Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 111
Þessi mynd úr Höfðaskóla hefur líklega verið tekin af einhverju skemmtiatriði á opnu húsi í skólanum einhverntíma um miðjan tíunda áratuginn. Framan við borðin standa Jenný Lind Sigurjónsdóttir til vinstri og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) til hægri. Uppi á borðunum eru frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Rósa Björk Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen og Hanna Rúna Gestsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn 424
Þetta hús, Ólafsvellir/Náttbrún, stóð nokkurn vegin þar sem nú er stjórnsýsluhúsið við Túnbraut 1-3. Lengst af bjuggu í húsinu hjónin Jón Hinrik Árnason (d. 11.4.1986) og kona hans Sigurlaug Pálsdóttir (d.18.6.1965) ásamt dóttur þeirra Ingiríði Jónsdóttur (d. 21.10.2011). Hjá þeim var líka sonur Unu, hinnar dóttur þeirra, Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004). Síðasti íbúi hússins mun hafa verið Guðlaugur Melsteð Guðlaugsson (d. 8.7.1990). Samkvæmt heimildum frá Þorvaldi Skaftasyni stóð til að rífa húsið, sem þá var orðið fyrir vegna byggingar stjórnsýsluhússins, en Guðlaugur þverneitaði að fara. Var þá gripið til þess ráðs að fá prestinn til að tala Guðlaug til. Prestur bauð honum í bíltúr í bíl sínum og eftir langan bíltúr með presti var búið að rífa Náttbrún þegar þeir félagar komu til baka. Samkvæmt sömu heimildum nefndi Ole Aamundsen (Óli norski) (d.?) húsið Ólafsvelli en Jón Árnason kallaði það alltaf Náttbrún.
Árni Geir Ingvarsson - safn 605
Á þessari mynd af Skagaströnd má sjá nokkur horfin hús. Lengst til vinstri er Karlsminni sem ekki er til lengur, þá kemur Strandgata 10, sem enn stendur, en þar við hliðina er Viðvík sem er horfin. Síðan koma tvö hús sem enn standa, Höfðatún og Vík en þá kemur að fjárhúsum og lengra frá, með rauðu þaki, glittir í Bergsstaði sem einig hefur verið rifið. Næst er svo Sævarland og bak við það hægra megin er Sæból sem brann til grunna á sínum tíma. Lengst til hægri er svo Oddagata 1 sem enn er búið í.
Minjasafn 646
Gripur nr. 646. Járn ekki ósvipað vöflujárni en með öðruvísi munstri. Mögulega notað til að grilla samlokur eða annað. Hitað á hellu.
Minjasafn745
Aftan á þessari mynd stendur: <em>" Jóhanna Benónísdóttir, f. 11/8. 1883 á, Steinýjarstöðum, búsitt síðast í Drangei á Skagaströnd. d, 5/3, 1957."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 542
Bryndís Guðjónsdóttir hvílir sig uppi á Einbúanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 582
Á myndinni eru leifar af hafnarmannvirki sem var reist á Hólanesinu 1938 eða þar um bil. Þessi varnargarður, sem nú er að mestu horfinn, skýldi litlum bryggjustúf sem átti að þjóna frystihúsi Hólaness hf sem reist var 1944 ofan við bryggjuna. Í því húsnæði er nú Listamiðstöðin Nes.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 044
Björn Sigmundsson vélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 090
Oft hefur verið mikið um að vera í dráttarbrautinni. Bátar af öllum stærðum og gerðum koma þar og fara. Sumir þeirra enda þar ævi sína eins og raunin varð með Auðbjörgu Hu 6, sem er á myndinni og Hinrik? sem er húslaus lengst til vinstri. verið er að hífa Beggu GK 717 upp á pallinn á kranabílnum sem síðan flutti hana burt. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 658
Gripur nr. 658. Fjórir snagar sem hafa verið skrúaðir á plötu/planka. Blámálað.
Sigurður Bjarnason - safn 001
Systkinin Sigurjón Ingólfsson og Rósa Björg Ingólfsdóttir. Myndin var sennilega tekin 1961 þegar Sigurjón var skírður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 502
Haukur Böðvarðsson ÍS 847 dreginn upp í dráttarbrautina á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 197
Árný Guðrún Ólafsdóttir við vinnu sína í Höfðaskóla kringum 1990.
