Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 006
Ari Þórsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri frá Vélaverkstæði Skagastrandar í viðhaldsvinna í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 609
Myndin var tekin utan við Akur þar sem Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) móðurbróðir barnanna á myndinni bjó. Börnin eru Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Vala Rós Ingvarsdóttir sem leiðir Hebba frænda sinn. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1970.
Höfðaskóli026
Börn fædd 1976 í 10. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn672
Blaðaúrklippa með mynd af Guðjóni Ingólfssyni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 547
Ragnar Ingvarsson við vinnu sína um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Minjasafn752
Óþekktur maður myndaður á ljósmyndastofu H. Einarssonar á Akureyri. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli065
Börn fædd 1984 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðni Már Lýðsson, Hákon Unnar Þórarinsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Herman Freyr Guðjónsson, Leó Kristberg Einarsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Hafþór Freyr Sigmundsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Elín Anna Konráðsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, María Guðrún Guðmundsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 530
Karlinn brosir í brúnni enda úrgreiðsluborðið fullt af fiski eins og hann vill hafa það. Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 á netavertíð. Karlarnir eru, frá vinstri: Kristján Karlsson á rúllunni, Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðamaður í brúnni, Ragnar Ingvarsson og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) við úrgreiðsluborðið. Maðurinn bak við Ragnar er Kristinn Thor Sigurðsson. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson sem var kokkur á Ólafi á þessum tíma.
Höfðaskóli044
Börn fædd 1991 í 7. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Kristján Heiðmar Kristjánssson, Gunnar Már Sæmundsson, Sævar Hlynur Tryggvason, Patrik Snær Bjarnason og Jóhann Örn Stefánsson. Miðröð frá vinstri: Elna Ragnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir kennari og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Helena Mara Velimir, Tinna Erlingsdóttir og Hanna María Gylfadóttir.
Sigurður Bjarnason - safn 028
Sigfús Björnsson (d. 3.6.1949) sem var til heimilis á Bjargi.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 088
Smiðirnir Einar Haukur Arason til vinstri og Axel Jóhann Hallgrímsson til hægri vinna við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar - eldri hluta.
Sigurður Bjarnason - safn 021
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 148
Þessi mynd sýnir nokkra nemendur Höfðaskóla í hópavinnu á leiklistarnámskeiði líklega 1997 eða 1998. Frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Hermann Freyr Guðjónsson, Árni Halldór Eðvarðsson og Guðni Már Lýðsson.
Höfðaskóli086
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1970 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Rafn Ingi Rafnsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Davíð Reynisson, Jóhann Ásgeirsson, Elísabet Hallbjörnsdóttir og Jón Arnarson. Fremri röð frá vinstri: Jóney Gylfadóttir, Katrín B. Sigurjónsdóttir, Jón S. Pálsson skólastjóri, Herdís Jakobsdóttir og Rakel Jónsdóttir.
Minjasafn 513
Gripur nr. 513. Skeljaskraut. Hangandi "órói" sem hefur vafna körfu á toppnum og síðan hanga margar skeljar niður úr körfunni. Einnig er snæri sem búið er að vefja skeljum á.
Höfðaskóli095
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1951 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Karl Lúðvíksson, Ísleifur Þorbjörnsson, Sveinn S. Ingólfsson kennari, Fritz Magnús Bjarnason, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Sævar Hafsteinsson. Miðröð frá vinstri: Guðmundur Rúnar Kristjánsson, Rúnar Jósefsson, Ólafur Halldór Bernódusson, Bergur Jón Þórðarson, Sigurður Kristinsson og Reynir Sigurðsson. Fremsta röð frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Kristín Björnsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Björn Bragi Sigmundson.
Minjasafn690
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 í Skagastrandarhöfn 1959 eða 1960. Síldinni mokað með sérsmíðuðum háfum í "veltitunnnur" sem síðan eu hífðar í land, tæmdar þar og hífðar svo um borð aftur. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Gunnlaugur Árnason, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) , Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000)(í köflóttri skyrtu). Bak við Sigmar er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Höfðaskóli - safn 122
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Aftar eru frá vinstri: Jón Atli Magnússon og Arnór Snorri Gíslason. Nær okkur frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Ómar Ísak Hjartarson.
Sigurður Bjarnason - safn 016
Þessi mynd hefur sennilega verið tekin um jólin 1967 eða áramótin 1967/68 líklega í eldhúsinu á Breiðabliki. Vinstra megin við borðið eru Fritz Magnús Bjarnason í hvítri skyrtu og Ísleifur Haraldsson. Við borðsendann er húsmóðirin Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002). Hægra megin við borðið er Friðbjörg Oddsdóttir með börnum sínum Sigurjóni Ingólfssyni og Rósu Björg Ingólfsdóttur.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 028
Stund milli stríða í borðsalnum í Arnari Hu 1. Frá vinstri: Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014).
Minjasafn708

