Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 660
Gripur nr. 660. Fimm hljómplötur eftir Hallbjörn J. Hjartarson.
Höfðaskóli082
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1971 ásmt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Viggó Magnússon, Óskar Hjaltason, Baldur B. Eðvarðsson, Hallgrímur Oddsson, Erlingur Ottósson, Hans Birgir Högnason og Ægir Jónsson. Miðröð frá vinstri: Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Anna Þóra Birgisdóttir, Magnús B. Jónsson kennari, Hafdís Þorvaldsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Elín Rafnsdóttir, Helga Heiða Helgadóttir og Dagbjört J. Jóhannsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 632
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) situr með Árna Geir Ingvarsson, ömmustrákinn sinn, í fanginu. Myndin var tekin seint á sjöunda áratugnum.
Skagaströnd - safn 423
Þetta hús, Dagsbrún, stóð nokkurn vegin þar sem nú er stjórnsýsluhúsið við Túnbraut 1-3. Síðustu íbúar hússins voru Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) og Ólína Hjartardóttir (d. 27.7.1983) með börnum sínum .
Sigurður Bjarnason - safn 013
Sigurjón Ingólfsson á árunum kringum 1965.
Höfðaskóli079
Börn fædd 1981 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Kristrún Linda Jónasdóttir, Bæring Jón Skarphéðinsson og Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri. Fremri röð frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Birna Ágústsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Birkir Rafn Gíslason, Ragna hrafnhildur Magnúsdóttir og Sverrir Brynjar Berndsen.
Minjasafn 665
Gripur nr. 665. Stór glerkrukka með glerloki. Sía fylgir með ofan í krukkunni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 031
Hafþór Gylfason til hægri og Kiddi "Gullrass" til vinstri í borðsalnum á Arnari Hu 1. Ef þú veist hið rétta nafn á Kidda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 613
Kristinn Guðmundsson (d. 1.12.1986) í Bræðraborg í fjáragi við Spákonufellsrétt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 558
Mörgum finnst gaman að eiga lítinn bát til að geta skroppið á sjó og dregið sér fisk í soðið. Á þessari mynd má sjá skektufjölda sem liggur innan við Smágarð út frá Skúffugarðinum. Þetta svæði hafnarinnar er oft nefnt "Hobbýkarla svæðið" vegna eðlis þeirrar útgerðar sem stunduð er á bátunum sem þar liggja. Myndin var tekin fyrir 1993 því þá smíðuðu hobbýkarlarnir flotbryggju og komu fyrir á svæðinu þar sem skekturnar liggja.
Árni Geir Ingvarsson - safn 537
Hér er fólk að fara á skíði við skíðalyftuna í hlíðum Spákonufells. Dökki kofinn sem sést á myndinni fauk í óveðri einn daginn og splundraðist. Lyftan var þá færð örlítið sunnar og lengd um ca 50 metra og annar kofi reistur fyrir stjórntæki lyftunnar. Lyftan hefur nú verið tekin niður fyrir allmörgum árum. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Minjasafn 542
Gripur nr. 542. Hvítur, stakur snagi með rauðri kúlu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 069
Starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen 1985. Talið frá vinstri: Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson, Jóhannes Sveinsson, Gísli Snorrason, Sigurjón Ingólfsson og Bergþór Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 541
Unglingar á Skagaströnd fyrir allnokkrum árum. Frá vinstri: Bryndís Guðjónsdóttir, Björk Sveinsdóttir og Ragnar Jónsson.
Minjasafn 440
Gripur nr. 440. Dagatal útgefið af Kaupfélagi Skagstrendinga 1966. Rifinn er af einn dagur í einu. Dagatalið er úr búi Ólafs Guðmundssonar Brautarholti á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 503
Nýsmíði inni á gólfi í skipasmíðastöðinni Mánavör hf. Ekki er vitað hvaða nafn þessi bátur fékk né hvert hann fór. Ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli068
Börn fædd 1986 í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Elín Anna Rafnsdóttir kennari, Sóley Elsa Blöndal, Hörður Aðils Vilhelmsson, Þórunn Júlíanna Guðmundsdóttir, Elínborg Ásdís Árnadóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ragnar Ásmundur Einarsson, Eiður Bjarki Þórarinsson, Ívar Logi Grétarsson, Sonja Hjördís Berndsen og Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 518
Orka Ís 119 á fullu ferðinni úti á rúmsjó. Maðurinn um borð er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 628
Höfðahólar stóðu þar sem nú er tjaldsvæðið á Skagaströnd. Samkæmt bókinni: "Byggðin undir Borginni" (bls 27) eru til heimildir um Höfðahóla frá 14. öld en þá var það eina af þremur jörðum sem voru á því svæði sem í dag er Sveitarfélagið Skagaströnd. Hin býlin voru Finnsstaðir og kirkjujörðin Spákonufell.
Árni Geir Ingvarsson - safn 521

Fólk skoðar björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar - líklega á sjómannadegi - við höfnina á Skagaströnd. Lögreglumaðurinn til vinstri er Þór Gunnlaugsson og maðurinn með yfirvaraskeggið er Haraldur Árnason. Aðrir á myndinni er óþekktir.