Minjasafn721
Elísabet Berndsen (d.?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Haraldur Árnason í jánúar 1995.
Minjasafn 643
Gripur nr. 643. Lampaskermur gulur/gylltur með kögurböndum til skrauts á neðri brún og kringum skerminn efst.
Minjasafn772
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er á leið í messu á Hólaneskirkju. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt. </p>
Minjasafn 381
Griður nr. 381. Mjög gamall og mjög fúinn og niðurnýddur rammi. Brúnn með máðri gylltri rönd. Ramminn er laus og bakið fúið. (Hefur e.t.v. lent í bruna?)
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 083
Þrír karlar frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu um borð í Örvari Hu 21, 7. júlí 1994. Frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Gísli Snorrason og Björn Viðar Hannesson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 544
Spákonufell er bæjarfjall Skagstrendinga. Af toppi fjallsins - Spákonufellsborginni - er mjög víðsýnt og sagt að sjáist í sjö sýslur í góðu skyggni. Sífellt fleiri leggja leið sína á toppinn eftir merktri gönguleið sem byrjar við norðurenda Háagerðisgolfvallarins.
Höfðaskóli - safn 311
Gestir á opnum degi í Höfðaskóla til að halda upp á 50 ára afmæli skólans 1989. Frá vinstri: Berglind Karlsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hlíf Sigurðardóttir, óþekkt, Aðalheiður Sif Árnadóttir og Adolf H. Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 609
Myndin var tekin utan við Akur þar sem Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) móðurbróðir barnanna á myndinni bjó. Börnin eru Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Vala Rós Ingvarsdóttir sem leiðir Hebba frænda sinn. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1970.
Höfðaskóli026
Börn fædd 1976 í 10. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn672
Blaðaúrklippa með mynd af Guðjóni Ingólfssyni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 554
Ragnar Ingvarsson býr sig undir að sleppa að framan um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 059
Jón Indriðason vélstjóri nýtur hér aðstoðar Friðvins Inga Ernstsonar við vinnu sína.
Árni Geir Ingvarsson - safn 585
Þessi mynd af Skagaströnd sýnir vel framkvæmdir við byggingu raðhúsanna við Mánabraut 1 - 11 á sínum tíma. Á myndinni má líka sjá nokkur hús sem nú eru horfin t.d. Héðinshöfða, niðri í horninu hægra megin, Efri-Læk, sem ber yfir suðurenda plötunnar að Mánabraut 7, og Efri-Jaðar, sem ber yfir vinkilbygginguna til vinstri.
Höfðaskóli044
Börn fædd 1991 í 7. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Kristján Heiðmar Kristjánssson, Gunnar Már Sæmundsson, Sævar Hlynur Tryggvason, Patrik Snær Bjarnason og Jóhann Örn Stefánsson. Miðröð frá vinstri: Elna Ragnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir kennari og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Helena Mara Velimir, Tinna Erlingsdóttir og Hanna María Gylfadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 547
Ragnar Ingvarsson við vinnu sína um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Minjasafn 265
Gripur nr. 265. Diskur.
Höfðaskóli031
Börn fædd 1979 í 4. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Gunnar Guðmundsson, Eiður Örn Þórsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Rakel Sara Gunnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir og Jóhanna Jónsdóttir. Miðröð frá vinstri: Bryndís Axelsdóttir, Jóhannes William Grétarsson, Sigurður Árni Ægisson, Jón Haukdal Þorgeirsson og Gunnar Borg Jónsson. Fremsta röð frá vinstri: Árni Max Haraldsson, Linda Hafdal, Hilmar Árdal Eðvarðsson og Gunnþór Sævarsson.
Sigurður Bjarnason - safn 020
Myndin sýnir Sigurjón Ingólfsson í góðu yfirlæti í eldhúsinu hjá ömmu sinni Rósu Pálsdóttur (d. 1.5.2002). Myndin var líklega tekin 1967.
