Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 319
Krakkar úr Höfðaskóla í heita pottinum í sundlauginni á Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin einhverntíma á árunum 1993 - 1996. Frá vinstri: Gunnar Helgason, óþekktur, Sveinþór Ari Arason, tveir óþekktir, Ólafur Guðmundsson, óþekktur, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Magnús Líndal Þrastarson, óþekktur, Magnús Filip Sævarsson (nær), Þóra Lísebet Getsdóttir (fjær), Karen Peta Karlsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir (fjærst), María Markovic (í miðið), Eyþór Ernstsson (næst), Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Elva Mjöll Þórsdóttir.
Höfðaskóli - safn 143
<p>Beðið eftir litlu jólunum í Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1997 - 1999. Vinstra megin við borðir eru, talið inn eftir borðinu: Patrik Snær Bjarnason, óþekkt, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Eyþór Vilhjálmsson og Sævar Hlynur Tryggvason?. Hægra megin við borðið: Jóhann Örn Stefánsson, Gunnar Már Sæmundsson, Elna Ragnarsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Guðjón Arason og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Höfðaskóli - safn 334
Þessar stúlkur taka þátt í morgunsöng á sal í Höfðaskóla 1988 eða 1989. Frá vinstri: óþekkt, Ása Ósk Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 033
13. janúar 1989 var tekin í notkun ný flæðilína í frystihúsi Hólaness hf og þá var þessi mynd tekin. Konurnar við bandið höfðu margar langa starfsreynslu en þær eru frá vinstri: Jóhann Jónasdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (Stella) (d.8.12.2003) og Ingibjörg Skúladóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 598
Réttað í Spákonufellsrétt. Hér á árum áður, allt fram á níunda áratuginn, var fjáreign almenn á Skagaströnd og allt að 3000 fjár í Höfðahreppi. í dag má telja kindurnar í sveitarfélaginu í tugum en ekki þúsundum eins og þá. Konan fremst á myndinni, í köflóttri skyrtu með skuplu á höfði, er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Stúlkan í grænu peysunni er líklega Ragnheiður Sigurjónsdóttir frá Sunnuhlíð og Anna Bára Sigurjónsdóttir, systir hennar, með henni með ljósa skuplu yfir hárinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 108
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Við borðið næst okkur eru, frá vinstri: Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Dagný Hannesdóttir, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) og Benóný Gunnarsson. Við næsta borð eru, frá vinstri: óþekkt (fjær), Þórunn Óladóttir (nær), Sólveig Eiðsdóttir, Kristmundur Ingibjörnsson og Magnús Blöndal (d.7.9.2001). Við borðið lengst frá sitja hjónin Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Fisk Seafood - safn 077
Þessa mynd tók Lárus Ægir Guðmundsson 1991. Félagarnir á myndinni voru þá að koma með Haukafell SF 40 til Skagastrandar eftir að Hólanes hf keypti bátinn frá Hornafirði. Báturinn fékk nafnið Gauti og einkennisstafina HU 59 og var gerður út á bolfisk og rækju til 1993. Þá var hann seldur Skagstrendingi hf sem seldi hann strax áfram til Hornafjarðar aftur. Þar var hann tekinn af skrá í apríl 1994 en settur aftur á skrá í apríl 1996 þegar hjónin Erna Sigurbjörnsdóttir og Þorvaldur Skaftason keyptu bátinn og komu með hann til Skagstrandar enn á ný. Þau hjón skírðu bátinn Húni II en það var hans upphaflega nafn þegar hann var smíðaður 1963 á Akureyri fyrir útgerðarfélagið Húni hf á Skagaströnd. Húni II er nú á Akureyri og þjónar þar sem útsýnis- og skólabátur. Það má því segja að báturinn sé búinn að fara marga hringi á líftíma sínum en líklega er hann nú að lokum kominn í lokahöfn. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður, Vilhjálmur Skaftason sjómaður, Sigurjón Guðbjartsson skipstjóri og útgerðarmaður og Gunnar Albertsson vélstjóri. <br>(heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
María Magnúsdóttir - safn 195
Á þessari mynd stendur:"Páll Steingrímsson frá Neðstabæ í Norðurárdal A-Hún. Var lengi ritstjóri dagblaðsins Vísir í R.vík".
Fisk Seafood - safn 145
Sambýlisfólkið Jón Gunnarsson og Ingibjörg Kristinsdóttir í mat á hótel Dagsbrún. Ingibjörg vann á hæðinni ofan við hótelið á skrifstofum Hólaness hf og Skagstrendings hf en Jón vann á netagerðaverkstæði Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var.
