Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 331
Starfsfólk Höfðaskóla heldur gjarnan vorblót í lok skólaárs og borðar þá saman og gerir sér glaðan dag með mökum sínum. Eitt af því sem starfsfólk gerði sér til gamans vorið 2000 var að allir mættu í einhvers konar búningum til borðhaldsins sem var í Fellsborg. Á þessari mynd eru hjónin Guðrún Pálsdóttir og Ólafur Bernódusson í gerfi Maríu guðsmóður og Jósefs smiðs. Dagbjört Bæringsdóttir er lengst til hægri á myndinni.
Fisk Seafood - safn 067
Á árunum 1987 - 1989 var unnið töluvert magn af saltfiski í salthúsi Hólaness hf á Hólanesinu. Á þessari mynd eru þrjár af starfsstúlkunum við saltfiskvinnsluna, frá vinstri: Ingunn Kristjánsdóttir, Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir og Danica Zupancic.
Óþekktur ljósmyndari 399
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn í baneitruðum reykmekki. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 270
Jón S. Pálsson skólastjóri Höfðaskóla 1966 - 1986 og kona hans Björk Axelsdóttir koma í heimsókn í skólann þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla í nóvember 1999.
Fisk Seafood - safn 179
Stefán Þór Árnason verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf glaðbeittur í vinnunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 037
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. jánúar 1989. Þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) (nær), óþekktur og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 182
Á þessa mynd er skrifað:"Páll Ögmundsson Sauðárkrók".
María Magnúsdóttir - safn 058
Fjóla Jónsdóttir. Líklega ver myndin tekin 1955.
María Magnúsdóttir - safn 158
Konurnar á þessari mynd eru frá vinstri: María Ögmundsdóttir (d.?), Ragnheiður Björnsdóttir (d.?), Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991) og Jóhanna Albertsdóttir (d.3.3.1996). Þrjár þær síðustu voru frá Syðra Hóli.
Höfðaskóli - safn 315
Fjöltefli í Höfðaskóla 1988 eða 1989. Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) var með skáknámskeið í skólanum í nokkra vetur og tefldi þá gjarnan fjöltefli við nemendur einhverntíma á námskeiðinu eða eftir það. Hér er Magnús að tefla við a.m.k. átta nemendur í einu. Nemendurnir eru frá vinstri: óþekktur, Jón Oddur Hjálmtýsson, Eyþór Ernstsson, Vignir Örn Hafþórsson, Magnús Árni Hallgrímsson og Guðni Már Lýðsson. Fram við dyr stendur Sigríður Gestsdóttir og fylgist með. Ef þú þekkir óþekkta nemandann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 143
Aftan á þessari mynd stendur:"Anna kona (dönsk) Páls Jónssonar frá Höskuldsstöðum".
María Magnúsdóttir - safn 194
Aftan á myndinni stendur: "Guðlaug Jónsdóttir frá Leifsstöðum Svartárdal og dóttursonur hennar Árni Garðar. Guðlaug var sonardóttir Magnúsar Jónssonar bónda á Fjalli á Skagastr.".
Fisk Seafood - safn 194
Arnar Ólafur Viggósson við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 189
Magnús Guðmannsson undir stýri á lyftara. Magnús var lengi starfsmaður Hólaness hf og síðan Skgastrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 290
Sigurður Skagfjörð Bjarnason, í rauðri peysu, spjallar við Jón S. Pálsson, sem var skólastjóri Höfðaskóla 1966 - 1986. Myndin var tekin á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
María Magnúsdóttir - safn 188
Ólafur Björnsson frá Syðra Hóli.
Fisk Seafood - safn 117
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Á þessari mynd eru frá vinstri: Signý Richter, Marco Marcovic, Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson.
Fisk Seafood - safn 157
Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá var slegið upp veislu í Fellsborg. Myndin sýnir hluta gesta í veislunni. Frá vinstri: Baksvipur Karls Berndsen (d.12.2.1995) stjórnarformanns Skagstrendings hf á þessum tíma, óþekktur, Sigursteinn Guðmundsson, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Þorvaldur Skaftason (fjær), Brigitta Vilhelmsdóttir (d.6.1.1995), Jónas Skaftason, óþekkt, Hlíf Sigurðardóttir, Jón Ísberg (d.24.6.2009), Árni Ólafur Sigurðsson og óþekkt kona.
Höfðaskóli - safn 293
Þessar tvær Jóhönnur voru kennarar við Höfðaskóla. Jóhanna Jónsdóttir standandi og Jóhanna Ólafsdóttir situr. Myndin var tekin vorið 1989.
