Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari373
Þetta fólk hefur áð á ferðalagi sínu til að borða nestið sitt. Líklega var myndin tekin í Borgarvirki en ekki er vitað hvenær. Konan í grænleita jakkanum, ofarlega fyrir miðju á myndinni, er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Konan sem situr til hægri í blárri kápu er Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Sigurður Bjarnason - safn 034
Gísli Magnússon, maður Önnu Bjarnadóttur frá Bjargi, með óþekktum börnum á jólum.
Minjasafn 558
Gripur nr. 558. Tréhefill, gamall.
Minjasafn 425
Gripur nr. 425. Málverk af Bjarmanesi (Gamla skólanum) eftir Óskar Inga Óskarsson. Verkið sýnir húsið, séð frá suð-austri, eins og það leit út fyrir endurbyggingu á því þar sem m.a. tröppurnar og bísalagið á austurhliðinni voru fjarlægt.
Minjasafn 436
Gripur nr. 436. Lítill einfaldur járn-kertastjaki útataður í vaxi.
Minjasafn 342
Gripur nr. 342. Skruatkanna úr glær-rósóttu gleri. Var brotin en hefur verið límd saman. Hæð 10 cm og breidd 6 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 392
Gripur nr. 392. Pilkur/sakka með þríkrækju ca 20 cm á lengd. Notaður á færi til veiða í sjó.
Höfðaskóli038
Börn fædd 1996 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Aron Snær Fannarsson, Ívan Árni Róbertsson, Einar Ari Einarsson, Arnar Páll Guðjónsson og Huginn Frár Guðlaugsson. Miðröð frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Björk Hlöðversdóttir kennari, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir, Valgerður Sif Indriðadóttir og Eik Guðmundsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Freyja Sif Einarsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Guðrún Helga Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 519
Flot-björgunarbúningar prófaðir í höfninni á Skagaströnd. Frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson, Ragnar Högnason, Þorvaldur Skaftason og Sigurbjörn Björgvinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 504
Þetta par, Ragnar Ingvarsson og Kristín Jónsdóttir, sem hér róa saman á litlum bát, hafa lengi róið saman gegnum lífið. Þau eru nefnilega hjón og foreldrar þriggja barna.
Minjasafn 568
Gripur nr. 568. Penni, blár með tveimur gylltum gjörðum, einni við samskeytin og hinni efst við toppinn. Með "fjaðra-oddi"/lindarpenni.
Höfðaskóli039
Börn fædd 1990 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Ómar Ísak Hjartarson, Jóhann Már Jóhannsson og Alma Eik Sævarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Sunna Gylfadóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Elva Þórisdóttir kennari, Katrín Björk Guðmundsdóttir og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Fremst: Helga Dögg Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn216
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bjarney Valdimarsdótttur sem þátt tók í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn709
Horfið hús, Brautarholt, þar bjó lengi Ólafur Guðmundsson með konu sinni og móður. Stóð við Fellsbraut. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1975.
Höfðaskóli006
<p>Ólafur Bernódusson og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennarar við Höfðaskóla bera saman bækur sínar á kennarastofunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið seint á tíunda áratugnum.</p>
Minjasafn697
Fysrstu íbúarnir í þjónustuíbúðum aldraðra við Ægisgrund á Skagaströnd, myndin tekin 1985. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) frá Þórsmörk, Jóhanna Albertsdóttir (d. 3.3.1996) frá Syðra-Hóli og Kristín Indriðadóttir (d. 25.10.1987) frá Efra-Jaðri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 510
Ragnar Ingvarsson til vinstri og Hjörtur Guðmundsson til hægri um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 á netavertíð.
Höfðaskóli094
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1963 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Kristján Ólafsson, Ragnar Jónsson, Gunnar Ingimarsson, Björn Ingi Óskarsson, Þorlákur Jónsson, Árni Geir Ingvarsson og Hjörtur Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Steinunn Berndsen, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir og Valdís Valdimarsdóttir.
