Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 593
Eldri mynd af Skagaströnd. Næst okkur á myndinni er trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar í byggingu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 019
Ari Þórsson til vinstri og Indriði Hauksson til hægri vinna við að setja vél í bíl á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Minjasafn794
Eyjaberg VE 130. Stærð 94 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1959 í A- Þýskalandi. Vél MWM Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Vestmannaeyjar. Strandaði og sökk 1965. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 638
Gripur nr. 638. Skilti úr tré málað rautt og hvítt með teiknaðri mynd af Andrési önd á tveimur stöðum misstórum. Einnig er teiknuð mynd af einhvers konar snák. Efst á skiltinu stendur: S.R. 1963 sem er skammstöfun fyrir: Síldarverksmiðja Ríkisins. Á skiltinu stand svo fjögur karlmannsnöfn: Óli A., Sigurður B., Frímann L. og Jóhann B. Þ. en allir þessir menn unnu hjá S.R. um tíma.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 062
Jóhannes Sveinsson til vinstri og Bergþór Gunnarsson til hægri við vinnu sína á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 621
Árni Geir Ingvarsson. Myndin var líklega tekin seint á sjöunda áratugnum. Skeifan í baksýn hægra megin við Árna og Höfðahólar vinstra megin við hann.
Höfðaskóli - safn 220
Davíð Víðisson til vinstri og Brynjar Max Ólafsson til hægri.
Minjasafn 598 no2
Gripur nr. 598. Áldunkur notaður undir sykurmola (sykurmolarnir eru ennþá í honum). Ofan í dunknum er viskastykki sem var gefið með honum.15 cm djúpur og 65 cm að ummáli. Ekkert lok fylgir dunkinum.
Höfðaskóli - safn 198
<p>Tölvuöldin hóf innreið sína í Höfðaskóla með því að keypt var ein tölva sem þótti frábært tæki á þeim tíma með minni upp 512 mb. Að sjálfsögðu var nemendunum ekki hleypt í þetta nýja, dýra tæki nema undir ströngu eftirliti kennara. Á þessari mynd er Ólafur Bernódusson kennari að skrifa á tölvuna en tveir nemendur fylgjast spenntir með. Nemendurnir eru líklega Eyþór Ernstsson? til vinstri og Gunnar Dór Karlsson? til hægri. </p>
Höfðaskóli - safn 398
Hákon Unnar Þórarinsson sker út laufabrauð í matsal Höfðaskóla 26. nóvember 1998.
Árni Geir Ingvarsson - safn 631
Ásholt á Skagaströnd. Sólvangur fjær til vinstri.
Höfðaskóli - safn 379
Nemendur Höfðaskóla við vinnu í skólanum. Frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefaánsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 577
Litla-Fell er nær okkur á myndinni og tilheyrir Sveitarfélaginu Skagaströnd. Lengra frá er Árbakki en hann tilheyrir Skagabyggð. Á milli bæjanna liggur Hrafná sem markar skilin á milli hreppanna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 618
Gunnar Sveinsson er sigurreifur með kappróðrarbikarinn í höndum á sjómanndegi. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Rúnar Ingvarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, ?Steinunn Berndsen?, Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002), Hjördís Sigurðardóttir og Eiður Hilmarsson.
Höfðaskóli - safn 390
<p>Stöllurnar og kennarar við Höfðaskóla í nokkur ár, Ingibjörg Jónasdóttir til vinstri og Jóna Fanney Svavarsdóttir til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 2000 í einhverri útivist kennara skólans.</p>
Höfðaskóli048
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Dagbjört Bæringsdóttir, Árdís Indriðadóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir, Ingibjörg Elín Jónasdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Sólveig Róarsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Miðröð frá vinstri: Hans Holger Jörgensen, Kristján Birgisson, Ólafur Bernódusson aðstoðarskólastjóri, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Valdimar Þórhallsson og Guðmundur Kristinn Oddsson. Fremsta röð frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Helga Ólína Aradóttir, Björn Ingi Óskarsson og Jóna Fanney Svavarsdóttir.
Höfðaskóli - safn 242
Anna María Magnúsdóttir vinstra megin og Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir til hægri hvíla lúin bein á óþekktu torgi í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 2001.
Höfðaskóli - safn 249
Vilborg Magnúsdóttir kennari við Höfðakóla í nokkur ár. Myndin var tekin vorið 1986.
