Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn679
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir Árnesi Skagaströnd, Páll V.G. Kolka (d.19.7.1971) læknir og rithöfundur og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka (d. 11.6.1974). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn725
Björn Ólafsson (d. 1935) Árbakka. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 12. september 1996.
Höfðaskóli025
Börn fædd 1977 í 9. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn722
Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) Bjarmalandi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. júní 1996.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 088
Ungu drengirnir á þessari snjáðu mynd voru skólabræður í Höfðaskóla á yngri árum en störfuðu síðan báðir um tíma hjá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Bergþór Gunnarsson er til vinstri og Valdimar Viggósson til hægri.
Minjasafn 610
Gripur nr. 610. Ferðataska úr brúnu leðri. Með ólalæsingum sitt hvoru megin við haldið. Einnig er járnlæsing undir haldinu. Leðurhlífar á hornum.
Höfðaskóli009
Þessir tveir menn störfuðu við Höfðaskóla um árabil. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), til vinstri, var kennari í hlutastarfi, prófdómari og forfallakennari. Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kenndi unglingum í skólanum í mörg ár. Myndin var tekin á skólatröppunum en ekki er vitað hvenær þó líklega hafi það verið einhverntíma á árunum 1965 - 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 594
Hafnir á Skaga. Hafnir eru í Skagabyggð.
Sigurður Bjarnason - safn 015
Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002) frá Bjargi við saumavélina sína.
Minjasafn784
Sæbjörn Hu 3. Bátinn keyptu Ísleifur Haraldsson og Sigurður Bjarnason til Skagastrandar árið 1970. Hann var svo ónýttur í mars 1974 og sagaður í tvennt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson Hólabraut 22, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn720
Kristín Bjarnadóttir (d.?) frá Kálfshamarsvík (Viðvík). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Inga Þorvaldsdóttir Straumnesi 1. desember 1994.
Minjasafn 575 no2
Gripur nr. 575. Saumavél. Svört handsnúin saumavél. Var í eigu móður Guðbjarts Guðjónssonar frá Vík, Skagaströnd.
Minjasafn734
Aftan á þessari mynd stendur skrifað:<em> "Efnabær 19 aldar. Haukagil í Hvítarsíðu í Borgarfirði Mindin tekin sumarið 1884. Ljósmynd Sigfús Eymundsson".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi 8. október 1977.
Minjasafn 401
Gripur nr. 401. Þvottaklemma af gamla laginu, úr tré.
Sigurður Bjarnason - safn 022
Ragna Bjarnadóttir frá Bjargi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 627
Þessi mynd var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd sennilega kringum 1990. Á myndinni eru frá vinstri: Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Sólveig Eiðsdóttir móðir Sóleyjar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 040
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) við vinnu á dekkinu á Arnari Hu 1.
Minjasafn 198
Gripur nr. 198. Smörkúpa úr glæru gleri, botn og lok. Glerið er munstarð. Glerhöld til hliðar. Lengd 20 cm og breidd 12 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Minjasafn 586
Gripur nr. 586. Mjólkurbrúsi 25 cm á hæð og 47 cm að ummáli. með loki og haldi. Á lokinu stendur: "A.H. Læk". (Líklega skammstöfun fyrir: Axel Helgason, Læk)
Höfðaskóli049
<p>Börn fædd 1993 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Árný Sif Gestsdóttir og Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir. Miðröð frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Alex Már Gunnarssson og Davíð Víðisson. Fremsta röð frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Jóna Fanney Svavarsdóttir kennari, Sara Rut Fannarsdóttir og Elísabet Anna Einarsdóttir. </p>
Minjasafn 552
Gripur nr. 552. Kýrhorn
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 048
Jón Indriðason vélstjóri til vinstri og Gísli Snorrason frá Vélaverkstæðinu vinna við vél í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn689
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 á Skagaströnd 1959 eða 1960. Áhöfnin mokar síld í "veltitunnur" sem síðan voru hífðar upp á bryggju og þar hvolft úr þeim í handvagna sem var svo ekið að planinu þar sem síldarstúlkurnar biðu eftir síldinni til söltunar. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Helga Berndsen frá Karlsskála gaf myndina í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn760
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 003
Viðhaldsgengi frá Vélaverkstæði Skagastrandar um borð í einum af togurum Skagstrendings hf að spá í spilin ásamt vélstjóranum. Frá vinstri: Ari Þórsson, Birkir Rafn Gíslason, óþekktur, Óli Axel Óskarsson, Gísli Snorrason og Finnur Kristinsson yfirvélstjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 611
Systkinin Árni Geir Ingvarsson og Vala Rós Ingvarsdóttir saman í blómabrekku snemma á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 534
Stefán Kristinsson (d. 19.5.2011) nýtur hér útvistar í óþekktri hraunbreiðu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 050
Ungur nemur gamall temur. Friðvin Ingi Ernstson hjálpar Ara Þórssyni við vinnu í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli062
Börn fædd 1982 í 10. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Ólafur Guðmundsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Magnús Árni Hallgrímsson og Sveinn Elvar Jóelsson. Fremri röð frá vinstri: Geirþrúður Guðmundsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir og Karen Karlsdóttir.