Horfið hús, Sæborg eða Góubærinn, stóð við Oddagötu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1984 af Guðrún Þ. Guðmundsdóttur.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 027
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) lætur líða úr sér á bekknum um borð í Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 046

Á þessari mynd er verið að "taka það" þ.e. draga trollið inn, að þessu sinni með góðum kolmunnaafla. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1. Maðurinn lengst til hægri er Óskar Þór Kristinsson en hinir karlarnir á myndinni eru óþekktir. Pokinn á trollinu var leystur frá og Börkur NK tók pokann og dældi úr honum. Síðan var pokanum skilað og trollið gert klárt á ný. Í þessum túr bilaði bakborðs togvindan og
farið var í að skipta um togvindur. (Heimild: Guðmundur Henry Stefánsson)

Höfðaskóli - safn 203
Sigurbjörg Jónasdóttir við vinnu í Höfðaskóla. Myndin var tekin kringum 1990.
Minjasafn 553
Gripur nr. 553. Tréskófla líklega notuð til að moka mjöli, sykri eða einhverju þvílíku við matargerð eða bakstur.
Minjasafn 630
Gripur nr. 630. Lítill, svartur talsími með handfangi.
Minjasafn 624
Gripur nr. 624. Plasttré á fæti (blómapotti). Þjappað af rauðum og hvítum plastblómum. Gulllitaðar kúlur eru innan í blómunum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 624
Litli drengurinn á myndinni er Árni Geir Ingvarsson en fullorðna fólkið er óþekkt (?Oddur og Gerða?). Öll húsin á myndinni eru horfin. Í húsinu til vinstri (sést bara hálft) var einu sinni verslun og fiskvinnsla en það endaði æfi sína þegar það brann til grunna en þá var það bara notað sem geymsla. Húsið sem er fjær var kallað Skólahúsið og gegndi hlutverki skóla og jafnframt var það notað sem samkomuhús t.d. fyrir rómaða dansleiki sem þar voru haldnir á sínum tíma. Enn má sjá grunn húsins. Húsið til hægri var verbúð en það er ekki lengur til staðar. Nýtt salernishús og nestisaðstaða hefur verið byggt örlítið upp í hallanum vestan við verbúðina. Vitinn stendur að sjálfsögðu enn 17 metra hár.
Höfðaskóli - safn 170
Ólafur Bernódusson kennari við Höfðaskóla niðursokkin við að færa einkunnir nemenda inn á einkunnaspjöld þeirra. Myndin var líklega tekin vorið 1990.
Sigurður Bjarnason - safn 011
Friðbjörg Oddsdóttir með börn sín, Rósu Björgu Ingólfsdóttur og Sigurjón Ingólfsson. Myndin var líklega tekin um jólin 1967.
Minjasafn 601 no
Gripur nr. 601. Trékistill, málaður brúnn. Er með skrárgati 34 cm djúpur, 61 cm breiður og 32 cm langur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 549
Trollið komið inn á dekk í Örvari Hu 21 fullt af fiski. Skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, stendur fyrir aftan kranann og virðir fyrir sér aflann. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli097
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1950 ásmat kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Særún Jónsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) kennari, Jóhanna Ásmundsdóttir og Stefanía Guðjónsdóttir. Miðröð frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, Rúnar Þór Ingvarsson, Ingþór Þorfinnsson, Guðmundur Ingi Jónatansson (d.4.12.2015), Stefán Jósefsson og Óskar Jóhannesson. Fremsta röð frá vinstri: Signý Ástmarsdóttir, Árný Viggósdóttir, Sólveig Georgsdóttir, Sóley Benjamínsdóttir og Brynja Axelsdóttir.
Minjasafn772

Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er á leið í messu á Hólaneskirkju. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt.

Höfðaskóli056
Börn fædd 1986 í 9. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftari röð frá vinstri: Sonja Hjördís Berndsen, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ragnar Ásmundur Einarsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Hörður Aðils Vilhelmsson, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Eiður Bjarki Þórarinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 527
Rækjukassaboðhlaup á sjómannadegi á planinu á Miðgarði í höfninni á Skagaströnd. Lengst til hægri keppir Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Karl Berndsen (d. 12.2.1995) er í miðjunni en keppandinn lengst til vinstri er óþekktur. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Minjasafn 549
Gripur nr. 549. Tvær ausur. Önnur úr áli en hin með glerungi.
Höfðaskóli - safn 247
Vorið 2001 fóru elstu nemendur Höfðaskóla í skólaferðalag til Danmerkur ásamt tveimur kennurum og einum stuðningsfulltrúa. Þessi mynd var tekin í einni af mörgum lestarferðum hópsins. Frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson, óþekktur, Birkir Rúnar Jóhannsson, Hörður Aðils Vilhelmsson og Dóra Rebekka Sævarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 630
Heiðar Elvan Friðriksson leikur við kisu með veiðistöng. Útihúsin til vinstri tilheyrðu Akurgerði (Hólabraut 9) og gulleita húsið til hægri var Bergsstaðir. Enn lengra í baksýn má sjá landfastan hafís á Húnaflóanum.
Minjasafn754
Aftan á þessari mynd stendur: "Árni Svanberg Jónsson f. 15/1 1919. í Kambakoti d. á Vífilsstaðahæli 14/4 1957."  Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli072
Börn fædd 1983 í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Adolf Þór Lúðvíksson, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Loftur Árni Björgvinsson, Magnús Líndal Þrastarson og Skúli Már Matthíasson. Miðröð frá vinstri: Sóley Ægisdóttir kennari, Guðlaugur Már Briem, Elva Mjöll Þórsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Vignir Örn Hafþórsson og Sólveig Kristjánsdóttir kennari. Fremsta röð frá vinstri: Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, Eyþór Örn Ernstson, María Markovic, Gunnar Helgason og Jón Gunnar Einarsson.
Minjasafn 608
Gripur nr. 608. Ferðataska úr leðri gráleit með svörtu haldi úr plasti. Stórar læsingar sitt hvoru megin við haldið. Merkispjaldið ennþá fast við haldið.
Höfðaskóli029
Börn fædd 1981 í 2. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Hallgrímur Axelsson, Birkir Rafn Gíslason, Álfheiður Guðmundsdóttir, Sigrún Líndal Þrastardóttir, Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir og Tinna Ómarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Kristrún Linda Jónasdóttir, Hjálmur Gunnarsson, Bæring Jón Skarphéðinsson, Hinrik Þór Oliversson, Davíð Bragi Björgvinsson, Áslaug Ottósdóttir og Heiðrún Ósk Níelsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Margrét Harðardóttir kennari, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Trausti Magnússon, Sverrir Brynjar Berndsen, Inga Valdís Heimisdóttir og Birna Ágústsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 567

Auðbjörg Hu 6 var gerð út frá Skagaströnd frá árinu 1977 þar til henni var komið fyrir á hliðargarði í dráttarbrautinni 1998. Þar stóð hún svo ósköp umkomulaus í ein 11 ár til ársins 2009 þegar hún var rifin og fjarlægð.

