Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 001
Hér skoðar Magnús Sigurðsson, útgerðarstjóri hjá Skagstrendingi hf, vinnsluþilfarið á einhverjum óþekktum togara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 086
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Meðal gesta á árshátíðinni voru þessi systkin; Ómar Jakobsson og Drífa Kristjánsdóttir.
Fisk Seafood - safn 211
Hallbjörn Björnsson rafvirki við vinnu í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Höfðaskóli - safn 269
Hress nemendahópur í Höfðaskóla. Frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Almar Freyr Fannarsson, Kristinn Hjálmtýsson (nær), Sindri Njáll Hafþórsson (fjær), Ragnar Már Björnsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 321
Ungir töffarar í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin 1999. Frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Karl Aron Bender og Ómar Ísak Hjartarson.
Fisk Seafood - safn 004
<p>Sigurður Bjarnason tekur hér við viðurkenningu frá framkvæmdastjóra Marfangs fyrir hönd starfsfólks Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd. Marfang var útflutningsaðili á rækju frá Rækjuvinnslunni og viðurkenningin var veitt fyrir framúrskarandi gæðaframleiðslu á rækju um langt árabil. Myndin var tekin 9. maí 1989. </p>
Höfðaskóli - safn 340
Páll Leó Jónsson skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991.
Óþekktur ljósmyndari378
Þessi mynd var tekin á 90 ára afmæli Steingríms Jónssonar (d.15.1.1992) frá Höfðakoti 16. júní 1987. Hjá Steingrími situr afabarn hans og uppeldissonur Steindór R. Haraldsson. Þegar myndin var tekin var Steingrímur vistmaður á ellideildinni á Héraðshælinu á Blönduósi og þar var hún tekin.
María Magnúsdóttir - safn 018
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf - veislukaffi. Verkstjórarnir Grétar Haraldsson til vinstri og Kristófer Árnason til hægri fyllast valkvíða við veisluborðið. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Höfðaskóli - safn 144
Dans er gjarnan kenndur í Höfðaskóla sem viku námskeið einu sinni á skólaárinu þar sem allir nemendur læra dansa allt eftir aldri og fyrri kunnáttu í danslistinni. Á þessari mynd er hópur yngstu nemendanna með óþekktum danskennara. Nemendurnir eru frá vinstri: Katrín Guðmundsdóttir, Sunna Gylfadóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Steinar Ólafsson, Helga Dögg Jónsdóttir, óþekkt barn, Brynja Hödd Ágústsdóttir og Ómar Ísak Hjartarson. Myndin var tekin 1997 eða 1998.
María Magnúsdóttir - safn 137
Aftan á þessari mynd stendur: "Frá vinstri María Ögmundsdóttir frá Syðra Hóli, Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir á Blönduósi (bjó ásamt manni sínum Birni Einarssyni frá Síðu í Hillebrantshúsi á Blönduósi) Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra Hóli saumakona á Blönduósi".
Höfðaskóli - safn 323
Þessi mynd var tekin á venjulegum skóladegi af Kamillu Hildi Gísladóttur kennara við vinnu sína inni í bekk. Myndin var tekin í desember 1999. Nemendurnir eru frá vinstri: Alex Már Gunnarsson, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Davíð Víðisson, Guðjón Örn Kristjánsson og tveir óþekktir nemendur.
Fisk Seafood - safn 054
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjalti Indriðason, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Björn Ingi Óskarsson, Óli Axel Óskarsson og Jensína Lýðsdóttir.
Höfðaskóli - safn 292
Ekki eru allir með allar tennurnar í munni sínum þegar þeir byrja í skóla. Alex Má Gunnarsson vantar til dæmis nokkrar fullorðinstennur. Myndin var líklega tekin árið 1999 þegar Alex byrjaði í 1. bekk Höfðaskóla.
Fisk Seafood - safn 039
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Á þessari mynd er fylgst vandlega með hvernig þetta virkar allt saman. Frá vinstri: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002), Haraldur Árnason verkstjóri og Þorgeir Jónsson.
Fisk Seafood - safn 103
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Á myndinni eru hjónin Jóninna Pálsdóttir og Kristófer Árnason (d.10.5.2000).
Höfðaskóli - safn 205
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla. Slíkar vikur voru haldnar annað hvert ár en þá var hefðbundin kennsla felld niður í viku og nemendur fengu ýmis konar önnur verkefni að fást við. M.a. var rekið skólaútvarp í einni slíkri viku og einnig var gefið út skólablað. Á þessari mynd eru nemendur á fundi, annað hvort í ritstjórn skólablaðsins eða skólaútvarpsins, með umsjónarkennara hópsins. Frá vinstri: Ægir Jónssson, Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og Magnús B. Jónsson kennari. Myndin var tekin í skólanum einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 380
Hér vinna fjórir strákar saman í hóp í Höfðaskóla með hjálp kennara og einni mömmu sem er í heimsókn. Frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir kennari, Árni Max Haraldsson, Viktor Pétursson, Gunnar Guðmundsson?, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Eygló Gunnarsdóttir (móðir Gunnars).
