Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 280
Eva Dögg Bergþórsdóttir sýnir gamla hátísku á tískusýningu í Höfðaskóla á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Sigurður Bjarnason - safn 009
Sigríður Ágústsdóttir frá Blálandi.
Höfðaskóli - safn 353
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru Leó Kristberg Einarsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir að æfa sig í að lesa eitthvað upp sem þau svo fluttu á afmælisdeginum sjálfum.
Fisk Seafood - safn 078
Þessir bræður/frændur frá gömlu Júgóslavíu bjuggu á Skagaströnd um nokkurn tíma. Þessi mynd af þeim var tekin á Hótel Dagsbrún 19. desember 1991. Þeir unnu meðal annars hjá Hólanesi hf og voru vel liðnir dugnaðarmenn. Frá vinstri Nikola Velemir og bræðurnir Dusko Velemir og Mihajlo Velemir. Tilefni myndatökunnar er ekki þekkt.
Höfðaskóli - safn 132
Á þessari mynd eru nemendur og kennarar að gera sér glaðan dag með því að búa sig upp að vild og mála sig í framan. Hér verður hver að þekkja sig en á myndinni má m.a. sjá kennarana Helgu Ólínu Aradóttir með skegg, Lárus Ægi Guðmundsson með appelsínugula hárkollu, Guðbjörgu Ólafsdóttur með rauða hárkollu, Þórunni Bernódusdóttur með blómahatt og Báru Þorvaldsdóttur með vefjahött. Myndin var tekin á torginu á Hnappstaðatúninu seint á 10. áratugnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 005
Arnar Hu 1 að leggja upp í veiðiferð. Arnari var snúið í stefnuna inni í höfninni því hann lætur illa að stjórn afturábk. Í dag fær Arnar hjálp frá Húnabjörg við að snúa þar sem Húnabjörgin þjónar sem dráttarbátur. Mennirnir á bryggjunni eru Hafþór Gylfason´til vinstri og Magnús Guðmannsson til hægri. Sjómennirnir um borð eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 007
Myndin var líklega tekin á Hótel Íslandi einhverntíma kringum 1990. Þá bauð Hólanes hf starfsfólki sínu í helgarferð til Reykjavíkur og til skemmtunar og hátíðakvöldverðar á Hótel Íslandi. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Óli Axel Óskarsson, Björgvin Brynjólfsson, Vilborg Magnúsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Sólveig Róarsdóttir og Haraldur Árnason. Hægra megin við borðið, frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Charlotta Traustadóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Gunnar Sveinsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Hrefna Björnsdóttir og Gunnar Albertsson.
Fisk Seafood - safn 012
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmdastjóri Hólaness hf að afhenda Sigrúnu Benediktsdóttur pakkann sinn frá Sölumiðstöðinni. Fjóla Dögg Björnsdóttir fylgist forvitinn með. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Höfðaskóli - safn 256
<p>Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Þessi mynd var tekin af leikþætti þar sem sett var á svið dagur í skólanum. Fremst á myndinni sér aftan á Sindra Njál Hafþórsson. Hinir eru frá vinstri: Hanna María Gylfadóttir, ?Ívar Gylfason?, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekkt, Kristinn Hjálmtýsson og Hákon Unnar Þórarinsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Fisk Seafood - safn 021
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á myndinni eru frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Rúnar Backman og Guðmundur Ólafsson.
Fisk Seafood - safn 127
Igvar Þór Jónsson við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 060
Sigurjón Ingólfsson vinnur við rennibekkinn á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Höfðaskóli - safn 261
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni er þeir klárir til að taka þátt í týskusýningu, Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Ívar Kristberg Einarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 640
Þeir sem kunnugir eru á Skagaströnd munu sjá að bærinn hefur breyst töluvert frá því að þessi mynd var tekin, sennilega upp úr 1980. Sökkull er komin undir nýju kirkjuna en sú gamla stendur enn, bygging íþróttahússins er ekki hafin, Stóra-Berg stendur enn og sama má segja um Ásbyrgi, Drangey, Rjúpnafell og Sæborg (Góubærinn) en öll þessi hús eru nú horfin. Kántrýbær er eins og hann var fyrir bruna og endurbætur á Bjarmanesi eru ekki hafnar.
