Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón112
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Viggó Magnússon og Hólmfríður Oddsdóttir sýna áhorfendum hverju maður á að klæðast til að vera fínn.
Mundi306
Óþekkt börn árið 1962. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
fram003
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Frá vinstri: Óþekkt, Vilborg Magnúsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, óþekkt, óþekkt kona og barn, Guðný Finnsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Særún Jónsdóttir, Kristinn Guðmundsson og Vilhelm Jónsson.
Mundi238
Magnús Halldórsson frá Hólma og Jökull Sigtryggsson frá Núpi á góðri stund
Mundi319
Svanbjörg Magdalena Jósefsson (Svana Fossdal) (f. 27.4.1925 - d. 31.3.2002), sem var færeysk að uppruna, með tveimur af börnum sínum þeim Matthildi Björnsdóttur Fossdal og Inga Hafsteinssyni Fossdal (d.12.12.1987) á heimili sínu í Dvergasteini.
img012

Logndagur við Skagastrandarhöfn. Lengst til hægri sér í hornið á vigtarskúrnum sem stóð við hafnarvogina sem þá var á þessum stað. Í tanknum, utan á húsinu (Ketilhúsinu) vinstra megin við skorsteininn, var geymd svartolía sem notuð var til að kynda stóran gufuketil inni í húsinu. Gufan var síðan bæði notuð til að knýja túrbínu til að framleiða rafmagn fyrir verksmiðjuna og beint til að sjóða síldina í verksmiðjunni. Myndin er tekin einhverntíma á áttunda áratugnum.

fram032
Kristinn Guðmundsson og Víðir Ólafsson til hægri lyfta veglegum verðlaunagrip eftir unnin íþróttaafrek árið 1990.
Mundi251

Ríkarð Björnsson frá Fjósum og Haukur Eiríksson frá Vatnshlíð uppáklæddir á góðri stund.

fram128
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. 100m undanrásir frá vinstri: Steinnun, Kolbrún, Guðrún og Sigríður
Mundi247
Framkall eftir leiksýningu. Ekki er vitað um hvaða sýningu er að ræða né eru leikararnir þekktir. Miðað við hve leikararnir eru ungir gæti verið um skólaskemmtun eða stúkuskemmtun að ræða.
Óþekkt077
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn.
Mundi269
Frá vinstri: Sigurlaug Friðgeirsdóttir, Guðjónína Jóhannesdóttir, Rúnar Sveinsson og Margrét Jóhannesdóttir. Margrét var eiginkona Ole Aamundsen í Lundi og Sigurlaug bjó lengi hjá þeim hjónum.
Mundi307
Þetta fólk er óþekkt en þau eru líklega hjón. Myndin var tekin 1962. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bogi afi
Bogi Theodór Björnsson að fletja fisk um borð í óþekktu skipi.
fram110
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Margrét ? kastar kúlu.
mundi323
Sævar Hafsteinsson Fossdal í Dvergasteini
mundi358
Barnið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðný Sigurðardóttir
Guðný Sigurðardóttir (1927-). Myndin er tekin 13. maí 1945 af Bjarna Árnasyni á Akranesi. Guðný flutti frá Skagaströnd á Akranes 1943 og hefur búið þar síðan.
fram108
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Valdimar Viggósson umf. Fram kastar kúlu.
Mundi293
Helga Berndsen og Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) leika á sviðinu í Tunnunni.
Mundi279
Á þessari leiksýningu, sem ekki er vitað hvað hét, lék Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) m.a. myndastyttu og Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) lék hreingerningakonu sem þurfti að þrífa styttuna.
Mundi250
Óþekktir leikarar leika óþekkt leikrit.
mundi324
Guðbjörg Vera Kristinsdóttir (Bugga). Myndin tekin í skólanum sennilega á fermingardegi Guðbjargar vorið 1968.
mundi367
Hjónin Erla Valdimarsdóttir (d. 29.9.2008) og Guðmundur Lárusson (d.15.10.2002) athafnamaður og framkvæmdastjóri.
larus050
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Fjöldi fólks var við vígsluna.
mundi363
Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason og Ingþór Þorfinnsson. Hólanesið í baksýn
fram028
Guðbjörg Gylfadóttir Íslandsmeistari í kúluvarpi með verðlaunagrip árið 1990.
Mundi255
Eigandi bílsins var Engilbert Óskarsson (d.13.9.1982) sem keyrði farþega og vörur milli Skagastrandar og Reykjavíkur. Engilbert Óskarsson og Sigríður Helgadóttir kona hans áttu heima í Skálholti, en fluttu frá Skagaströnd til Reykjavíkur 1958. Þessi bíll kom til Skagastrandar 1954. Bíllinn var óyfirbyggður og var notaður fyrsta sumarið í stauraflutnínga fyrir Rafmagnsveiturnar. Fór um haustið til Akraness og var byggt yfir hann um veturinn. Engilbert Óskarsson seldi Valdimar Núma Guðmundssyni (d. 14.3.1972) bílinn 1958 og var hann í eigu Núma til 1963. Númerið H275 var á flutningabílum frá Skagaströnd til 1982 og á bílum Hjalta Skaftasonar til 2007.
Mundi282
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni. Leikkonurnar eru, talið frá vinstri: Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og Þorgerður Bogadóttir.
fram137
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. Helgi Björnsson frá Læk ( Efri-læk) kastar kúlu.
Mundi240
Þetta mun vera læknisfrúin á Skagaströnd, Elsa S. Blöndal með sonardóttur sína Elsu Láru Blöndal (Sveinbjörnsdóttur) í fanginu
Mundi267