Höfðaskóli - safn 259
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur að bíða eftir að röðin komi að þeirra atriði. Frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Katrín Inga Hólsteinsdóttir , Ásdís Adda Ólafsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Arís Eva Vilhelmsdóttir og Kristján Pétur Guðjónsson.
Fisk Seafood - safn 031
Hér vinna konurnar í vinnslusal frystihúss Hólaness hf við nýja flæðilínu. Línan var tekin í notkun 13. janúar 1989 og þá var þessi mynd tekin. Vinstra megin við línuna eru frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, óþekkt, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) , Katrín Sigurjónsdóttir (Stella) (d. 8.12.2003) og óþekkt. Hægra megin við bandið er Þórunn Þorláksdóttir næst okkur en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 046
Sævar Bjarnason þáverandi formaður Verkalýðsfélags Skagastrandar í ræðustól í kaffistofu Hólaness hf 15. desember 1988. Tilefnið var að þann dag var að útskrifast hópur af starfsfólki Hólaness sem sérhæft fiskvinnslufólk. Fyrirtækið bauð til kaffidrykkju í tilefni dagsins og þá tók Sævar til máls ásamt fleirum.
Fisk Seafood - safn 050
<p>15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni af hluta fólksins sem þar mætti. Frá vinstri: óþekkt, Sævar Bjarnason, formaður Verkalýðsfélags Skagastrandar á þessum tíma, Kristinn Guðmundsson og Sveinn Jónasson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Höfðaskóli - safn 150
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna Lilja Nótt Sævarsdóttir) krýpur, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Ingbjörg Axelma Axelsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Alma Eik Sævarsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 589
Vilhjálmur Skaftason með óþekkt barn. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 022
Hér slappa af um borð í togara Skagstrendings hf, þeir Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) til vinstri og Ernst Berndsen til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 062
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er dansað af hjartans list. Fremst á myndinni eru Haraldur Árnason og Hrafnhildur Jóhannsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 182
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs meðal annars með því að fara í ratleik um allan bæ og leysa hinar margvíslegustu þrautir. Ein þrautin var að fá lánaða hluti út í bæ til að geta síðan bakað pönnukökur í skólanum á eftir. Hér hefur Sigrún Guðmundsdóttir bankað upp á hjá Stefáni Jósefssyni og fengið eitthvað lánað hjá honum.
Höfðaskóli - safn 142
Umferðarfræðsla er einn þáttur sem farið er yfir í skólanum. Þar er lögð mikil áhersla á hjálmanotkun krakka á reiðhjólum. Stundum hefur einhvert fyrirtæki gefið hópi yngri nemenda reiðhjólahjálm og þessi mynd er frá einni slíkri hjálma-afhendingu 1996 eða 1997. Lögreglan er gjarnan fengin til að afhenda hjálmana eða a.m.k. vera viðstödd til að auka áhrifamáttinn. Á þessari mynd eru frá vinstri, í fremri röð: Þröstur Líndal kennari og húsvörður, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Arís Eva Vilhelmsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir kennari. Aftari röð frá vinstri: Hermann Ívarsson lögreglumaður, Unnar Már Garðarsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Marinó Freyr Jóhannesson, Sunna Gylfadóttir, Fanney Ingólfsdóttir, Ágústa Lóa Jóelsdóttir og Steinar Orri Hafþórsson.
María Magnúsdóttir - safn 003
Messu í gömlu Hólaneskirkju lokið. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til hægri og óþekktur prestur til vinstri þakka fólki fyrir komuna. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir með Erlu Maríu Lárusdóttur í fanginu, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), óþekktur maður (nær), Hjördís Sigurðardóttir (fjær), Stefán Ægir Lárusson, Pétur, óþekkt kona, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir á mybndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 025
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á þessari mynd ávarpar Sigurjón Guðbjartsson, stjórnarformaður Hólaness hf á þessum tíma, starfsfólk og gesti.
Höfðaskóli - safn 385
Sverrir Brynjar Berndsen einbeitir sér í skriftartíma í Höfðaskóla. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin kringum 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 580
Óþekktur bátur (Hu 20) í höfninni á Skagaströnd á friðsælum degi. Ef þú veist hvað báturinn heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 019
Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Fisk Seafood - safn 191
Skagstrendingur hf keypti gömlu síldarverksmiðjuna á sínum tíma og gerði vel við húsið. Jarðhæðinni var breytt í frystiklefa og geymslu, miðhæðin er geymsla - aðallega fyrir umbúðir - og efsta hæðin er lítið notuð geymsla. Húsið var klætt að utan með bárujárni eins og sjá má en löngu seinna voru svo þrærnar, sem ekki sjást á myndinni en voru sambyggðar til vinstri, rifnar.