Höfðaskóli - safn 300
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Hér eru krakkarnir að útbúa sér nesti til dagsins. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Bæring Skarphéðinsson, Sverrir Berndsen, Elva Dröfn Árnadóttir og Ásdís Lýðsdóttir. Hægra megin við borðið eru: Davíð Bragi Björgvinsson (næst), Guðjón Hall Sigurbjörnsson (í miðið) og Heiðrún Ósk Níelsdóttir (fjærst).
Höfðaskóli - safn 163
Guðmundur Oddson var kennari við Höfðaskóla um tíma.
Fisk Seafood - safn 140
Þessi mynd var tekin 3. september 1993 í höfninni á Skagaströnd. Við bryggjuna liggur rússneskur? togari SOYANA en farmur hans hefur annað hvort verið frosinn þorskur eða frosin rækja. Nokkra slíka farma keypti Hólanes hf til að vinna í frystihúsinu eða rækjuvinnslunni eftir því sem við átti. Þegar þessi skip komu í höfn upphófust oft mikil viðskipti við áhöfnina en þeir voru sólgnir í að kaupa gamla bíla, sérstaklega gamlar Lödur. Keyptu þeir umvörpum slík farartæki sem menn voru jafnvel búnir að leggja fyrir löngu síðan. Mátti oft ekki á milli sjá hvorir voru ánægðari með viðskiptin, sjómennirnir eða bíleigendurnir en hvorir tveggju töldu sig gera góða samninga. Bílunum var síðan staflað á dekkið í togaranum og líklega hafa flestir þeirra verið rifnir í varahluti þegar heim til Rússlands var komið. Mennirnir á myndinni eru að fylgjast með og e.t.v. hefur einhver þeirra selt verðlaust bílhræ á góðu verði. Frá vinstri: Hafþór Gylfason, óþekktur, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Jón Ólafur Sigurjónsson (fjær), óþekktur (nær), Guðjón Hall Sigurbjörnsson og Bjarni Ottósson.
Höfðaskóli - safn 325
Þrír ungir strákar úr Höfðaskóla bíða eftir að komast á sviðið í Fellsborg til að æfa árshátíðaratriði sitt. Myndin var sennilega tekin kringum 1990. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Kristinn Björgvinsson og Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 511
Ragnar Ingvarsson smúlar dekkið um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Sigurður Bjarnason - safn 051
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sigurður Bjarnason - safn 035
Tómas Gíslason sonur Önnu Bjarnadóttur frá Bjargi.
Fisk Seafood - safn 060
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er fjöldasöngur í gangi og mikið fjör. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Þorvaldur Skaftason með gítar, Guðbjörg Viggósdóttir, Lovísa Vattnes og Ástmar Kári Ástmarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 636
Lækjarbakki er fyrir miðri mynd. Til vinstri eru fjárhús og hlaða sem tilheyrðu Lækjarbakka en eru nú horfin. Til hægri er braggi sem er horfinn en þar var m.a. rekið bílaverkstæði og var seinna slökkvistöð Skagastrandar.
Sigurður Bjarnason - safn 047
Sævar Bjarnason frá Bjargi á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 387
Líney Jósefsdóttir í Höfðaskóla þar sem hún kenndi um tíma. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 546
Ólafur Magnússon Hu 54 nýskveraður og flottur í höfninni á Skagaströnd.
Fisk Seafood - safn 093
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Á þessari mynd má þekkja vinstra megin við ganginn: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Hægra megin við ganginn: fremst: Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Í næstu sætum eru Lárus Ægir Guðmundsson og Anna H. Aspar (d.1.9.1999). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 355
Líklega eru stúlkurnar tvær á myndinni að undirbúa árshátíð Höfðaskóla eða einhverja aðra sýningu. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1990. Til vinstri er Karen Peta Karlsdóttir en til hægri er óþekkt stúlka (?Svava Magnúsdóttir?) . Ef þú þekkir stúlkuna til hægri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 177
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í náttfötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er einn hópurinn að skoða hvert næsta verkefni ratleiksins er. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson og Bára Þorvaldsdóttir.