Höfðaskóli034
Börn fædd 1974 í 9. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Jóhanna G. Karlsdóttir, Guðný K. Finnsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Ása Ósk Ásgeirsdóttir. Miðröð frá vinstri: Aðalheiður Marta Steindórsdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Jón Heiðar Jónsson, Bryndís F. Ingimarsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Páll Leó Jónsson kennari. Fremsta röð frá vinstri: Atli Þórsson, Björn Sigurðsson, Baldur Magnússon, Reynir Lýðsson og Friðrik Gunnlaugsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 536
Björk Sveinsdóttir.
Sigurður Bjarnason - safn 006
Ragna Skagfjörð Bjarnadóttir frá Bjargi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið um jól einhverntíma á sjötta áratugnum.
Minjasafn 667
Gripur nr. 667. Ferningslaga púði. Verið er dökk-appelsínugult, heklað net. Innan í því er púðinn sem er grænn.
Minjasafn797
Reynir BA 66. Stærð 53 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1946 í Svíþjóð. Vél Hundsted 150 hestöfl. Heimahöfn Bíldudalur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn755
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. "Siggi í Siggabúð", eins og hann var oft kallaður, stundaði m.a. útflutning á ull og gærum um tíma meðfram dagvöruverslun sinni. Verslunin Borg var einnig heimili Sigurðar og konu hans Margrétar Konráðsdóttur (d. 17.9.1974) en verslunin var í litlu húsi sem stóð norðan við mjölskemmuna. Seinna var svo rekið rafmagnsverkstæði í húsinu, sem nú hefur verið rifið. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn706
Horfið hús, Ásberg eða Ásbyrgi (Köllubærinn), Breiðablik til hægri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1994 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 497
Þorvaldur Skaftason til vinstri og Fritz Hendrik Berndsen til hægri við vinnu á vinnupalli við stjórnsýsluhúsið á kuldalegum degi.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 035
Gestur Arnarson slakar á yfir kaffibolla í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 014
Gísli Snorrason frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn 201
Gripur nr. 201. Veggvasar 2 stk. blágrænir með blómamynd framan á, gyllt efst. Vasarnir eru íbognir (mjókka niður) og eru með eyru á hlið. Gefandi keypti vasana í verslun Helgu Berndsen Karlsskála Skagaströnd líklega 1958. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 599 no2
Gripur nr. 599. Gamaldags talsími úr stáli. Er með snúningshandfangi og símtóli sem tengist kassanum með snúru. Svo er önnur snúra sem tengist í tvær stórar sívalar rafhlöður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 496
Guðmunda Ólafsdóttir við afgreiðslustörf í sjoppunni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 021
Ernst Berndsen vélstjóri í vélarúminu á Arnari Hu 1. Áletrunin á myndinni er ráðgáta því Arnar var smíðaður í Japan og gjarnan kallaður Japans-Arnar til aðgreiningar frá öðrum yngri togurum Skagstrendings hf með sama nafni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 517
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður á kunnuglegum slóðum í brúnni á Ólafi Magnússyni Hu 54.