Höfðaskóli - safn 296
Ragnheiður Erla Stefánsdóttir æfir sig í upplestri fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 304
Valdimar Þórhallsson var kennari við Höfðaskóla um tíma.
Höfðaskóli - safn 362
Niðursokknir við sköpun í myndmenntatíma í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1995. Adolf Þór Lúðvíksson til vinstri og Loftur Árni Björgvinsson til hægri. Stúlkan í baksýn er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 622
Það fer vel um félagana þrjá á þessari mynd sem var tekin utan við Akur (Hólabraut 13). Frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, óþekktur og Árni Geir Ingvarsson. Húsið sem sést vinstra megin við Akur er Bergsstaðir sem nú eru horfnir. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 001
Hér skoðar Magnús Sigurðsson, útgerðarstjóri hjá Skagstrendingi hf, vinnsluþilfarið á einhverjum óþekktum togara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 086
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Meðal gesta á árshátíðinni voru þessi systkin; Ómar Jakobsson og Drífa Kristjánsdóttir.
Fisk Seafood - safn 036
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Þá var þessi mynd tekin af nokkrum starfsstúlkum fyrirtækisins. Lengst til vinstri eru Jóhanna Jónasdóttir og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999). Næst okkur er Guðrún Magnúsdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Höfðaskóli - safn 377
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd syngja og spila hópur nemenda fyrir gesti. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Hörður Aðils Vilhelmsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 113
Myndin sýnir nemendur Höfðaskóla reyna sig í þrautabraut sem komið var upp á skólalóðinni í vinnuviku skólans um miðjan 10. áratuginn. Á myndinni er Hafþór Freyr Sigmundsson kennari að skrá keppendur sem eiga að komast ákveðna vegalengd eftir kaðalbrautinni sem sést á myndinni. Í brautinni er Marta Kristín Jónsdóttir en í biðröðinni eru frá hægri: María Markovic, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Magnús Filip Sævarsson og aftast, með bláa húfu, er Jón Ingi Ragnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 052
Þessi prúðbúna kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 117
Kristín Ólafsdóttir kennari afhendir nemendum sínum einkunnir vetrarins á skólaslitum 31. maí 1996 í Höfðaskóla. Nemendurnir eru frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Þórunn Júlía Guðmundsdóttir, ?Heiða Berglind Fannarsdóttir?, Stefán Agnar Gunnarsson, Tinna Gunnarsdóttir, Kristinn Daníel Guðmundsson, tvö óþekkt, Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Anna María Magnúsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 112
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Við borðið næst okkur frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), Guðrún Sigurðardóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015) og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016). Við næsta borð, frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Sveinn Ingi Grímsson, Líney Jósefsdóttir, Kristmundur Ingibjörnsson, Sólveig Eiðsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Jón Helgason, Gylfi Sigurðsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Bjarney Valdimarsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson (nær) og Gunnar Sveinsson (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 131
Bekkjarsysturnar Eva Dögg Bergþórsdóttir til vinsri og Anna Dúna Rúnarsdóttir til hægri. Myndin var tekin seinni hluta 10. áratugarins.
María Magnúsdóttir - safn 043
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi (Bogabraut 24).
María Magnúsdóttir - safn 053
Lárus Björnsson (d.1985) frá Syðra Hóli. Lárus var smiður og iðnrekandi á Akureyri ókvæntur og barnlaus. Hann var sósíalisti alla æfi og arfleiddi Alþýðubandalagið að húsi sínu að Eiðsvallagötu 18 árið 1970 og er það síðan kallað Lárusarhús.
Höfðaskóli - safn 147
Strandblak nemenda Höfðaskóla í fjörunni hjá Sandlæknum á útivistardegi að vori. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 132
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í vinnslusal Rækjuvinnslunnar hf. Á henni er Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) næst okkur. Til hægri við hana er Þórunn Óladóttir og gegnt Þórunni við færibandið er Sigrún Jónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Höfðaskóli - safn 136
Jenný Lind Sigurjónsdóttir til vinstri og Elva Ösp Gunnarsdóttir til hægri líklega í heimsókn í Reykjaskóla í Hrútafirði einhverntíma upp úr 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 592
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) Akri á Skagaströnd situr hér með ömmubarn í fanginu, líklega Völu Rós Ingvarsdóttur.