Höfðaskóli - safn 141
<p>Myndin sýnir unga skólabræður úr Höfðaskóla í heimsókn á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Sindri Njáll Hafþórsson, Björn Viðar Jóhannsson, Friðvin Ingi Ernstsson, Eyþór Kári Egilsson og Kristinn Andri Hjálmtýsson.</p>
Höfðaskóli - safn 164
Oft heldur starfsfólk Höfðaskóla upp á lok skólaársins með því að fara í dags ferðalag saman. Þessi mynd var tekin úti í Drangey í einu slíku ferðalagi. Fjóla Jónsdóttir horfir fram af brúninni en Jens ? og Dagbjört Bæringsdóttir fylgjast með.
Höfðaskóli - safn 114
Myndin sýnir nemendur Höfðaskóla reyna sig í þrautabraut sem komið var upp á skólalóðinni í vinnuviku skólans um miðjan 10. áratuginn. Á myndinni er Rebekka Laufey Ólafsdóttir að reyna að komast ákveðna vegalengd undir neti án þess að snerta það.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 068
Líklega var þessi mynd tekin á Strandgötu 10, heimili Karls Berndsen, í kaffiboði um jól fyrir starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Gísli Snorrason, Bergþór Gunnarsson, Vilhelm Björn Harðarson (snýr baki í okkur), Guðjón Árnason, Sigurjón Ingólfsson, Jóhannes Sveinsson og Karl Berndsen (d. 12.2.1995).
Árni Geir Ingvarsson - safn 620
Hér eru þrjú systkini sem áttu heima á Bogabraut 16, frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Gréta Ingvarsdóttir. Á myndinni eru þau utan við Akur (Hólabraut 13). Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1970.
Höfðaskóli - safn 384
Hlustað og fylgst með í Höfðaskóla á einhverjum fundi. Frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, óþekkt, óþekkt, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Eiður Örn Þórsson og Jón Ólafur Sigurjónsson. Sennilega var myndin tekin kringum 1995. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 295
Einar Haukur Arason smíðakennari í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin vorið 1987 á kennarastofunni.
María Magnúsdóttir - safn 084
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli til vinstri og Rannveig? til hægri. Ef þú veist föðurnafn Rannveigar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 289
Á myndinni er hluti starfsfólks Höfðaskóla í eldhúsi skólans. Líklega var myndin tekin í nóvember 1999 á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla. Frá vinstri: Dagný Úlfarsdóttir kennari, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Guðbjörg Ólafsdóttir kennari, Guðrún Soffía Pétursdóttir stuðningsfulltrúi og Unnur Kristjánsdóttir kennari.
Höfðaskóli - safn 236
Þessi mynd var tekin 1983 eða 1984 í tíma hjá fjórða bekk í Höfðaskóla. Við borðið nær okkur eru: óþekkt (?Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir?), Björn Sigurðsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson. Við borðið fjær eru frá vinstri: Ása Ósk Ásgeirsdóttir, óþekkt, Atli Þórsson, óþekkt og Reynir Lýðsson.
Höfðaskóli - safn 345
Þessi mynd var tekin af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum líklega árið 1984 eða 1985. Frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Ingunn Kristjánsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, fimm óþekktir, Jensína Lýðsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Baldvin Sveinsson, Þráinn Bessi Gunnarsson og Guðmundur Óskarsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 020
Hér vinna fjórir menn saman að því að endurskapa draumabílinn á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Bjarni Ottósson, Ari Þórsson, Indriði Hauksson og Hjalti Reynisson.
Höfðaskóli - safn 183
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs meðal annars með því að fara í ratleik um allan bæ og leysa hinar margvíslegustu þrautir. Ein þrautin var að fá lánaða hluti út í bæ til að geta síðan bakað pönnukökur í skólanum á eftir. Hér hefur einn hópurinn í ratleiknum bankað upp á að Oddagötu 5 til að fá eitthvað lánað. Frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Hrefna Björnsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Jóhanna, Bessi og Hrefna eiga (áttu) heima á Oddagötu 5.
