Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón076
Arnarborg HU 11 fánum prýdd í slippnum á Skagaströnd. Myndin sennilega tekin við vígslu slippsins 1985
fram023
Beðið við lokamarkið í víðavangshlaupi Landsbankans ca 1985.
Jón092
Gluggaskreytingar í suðurgluggum Höfðaskóla um jólin 1984

fram099

Verðlaunahafar í víðavangshlaupi umf. Fram. Frá vinstri: Ólína Sveinsdóttir, Salóme Rúnarsdóttir með systur sína Önnu Dúnu Rúnarsdóttur og lengst til hægri er Kolbrún Ragnarsdóttir.

fram098
Þátttakendur í einum flokki í víðavangshlaupi umf. Fram tilbúnir að rjúka af stað. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum sennilega 1. maí eða næstu tvo laugardaga þar á eftir. Mikill snjór ennþá.
Óþekkt071
Þessi kranabíll fór í sjóinn þegar verið var að hífa upp trillu sem hafði sokkið við Skúffugarðinn. Undirstaða undir kranann gaf sig þegar á reyndi og því fór bílinn í sjóinn. Hér er verið að ná bílnum upp með öflugum krana.
fram062
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Sigurvegarar í 25m baksundi. Frá vinstri 1. sæti Unnur Hreinsdóttir, 2. sæti Hafdís ??, 3. sæti Guðrún Pálsdóttir.
Mundi242
Á 30 ára afmæli ungmennafélagsins Fram, veisla í Tunnuni.
fram106
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Hjörtur Guðmundsson umf. Fram kastar kúlu.
Óþekkt092
Kindur hífðar um borð í skip eða frá skipi í Skagastrandarhöfn. Tilefnið er óþekkt. Mennirnir á myndinni eru Jónas Skaftason til vinstri og Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum til hægri. Konan á myndinni er óþekkt.
fram036
Íþróttamenn með verðlaun sín um hálsinn árið 1990. Frá vinstri: Björn Björnsson, Daníel Smári Guðmundsson og Kristinn Guðmundsson. Lengst til vinstri situr Hrólfur Pétursson.
fram084
Talið frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, María Marcovic, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Erla Pálsdóttir, Rebekka Ólafsdóttir, Karen Karlsdóttir, Þóra Lísbet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, ókunn, Bára Kristinsdóttir. Myndin var líklega tekin árið 1988 á víðavangshlaupi. Þetta er aldursflokkurinn 0 - 6 ára sem keppti sér í riðli en 7 - 9 ára í þeim næsta.
Jón020
Vorstemning við Skagastrandarhöfn.
Jón103
Stúlkurnar í snjónum fyrir utan Bogabraut 26 eru frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir og Bjarnhildur Níelsdóttir.
fram094

Hluti þátttakenda í víðavangshlaupi umf Fram. Frá vinstri: Óþekkt, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Elín Ómarsdóttir, þrír óþekktir og Bergþóra Huld Guðjónsdóttir. Í forgrunni til hægri er Guðrún Elsa Helgadóttir.

mundi327
Ragnar Ingvarsson á fermingardaginn sinn vorið 1968.
Mundi299
Fermingarmynd af Þórgunni Snædal vorið 1962.
Mundi261
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), hann stendur líklega fyrir utan Hofskirkju.
Mundi285
Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) leikur myndastyttu í ókunnu leikriti. Konana er Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) en hún átti að vera að þrífa styttuna.
mundi374
Tilefni þessarar myndar er óþekkt en á henni eru, frá vinstri: Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986), Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), Karlotta ?? og Sigurður Kristjánsson.
fram057
Héraðsmót USAH í sundi 1977. 25m baksund. Frá vinstri:Hafdís ??, Unnur Hreinsdóttir og Lára Guðmundsdóttir,
fram116
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 100m hlaup telpna. Kolbrún Viggósdóttir umf. Fram er önnur frá vinstri
fram061
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Sigurvegarar í 50m bringusundi. Frá vinstri: 1. sæti Díana Kristjánsdóttir, 2. sæti Unnur Hreinsdóttir, 3. sæti Guðrún Pálsdóttir.
fram034
Myndin er tekin 24. júní 1990 en ekki er vitað hvar. Á myndinni eru frá vinstri: Ingunn María Björnsdóttir frá Syðra-hóli, Guðný Finnsdóttir frá Skagaströnd og Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir frá Húnsstöðum
fram071

Verðlaunaafhending á íþróttamóti á Bakkakotsvelli 1999. Á efsta palli er Eyþór Kári Egilsson og til hægri er Kristján Pétur Guðjónsson. Aðrir eru óþekktir.

fram013
Lárus Ægir Guðmundsson umf Fram tekur við verðlaunagrip úr höndum Magnúsar Ólafssonar frá Sveinsstöðum þáverandi formanns USAH. Ártal er óþekkt.
Mundi314
Steinnun Margrét Ellertsdóttir. Sennilega er myndin tekin um 1961
Mundi282
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni. Leikkonurnar eru, talið frá vinstri: Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og Þorgerður Bogadóttir.
fram119
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 800m hlaup pilta. Hjörtur Guðmundsson umf. Fram nálgast markið.
fram132
Héraðsmót USAH 1977. Karl Lúðvíksson stekkur lang- eða þrístökk
Jón081
Grímuball í Höfðaskóla 1984. Á myndinni má meðal annars þekkja Þröst Árnason í gulum bol lengst til vinstri. Rauðhærði drengurinn á gólfinu er Björn Sigurðsson og fyrir aftan hann stendur Svanur Árnason með áberandi bláan miða á bringunni.
mundi357

