Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 509
Selvík Hu 2 í höfninni á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 257
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er unnið að undirbúningi dagsins. Frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Jón Atli Magnússon, óþekktur, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Gunnlaug Gunnlaugsdóttir stuðningsfulltrúi, Almar Freyr Fannarsson, Hanna María Gylfadóttir, Ragnar Már Björnsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 360
Sigríður Laufey Einarsdóttir kenndi í Höfðaskóla um tíma. Með henni á myndinni, sem var tekin einhverntíma kringum 1990, eru Guðjón Ebbi Guðjónsson (nær) og Gunnar Dór Karlsson (fjær). Aðrir eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 156
Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi í Kaupmannahöfn á einu af torgum borgarinnar líklega vorið 1998. Maðurinn, sem er að mynda hópinn, er Ólafur Bernódusson kennari en krakkarnir eru frá vinstri: Jón Ingi Ragnarsson, sem er að ganga út úr myndinni, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Gunnar Helgason, Karen Peta Karlsdóttir, óþekktur, Adolf Þór Lúðvíksson, Gunnlaugur Briem, Marta Kristín Jónsdóttir, Sveinn Elvar Jóelsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 155
Þessir tveir ungu drengir, nemendur Höfðaskóla, tóku þátt í stærðfræðikeppni 9. bekkinga í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Keppnin fer þannig fram að undankeppni er haldin í 9. bekkjum í öllum grunnskólum á Norðurlandi vestra og síðan komast 15 bestu áfram í aðalkeppnina á Sauðárkróki. Strákarnir, Jón Gunnar Einarsson til vinstri og Eyþór Ernstsson til hægri, komust í aðalkeppnina og stóðu sig báðir vel þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 036
Guðjón Guðjónsson (Jonni Ebba) fær sér kaffisopa á vaktaskiptum í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson safn 641
Þessi mynd af Skagaströnd hefur líklega verið tekin snemma á sjöunda áratugnum. Litla grænmálaða húsið með rauða þakinu í vinstra horni myndarinnar er Þórsmörk. Í vinstra horninu uppi grillir í byggingarnar á Óseyri og Bráðræði við sjávarbakkann.
Höfðaskóli - safn 230
<p>Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Hér stendur María Guðrún Guðmundsdóttir við borðið áður en veislan hófst. </p>
Höfðaskóli - safn 370
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Vinsælasti hádegismatur nemendanna var skyndibiti af ýmsum toga. Hér eru þrír félagar sælir með hamborgarana sína. Frá vinstri: Sveinn Elvar Jóelsson, Guðni Lýðsson og Hermann Freyr Guðjónsson.
Höfðaskóli - safn 172
Álfheiður Guðmundsdóttir vinstra megin og Elva Dröfn Árnadóttir til hægri einbeittar í listsköpun í myndmenntatíma í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin um 1990.
Höfðaskóli - safn 194
Gunnlaug Gunnlaugsdóttir í eldhúsinu í Höfðaskóla í Nóvember 1998. Í baksýn er Jón Ingi Ragnarsson að elda.
Höfðaskóli - safn 118
Hafþór Freyr Sigmundsson kennari afhendir nemendurm sínum einkunnir á skólaslitum Höfðaskóla 31. maí 1996. Nemendurnir, sem hægt er að þekkja, eru frá vinstri: Marta Kristín Jónsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Adolf Þór Lúðvíksson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Skúli Már ?, Gunnlaugur Briem, Jón Oddur Hjálmtýsson, Vignir Örn Hafþórsson, Gunnar Helgason og Magnús Fiip Sævarsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 052
<p>Þessi mynd var tekin í spilhúsinu í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Líklega er verið að draga upp bát eða slaka honum á flot. Mennirnir á myndinni eru Karl Berndsen (d.12.2.1995) frá Vélaverkstæðinu, til vinstri, og Ástmar Kári Ástmarsson frá Mánavör hf sem rak dráttarbrautina um árabil. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 515
Arnarborg Hu 11 tekin upp í dráttarbrautina. Verið er að byggja hliðargarða til hægri í dráttarbrautinni en þangað var svo Arnarborgin færð og seinna rifin og brennd 1993. Í baksýn sjást grænmálaðir togarar Skagstrendings hf; frystitogarinn Örvar Hu 21 nær og Arnar Hu 1 fjær. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 096
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Á þessari mynd eru tvenn hjón að njóta veitinga á Grillinu á hótel Sögu. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Friðbjörg Oddsdóttir og Hjalti Skaftason.