Fisk Seafood - safn 205
Einar Haukur Arason smiður til vinstri og Árni Geir Ingvarsson verkstjóri vinna að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík.
Höfðaskóli - safn 330
Starfsfólk Höfðaskóla heldur gjarnan vorblót í lok skólaárs og borðar þá saman og gerir sér glaðan dag með mökum sínum. Eitt af því sem starfsfólk gerði sér til gamans vorið 2000 var að allir mættu í einhvers konar búningum til borðhaldsins sem var í Fellsborg. Á þessari mynd er rabbíinn Halldór Gunnar Ólafsson og kona hans Sigríður Stefánsdóttir. Sigrún Guðmundsdóttir sést í baksýn.
Fisk Seafood - safn 131
Þessi mynd var tekin í Rækjuvinnslunni hf en ekki er vitað hvenær. Við bandið vinna, frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Ragnheiður Magnúsdóttir.
Fisk Seafood - safn 028
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur, sem fluttu fólkið, fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Fremst á myndinni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og sér aftan á Guðmund Kristinsson í ljósum fötum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 040
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Hér vinna Jóhanna Sigurjónsdóttir til vinstri og Erna Högnadóttir til hægri við pökkun á roð- og beinlausum þorskflökum til útflutnings.
Höfðaskóli - safn 308
Hluti kennara við Höfðaskóla í kaffi í löngu frímínútunum. Frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Elva Þórisdóttir (fjær), Helga Ólína Aradóttir (nær) og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Höfðaskóli - safn 352
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt atriðið sem boðið var upp á var skólahljómsveit sem söng og spilaði fyrir gesti. Frá vinstri: Ómar Ísak Hjartarson, Patrik Snær Bjarnason og Arnrún Bára Finnsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 287
Ekki er vitað hver þessi kona er. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 216
Einar Karlsson pípulagningamaður við vinnu að endurbótum í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Fisk Seafood - safn 029
Guðmundur Kristinsson við vinnu í vélasalnum í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989.
Fisk Seafood - safn 184
Davíð Bragi Björgvinsson við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 279
Katrín Inga Hólmsteinsdóttir æfir sig í upplestri fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 346
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en líklega hefur það verið kringum 1990. Frá vinstri: Eyþór Ernstsson, Patrik Ingi Heiðarsson?, óþekktur, Gunnar Helgason, Sigurður Haukur Grétarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson, Kristinn Björgvinsson og Gunnar Dór Karlsson. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 168
Gígja Snædal
María Magnúsdóttir - safn 308
Kötturinn barinn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Kennarinn með mjólkurhattinn er Ólafur Bernódusson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 159
Bogabraut 9 eftir útlitsbreytingu og eftir að hafa verið járnklætt. Lengi var skrifstofa Skagstrendings hf á miðhæðinni og Hólaness hf á efstu hæðinni. Þá var um tíma bókhaldsskrifstofa í kjallaranum/jarðhæðinni.
Höfðaskóli - safn 217
Knattspyrnulið úr Höfðaskóla 28. júní 1997 ásamt þjálfara sínum. Fremri röð frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Kristján Sigurbjörnsson, Jón Atli Magnússon, Sigurgeir Snævar Árnason og Ívar Gylfason. Aftari röð frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Garðar Geirfinnsson þjálfari.
Árni Geir Ingvarsson - safn 607
M.s. Bakkafoss, skip Eimskipafélags Íslands, er hér í Skagastrandarhöfn á sjómannadaginn 1969. Ísinn fyllir Húnaflóa og hrafl er komið inn í höfnina.
Höfðaskóli - safn 266
<p>Hópur nemenda Höfðaskóla funda með kennaranum Dagnýju Úlfarsdóttur líklega í undirbúningi 60 ára afmælis Höfðaskóla 1999. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sindri Jóelsson, Alma Eik Sævarsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir og Dagný kennari. </p>
Fisk Seafood - safn 051
Tertukaffi í kaffistofu Hólaness hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefni veislunnar var. Á henni er hluti starfsfólk Hólaness hf ásamt fólki úr stjórn félagsins. Konan í gulu peysunni fyrir endanum er óþekkt en við hlið hennar sitja Guðmundur Ólafsson og Guðrún Magnúsdóttir. Vinstra megin við langborðið sitja næst okkur þeir Sigfús Sævar Sigurðsson og Sigurþór Sigurðsson en aðrir, þeim megin við borðið, eru óþekktir. Hægra megin við borðið eru, talið frá hægri: Hrefna Björnsdóttir, Gunnar Albertsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Gunnar Helgason (d.19.10.2007), Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og innst er Þorgeir Jónsson. Aðrir eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 357
Róbert Freyr Gunnarsson kvikmyndar eitthvað sem honum finnst áhugavert í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en áð hefur verið kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 654
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Fannar Viggósson, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðlaugur Hjaltason og óþekktur. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 220
Guðrún Guðbrandsdóttir (d. 13.9.1968) húsfreyja Sunnuhlíð (Koti) Vatnsdal.
