur Kristinsson og Guðmundur Kristinsson. Fremsta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Halla Júlíusdóttir, Elínborg Jónsdóttir kennari, Edda Þórarinsdóttir og Ingibergur Guðmundsson.
Minjasafn 101
Gripur nr. 101. Teiknuð mynd í ljósum viðarramma af Gunnari Grímssyni fyrrverandi kaupfélagsstjóra. Var myndin höfð í Höfðaútibúi á skrifstofunni. Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri lánaði safninu myndina í maí 1994.
Höfðaskóli052
Börn fædd 1994 í 1. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Telma Dögg Bjarnadóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Stefán Velimir og Elías Gunnar Hafþórsson. Miðröð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir kennari, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Ellen sigurjónsdóttir og Tanja Rán Einarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Einar Kristberg Einarsson, Sindri Snær Guðmundssson, Guðjón Páll Hafsteinsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson og Ingimar Gísli Guðjónsson.
Minjasafn 642
Gripur nr. 642. Kvenmannsveski úr grænu köflóttu efni en er með svörtu leðri á hliðum, köntum og á haldi. Er lokuð með rennilás.
Höfðaskóli053
Börn fædd 1991 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Sævar Hlynur Tryggvason, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Jóhann Örn Stefánsson og Hanna María Gylfadóttir. Miðröð frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Helena Mara Velimir, María Dröfn Einarsdóttir og Eyþór Vilhjálmsson. Fremsta röð frá vinstri: Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Elna Ragnarsdóttir og Aðalheiður Ragnarsdóttir.
Minjasafn782
Húni Hu 1. Báturinn var smíðaður úr stáli í Austur Þýskalandi 1957, 75 tonn að stærð með 280 hestafla MWM vél. Húni var smíðaður fyrir Húnvetning hf á Skagaströnd. Báturinn fórst út af Hópsnesi með 8 manna áhöfn 2. mars 1976 en hafði þá nafnið Hafrún ÁR og var löngu kominn úr eigu Húnvetnings hf. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála á Skagaströnd 6.maí 1996.
Minjasafn793
Hrafn Sveinbjarnarson GK 10. Stærð 110 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í Noregi. Vél Alpha-Diesel 385 hestöfl. Heimahöfn Grindavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 585
Gripur nr. 585. Mjólkurbrúsi 20 cm á hæð og 45 cm að ummáli. Opið á brúsanum er dálítið beyglað svo að lokið kemst ekki alveg ofan í. Er með haldi.
Minjasafn 483
Gripur nr. 483. Sykurkar úr glæru gleri með útskornu munstri. Er með tvö eyru/handföng, eitt hvorum megin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn129
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni er Ágústa Friðriksdóttir, standandi, að fylgjast með Súsanna Þórhallsdóttir að gera leikfimiæfingar.
Minjasafn 376
Gripur nr. 376. Tvö stykki brúnir rammar, nýlegir. Í öðrum þeirra er: "Reikningur frá verzlun Carl Berndsen á Hólanesi". Í hinum rammanum er: "Reikningur frá Verslunarfélagi Vindhælinga. Hólanesi".
Minjasafn736
Bátar í höfninni á Skagaströnd. Lengst til vinstri er Ludendorf Hu 46, Hindenburg Hu 45 í miðju, en þá báta átti Ole Aamundsen í Lundi. Síðan kemur Stóri Gulur sem var í eigu Ernst Berndsen frá Karlsskála. Fjórði báturinn, sá minnsti, næst lengst til vinstri, er óþekktur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: María Magnúsdóttir Asparlundi á Skagaströnd í janúar 1995.
Minjasafn 656 JPG
Gripur nr. 656. Stólkollur eða lítið borð. Úr tré málaður ljósblár. Fjórir fætur og rammi utan um fæturna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 535
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) var sjómaður lengst af æfinnar og átti þess vegna oft erindi niður á höfn þar sem þessi mynd var tekin.
Minjasafn 194
Gripur nr. 194. Vatnsglös 2 stk með stúlkumyndum. Hæð 12 cm. Stendur 1900 og 1930 - 1890 á þeim en glösin eru ekki frá þeim tíma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Höfðaskóli002
Nemendur fæddir 1991 fá afhent skírteini sín við skólaslit Höfðaskóla líklega 2005 eða 2006. Nemendurnir eru, frá vinstri: Elna Ragnarsdóttir, Helena Mara Velemir, Heiðmar Kristjánsson, Sævar Tryggvason, Patrik Snær Bjarnason, Ingimar Vignisson, Jóhann Örn Stefánsson og Rósa Björg Rúnarsdóttir.
Minjasafn 429
Gripur nr. 429. Lítil tré askja. Lokið skreytt með máluðum laufum og hálfu epli.
Minjasafn 614
Gripur nr. 614. Reiknivél, svört með grænum, rauðum, hvítum og bláum tökkum. Tengist rafmagni.
Höfðaskóli066
Börn fædd 1987 í 5. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Kristinn Andri Hjálmtýsson, Eyþór Kári Egilsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Elva Þórisdóttir kennari. Fremri röð frá vinstri: Björn Viðar Jóhannsson, Friðvin Ingi Ernstson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir og Rós Björk Einarsdóttir.
Minjasafn744
Pálmi Sigurðsson (d. 21.4.1992) Pálmalundi (Hólabraut 27) á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn786
Þessi mynd var tekin af mönnum við köfunarstörf. Kafarinn með hjálminn er Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) en sá sem er að klæða hann, og snýr baki í okkur, er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Maðurinn í köflótta jakkanum er Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) en hann var verkstjóri og var í sambandi við Guðmund gegnum talstöð meðan hann var í kafi. Guðmundur var kafari í mörg ár og kafaði víða í höfnum á Íslandi. Á myndinni er Karl Berndsen (d. 12.2.1995) í "frosk-kafara" búningi lengst til vinstri en hinir tveir eru óþekktir. Hjólin, sem Karl og óþekkti maðurinn með húfuna halla sér upp að, var loftdælan sem notuð var til að dæla lofti niður í búninginn hjá Guðmundi kafara. ( Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrönn Árnadóttir Hólabraut 14, Skagaströnd).
Minjasafn 69
Gripur nr. 69. Brúnn rammi með 12 myndum af bátum og fólki.
Minjasafn796
Rán SU 58. Stærð 56 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í Danmörku. Vél Deutz - Diesel 230 hestöfl. heimahöfn Fáskrúðsfjörður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn224
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðmundu Ólafsdóttur sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
1
…
107
108
109
…
167
Leita í myndasafninu
Leita