Höfðaskóli101
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1957 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Viðar Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, Axel Jóhann Hallgrímsson og Guðjón Guðjónsson. Fremri röð frá vinstri: Sesselja Guðmundsdóttr, Unnur Gunnarsdóttir, Fjóla Sigurðardóttir, Eyrún Guðbjartsdóttir (d. 7.4.1987) og Guðrún Einarsdóttir.
Höfðaskóli064
Börn fædd 1990 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Gunnlaug Þ. Gunnlaugsdóttir kennari, Ragnar Már Björnsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Ágústa Lóa Jóelsdóttir, Unnar Már Garðarsson og Arís Eva Vilhelmsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sunna Gylfadóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Katrín Björk Guðmundsdóttir og Steinar Orri Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 639
Myndin sýnir bæina undir Bjarginu (Króksbjargi á Skaga) ásamt útihúsum. Næst okkur er Hlíð, þá Örlygsstaðir og Örlygsstaðir II en fjærst eru Hróarsstaðir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 025
Feðgar um borð í Arnari Hu 1 í ókunnri höfn. Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) stendur framan við brúna en sonur hans Birgir Þórbjarnarson skipstjóri á Arnari stendur á brúarvængnum.
Minjasafn678
Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1.desember 1994.
Minjasafn783
Fólkið á myndinni var heimilisfólk að Höfðahólum á Skagaströnd. Mynd af bænum er fyrir miðju en hann stóð þar sem í dag er tjaldsvæðið á Skagaströnd. Guðríður Rafnsdóttir og Ásgeir Klemensson voru hjónin á bænum en Sigríður, Ólafur og Axel voru þeirra börn. Árni Sigurðsson var sonur Guðríðar og þar með hálfbróðir þeirra. Árni ólst upp hjá móður sinni og Ásgeiri manni hennar í Höfðahólum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn747
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) Viðvík á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn730
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn717
Brautarholt. Ólafur Guðmundsson (d.6.10.1985), íbúi þar, er til hægri en konan er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með son sinn Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 041
Hákarl er ekkert alltof vinsæll meðafli sem stundum kemur í trollið. Það getur nefnilega verið snúið að ná svona risaskepnu úr trollinu á dekkinu án þess að skemma það mikið. Maðurinn sem stendur hjá hákarlinum, um borð í Arnari Hu 1, er Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004). Hákarlinn á myndinni er beinhákarl. Hann er ekki nýttur lengur heldur er honum skilað í hafið aftur hið snarasta. Samkvæmt Vísindavefnum getur beinhákarl orðið allt að 12 metrar að lengd en er meinleysisskepna sem syndir um tannlaus með galopið ginið því hann lifir á örsmáu dýrasvifi. Öfugt við aðrar hákarlategundir hefur hann beinkennda stoðgrind en ekki úr brjóski. Vegna gríðarstórrar lifrar í honum var hann mjög verðmætur á árum áður vegna lýsisins sem unnið var úr henni og flutt út á háu verði.
Minjasafn 375
Gripur nr. 375. Tvö stykki A4 brúnir rammar; "Quality Photo Frame". Eru nýlegir, hafa sennilega verið keytir fyrir skipulag á fornmununum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 561
Hér hefur Vilhjálmur Skaftason, sem stendur og virðir aðstæður fyrir sér, búinn að festa Súkkuna sína í skafli. Í baksýn býr Eðvarð Hallgrímsson sig undir að draga Súkkuna úr skaflinum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 587
Hákarl dreginn á land í krikanum sem áður var sunnan við hafnarvogina.
Minjasafn 388
Gripur nr. 388. Glær poki með gylltum stöngum með krók á endum. Voru fylgihlutir til að halda uppi Hansa hillum og skápum sem voru vinsæl húsgögn í kringum 1960 - 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 492
Suð-vestan átt er stundum erfið í höfninni á Skagaströnd. Þá getur ókyrrð orðið allmikil á sumum stöðum innan hennar þó aðrir séu í nokkuð góðu skjóli eins og t.d. Arnar Hu 1 á þessari mynd.
Höfðaskóli - safn 192
Gunnar Guðmundsson spilar stærðfræðispil í Höfðaskóla einhverntíma í kringum 1990.
1
…
111
112
113
…
167
Leita í myndasafninu
Leita