Árni Geir Ingvarsson - safn 626
Sveinn Ingi Grímsson. Myndin var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd.
Minjasafn 644
Gripur nr. 644. Handskófla úr áli ca 40 cm á lengd. Úr Kaupfélagi Skagastrandar. Gefandi: Elsa Stefánsdóttir Efri- Lækjardal, Engihlíðarhreppi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn091
Frá Kúvíkum í Reykjarfirði syðri á Ströndum.
Höfðaskóli036
Börn fædd 1975 í 8. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Svanur Árnason, Vilborg Jóhannsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari. Miðröð frá vinstri: Linda Rós Rúnarsdóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Særún Níelsdóttir, Jóhannes Óskarsson, Áslaug Jóhannsdóttir og Soffía Lárusdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Ingi Þórsson (d. 5.4.2007), Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson, Börkur Árnason og Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010).
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 079
Á þessari gömlu mynd eru starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen við vinnu utan við verkstæðið. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Viggó Brynjólfsson og Hjörtur Guðbjartsson.
Minjasafn 354
Gripur nr. 354. Tré-þvottaklemmur af gamla laginu. Sex stykki.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 007

Óli Axel Óskarsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.

Höfðaskóli - safn 248
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla vorið 1986. Frá vinstri: Björk Axelsdóttir, Ólafur Bernódusson og Jón S. Pálsson skólastjóri.
Sigurður Bjarnason - safn 025
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 112
María Markovic til vinstri og Tinna Gunnarsdóttir til hægri vinna saman í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin um miðjan tíunda áratuginn.
Höfðaskóli - safn 120

Erla María Lárusdóttir útskrifast úr 10. bekk Höfðaskóla 31. maí 1996. Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri afhendir henni einkunnir sínar og rós í tilefni dagsins. Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og Rakel Petrea Finnsdóttir fylgjast með í baksýn.

Minjasafn 606
Gripur nr. 606. Ferðataska, ljósgrátt og grátt "netmunstur". Með svörtu haldi og svörtum plasthlífum á hornum. Tvær læsingar sitt hvoru megin við haldið, dálítið ryðgaðar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 070
Þessi mynd var tekin í skíðaskálanum á Skagaströnd þegar starfsmenn Vélaverkstæðisins og rafmagnsverkstæðisins Neistans gerðu sér glaðan dag með mökum sínum og grilluðu saman við skálann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson Vélaverkstæðinu, Hjalti Reynisson Neistanum, Guðlaug Grétarsdóttir, Óli Axel Óskarsson Vélaverkstæðinu, Jón Ólafur Sigurjónsson Vélaverkstæðinu, Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Björnsson Neistanum, Lilja Ingólfsdóttir og Ernst Berndsen Vélaverkstæðinu. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Skúladóttir, Gísli Snorrason Vélaverkstæðinu, Þórunn Óladóttir, Steinunn Berndsen Vélaverkstæðinu, Þórey Jónsdóttir, Björn Hallbjörnsson Neistanum og Ari Þórsson Vélaverkstæðinu.
Höfðaskóli - safn 119
Nokkrir 10. bekkingar við lokaútskrift sína úr Höfðaskóla 31. maí 1996 með einkunnirnar sínar og rós í tilefni dagsins. Frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Ástmar Sigurjónsson, Gunnar Dór Karlsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Sigurður S.Ó. Hallgrímsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 590
Kári Lárusson og Sigrún Guðmundsdóttir á góðri stundu í Skíðaskálanum á Skagaströnd.
Sigurður Bjarnason - safn 005
Sigurður Skagfjörð Bjarnason á fermingardaginn sinn í gömlu Hólaneskirkju árið 1961.
1

114
115
116

167
Leita í myndasafninu
Leita