Höfðaskóli088
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1952 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Ingi Jóhann Hafsteinsson (d. 12.12.1987), María Magnúsdóttir kennari og Hinrik Jóhannesson. Miðröð frá vinstri: Kristinn Ágústsson, Ari Ólafsson, Rúnar Hartmannsson, Skúli Bjarnason, Árni Másson, Helgi Gunnarsson og Kári Lárusson. Fremsta röð frá vinstri: Anna Kristjánsdóttir, Ása Hrólfsdóttir, Steinunn Steinþórsdóttir, Ingibjörg Þorfinnsdóttir, Margrét Guðlaugsdóttir og Eyrún Birgisdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 570
Bræðurnir Þorvaldur Skaftason sem er með gítarinn og Vilhjálmur Skaftason í góðum gír í Skíðaskálanum á Skagaströnd.
Höfðaskóli102
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1947 og 1948 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Pétur Jóhannsson, Ísleifur Haraldsson, Jóhann Björn Þórarinsson, María Bjarnadóttir (d. 1984), Jóhann Ingibjörnsson, Jón S. Pálsson kennari, Búi Birgisson (d. 18.9.2009), Steinunn Ellertsdóttir, Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Jóhanna Valdimarsdóttir.
Minjasafn 508
Gripur nr. 508. Útskorinn penni. Á hann er grafið "JOMERU 1917". Virkaði eins og fjaðurpenni, var díft í blek til að skrifa síðan. Penninn er úr beini.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn088
Vorið 1983 fór starfsfólk Hólaness hf í ferðalag til London í nokkra daga. Þessi mynd var tekin af hópnum fyrir utan hótelið þar sem þau gistu. Á myndinni eru, frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Guðrún Sigurðardóttir, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Haraldur Árnason, Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007), Steindór Gíslason (d. ?), Aðalheiður Guðmundsdóttir, María Magnúsdóttir (fjær), Sólveig Róarsdóttir (nær), Díana Krsitjánsdóttir, Grétar Haraldsson, Guðný Finnsdóttir, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), Sigrún Lárusdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Hlíf Sigurðardóttir (nær), Sigurður Bjarnason (fjær), Árni Ólafur Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1999) (fjær - með hatt) og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 085
Karl Berndsen (d. verkstæðisformaður á Vélaverkstæði Karls Berndsen á verkstæðisbílnum. Karl gerði ýmsar tilraunir með eldsneyti á bílinn lét hann t.d. ganga á lýsi um tíma auk þess að blanda úrgangsolíu saman við hráolíuna en alltaf gekk bíllinn hjá Kalla.
Árni Geir Ingvarsson - safn 563
<p>Á þessari gömlu mynd af innbænum er byggðin strjálli en í dag. Fellsbraut, Suðurvegur, Sunnuvegur og Túnbraut eru að mestu óbyggðar en einnig sýnir myndin horfin hús s.s. Stóra-Berg, Dagsbrún, Ólafsvellir, Brautarholt, fjárhús o.fl.. </p>
Minjasafn787
Auðbjörg Hu 6. Báturinn var smíðaður í Stykkishólmi 1973 fyrir Auðbjörgu hf en eigendur félagsins voru Árna Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson í október 1994.
Minjasafn 432
Gripur nr. 432. Lítill, útsaumaður dúkur. Dúkurinn er hvítur með rauðu munstri.
Minjasafn746
Jakobína Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) Litla-Bergi. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhanna Thorarensen 1. júlí 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 507
Ekki er alltaf sól og blíða á Skagaströnd. Þrátt fyrir leiðinda veður halda hjól atvinnulífsins áfram að snúast eins og sést á þessari mynd þar sem Helga Björg Hu 7 er tekin upp í dráttarbrautina í skafrenningi og kulda.
Sigurður Bjarnason - safn 039
Ingólfur Bjarnason (d. 17.1.1967) frá Bjargi á Skagaströnd á fermingardaginn sinn vorið 1952 fyrir utan Hofskirkju á Skaga.
Minjasafn 482
Gripur nr. 482. Sex stykki glerskálar, grænleitar. Sennilega verið notaðar sem desert eða sykurskálar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 024
Hér eru þeir Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014 ) háseti til vinstri og Gunnar Reynisson kokkur í góðum gír í eldhúsinu um borð í annað hvort Arnari Hu 1 eða Örvari Hu 21.