Árni Geir Ingvarsson - safn 526
Nýsmíðin Björg Hu 40 sjósett í fyrsta sinn. Aftast ýtir Þórhildur Jakobsdóttir, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) er í munstraðri peysu, Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) í brúnum jakka og Herdís Jakobsdóttir stendur í stýrishúsdyrunum.
Höfðaskóli - safn 362
Niðursokknir við sköpun í myndmenntatíma í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1995. Adolf Þór Lúðvíksson til vinstri og Loftur Árni Björgvinsson til hægri. Stúlkan í baksýn er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 622
Það fer vel um félagana þrjá á þessari mynd sem var tekin utan við Akur (Hólabraut 13). Frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, óþekktur og Árni Geir Ingvarsson. Húsið sem sést vinstra megin við Akur er Bergsstaðir sem nú eru horfnir. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 306
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum á sjómannadegi. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins, er í ræðustól en aftan við hann eru frá vinstri: Ragnar Ingvarsson, Sævar Hallgrímsson, Sveinn Ingi Grímsson, óþekktur, Jón Jósefsson, Stefán Jósefsson og Sævar Bjarnason.
Óþekktur ljósmyndari 399
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn í baneitruðum reykmekki. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 270
Jón S. Pálsson skólastjóri Höfðaskóla 1966 - 1986 og kona hans Björk Axelsdóttir koma í heimsókn í skólann þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 374
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. M.a. gisti hópurinn á tjaldsvæði í nokkrum húsum eins og sjást á myndinni. Á myndinni sést hluti hópsins njóta veðurblíðunnar. Frá vinstri: Marta Kristín Jónsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Ásdís Lýðsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson?, Geirþrúður Guðmundsdóttir og Adolf Þór Lúðvíksson.
María Magnúsdóttir - safn 292
Á myndinni eru skólabörn úr Höfðaskóla fædd 1967. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1977. Í fremstu röð frá vinstri: Svenny Hallbjörnsdóttir, Erna Rós Magnúsdóttir, Bergþóra Huld Birgisdóttir, Birna Sveinsdóttir og Rósa Dröfn Sigurðardóttir. Miðröð frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Björn Hallbjörnsson, Ingvar Jónsson og Hrólfur Eggert Pétursson. Aftasta röð frá vinstri: Ólafur Sveinn Ásgeirsson, Þórarinn Kári Þórsson, Bertel ?Hauksson?, Arnar Jóhann Arnarsson og Ingvar Þór Jónsson. Aftan við hópinn er svo kennari bekkjarins, Magnús B. Jónsson.
Höfðaskóli - safn 153
<p>Litið inn í tíma í Höfðaskóla hjá nemendum fæddum 1988. Frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Ívar Gylfason (nær), Óðinn Örn Sævarsson (fjær), Fjóla Dögg Björnsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, Sigurgeir Snævar Árnason (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Jón Atli Magnússon og Guðmundur Björn Sigurgeirsson?.</p><p><br></p>
Fisk Seafood - safn 082
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) var véla- og viðgerðamaður hjá frystihúsi Hólaness hf í fjölda ára. Þessi mynd var tekin af honum í vinnunni 23. júní 1991.
Höfðaskóli - safn 386
Pósturinn efndi til samkeppni um hönnun á nýju frímerki meðal grunnskólanemenda á Íslandi einhvertíma nálægt aldamótunum. Jóna Gréta Guðmundsdóttir, nemandi í Höfðaskóla, sigraði í keppninni og hlaut vegleg peningaverðlaun. Á þessari mynd er Jóna Gréta við verðlaunamynd sína.</span>
Fisk Seafood - safn 015
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á þessari mynd eru þau sem sáu um veitingarnar í afmælinu, Steindór Haraldsson og Hallbjörgu Jónsdóttur ásamt hluta veitinganna sem boðið var upp á. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Höfðaskóli - safn 231
Árni Halldór Eðvarðsson í eldhúsinu í Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Fisk Seafood - safn 068
Á árunum 1987 - 1989 var unnið töluvert magn af saltfiski í salthúsi Hólaness hf á Hólanesinu. Á þessari mynd er verið að meta og flokka saltfiskinn áður en honum er pakkað. Fremst á myndinni til vinstri er matsmaður ?Guðmundur?. Aftan við hann er Högni Jensson en hinum megin við borðið eru Ottó Ákason (d.17.9.2005) til vinstri og Stefán Þór Árnason til hægri.
Fisk Seafood - safn 179
Stefán Þór Árnason verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf glaðbeittur í vinnunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 037
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. jánúar 1989. Þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) (nær), óþekktur og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 182
Á þessa mynd er skrifað:"Páll Ögmundsson Sauðárkrók".
Höfðaskóli - safn 237
Þessir strákar hafa sigrað í einhverri keppni innan Höfðaskóla einhverntíma kringum 1996. Frá vinstri: Bæring Jón Skarphéðinsson, Jón Gréta Leví Jónsson, Þorsteinn Pálsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Gunnar Dór Karlsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson og Davíð Bragi Björgvinsson.
Höfðaskóli - safn 206
Inga Rós Sævarsdóttir við vinnu sína í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin kringum 1985.
1
…
122
123
124
…
167
Leita í myndasafninu
Leita