Minjasafn761
Aftan á þessari mynd stendur, innan í teiknaðri skreytingu<em>:" Íslenzkar Eimskipamyndir. Safn af 50 ekta ljósmyndum. 38 Geir. Togari. Brutto: 306 smálestir. Vélaafl: 550 hestöfl. Eigandi: Hrönn h/f Reykjavík. Westminster Tobacco Co. Ltd. London.". </em> Þessi mynd var sem sagt nr. 38 í seríu 50 mynda af íslenskum skipum. Geir, sem var smíðaður í Englandi 1947, bar einkennisstafina Re 241. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 587
Gripur nr. 587. Mjólkurbrúsi 19 cm á hæð og 45 cm að ummáli. Er með loki og haldi. Búið er að tengja saman lokið og haldið með snæri.
Höfðaskóli032
Börn fædd 1976 í 7. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir kennari, Díanna Rut Sigtryggsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Sigrún Ómarsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir og Jósef Stefánsson. Fremri röð: Jónas Þorvaldsson, Kristján Gunnar Guðmundsson, Arnar Haukur Ómarsson og Steinþór Carl Karlsson.
Höfðaskóli045
Börn fædd 1989 í 9. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson. Miðröð frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson og Dagný Rósa Úlfarsdóttir kennari. Fremsta röð frá vinstri: Arnrún Bára Finnsdóttir og Þórey Fjóla Aradóttir.
Höfðaskóli - safn 246
Vorið 2001 fóru elstu nemendur Höfðaskóla í skólaferðalag til Danmerkur ásamt tveimur kennurum og einum stuðningsfulltrúa. Á þessari mynd hvílir Pétur Jensen lúin bein á óþekktum áningarstað og tvær óþekktar stúlkur hvílast í grasinu í baksýn.
Minjasafn 597 no
Gripur nr. 597. Áldunkur notaður undir sykur ( sykur er ennþá í honum). 16. cm djúpur og 49 cm að ummáli. Er með ofanífelldu loki.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 037
Jón Haukdal Þorgeirsson vélstjóri gerir við blöndunartæki í eldhúsinu um borð í Arnari Hu 1.
Minjasafn789
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi á Skagaströnd sker hákarl í beitur til að setja þær síðan í kösina til kæsingar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason 1994.
Sigurður Bjarnason - safn 008
Þessi mynd var sennilega tekin í Breiðabliki um jólin 1971. Á myndinni er Jóhann Bjarnason (d. 14.9.2015) með börnum sínum Álfhildi og Gunnari Þór.
Minjasafn 576
Gripur nr. 576. Lítil saumavél úr stáli mjög ryðguð. Vantar kassann/stéttina undir hana.
Minjasafn 204
Gripur nr. 204. Veggplatti með mynd af fugli.
Minjasafn 502
Gripur nr. 502. Græn askja sem á stendur: "Sprauta. Bólusetning. Garnaveiki.". Í öskjunni er svo sprauta sem er skrúfuð saman og liggur í bómull.
Minjasafn779
Horfið hús. Garður, sem stóð við núverandi Skagaveg. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 275
Gripur nr. 275. Stórt fiskfat með blárri rönd á barminum og annarri aðeins neðar. Fatið hefur verið spengt á þremur stöðum og er í sundur. Áreiðanlega mjög gamalt. 41 cm á lengd og 34 cm breitt. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd.
Minjasafn 520
Gripur nr. 520. Hvítt ílangt fat úr tré, skreytt með rauðum blómum í miðjunni á botninum.
Minjasafn 519
Gripur nr. 519. Skrautskál úr bláleitu gleri með skornu munstri. Stendur á fæti í sama stíl.
Minjasafn 316
Gripur nr. 316. Vatnshitari fyrir rafmagn. Var notaður til að hita vatn, aðallega í stórum pottum, oftast á þvottadögum. Hitaranum var þá stungið niður í vatnið og haldið þar, þar til vatnið var orðið nógu heitt. Rautt skaft og kló. Stállitaður armur með stálgormum fremst, 30 cm langur. Var í eigu Guðríðar Ólafsdóttur frá Höfðahólum á Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 500
Gripur nr. 500. Þríhyrnings-/píramídalag hilla úr tré. Hillan er dökkbrún á lit, lökkuð. Fallega útskorin með spegluðu munstri.
Minjasafn 515
Gripur nr. 515. Lítill tréaskur. Kemur úr búi Körlu Helgadóttur og Fritz Magnússonar.