Fisk Seafood - safn 027
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur sem fluttu fólkið fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Þekkja má á myndinni til vinstri: Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson, Guðrún Magnúsdóttir er í blárri úlpu og Erna Högnadóttir í rauðri úlpu með sígarettu í hendinni. Lengst til hægri er svo Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996).
Héraðsskjalasafn A-Hún 99
Kýr á beit í Kálfshamarsvík. Í baksýn er bærinn Saurar.
Höfðaskóli - safn 337
Þröstur Árnason við vinnu í Höfðaskóla líklega kringum 1990.
Fisk Seafood - safn 160
Stjórnsýsluhúsið var tekið í notkun 1988, byggt af Hólanesi hf og Skagstrendingi hf. Bæði fyrirtækin voru með skrifstofur sínar á efstu hæðinni, hótel Dagsbrún var á miðhæðinni og Búnaðarbankinn og Höfðahreppur voru með afgreiðslur sínar og skrifstofur á jarðhæðinni. Hótel Dagsbrún var í eigu Skagstrendings hf.
Höfðaskóli - safn 234
Þessi stúlknahópur hefur sigrað í einhverri keppni innan Höfðaskóla einhverntíma kringum 1996.Frá vinstri: Auður Eva Guðmundsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Rebekka Jóelsdóttir, Sigrún Líndal og Marta Kristín Jónsdóttir.
Fisk Seafood - safn 002
Þessi mynd var tekin 30 desember 1996 þegar Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf afhenti Sunnu Gestsdóttur frjálsíþróttakonu peningastyrk sem viðurkenningu á afrekum hennar á íþróttasviðinu. Sunna var í landliðinu í spretthlaupum og langstökki og var m.a. valin í "Sidney 2000" hópinn, sem var hópur íslensks íþróttafólks sem líklegt þótti til afreka á Olympíuleikunum í Sidney. Á myndinni eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson stjórnarformaður Skagstrendings hf, Valdimar Guðmannsson formaður USAH , Sunna og Óskar.
María Magnúsdóttir - safn 024
Sigursveit í kappróðri á sjómannadegi. Frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Sævar Rafn Hallgrímsson, Sveinn Ingi Grímsson, Þorlákur Rúnar Loftsson, Jón Gunnar Jósefsson, Stefán Jósefsson og Sævar Bjarnason stýrimaður. Framan við sveitina, í ræðustólnum, er kynnir dagsins, Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 599
Fé rekið til réttar í Spákonufellsrétt. Hér á árum áður, allt fram á níunda áratuginn, var fjáreign almenn á Skagaströnd og allt að 3000 fjár í Höfðahreppi. Í dag má telja kindurnar í sveitarfélaginu í tugum en ekki þúsundum eins og þá. Myndin var tekin áður en þjóðvegurinn var lagður út með Spákonufellinu þar sem hann er nú. Fólkið á myndinni er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 130
Ásdís Magnúsdóttir frá Syðra Hóli 1957
María Magnúsdóttir - safn 152
Systkinin Ólafur Björnsson (d.?) og Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli.
Fisk Seafood - safn 144
Fólkið á myndinni starfaði saman á skrifstofum Hólaness hf og Skagstrendings hf nema Jón Gunnarsson sem starfaði á netagerðaverkstæði Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var en hún var tekin á hótel Dagsbrún sem var á næstu hæð neðan við skrifstofur fyrirtækjanna í stjórnsýsluhúsinu. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðný Sigurðardóttir, Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Jón Gunnarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Steinunn Grímsdóttir og Kristinn Guðmundsson.
María Magnúsdóttir - safn 172
Aftan á myndinni stendur:"Ólafur Eiríksson Þingvallastræti 14 Akureyri og frænka hans Ragna frá Syðra Hóli". Ragna er líklega gælunafn Ragnheiðar Björnsdóttur.
Höfðaskóli - safn 380
Hér vinna fjórir strákar saman í hóp í Höfðaskóla með hjálp kennara og einni mömmu sem er í heimsókn. Frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir kennari, Árni Max Haraldsson, Viktor Pétursson, Gunnar Guðmundsson?, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Eygló Gunnarsdóttir (móðir Gunnars).
Fisk Seafood - safn 205
Einar Haukur Arason smiður til vinstri og Árni Geir Ingvarsson verkstjóri vinna að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík.