Minjasafn765
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996.
Höfðaskóli - safn 146
Hér er einn hópur nemenda á leiklistarnámskeiði með leiðbeinandanum, Sigrúnu Valbergsdóttur. Nemendurnir eru frá vinstri: Sveinn Elvar Jóelsson, Magnús Árni Hallgrímsson, óþekkt, Elva Mjöll Þórsdóttir, sem hylur andlit sitt, Jón Ingi Ragnarsson og María Markovic. Ef þú veist hver óþekkta stúlkan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 548
Gripur nr. 548. Grænn netinnkaupapoki með höldum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 043
Bjarni Ottósson frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Sigurður Bjarnason - safn 023
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 240
Myndin var tekin 23. maí 2001 þegar hópur elstu nemenda Höfðaskóla var að leggja af stað í skólaferðalag til Danmerkur ásamt kennurum. Frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Kristín Kristmundsdóttir stuðningsfulltrúi, Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Guðrún Hjálmtýsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen (fremst), Ragnar Einarsson (í miðju), Hörður Aðils Vilhelmsson (fjærst), Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Birkir Rúnar Jóhannsson og Hans Holger Jörgensen kennari.
Minjasafn703
Horfið hús, Litlu-Sólheimar, stóð við Skagaveg. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1982 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Sigurður Bjarnason - safn 036
Ingibjörg Gísladóttir dóttir Önnu Bjarnadóttur frá Bjargi.
Höfðaskóli - safn 305
Sigríður Einarsdóttir var kennari við Höfðaskóla í nokkur ár.
Höfðaskóli - safn 309

Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. M.a. gisti hópurinn á tjaldsvæði í nokkrum húsum eins og sést á myndinni. Á þessari mynd eru frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Jón Ingi Ragnarsson, Guðni Már Lýðsson, Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri (í dyragættinni), Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Karen Peta Karlsdóttir og Þóra Lísebet Gestsdóttir.

Sigurður Bjarnason - safn 037
Friðbjörg Oddsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 026

Slakað á í borðsalnum á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Níels Grímsson.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 081
Valdimar Viggósson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í togara.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 076
Þessir menn unnu saman á Vélaverkstæði Karls og Þórarins, sem var rekið í mörg ár í gömlum bragga sem stóð austan við Lækjarbakka við Strandgötu. Mennirnir eru frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Árni Max Haraldsson (d.6.12.1976), Gunnar Albertsson og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985).
Höfðaskóli058
Börn fædd 1992 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftari röð frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Þórður Indriði Björnsson, Ingibjörg Elín Jónasdóttir kennari, Laufey Inga Stefánsdóttir, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir og Þórir Óskar Björnsson. Fremri röð frá vinstri: Karl Aron Bender, Kristján Ýmir Hjartarson og Alexander Ragnarsson.
Minjasafn 405
Gripur nr. 405. Tvær postulínsskálar, mjög djúpar. Litaðar bláar með brúnum blómum. Skálarnar eru hvítar í grunninn og að innanverðu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 064
Sigursveitin í kappróðri karla á sjómannadegi, sennilega 1989, kom frá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Á myndinni er sigursveitin. Frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, William Sillar, Gísli Snorrason stýrimaður, Jóhannes Sveinsson, Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson og Ari Þórsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 538
Skíðadeildin á Skagaströnd hafði mjög gott samband við jólasveinana. Á hverju ári tóku félagar deildarinnar að sér að taka við pökkum og kortum fyrir þá fjallabræður en þeir komu síðan til byggða og báru út í húsin í bænum rétt fyir jól. Á þessari mynd hafa þeir bræður fengið Eðvarð Hallgrímsson til að hjálpa sér með því að keyra þá um bæinn á jeppa sínum. Bræðurnir á bílnum eru Kertasníkir til vinstri og Bjúgnakrækir til hægri.
Minjasafn 592
Gripur nr. 592. Stálketill af gamla laginu, mjög ryðgaður. Var hitaður á hellu og/eða yfir eldi. Gæti líka hafa verið smurkanna undir smurolíu.
Höfðaskóli - safn 161
Mikið er um hópastarf og ýmis konar samvinnu nemenda í vinnunni í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1992 af nokkrum stúlkum niðursokknum í einhverja textavinnu. Frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Linda Hafdal, tvær óþekktar.
Höfðaskóli - safn 312
Þrjár ungar stúlkur starfa saman að einhverri ritun með rafmagnsritvél 1988 eða 1989. Frá vinstri á myndinni: Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir og Halla Kristín Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 560

Hólaneskirkja nýrri í byggingu á hlaðinu á Hólaneskirkju eldri.