Höfðaskóli - safn 128
Hér er greinilega hópavinna í gangi í skólastofunni. Fremst til vinstri eru Birna Ágústsdóttir og Sigrún Líndal, sem er í appelsínugulum bol. Aftan við þær er Hallgrímur Axelsson. Strákurinn í hvíta bolnum er Bæring Skarphéðinsson en hann situr við borð með Birki Rafn Gíslasyni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 552
Ernst Berndsen (nær) og Gísli Snorrason leika sér á hraðbát í höfninni á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 225
Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Jóna María Guðrún Guðmundsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 032
Heyskapur við Syðra Hól. Á myndinni sést glöggt sú tækni sem notuð var við heyskap á sínum tíma þegar hesturinn var enn þarfasti þjónninn í sveitum landsins. Svona vélar, eins og sú á myndinni, gjörbreyttu heyskap til sveita sem fram að því hafði nánast eingöngu notast við orf, ljá og hrífur. Maðurinn á myndinni er líklega Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli)(d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 130
Birna Sæmundsdóttir. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 571
Akur eða Hólabraut 13 á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 227
Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir í Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Höfðaskóli - safn 186
Laufey Inga Stefánsdóttir við skólavinnu í íþróttahúsinu. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003.
Árni Geir Ingvarsson - safn 603
1969 heiðraði sjómannadagsráð tvo gamalgróna Skagstrendinga þá Guðmund Pétursson (d. 30.6.1987) frá Höfðakoti til vinstri og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) úr Norður-Skála (upphaflega frá Brúarlandi) til hægri. Milli þeirra er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) úr Stórholti sem var kynnir sjómannadagsins 1969 og afhenti þeim félögum heiðurskrossana fyrir hönd sjómannadagsráðs.
Höfðaskóli - safn 129
Skólabræður úr Höfðaskóla, Birkir Rúnar Jóhannsson til vinstri og Kristinn Daníel Guðmundsson til hægri. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 218
Á þessa mynd er skrifað: "Signý á Balaskarði með Björgu".
Höfðaskóli - safn 251
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma á árunum 1998 - 2000. Þetta góða fólk kom í heimsókn í Höfðaskóla á einhverjum opnum degi þar. Frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Lárus Ægir Guðmundsson og séra Guðmundur Karl Brynjarsson. María og Lárus voru bæði fyrrverandi kennarar við skólann og Guðmundur var sóknarprestur.
Höfðaskóli - safn 138
Þessi mynd, úr skólastofunni Hreiðrinu, var sennilega tekin á öskudegi einhverntíma kringum 1995. Frá vinstri: Erla María Lárusdóttir, óþekktur, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Auður Eva Guðmundsdóttir og Ástmar Sigurjónsson. Ef þú veist hver óþekkti nemandinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 339
Auður Eva Guðmundsdóttir vinnur verkefni í Höfðaskóla líklega kringum 1990.
Fisk Seafood - safn 081
Þessi mynd var tekin af Haraldi Árnasyni verkstjóra til margra ára í frystihúsi Hólaness hf 22. júní 1991.
Höfðaskóli - safn 392
Einhverntíma á jólaföstunni hittist starfsfólk Höfðaskóla gjarnan og gerir saman laufabrauð. Þessi mynd var tekin við þetta tækifæri 2. desember árið 2000. Þarna fletja þau út kökurnar sínar Hans Holger Jörgensen og Ingibjörg Jónasdóttir sem bæði voru kennarar við skólann á þessum tíma.
Fisk Seafood - safn 075
15. maí 1990 hlaut starfsfólk frystihúss Hólaness hf viðurkenningu fyrir vandaða framleiðslu frá Coldwater Seafood, sem keypti vörur frá frystihúsinu og dreifði þeim erlendis. Á þessari mynd er starfsfólkið að fylgjast með ræðuhöldum áður en Jóhanna Jónasdóttir tók við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd. Frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Úrsúla Kristjánsdóttir (næst), Fjóla Jónsdóttir (í miðið), Guðmundur Ólafsson (fjærst), Ingibjörg Skúladóttir, óþekktur, Súsanna Þórhallsdóttir, Þórunn Þorláksdóttir (fjær), Sólveig Róarsdóttir (nær), óþekkt barn, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir (nær) og Erna Högnadóttir (fjær).
Höfðaskóli - safn 241
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku vorið 2001. Frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir (nær), Eva Dögg Bergþórsdóttir (fjær), Hörður Aðils Vilhelmsson, Guðrún Hjáltýsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen (nær), Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) (fjær), Ragnar Einarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir (nær), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir (fjær), Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir (næst), Stefán Agnar Gunnarsson (í miðju), Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir (fjærst), óþekkt, Pétur Jensen (nær) og Birkir Rúnar Jóhannsson (fjær). Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
119
120
121
…
167
Leita í myndasafninu
Leita