Ekki er vitað hver konan er né barnið. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Óþekkt091
Á pallinum frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Herborg Þorláksdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Þorvaldur Skaftason að skemmta með síldar-söngvum.
fram060
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Sigurvegarar í 25m bringusundi. Frá vinstri: 1. og 2. sæti Guðrún Pálsdóttir og Díana Kristjánsdóttir, 3. sæti Hulda ??.
Mundi236
Mynd innan úr Hólaneskirkju - eldri. Seinna var orgelið fært aftast í kirkjuna og stóri ofninn á miðri mynd var fjarlægður eftir að rafhitun var komið fyrir í kirkjunni.
Jón086
Leikskólabörn úr leikskólanum Barnaból á ferð með Kristínu Kristmundsdóttur og Báru Þorvaldsdóttur árið 1985. Börnin eru óþekkt. Í baksýn sést húsið Ásbyrgi, sem nú er horfið, lengst til vinstri.
Mundi301
Drengurinn á myndinni, sem var tekin 1962, er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
fram121
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Birna Sveinsdóttir umf. Fram keppir í langstökki.
fram070
Verðlaunahafar á íþróttamóti á Bakkakotsvelli 1999. Drengurinn lengst til hægri er Kristján Pétur Guðjónsson og sá í miðið er Haukur Geir Valsson en sá til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Mundi297
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni. Frá vinstri: Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966), Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) og óþekkt leikkona.
fram040
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Sigurbjörn Kristjánsson keppir í langstökki en Skúli Tómas Hjartarson heldur í málbandið.
Mundi270
Gígja Snædal og Þórgunnur Snædal. Myndin tekinn í Ægissíðu 1960

hem035
Fólk við dúntekju í æðarvarpinu í Eyjarey á hafísári.
fram045
Frjálsar iþróttir, innanhúss, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Hópurinn sem fór á mótið. Önnur frá vinstri er Guðbjörg Gylfadóttir, Guðrún Björg Berndsen og Kolbrún Viggósdóttir. Atftan við þær sér í Guðmund Hauk Sigurðsson.
fram050
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Ingibergur Guðmundsson mótsstjóri fyrir miðju. Guðrún Pálsdóttir og Lára Guðmundsdóttir í lauginni framan við hann.
Jón079
Skólaskemmtun í Höfðaskóla 1984. Stúlkan fremst á myndinni með rauða blöðru er Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna). Fyrir ofan hana sér í Soffíu Lárusdóttur.
Jón073
Þessi mynd er tekin þegar dráttarbrautin á Skagaströnd var formlega tekin í notkun 1985 . Ræðu flytur Adolf Berndsen (d.27.8.2018) oddviti og á hann hlýða m.a. alþingismennirnir Páll Pétursson (d.23.11.2020) og Stefán Guðmundsson (d.10.9.2011).
Jón088
Leikskólabörn úr leikskólanum Barnaból fyrir utan verslunina, þá kaupfélagið 1985. Erla María Lárusdóttir stendur í öftustu röð lengst til vinstri. Hægra megin við hana er Sigríður Olga Magnúsdóttir en lengst til hægri í þeirri röð er Vignir Hafþórsson í blárri úlpu og vinstra megin við hann er Karen Karlsdóttir. Lengst til vinstri í neðri röðinni (sitjandi) er Elva Dröfn Árnadóttir og við hlið hennar er Guðrún Ásta Guðmundsdóttir. Önnur frá hægri í neðri röð er Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir í rauðum stígvélum. Lengst til vinstri,standandi fyrir aftan Elvu Dröfn, er Trausti Magnússon.Aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir þá sem vantar nöfn á vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

fram043
17. júni mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Hrólfur Pétursson stekkur langstökk í flokki pilta 15 - 16 ára.
Jón097
Skólaskemmtun 1984. Skólahljómsveit Höfðaskóla spilar. Í hljómsveitinni eru frá vinstri: Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000), Ingvar Þór Jónsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Viggó Magnússon.
Mundi288
Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Guðrún Þórbjarnardóttir, Þórunn Bernódusdóttir og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) á sviði í gömlu Tunnunni í óþekktum hlutverkum.
Mundi291
Klemensina K. Klemensdóttir (d.12.6.1966) í Ægissíðu með köttinn sinn. Klemensína var móðir Guðmundar sem tók þessa mynd.
Mundi272
Gígja Snædal
Mundi266
Rúnar Sveinsson í Lundi
fram068

Myndin er tekin á Bakkakotsvelli 1999. Drengurinn í öðru sæti er Kristján Pétur Guðjónsson og í þriðja sæti er Leó Kristberg Einarsson. Drengurinn í fyrsta sæti er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Jón013
Tjaldbúðalíf á Kántrýhátíð. Maðurinn á myndinni heitir Heimir Baldursson og er frá Hvammstanga.
Jón112
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Viggó Magnússon og Hólmfríður Oddsdóttir sýna áhorfendum hverju maður á að klæðast til að vera fínn.
fram035
Mynd frá 1990. Víðir Ólafsson er lengst til vinstri. Hinir eru óþekktir. Ef þíu þekkir þá vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
img007
Myndin er tekin frá gömlu kirkjunni, fremst fyrir miðju er Eyri (Holt), vinstra megin er gamli Kántrýbær, sem þá var verslun. Myndin var tekin á áttunda áratugnum af óþekktu tilefni.
Óþekkt073
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn.
1

10
11
12

167
Leita í myndasafninu
Leita