Guðjónína Jóhannesdóttir í Lundi með Rúnar Sveinsson í fanginu.

fram059
Héraðsmót USAH í sundi 1977. 25m baksund. Þórður Daði Njálsson
fram114
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 800m hlaup telpna. Soffía Guðmundsdóttir umf. Fram að setja nýtt sýslumet.
fram056
Héraðsmót USAH í sundi 1977. 50m skriðsund. Frá vinstri: Gunnar Ævar Jónsson frá Mosfelli, Þórður Daði Njálsson, Jóhannes Fossdal.
mundi369
Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), verkalýðsfrömuður, bóksali og sparisjóðsstjóri í bókaverslun sinni í Miðnesi.
mundi365
Haraldur Eyjólfsson (d. 31.7.1979) bóndi í Gautsdal.
Mundi280

Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) leikur myndastyttu í óþekktu leikriti. Leikararnir fyrir framan hann eru óþekktir.

mundi337
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver.
fram019
Hér eru börn tilbúinn að byrja Landsbankahlaup. Það var víðavangshlaup sem bankinn stóð fyrir víða um land í allmörg ár meðal annars á Skagaströnd. Þessi mynd er tekin ca 1985. Fjórði frá vinstri er Jónas Þorvaldsson þá Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir við hlið hennar , óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna). Aðrir eru óþekktir.
Mundi284
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966), Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) og óþekkt leikkona.
fram047
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Guðmundur Haukur fararstjóri hópsins.
Jón053
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Eitt af atriðunum á hátíðinni var sýning á gömlum bílum og tryllitækjum. Þá voru líka sett upp fjölskylduvæn leiktæki. Á myndinni má sjá hvortveggja - gamla bíla og hluta af leiktækjunum
Mundi278
Systurnar Þórgunnur Snædal til vinstri og Gígja Snædal, dætur Rósbergs Snædal (d.9.1.1983) skálds og rithöfundar.
Jón110
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Á myndinni sýna Hólmfríður Oddsdóttir og Viggó Magnússon nýjustu fatalínu þess tíma. Sýningin fór fram í verslun kaupfélagsins (nú Samkaup) á Skagaströnd. Pallur var lagður ofan á frystikistuna í miðri búð og var það sýningarsviðið.
Mundi302
Séra Pétur Sigurgeirsson (f. 2.6.1919 - d. 4.6.2010) biskup og kona hans Sólveig Ásgeirsdóttir með börnum sínum 1952. Drengurinn fremst á myndinni var þó ekki í fjölskyldunni.
Mundi249
Óþekkt stúlka. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
fram024
Lokamark í víðavangshlaupi Landsbankans ca 1985.
Mundi245
Ekki er ljóst hvaða leiksýning er hér í gangi né hverjir leikararnir eru.
fram089

Hér er verið að veita verðlaun fyrir víðavangshlaup umf. Fram. Frá vinstri: Björn Sigurðsson, Skúli Tómas Hjartarson og Sigvaldi Guðmundsson.

Anna Ingunn Björnsdóttir
Anna Ingunn Björnsdóttir
Mundi317
Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) sjómaður frá Karlsskála.
Jón077
Arnarborg Hu 11 var fyrsti báturinn sem tekinn var upp í slippinn. Það var gert við vígslu dráttarbrautarinnar 1985. Arnarborgin var seinna rifin í slippnum.
fram123
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Hjörtur Guðmundsson umf. Fram kastar spjóti.
Anna Ingunn Björnsdóttir og Unnur Björnsdóttir
Anna Ingunn Björnsdóttir, til vinstri, og Unnur Björnsdóttir (d.14.12.1990) úr Þórshamri.
fram127
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. 100m undanrásir, frá vinstri: Einar Einarsson, Ingibergur Gu[mundsson og tveir óþekktir.
Binna, Laggi, Óli, Gerða og Gúrí
Binna, Laggi, Óli, Gerða og Gúri - Bogabörn.
Mundi248
Óþekkt leikrit og óþekktir leikarar á sviðinu.
Mundi305
Óþekkt fjölskylda árið 1962. Ef þú veist eitthvað um fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Mundi253
Byggingaframkvæmdir við Höfðaskóla í gangi. Myndin tekin einhverntíma á árunum fyrir 1958 því þá var byggingin tekin í notkun. Maðurinn með hjólbörurnar er óþekktur.
1

11
12
13

167
Leita í myndasafninu
Leita