Fisk Seafood - safn 216
Einar Karlsson pípulagningamaður við vinnu að endurbótum í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Fisk Seafood - safn 029
Guðmundur Kristinsson við vinnu í vélasalnum í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989.
Fisk Seafood - safn 184
Davíð Bragi Björgvinsson við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 219
Þrjár stúlkur í góðu skapi í Höfðaskóla 3. nóvember 1999. frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) og Arnrún Bára Finnsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 276
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) í Asparlundi (Bogabraut 24) heldur hér á óþekktu barni.
Höfðaskóli - safn 191
Þessi mynd var tekin á útivistardegi í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1990. Á staurnum er Sigurður Berndsen en í röðinni standa þær Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, með húfu, og Ólína Laufey Sveinsdóttir.
Höfðaskóli - safn 343
Söngstund í Höfðaskóla. Frá vinstri: Elín Ósk Ómarsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þóra Dögg Ásgeirsdóttir og Þóra Ágústsdóttir (situr).
Fisk Seafood - safn 083
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri í aftari röð: Guðrún Angantýsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, óþekktur drengur, Hjalti Indriðason, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) með dóttur sína Sóley Elsu í fanginu, Kári Lárusson, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Vilhjálmur Skaftason, Guðrún Pálsdóttir, Óskar Þórðarson með barn, Rósa ? , Guðný Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson með dætrum sínum Erlu og Báru. Fremri röð frá vinstri: óþekkt barn og tvær óþekktar konur, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Berglind Karlsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Kristín Blöndal, Sólveig Eiðsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekkt barn, Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Soffía Lárusdóttir.
Fisk Seafood - safn 071
Sigursveit Hólanes - kvenna í kappróðri á sjómannadegi 10. júní 1990. Frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Erna Högnadóttir, Hugrún Pálsdóttir og Þorvaldur Skaftason stýrimaður. Drengurinn lengt til hægri er líklega Jón Örn Stefánsson.
Fisk Seafood - safn 014
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á þessari mynd má sjá starfsfólk Hólaness hf, ásamt stjórnendum félagsins, njóta góðra veitinga í veislunni. Við borðið næst okkur sitja vinstra megin: Jóhann Björn Þórarinsson næst ,Magnús Guðmannsson við hlið hans og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Sigurður Bjarnason. Við enda borðsins snýr baki í ljósmyndarann Sigurjón Guðbjartsson þáverandi stjórnarformaður Hólaness hf. Hægra megin við þetta borð sitja talið frá hægri: Slavko Velemir, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Ingibjörg Skúladóttir, Pálfríður Bjarnadóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Signý Magnúsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna H. Aspar (d. 1.9.1996) og Guðný Björnsdóttir. Hægra megin við næsta borð eru frá hægri: Haukur Gunnlaugsson, Björn Ingi Óskarsson, Haraldur Árnason, séra Egill Hallgrímsson og lengra frá Gunnlaugur Sigmarsson (með gleraugu). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
María Magnúsdóttir - safn 071
Maðurinn á myndinni er Kristján Fjeldsteð og líklega er barnið Sveinn sonur hans. Kristján var giftur Erlendsínu (Erlu) Erlendsdóttur frá Kambakoti.
Fisk Seafood - safn 111
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Kristmundur Ingibjörnsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, óþekkt, Jóninna Pálsdóttir og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur athugasemd.
Höfðaskóli - safn 273
Góður dagur í Höfðaskóla hjá þessum þremur ungu stúlkum í nóvember 1999. Frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna Lilja Nótt Sævarsdóttir) og Arnrún Bára Finnsdóttir.
Fisk Seafood - safn 220
Sigurður Bjarnason í vinnu við endurbætur í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004. Sigurður vann í áratugi í Rækjuvinnslunni allt þar til henni var lokað.