Árni Geir Ingvarsson - safn 635
Asparlundur (Bogabraut 24) á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 278
Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri Höfðaskóla, til vinstri, með dóttur sína í fanginu ásamt Báru Þorvaldsdóttur kennara til hægri. Myndin var sennilega tekin kringum 1998.
Árni Geir Ingvarsson - safn 614
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) spariklædd utan við heimili sitt á Akri (Hólabraut 13).
Höfðaskóli - safn 303
Höfðaskóli varð 50 ára haustið 1989. Í tilefni af því var vinnuvika í skólanum þar sem nemendur og starfsfólk minntust afmælisins á margvíslegan hátt. Á myndinni eru nemendur að skoða þrjú líkön af höfninni á Skagaströnd. Það fyrsta, sem er lengst frá á myndinni, sýnir höfnina um aldamótin 1900, þá er líkan af henni eins og hún var 1939, þegar Höfðaskóli var stofnaður, og næst okkur er líkan af höfninni eins og hún var á afmælisárinu 1989. Nemendurnir eru: Eiður Örn Þórsson næst okkur, Jón Örn Stefánsson í ljós blárri peysu og Jóhannes William Grétarsson fjærst. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 360
Sigríður Laufey Einarsdóttir kenndi í Höfðaskóla um tíma. Með henni á myndinni, sem var tekin einhverntíma kringum 1990, eru Guðjón Ebbi Guðjónsson (nær) og Gunnar Dór Karlsson (fjær). Aðrir eru óþekktir.
Höfðaskóli096
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1964 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Bergþór Gunnarsson, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Sigurður Georgsson, Skafti Fanndal Jónasson, Vilhelm Jónsson, Sveinn Kristjánsson, Einar Karlsson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) og Hjalti Hólmar Indriðason. Miðröð frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Ólafur Halldór Bernódusson kennari, Kolbrún Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir og Anna Elínborg Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson safn 641
Þessi mynd af Skagaströnd hefur líklega verið tekin snemma á sjöunda áratugnum. Litla grænmálaða húsið með rauða þakinu í vinstra horni myndarinnar er Þórsmörk. Í vinstra horninu uppi grillir í byggingarnar á Óseyri og Bráðræði við sjávarbakkann.
Höfðaskóli106
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1942 - 1945 ásamt kennara sínum. Fremsta röð frá vinstri: Frímann Lúðvíksson, Sigurður Björnsson og Kristinn Lúðvíksson. Önnur röð frá vinstri: Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Harpa Friðjónsdóttir, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir og Ástríður Bertelsdóttir (d. 27.12.2001). Þriðja röð frá vinstri: Jóhanna Bertelsdóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Sigrún Jósteinsdóttir og Halla Björg Bernódusdóttir. Fjórða röð frá vinstri: Helga Jóhannesdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Ása Jóhannsdóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Ingólfur Ármannsson kennari, Sigurjón Magnússon (d. 16.3.2007), Konráð Guðmundsson og Birgir Þórbjarnarson.
Höfðaskóli - safn 180
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í "öðruvísi" fötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er einn hópurinn að skoða hvert næsta verkefni ratleiksins er. Frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 171
Unnur Kristjánsdóttir myndmenntakennari í Höfðaskóla um árabil.
Höfðaskóli - safn 302
Fyrrverandi starfsmenn Höfðaskóla á 60 ára afmælishátíð skólans í nóvember 1999. Frá vinstri: Björk Axelsdóttir kennari, Jón S. Pálsson skólastjóri 1966 -1986, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og Ingibergur Guðmundsson skólastjóri 1991 - 2005.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 084
Gísli Snorrason við rennibekkinn um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli104
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1948 og 1949 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Ómar Jakobsson, Þorvaldur Skaftason, Halldóra Ásmundsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Sigurjón Haraldsson, Guðmundur Guðmundsson og Örn Berg Guðmundsson. Miðröð frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Ástmarsson, Gísli Kristjánsson, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Gunnlaugur Sigmarsson, Steindór R. Haraldsson og Guðmundur J. Björnsson. Fremsta röð frá vinstri: Jóhanna Hallgrímsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Margrét Valdimarsdóttir, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Matthildur Hafsteinsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Guðbjörg Þorbjörnsdóttir.