Minjasafn 657
Gripur nr. 657. Gamalt skákborð 27,5 x 28 cm. Úr tré.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 017
Axel Jóhann Hallgrímsson vinnur við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Minjasafn 333
Gripur nr. 333. Skóþræll, viðarlitaður. Var notaður til hjálpar við að komast úr skóm. Lengd 21 cm. Breiðastur 10 cm. Smíðaður af Gissuri Jóhannssyni Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd september 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 532
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) við vinnu í bílakirkjugarðinum sem var við rætur Spákonufells um tíma.
Sigurður Bjarnason - safn 007
Halldóra Rósa Ingólfsdóttir á fermingardaginn sinn í gömlu Hólaneskirkju árið 1972.
Höfðaskóli076
Börn fædd 1988 í 1. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Íris Ósk Jóhannesdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir og Óðinn Örn Sævarsson. Miðröð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir kennari, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Jón Atli Magnússon. Fremsta röð frá vinstri: Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Eydís Ósk Einarsdóttir, Ívar Gylfason og Kristján Freyr Sigurbjörnsson.
Höfðaskóli - safn 276
Ólafur Bernódusson kennari við Höfðaskóla undirbýr kennslustund í efnafræði. Myndin var sennilega tekin á tíunda áratugnum.
Minjasafn 601 no
Gripur nr. 601. Trékistill, málaður brúnn. Er með skrárgati 34 cm djúpur, 61 cm breiður og 32 cm langur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 549
Trollið komið inn á dekk í Örvari Hu 21 fullt af fiski. Skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, stendur fyrir aftan kranann og virðir fyrir sér aflann. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli097
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1950 ásmat kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Særún Jónsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) kennari, Jóhanna Ásmundsdóttir og Stefanía Guðjónsdóttir. Miðröð frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, Rúnar Þór Ingvarsson, Ingþór Þorfinnsson, Guðmundur Ingi Jónatansson (d.4.12.2015), Stefán Jósefsson og Óskar Jóhannesson. Fremsta röð frá vinstri: Signý Ástmarsdóttir, Árný Viggósdóttir, Sólveig Georgsdóttir, Sóley Benjamínsdóttir og Brynja Axelsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 581
Njörður Nk 25/Eygló NK 28 var gerður út til hrefnuveiða frá Skagaströnd í nokkur sumur. Njörður/Eygló var með sérkennilega yfirbyggingu eins og sjá má á myndinni. Samkvæmt heimildum frá Gunnari Þorsteinssyni á Neskaupstað var báturinn í eigu Gunnars Vilmundarsonar (1931 - 1992) frá Neskaupstað og upphaflega mun Njörður/Eygló hafa verið tollbátur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 533
Maðurinn til vinstri er Guðmundur Karlsson (d. 28.7.2001), sem ólst upp á Árbakka og var lengi skipstjóri í Grindavík. Hér spáir hann í spilin með Stefáni Jósefssyni skipstjóra og útgerðarmanni á Skagaströnd, sem er til hægri.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 071
Þessi mynd var tekin fyrir neðan Ketilhús SR á Skagaströnd af Karli Berndsen (d. 12.2.1995) til vinstri og Valdimar Núma Guðmundssyni (d. 14.3.1972) til hægri hjá Scania flutningabíl sem Númi átti. Númi stundaði vöru- og fólksflutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar í allmörg ár m.a. á bílnum á myndinni.
Höfðaskóli065
Börn fædd 1984 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðni Már Lýðsson, Hákon Unnar Þórarinsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Herman Freyr Guðjónsson, Leó Kristberg Einarsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Hafþór Freyr Sigmundsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Elín Anna Konráðsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, María Guðrún Guðmundsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 630
Heiðar Elvan Friðriksson leikur við kisu með veiðistöng. Útihúsin til vinstri tilheyrðu Akurgerði (Hólabraut 9) og gulleita húsið til hægri var Bergsstaðir. Enn lengra í baksýn má sjá landfastan hafís á Húnaflóanum.
1
…
113
114
115
…
167
Leita í myndasafninu
Leita