Höfðaskóli - safn 282
Jóhanna Ólafsdóttir, kennari við Höfðaskóla 1987 - 1990, við vinnu sína í skólanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 629
Tunnuboðhlaup í gangi á sjómannadegi. Tunnuboðhlaup felst í að hlaupa og skríða gegnum tunnu á miðri leið. Oft eru svo lagðar einhverjar þrautir fyrir viðkomandi meðan hann liggur flatur í tunnunni. Í þessu tilviki eiga menn greinilega að blása í blöðru þar til hún springur. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 499
Stefán Þór Árnason í byggingarvinnu á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 602
Þetta skilti, sem málað var af Sveinbirni Blöndal, prýddi kaffiskúrinn við Spákonufellsrétt. Fyrirmyndin á skiltinu var Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti.
Höfðaskóli - safn 221
Jóna Fanney Svavarsdóttir kennari við Höfðaskóla í nokkur ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 531
Vilhelm Þórarinsson við vinnu í bílakirkjugarðinum sem var við rætur Spákonufells um tíma.
Minjasafn748
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) Höfðatúni á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 516
Lítill bátur á stórum sjó. Hér róa tveir menn í land í austan golukalda á lítilli tré skektu. Stefán Jósefsson rær stjórnborðsmegin og Hjörtur Guðmundsson í bak.
Höfðaskóli007
Þessi mynd er af nemendum Höfðaskóla í vettvangsferð um Höfðann 1972. Kennarinn, sem stendur hæst, er líklega Helgi Vilhjálmsson. Nemendurnir eru frá vinstri í aftari röð: óþekktur, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Gísli Snorrason, óþekktur, Ernst Berndsen, óþekktur, Hafþór Gylfason, Páll Jónsson, óþekktur, Pétur Ingjaldur Pétursson og óþekktir nemendur. Fremri röð frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Rannveig Jónsdóttir, Lilja Kristinsdóttir, þrír óþekktir nemendur, Sólveig Gunnarsdóttir, óþekkt, Guðrún Guðmundsdóttir, óþekkt, ? Lára Bylgja Blöndal ?(fjær), þrír óþekktir nemendur, Jósef Sigurðsson og nemandinn lengst til hægri er óþekktur. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu nemendunum á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 009
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd sér yfir hólana þar sem fólk er að njóta veitinganna sem stjórnarmennirnir grilla í forgrunni myndarinnar.
Höfðaskóli - safn 216
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla einhverntíma á tíunda áratugnum. Á henni eru kennarar í óða önn að gera upp veturinn fyrir skólaslitin. Frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Líney Jósefsdóttir, Carl Erik Lehman Jakobsen og Ólafur Bernódusson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 055
Karl Berndsen (d.12.2.1995) til vinstri og Gísli Snorrason til hægri leysa saman eitthvert vandamál á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 596
Á þessari mynd sést greinilega staðsetning bæjarins Höfðahóla á Skagaströnd. Bærinn er nú löngu horfinn. Einnig er fróðlegt að skoða Borgina eins og hún leit út á sumrin áður en lúpínu var sáð í melana.
María Magnúsdóttir - safn 016
Kaffitími í Rækjuvinslunni hf. Við borðið nær okkur sitja frá vinstri: Kristófer Árnason (d.10.5.2000), Guðmundur Jóhannesson, Jóna Guðjónsdóttir, Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) og Sigurbjörg Björnsdóttir (Bogga í Grund) (d. 3.4.1981) sem snýr baki í myndavélina. Við borðið fjær eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason og Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990). Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Höfðaskóli - safn 181
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í náttfötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er hluti hópsins fyrir utan skólann. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Hallbjörg Jónsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Kristján Birgisson, Dagbjört Bæringsdóttir og Kristín Kristmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 254
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt af því sem gestir gátu skoðað var sýnishorn af hvers konar kennslugögn voru notuð í gamla daga. Þessi mynd sýnir hluta af slíkum gömlum gögnum. <br>Í dag mundi þessi mynd líta mjög öðruvísi út með vasareiknum, nettengdum tölvum, sjónvörpum og spjaldtölvum sem nú einkenna kennsluumhverfið í skólanum ásamt mun þægilegri húsgögnum.
Höfðaskóli - safn 301
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur að sýna leikþátt sem átti að gerast í gamla daga. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Almar Fannarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Ragnar Már Björnsson, Jóhann Örn Stefánsson? og Anna Dúna Rúnarsdóttir.