Höfðaskóli - safn 299
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Heiðrún Ósk Níelsdóttir og Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir.
Höfðaskóli - safn 228
Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, Leó Kristberg Einarsson,óþekktur, Vignir Örn Hafþórsson og hægra megin við borðið sér aftan á Hákon Unnar Þórarinsson.
Höfðaskóli - safn 109
Hafþór Freyr Sigmundsson kennari við vinnu sína í Höfðaskóla. Hafþór kenndi á Höfðaskóla í nokkur ár á tíunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 338
Guðbjörg Kristmundsdóttir til vinstri og Hugrún Lind Pálsdóttir til hægri vinna að verkefnum sínum í Höfðaskóla. Líklega hefur myndin verið tekin kringum 1986.
Höfðaskóli - safn 199
Jón Örn Stefánsson vinstra megin og Hildur Inga Rúnarsdóttir hægra megin vinna við að mála í smíðastofunni í Höfðaskóla í vinnuviku. Eftir málun var svo smíðað einhvers konar leiktæki úr timbrinu. Að sjálfsögðu eru þau klædd viðeigandi hlífðarfötum - svörtum ruslapokum. Í dag er Jón Örn sjómaður og fiskeldisfræðingur en Hildur Inga er prestur í Þingeyrarprestakalli við Dýrafjörð. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 395
Dagbjört Bæringsdóttir var skólaliði við Höfðaskóla í allmörg ár. Til hægri á myndinni sér í Sigrúnu Guðmundsdóttir húsvörð og skólaliða við skólann.
Fisk Seafood - safn 148
<p>Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, afhendir Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, hjónunum June og Dennis Lumbard, eigendum Norbrit, steinskjöld með ágrafinni mynd af Örvari Hu 21 með Spákonufellið í baksýn sem þakklætisvott fyrir löng og góð viðskipti. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum Örvars persónulegan viðurkenningarskjöld fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin. </p><p><br></p>
Fisk Seafood - safn 088
Pétur Eggertsson við vinnu sína í Hólanesi hf. Pétur var vélstjóri hjá frystihúsinu í mörg ár.
Höfðaskóli - safn 190
Ingibergur Guðmundsson leggur sig í sófann á kennarastofunni þegar stund gefst á milli stríða í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin á níunda áratugnum meðan Ingibergur var kennari en hann var svo skólastjóri árin 1991 - 2005.
Höfðaskóli - safn 244
Brugðið á leik í Roskilde. Krakkarnir úr Höfðaskóla fóru í skólaferðalag til Danmerkur 2001 og komu meðal annars við í Roskilde. Á þessari mynd bregða þau á leik meðan beðið var eftir rútu til að flytja þau á næsta stað. Í neðstu röðinni eru, frá vinstri: Hörður Aðils Vilhelmsson, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir). Í miðröðinni frá vinstri: Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Efst er svo Anna María Magnúsdóttir og stúlkan til hægri er Anna Dúna Rúnarsdóttir en strákurinn á bak við hópinn er óþekktur.
Höfðaskóli - safn 284
Anna Dúna Rúnarsdóttir glósar og Tinna Björk Gunnarsdóttir les ástarsögu í hlutverkum sínum í leikþætti um skólann í gamla daga á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 291
Ómar Ingi Ómarsson skoðar sýningu á ýmsu tengdu náttúrufræðikennslu á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999. Ómar er klæddur í gömul tískuföt sem hann sýndi á tískusýningu, sem var eitt af atriðunum á afmælishátíðinni.
María Magnúsdóttir - safn 121
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) bóndi og fræðimaður frá Syðra Hóli.
Fisk Seafood - safn 039
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Á þessari mynd er fylgst vandlega með hvernig þetta virkar allt saman. Frá vinstri: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002), Haraldur Árnason verkstjóri og Þorgeir Jónsson.
Höfðaskóli - safn 372
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Hér bíður hópurinn fyrir utan Tívolí í Kaupmannahöfn eftir einhverjum sem enn eru inni í skemmtigarðinum. Frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir kennari, óþekktur, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Jón Oddur Hjálmtýsson, Jón Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Briem, Ólafur Guðmundsson, Magnús Líndal Þrastarson, Hermann Freyr Guðjónsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Guðni Már Lýðsson og Jón Ingi Ragnarsson.
María Magnúsdóttir - safn 168
Gígja Snædal
1
…
121
122
123
…
167
Leita í myndasafninu
Leita