Höfðaskóli - safn 124
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson, Almar Fannarsson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 600

Á þessari mynd hafa þau stillt sér upp til myndatöku við vitann í Kálfshamarsvík, frá vinstri: Óþekkt, Árni Geir Ingvarsson og Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.

Höfðaskóli - safn 123
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Nemendurnir eru frá vinstri: Aris Eva Vilhelmsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir, Brynja Ágústsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 498
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin af heiðursmönnunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) frá Jaðri til vinstri og Skafta Fanndal Jónassyni (d. 2.9.2006) í Lundi við vinnu sína.
Höfðaskóli - safn 154

Elva Þórisdóttir kennari á spjalli við nemendur sína. Nemendurnir eru talið til vinstri frá Elvu í hring: Björgvin Matthías Hallgrímsson, Almar Fannarsson, Íris Ósk Jóhannesdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Sigurgeir Snævar Árnason,óþekktur og Elva kennari.

Sigurður Bjarnason - safn 003
Brúðkaupsmynd af hjónunum Guðlaugu H. Pétursdóttur og Benedikts Hallgrímssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 255
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Þessi mynd var tekin af týskusýningu sem var í einni stofunni. Þar sýndu nemendur eldri fatnað þó e.t.v. væri hann ekki allur frá 1939 þegar Höfðaskóli var stofnaður. Frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Ómar Ingi Ómarsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Sóley Elsa Blöndal, Amy Ósk Ómarsdóttir, ?Elna Ragnarsdóttir?, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Brynja Hödd Ágústsdóttir, óþekktur og Þórir Óskar Björnsson.
Sigurður Bjarnason - safn 052
Konan til vinstri er Sigurunn Konráðsdóttir (d. 18.12.1998) en til hægri er Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002) frá Bjargi. Barnið á milli þeirra er Jóhanna Jóhannsdóttir, ömmubarn Rósu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 494
Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) leggur upp í sjóferð í suð-vestan roki. Arnar var ísfiskstogari og mikið happaskip með góða skipstjóra. Túrarnir voru mis langir, frá viku upp í hálfan mánuð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 617
Eiður Hilmarsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri skoða múkka/fýl sem Stefán hefur fangað. Eins gott að fara varlega með fýlinn því hann á til að æla lýsisbrækju á óvini sína ef honum er ógnað.
Minjasafn759
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: "Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir". Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Sveinn Hjartarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 091
Bogga í Vík HU 6 í eigu Árna Guðbjartssonar og gerð út af honum. Myndin var sennilega tekin einhversstaðar í Snæfellsbæ.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 015
Viðhaldsgengi á verkstæðinu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson rafvirki frá Neistanum, Gísli Snorrason vélvirki frá Vélaverkstæði Skagastrandar, Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari frá Neistanum, Guðmundur Andersen vélstjóri, Óli Axel Óskarsson frá Vélaverkstæðinu og Hjalti Reynisson rafvirki frá Neistanum.
Höfðaskóli078
Börn fædd 1980 í 9. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Gunnar Dór Karlsson, Ástmar Sigurjónsson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir og Kristinn Björgvinsson. Miðröð frá vinstri: Ólafur Bernódusson kennari, Erla María Lárusdóttir, Þorsteinn Rúnar Pálsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Rakel Petrea Finnsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Sigurður S. Ó. Hallgrímsson, Valrún Eva Vilhelmsdóttir og Auður Eva Guðmundsdóttir.
larus098
Bræður frá Vík, þeir Georg Hjartarson (d. 13.9.2001) til vinstri og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til hægri, eftir að hafa verið heiðraðir á sjómannadegi 1995. Heiðursorða sjómannadagsins á Skagaströnd er veitt einstaklingum fyrir áratuga gott starf við sjómennsku og/eða fiskvinnslu á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 579
Skíðaskálinn á Skagaströnd við rætur Spákonufells. Hvíti skúrinn á myndinni var lyftuskúr en hann fauk í ofviðri og splundraðist.
Árni Geir Ingvarsson - safn 512
Þorvaldur Skaftason aðstoðar Sigurbjörn Björgvinsson við að klæðast flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 578
Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd stendur við Túnbraut 1-3. Hægra megin við húsið eru Ólafsvellir sem nú eru horfnir og það sama má segja um Stóra-Berg, sem grillir í með rauðu þaki vinstra megin aftan við Iðavelli, og um gömlu Hólaneskirkju.
1

115
116
117

167
Leita í myndasafninu
Leita