Höfðaskóli - safn 135
Hér eru Eva Rún Rúnarsdóttir til vinstri og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna Lilja Nótt Sævarsdóttir) til hægri í heimsókn í byggðasafni, sennilega að Reykjum í Hrútafirði.Myndin var tekin seint á 10. áratugnum.
Höfðaskóli - safn 253
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur að flytja stuttan leikþátt sem gerist í skólastofunni. Almar Freyr Fannarsson situr við borðið og Tinna Björk Gunnarsdóttir stendur og hlustar á hann. Hinir tveir leikararnir eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 351
Þessi mynd var tekin 2. nóvember 1999 í Höfðaskóla af þeim Sonju Berndsen vinstra megin og Sóley Elsu Blöndal til hægri.
Höfðaskóli - safn 121
Erla María Lárusdóttir, formaður skólafélagsins Ránar, afhendir Magúsi B. Jónssyni sveitarstjóra skóflu til að taka fyrstu skóflustungu að íþróttahúsinu við skólaslit Höfðaskóla 31. maí 1996. Það gekk eftir og íþróttahúsið var vígt 1998.
Sigurður Bjarnason - safn 017
Anna Andrésdóttir (d. 4.9.1998) frá Röðli.
Höfðaskóli106
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1942 - 1945 ásamt kennara sínum. Fremsta röð frá vinstri: Frímann Lúðvíksson, Sigurður Björnsson og Kristinn Lúðvíksson. Önnur röð frá vinstri: Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Harpa Friðjónsdóttir, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir og Ástríður Bertelsdóttir (d. 27.12.2001). Þriðja röð frá vinstri: Jóhanna Bertelsdóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Sigrún Jósteinsdóttir og Halla Björg Bernódusdóttir. Fjórða röð frá vinstri: Helga Jóhannesdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Ása Jóhannsdóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Ingólfur Ármannsson kennari, Sigurjón Magnússon (d. 16.3.2007), Konráð Guðmundsson og Birgir Þórbjarnarson.
Höfðaskóli - safn 180
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í "öðruvísi" fötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er einn hópurinn að skoða hvert næsta verkefni ratleiksins er. Frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 193
Guðbjörg Ólafsdóttir heimilisfræðikennari með þremur nemendum sínum. Þeir eru frá vinstri: Pétur Jensen, Björn Viðar Jóhannsson og Stefán Agnar Gunnarsson.
Höfðaskóli - safn 175
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í náttfötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Á þessari mynd er hluti hópsins. Fremsta röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Dagbjört Bæringsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir. Þriðja röð frá vinstri: Hans Holger Jörgensen, Hallbjörg Jónsdóttir og Sólveig Róarsdóttir. Aftast frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Elva Þórisdóttir og Kristján Birgisson.
Höfðaskóli - safn 369
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Í Árósum gisti hópurinn í íþróttasal eins grunnskólans í bænum, stelpur, strákar og kennarar saman. Þeir heppnu fundu sér dýnu til að liggja á en hinir urðu að láta sér svefnpokann duga. Kennarinn á myndinni er Kristín Ólafsdóttir og faman við hana er Adolf Þór Lúðvíksson á gólfinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Árni Geir Ingvarsson - safn 614
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) spariklædd utan við heimili sitt á Akri (Hólabraut 13).
Höfðaskóli - safn 303
Höfðaskóli varð 50 ára haustið 1989. Í tilefni af því var vinnuvika í skólanum þar sem nemendur og starfsfólk minntust afmælisins á margvíslegan hátt. Á myndinni eru nemendur að skoða þrjú líkön af höfninni á Skagaströnd. Það fyrsta, sem er lengst frá á myndinni, sýnir höfnina um aldamótin 1900, þá er líkan af henni eins og hún var 1939, þegar Höfðaskóli var stofnaður, og næst okkur er líkan af höfninni eins og hún var á afmælisárinu 1989. Nemendurnir eru: Eiður Örn Þórsson næst okkur, Jón Örn Stefánsson í ljós blárri peysu og Jóhannes William Grétarsson fjærst. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 171
Unnur Kristjánsdóttir myndmenntakennari í Höfðaskóla um árabil.
Höfðaskóli - safn 302
Fyrrverandi starfsmenn Höfðaskóla á 60 ára afmælishátíð skólans í nóvember 1999. Frá vinstri: Björk Axelsdóttir kennari, Jón S. Pálsson skólastjóri 1966 -1986, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og Ingibergur Guðmundsson skólastjóri 1991 - 2005.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 084
Gísli Snorrason við rennibekkinn um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli - safn 222
Rebekka Marín Þórarinsdóttir í myndmenntastofunni í Höfðaskóla í nóvember 1998.