Fisk Seafood - safn 114
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri við borðið næst okkur: Kristmundur Ingibjörnsson, Þórunn Óladóttir, Grétar Haraldsson og Díana Kristjánsdóttir. Við næsta borð, frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Sveinn Garðarsson og Karl Guðmundsson (d.11.12.2011). Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
María Magnúsdóttir - safn 046
Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 270
Þessi kona er óþekkt. Eina sem vitað er um myndina er að hún var tekin af Eyj. Jónsson á Seyðisfirði. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari 380
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Þegar myndin var tekin voru kappróðrasveitir að gera sig klárar fyrir kappróður en þá var róið frá bryggjunni til vinstri og endað fram af endanum á Skúffugarði. Bátarnir tveir eru óþekktir en gætu verið Auðbjörg og annað hvort Aðalbjörg eða Ásbjörg. Síldarverksmiðjan er eins og hún var upprunalega byggð með færibandi suður úr og þrærnar sem hvort tveggja er horfið í dag. Yfir verksmiðjuna fjær rísa taknarnir tveir upp undir höfðanum. Annar var notaður undir olíu en hinn undir lýsi frá verksmiðjunni. Tankarnir hafa nú (2016)verið rifnir og sama má segja um Kaupfélagshúsið/verslunarstjórahúsið sem sést í bilinu milli verksmiðjunnar sjálfrar og ketilhússins. Auk þessa er höfnin gjörbreytt í dag frá þessari mynd og sama má segja um Hólanesfrystihúsið sem sést yfir þrærnar.
Fisk Seafood - safn 124
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Vinstra megin við borðið í forgrunni eru, frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Ragnar S. Ingvarsson, Kristín Jónsdóttir, Karl Berndsen, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010), Guðný Björnsdóttir, Sveinn Garðarsson og Ardís Ólöf Arelíusdóttir. Hægra megin við borðið má þekkja, frá hægri: Kristófer Árnason (d.10.5.2000), Sigmar Jónsson (d.18.9.1986) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
Árni Geir Ingvarsson - safn 615
Sigursveit unglinga í kappróðri á sjómannadegi fær hér verðlaun sín úr höndum Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996) sem var kynnir sjómannadagsins þetta árið. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson stýrimaður, Gylfi Jóhannsson, Hjörtur Guðbjartsson, Kári Lárusson, Helgi Gunnarsson, óþekktur, Finnur Kristinsson og Bernódus. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekkta unglinginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 296
María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Syðra-Hóli sem lengi bjó í Asparlundi (Bogabraut 24) með fjölskyldu sinni.
Höfðaskóli - safn 307
<p>Niðursokknir nemendur Höfðaskóla vinna úr afraksti sínum eftir fjöruferð. Hvað er rusl og hvað ekki? Hvað er hægt að búa til úr ruslinu? Frá hægri: Leó Kristberg Einarsson, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, óþekkt og Guðni Már Lýðsson. Myndin var tekin kringum 1994. </p><p><br></p>
Fisk Seafood - safn 091
Kaffistofa Hólaness hf er mjög aðlaðandi og býður upp á ýmsa möguleika. Stöku sinnum tók starfsfólk fyrirtækisins sig saman og hittist að kvöldi til á kaffistofunni og átti þar notalega stund. Þessi mynd var tekin á einni slíkri samkomu. Hafdís Þorvaldsdóttir fer með einhver gamanmál en við borðið nær okkur eru frá vinstri: Sigþór Sigurðsson, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý)(snýr baki í okkur) og Haraldur Árnason í blárri peysu lengst til hægri. Við borðið fjær, eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Sveinn Jónasson tvær óþekktar konur, Jóhanna Harðardóttir, óþekkt kona, Vilhelm Harðarson og Kristín Kristmundsdóttir.
Fisk Seafood - safn 048
15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni þar sem fólk situr og hlustar á einhvern ávarpa hópinn. Frá vinstri: Haraldur Árnason verkstjóri, Ása Jóhannsdóttir, óþekkt, Kristín Sigurðardóttir, Signý Magnúsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Höfðaskóli - safn 358
Mikið fjör á dansgólfinu í Höfðaskóla líklega á diskóteki einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Adolf Þór Lúðvíksson, Sveinþór Ari Arason?, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Jóney Hrönn Gylfadóttir kennari og óþekkt.
Fisk Seafood - safn 006
Myndin var líklega tekin á Hótel Íslandi einhverntíma kringum 1990. Þá bauð Hólanes hf starfsfólki sínu í helgarferð til Reykjavíkur og til skemmtunar og hátíðakvöldverðar á Hótel Íslandi. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Egill Bjarki Gunnarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Erna Sigurbjörnsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Rósa Björg Högnadóttir, Halla Lýðsdóttir og Þorbjörg Eðvarðsdóttir. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Rögnvaldur Ottósson, Ingimar Oddsson, Guðmundur Óskarsson, Gylfi Sigurðsson, Helgi Þór Helgason og Guðbjörg Gylfadóttir.
María Magnúsdóttir - safn 134
Ásdís Magnúsdóttir frá Syðra Hóli.
1
…
123
124
125
…
167
Leita í myndasafninu
Leita