Minjasafn773
Gömul mynd frá Skagaströnd, lílklega tekin 1946 eða 1947. Ekki er búið að reka niður stálþil um Skúffugarðinn né fylla upp í "Dokkina". Hafnarhúsið er komið á sinn stað og verið að ljúka við smíði mjölskemmunnar. Mörg af húsunum sem sjást á myndinni eru nú horfin. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðný Finnsdóttir 12. desember 1994.
Minjasafn 577 no3
Gripur nr. 577. Saumavél, svört með máðum gylltum skreytingum. Handsnúin. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð).
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn094
<p>Loftur Hu 42 fyrir utan mjölskemmuna. Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um þennan bát: <em>" Þennan bát smíðuðu bræðurnir Guðmundur og Sigurður Björnssynir frá Jaðri, árið 1977 og var hann 2,6 brl með 18 ha. Sabb vél. Hann var smíðaður úr sérinnfluttum krossvið frá Finnlandi. Hjálmar Eyþórsson og Sigurður Hólm Sigurðsson á Blönduósi keyptu bátinn og gerðu út á grásleppu, m.a. frá Kálfshamarsvík. Hét hann þá Svanur HU 20 og sökk hann þar eitt sinn. Bernódus Ólafsson keypti bátinn af Hjálmari árið 1981 og fékk hann þá nafnið Loftur. Bernódus gerði út í nokkur ár en seldi síðan Jóhanni Þórarinssyni og Jónasi Jónassyni bátinn snemma árs 1984 en síðla sama ár seldu þeir Skúla Bjarnasyni í Bolungarvík bátinn sem fékk þá nafnið Doddi ÍS 290."</em></p>
Höfðaskóli084
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1969 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Sigurbjörn Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Stefán Ægir Lárusson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Arnar Erlingsson, Hjalti Reynisson og Hjalti Magnússon. Miðröð frá vinstri: Hulda Magnúsdóttir, Berglind Stefánsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Kristjana Erlingsdóttir og Júlía B. Árnadóttir. Fremsta röð frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Pálína Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 553
Jón Jósefsson um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn 414
Gripur nr. 414. Rauð plastkanna, sennilega verið notuð sem mjólkurkanna. Vantar lok með opi sem fylgdi slíkum könnum nýjum.
Minjasafn 634
Gripur nr. 634. Veggklukka með merki Skagstrendings hf, stílfærðum erni með útbreidda vængi. Silfruð með bláum ramma og merkinu efst fyrir miðju. Neðst stendur: "Swiss made".
Árni Geir Ingvarsson - safn 500
Kristján Helgi Gunnarsson við vinnu sína sem trésmíðameistari og verktaki í óþekktu húsi. Maðurinn sem mokar í baksýn er líklega Kristján Blöndal.
Minjasafn763
<p>Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson stendur eftirfarandi um þennan bát: <em>" Vinur ÍS 101. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Ísafirði árið 1934 og var 12 brl. með 38 ha. Tuxham vél. Sumarið 1948 fluttu Árni Ólafur Guðmonsson og kona hans, Halla Júlíusdóttir, til Skagastrandar frá Ströndum og með þeim synir þeirra Baldur og Júlíus. Síðsumars þetta sama ár keyptu þeir feðgar, Árni, Júlíus og Baldur, bátinn Vin ÍS101 frá Hnífsdal. Þetta var mikil ólánsfleyta og hafði tvisvar týnt manni meðan hann var þar vestur frá og síðan gerðist það að Árni féll útbyrðis af bátnum þetta ár og drukknaði. Báturinn var seldur til Steingrímsfjarðar og sökk hann á Húnaflóa 28. nóvember 1949. Vinur var líklega aldrei skráður HU."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Gunnlaugur Árnason karlsskála 12. september 1996. </p>
Minjasafn713