Höfðaskóli004
Nemendur fæddir 1996 fá afhentar einkunnir sína úr höndum Fjölnis Ásbjörnssonar við skólaslit Höfðaskóla, líklega 2005 eða 2006. Nemendurnir eru frá vinstri talið: Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Freyja Einarsdóttir, Bergrós Hafsteinsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Aron Snær Fannarsson, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Svandís Hallgrímsdóttir og Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
Höfðaskóli057
Börn fædd 1989 í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Maríanna Ástmarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Almar Freyr Fannarsson, Unnur Kristjánsdóttir kennari og Sigþór Ottó Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn 397
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í einhverjum óvenjulegum búningi og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er hópurinn fyrir utan íþróttahúsið áður en lagt er af stað út í bæ að leysa þrautirnar. Frá vinstri í fremri röð: Sólveig Róarsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir. Aftari röð frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Finnur Magnús Gunnlaugsson (d. 31.12.2015), Dagbjört Bæringsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Fjóla Jónsdóttir og Hans Holger Jörgensen. myndi var tekin einhvertíma kringum árið 2000.
Höfðaskóli - safn 328
Andri Þór Ómarsson í myndmenntatíma í Höfðaskóla líklega kringum 1993.
Minjasafn788
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi á Skagaströnd sker hákarl til að setja hann síðan í kösina til kæsingar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 564
Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) fyrir utan heimili sitt Steinholt á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 056
Sigursveitin í kappróðri karla á sjómannadegi 1991 kom frá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Á myndinni er sigursveitin. Frá vinstri: Vilhelm Björn Harðarson, Ari Þórsson, Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson, Guðbrandur Magnússon, Gísli Snorrason og Karl Berndsen (d.12.2.1995) stýrimaður. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 082
Björn Viðar Hannesson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í Örvari Hu 21 í júlí 1994.
Minjasafn753
Sigríður Pétursdóttir (d.?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 063
Þessi mynd var sennilega tekin einhverntíma upp úr 1990 á túni við Kerlingarholt. Á henni er Ernst Berndsen með kaðalhönk í hendi en hann var þá nýbúinn að festa kaup á sviffallhlíf sem hægt var að draga á loft með bát eða bíl. Pabbi hans, Karl Berndsen (d.12.2.1995), er að hnýta endana í bílinn til að uppdráttur geti farið fram.
Árni Geir Ingvarsson - safn 523
Sprellað á sjómannadegi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) með embættishúfu sína sem tollvörður, Sigurbjörn Björgvinsson með hvítan hatt og Guðmundur Haukur Sigurðsson í stuttbuxum úr enska fánanum. Aftan við þá félaga fylgist Björn Sigurðsson vel með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 569
Akurgerði. Akurgerði var rifið 2009 og byggt var nýtt hús á lóðinni sem er Hólabraut 9.
Höfðaskóli105
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1949 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Sigurjón Ástmarsson, Sigurjón Haraldsson og Árni Ólafur Sigurðsson. Miðröð frá vinstri: Sigríður Ágústsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Margrét Valdimarsdóttir og Jóhanna Hallgrímsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson, Ómar Jakobsson, Þorvaldur Skaftason, Steindór R. Haraldsson, Guðmundur J. Björnsson og Guðmundur Guðmundsson.
Óþekktur ljósmyndari376
Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) við vinnu sína sem lagermaður hjá skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf og seinna hjá Mánavör hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 365
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Hópurinn var heppinn með veður og skemmti sér vel. Á myndinni eru nokkrir drengir albúnir í vatnsslag vopnaðir öflugum vatnsbyssum. Frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Gunnar Helgason, Leó Kristberg Einarsson og Jón Gunnar Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 606
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Þórarinn Brynjar Ingvarsson láta fara vel um sig í sólskinsbrekku. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 285
<p>Það liggur vel á þeim, talið frá vinstri, Árna Halldóri Eðvarðssyni, Guðna Má Lýðssyni og Birki Rúnari Jóhannssyni við vinnu sína við að gera veggspjöld fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999. Stúlkan í baksýn er óþekkt. </p>
Höfðaskóli - safn 238
Þessir strákar hafa sigrað í einhverri keppni innan Höfðaskóla einhverntíma kringum 1996. Frá vinstri: Gunnar Helgason, Magnús Líndal, Gunnlaugur Briem, Magnús Filip Sævarsson, Vignir Örn Hafþórsson, Eyþór Ernstsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Jón Gunnar Einarsson.