Höfðaskóli - safn 157
Pósturinn efndi til samkeppni um hönnun á nýju frímerki meðal grunnskólanemenda á Íslandi einhvertíma nálægt aldamótunum. Jóna Gréta Guðmundsdóttir, nemandi í Höfðaskóla, sigraði í keppninni og hlaut vegleg peningaverðlaun fyrir myndina sína. Á þessari mynd tekur Jóna Gréta við verðlaunum sínum úr hendi óþekkts, hátt setts manns hjá Póstinum.
Höfðaskóli - safn 367
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Á myndinni er Hjálmfríður Guðjónsdóttir sem var ein af kennurunum, sem fóru með í ferðina.
Fisk Seafood - safn 135
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru fjórir forystumenn í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Jón Jónsson (d.9.7.1991) stjórnarformaður og seinna framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Grétar Haraldsson verkstjóri í áratugi, Kristófer Árnason (d.10.5.2000) verkstjóri í ártugi og Guðmundur Lárusson (d.15.10.2002) sem var lengi framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf og var einn af aðal hvatamönnum fyrir stofnun hennar á sínum tíma.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 008
Hólmgeir Kristmundsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli - safn 235
Þessi mynd var tekin vorið 1998 þegar Ólafur Bernódusson, lengst til vinstri, tók við sem aðstoðarskólastjóri Höfðaskóla af Kristínu Ólafsdóttur, sem hætti og flutti burtu. Til hægri er Ingibergur Guðmundsson skólastjóri.
Fisk Seafood - safn 047
15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni þar sem fólk situr og hlustar á einhvern ávarpa hópinn. Frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir, Linda Kristjánsdóttir og Adolf J. Berndsen stjórnarformaður Hólaness hf á þessum tíma.
Höfðaskóli - safn 348
Hér eru krakkar úr Höfðaskóla fædd 1983 að flytja árshátíðaratriði sitt á sviðinu í Fellsborg. Myndin hefur verið tekin kringum 1990. Frá vinstri: Magnús Filip Sævarsson, Adolf Þór Lúðvíksson, María Markovic, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eyþór Ernstsson?, Gunnar Helgason, Magnús Líndal Þrastarson, Marta Kristín Jónsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Skúli Már Matthíasson og Vignir Örn Hafþórsson.
María Magnúsdóttir - safn 118
Textinn aftan á þessari mynd er svohljóðandi: "Ég sendi þér þessa mind ef þú hefðir gaman af hún er af mér þegar ég var í hjúkrunarfötunum hin stúlkan var sjúklingur heitir Soffía Sveinsdóttir mindin af henni er ekki góð, og raunar ekki af mér heldur Rúna frá Neðstabæ".
Höfðaskóli - safn 271
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru nemendur að mála leiktjald undir stjórn kennarans Aðalheiðar Árnadóttur. Frá vinstri: Aðalheiður, Hanna María Gylfadóttir, Rósa Björk Einarsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson og Hörður Aðils Vilhelmsson.
Óþekktur ljósmyndari377
Þessi mynd var tekin í kaffiveislu hjá kirkjukór Hólaneskirkju. Tilefni veislunnar hefur sjálfsagt verið að hjá kórnum er aðkominn söngþjálfari. Frá vinstri: Kjartan? söngþjálfari, Ásmundur Magnússon (d.2.2.1996), Gestheiður Jónsdóttir (d.6.11.2010), Helga Kristjánsdóttir (d.3.6.2002), Jóhanna (Dúa) Bertelsdóttir, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Edda Pálsdóttir, Guðný Pálsdóttir (d. 3.12.2015) og Vilborg Jónsdóttir (d.?).
Höfðaskóli - safn 151
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir?, Hanna Rúna Gestsdóttir, Garðar Geirfinnsson kennari, Jenný Lind Sigurjónsdóttir (fjær), Björn Viðar Jóhannsson (nær), óþekktur (fjær), Eyþór Kári Egilsson (nær), Helga Dögg Jónsdóttir (nær) og óþekkt (fjær). Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 223
Heiða Berglind Fannarsdóttir þrífur í eldhúsinu í Höfðaskóla í nóvember 1998. Til vinstri sér í Guðjón Ebba Guðjónsson en til hægri sér í Hákon Unnar Þórarinsson.
1
…
118
119
120
…
167
Leita í myndasafninu
Leita