Þessi mynd var líklega tekin seint á fimmta áratugnum (1947 - 1950). Síldarverksmiðjan er lengt til vinstri og lengst til vinstri á henni eru þrærnar, sem geymdu hráefni - síldina - verksmiðjunnar. Svo kemur verksmiðjuhúsið sjálft en frá því liggur sver pípa yfir í stóru Mjölskemmuna. Eftir pípunni var fullunnu síldarmjölinu dælt en það var síðan sekkjað í skemmunni. Á myndinni er líklega bræðsla í gangi því það rýkur úr skorsteininum sem táknar að gufuketillinn var kyntur til að knýja túrbínuna - rafalinn - sem framleiddi rafmagn fyrir verksmiðjuna. Einnig var gufan leidd í stokk yfir í verksmiðjuhúsið þar sem hún var notuð til að sjóða síldina. Stóra hvíta húsið næst okkur á myndinni - Hafnarhúsið - var í upphafi (1935) reist þar sem verksmiðjan stendur en var flutt á þennan stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir verksmiðjubyggingunni. Þegar myndin var tekin var verið að klára að gera Skúffugarðinn eða því nýlokið. Litli skúrinn sem ber í verksmiðjuna var kamar sem reistur var þegar framkvæmdir við Skúffugarðinn stóðu yfir. Svarti skúrinn, sem sést við enda Hafnarhússins, var verfæra- og verkstæðishús vegna framkvæmdanna. Hann var seinna færður og reistur ca þar sem kamarinn stendur. Bátarnir í fjörunni eru: Otur næst okkur en hann áttu saman bræðurnir Júlíus og Baldur Árnasynir. Fjær er Ludendorf Hu 46 sem Ole Aamundsen átti. Hinir bátarnir eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Gunnari Albertssyni 29. september 1996.
Minjasafn728
Aftan á þessari mynd stendur:<em> "Magnús kennari var ættaður úr Skagafirði. Giftur Maríu Birgittu Berndsen d. 1940. Hann var faðir Fritz Magnússonar Berndsen Ásbergi Skagastr. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Ef þú veist hvers son Magnús var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 495
Á þessari mynd sést greinilega stærðarmunurinn á frystitogurum Skagstrendings hf. Arnar Hu 1 er nær bryggjunni en Örvar Hu 21 liggur utan á honum. Miðað við stærð skilaði Örvar ótrúlegum verðmætum í þjóðarbúið meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Minjasafn740
M.b. Ásgeir Hu 1 liggur í suðvestan brimi í Skagastrandarhöfn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson Höfðahólum á Skagaströnd.
Minjasafn 535
Gripur nr. 535. Pappakassi sem geymir gömul, heimasaumuð föt, efnisbúta og snið.
Minjasafn803
Hamravík KE 75. Stærð 192 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1963 í Noregi. Vél Lister - Diesel 495 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 149
Gripur nr. 149. Rafmagnsrakvélar í hvítum og svörtum kössum. Hvít/grá Philips, hvít Philipshave 3. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 057
Á þessari mynd eru vinnufélagar á Vélaverkstæði Karls Berndsen í menningarferð í Reykjavík ásamt konum sínum. Frá vinstri: Björn Viðar Hannesson, Guðjón Árnason, Bergþór Gunnarsson, Valdimar Viggósson, Gísli Snorrason, Steinunn Berndsen, Agnes Sævarsdóttir, Björk Sveinsdóttir og Jóhannes Sveinsson.
Minjasafn 350
Gripur nr. 350. Hvítur plasttappi sem smelltur er á flöskustúta í notkun.
Minjasafn 475
Gripur nr. 475. Þrjú stykki plastskálar. Voru eitt sinn glærar en smá gult er í einni þeirra. Skálarnar eru litlar með skornu munstri.
Minjasafn 424
Gripur nr. 424. Spegill með gul-brúnum ramma. Á rammanum er útskorið munstur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 543
Þennan bíl endurbyggði og breytti Vilhelm Þórarinsson í bílskúrnum sínum. Hér var um sannkallað tryllitæki að ræða með vélarorku á við 3-4 smábíla. Það skal tekið fram að þetta gerði Vilhelm fyrir tíma gríðarlegra verðhækkana á bensíni.
Minjasafn 529
Gripur nr. 529. Rakblaðabrýni. Lítil handsnúin vél sem var notuð til að brýna rakvélablöð af gömlu gerðinni.
Minjasafn726
Elín Jónsdóttir (d. ?) (Adda prests) frá Höskuldsstöðum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrefna Jóhannesdóttir frá Garði í október 1994.
1
…
109
110
111
…
167
Leita í myndasafninu
Leita