Höfðaskóli - safn 118
Hafþór Freyr Sigmundsson kennari afhendir nemendurm sínum einkunnir á skólaslitum Höfðaskóla 31. maí 1996. Nemendurnir, sem hægt er að þekkja, eru frá vinstri: Marta Kristín Jónsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Adolf Þór Lúðvíksson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Skúli Már ?, Gunnlaugur Briem, Jón Oddur Hjálmtýsson, Vignir Örn Hafþórsson, Gunnar Helgason og Magnús Fiip Sævarsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 052
<p>Þessi mynd var tekin í spilhúsinu í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Líklega er verið að draga upp bát eða slaka honum á flot. Mennirnir á myndinni eru Karl Berndsen (d.12.2.1995) frá Vélaverkstæðinu, til vinstri, og Ástmar Kári Ástmarsson frá Mánavör hf sem rak dráttarbrautina um árabil. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 515
Arnarborg Hu 11 tekin upp í dráttarbrautina. Verið er að byggja hliðargarða til hægri í dráttarbrautinni en þangað var svo Arnarborgin færð og seinna rifin og brennd 1993. Í baksýn sjást grænmálaðir togarar Skagstrendings hf; frystitogarinn Örvar Hu 21 nær og Arnar Hu 1 fjær. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Höfðaskóli - safn 257
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er unnið að undirbúningi dagsins. Frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Jón Atli Magnússon, óþekktur, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Gunnlaug Gunnlaugsdóttir stuðningsfulltrúi, Almar Freyr Fannarsson, Hanna María Gylfadóttir, Ragnar Már Björnsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 038
Sævar Hjaltason ísar fisk í kassa á millidekkinu á Arnari Hu 1. Þegar myndin var tekin hefur fiskirí verið gott því almennt var ekki hafður fiskur á millidekkinu. E.t.v. var lestin orðin full ?
Höfðaskóli - safn 318
Myndin var tekin af nemendum Höfðaskóla og nokkrum kennurum á útivistardegi í Höfðaskóla kringum 1995. Myndin var tekin við vörðuna uppi á Spákonufellsborg - á Borgarhausnum. Í fremstu röð frá vinstri: Gunnlaugur Briem, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson, óþekktur, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Adolf Þór Lúðvíksson, Marta Kristín Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Vignir Örn Hafþórsson, Jón Gunnar Einarsson og Guðjón Ebbi Guðjónsson. Hópurinn þar fyrir aftan frá vinstri: óþekktur, Karen Peta Karlsdóttir, Dusan Markovic, María Markovic, Jón Ólafur Sigurjónsson, Ástmar Sigurjónsson, Gunnar Dór Karlsson (fjær), Guðrún Björk Elísdóttir (nær), Gunnar Guðmundsson, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Magnús Árni Hallgrímsson (fremst), Rakel Petrea Finnsdóttir (næst fremst í bláum jakka), Arnar Ólafur Viggósson (næst aftast), Jóhannes William Grétarsson (aftast), óþekkt (nær), Salóme Ýr Rúnarsdóttir (fjær), Ásta Ýr Ásgeirsdóttir (nær), Trausti Magnússon? (fjær), Andri Ómarsson (fremst með rauðleita húfu), Sigurður Berndsen (fremst), Árni Max Haraldsson (næst fremst), Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir (næst aftast), óþekkt (aftast), Eyþór Ernstsson, Unnur Kristjánsdóttir kennari, óþekktur, Guðrún Elsa Helgadóttir og Carl Erik Lehman Jakobsen kennari. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndina tók Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 189
Stundum getur hávaðinn í skólanum orðið dálítið mikill og það er misjafnt hve vel fólki líkar það. Kristjáni Gunnari Guðmundssyni finnst greinilega hávaðinn of mikill því hann grípur fyrir eyrun og dregur sig út úr hópnum. Myndin var tekin á seinni hluta níunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 230
<p>Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Hér stendur María Guðrún Guðmundsdóttir við borðið áður en veislan hófst. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 629
Tunnuboðhlaup í gangi á sjómannadegi. Tunnuboðhlaup felst í að hlaupa og skríða gegnum tunnu á miðri leið. Oft eru svo lagðar einhverjar þrautir fyrir viðkomandi meðan hann liggur flatur í tunnunni. Í þessu tilviki eiga menn greinilega að blása í blöðru þar til hún springur. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Höfðaskóli - safn 282
Jóhanna Ólafsdóttir, kennari við Höfðaskóla 1987 - 1990, við vinnu sína í skólanum.
Sigurður Bjarnason - safn 017
Anna Andrésdóttir (d. 4.9.1998) frá Röðli.
1
…
117
118
119
…
167
Leita í myndasafninu
Leita