Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 177
Á þessari mynd stendur:"Guðrún Hillmann Johanna King´s mother Canada". Myndin var tekin í Stanton Photo Novelty Co. Springfield, Ohio.
María Magnúsdóttir - safn 237
Þetta eru bræður frá Syðra-Hóli. Frá vinstri: Ólafur Björnsson (d. ?), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) og Lárus Björnsson (d.1985).
María Magnúsdóttir - safn 091
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli með dóttur sína Fjólu Jónsdóttur í fanginu.<br>
Fisk Seafood - safn 133
Starfsstúlkur við eitt af færiböndunum í Rækjuvinnslunni hf við vinnu sína. Frá vinstri: Árdís Indriðadóttir, Svanhildur Lýðsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Guðmunda Ólafsdóttir. Konan við hitt færibandið er óþekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 122
Aftan á þessa mynd er skráð: "Eiríkur Finnsson Ísafirði, maður Jóhönnu Hjálmarsd. frá Fjalli". Eiríkur Brynjólfur Finnsson, f. 10. nóv. 1875 á Kirkjubóli (Dal) í Valþjófsdal, d. 9. nóv. 1956 í Reykjavík. Verslunarmaður á Flateyri til 1902, fluttist þá til Ísafjarðar. Verkstjóri þar og fiskmatsmaður. Riddari af Fálkaorðunni 1944. Var eiginmaður Jóhönnu Hjálmarsdóttur frá Fjalli á Skaga en hún lést af barnsförum 29.4.1905. <br>Eiríkur á fjölda afkomenda en dóttir hans og Jóhönnu Hjálmarsdóttur lést á barnsaldri. <br>
Höfðaskóli - safn 210
Jóhanna Jónsdóttir var kennari við Höfðaskóla í mörg ár. Þessi mynd af henni ver tekin á kennarastofunni í maí 1988.
Ólafur Bernódusson577
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson tók við pretsembætti við Hólaneskirkju í júní 1998. Með honum á þessari mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) sem þá var ekkja eftir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) sem þjónaði á Skagaströnd í 40 ár.
Fisk Seafood - safn 011
Örvar Hu 14 var annar báturinn sem Skagstrendingur hf eignaðist. Bátinn keypti félagið notaðan frá Noregi og kom hann til Skagastrandar 28. desember 1970. Hann var svo gerður út frá Skagaströnd fram í maí 1974 þegar hann var seldur til Patreksfjarðar. Örvar Hu 14 var annar af tveimur fyrstu bátunum á Íslandi sem var með allan afla sinn í fikikössum um borð.
Höfðaskóli - safn 258
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd æfa þær sig fyrir týskusýningu Heiða Berglind Fannarsdóttir til vinstri og Amy Ósk Ómarsdóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn 350
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Meðal annars var boðið upp á veisluborð með tertum og kökum af öllum gerðum. Á þessari mynd eru þrjár stúlkur að baka fyrir afmælið í eldhúsinu í Höfðaskóla. Frá vinstri: Eva Dögg Bergþórsdóttir, Birna Þórkatla Sæmundsdóttir og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 364
Stöku sinnum fer Höfðaskóli með hluta nemenda sinna í heimsókn á einhvern sveitabæ í vettvangs- og skólaferð. Þessi mynd var tekin í einni slíkri heimsókn líklega kringum 1990 en ekki er vitað hvert var farið það árið. Krakkarnir eru að skoða hænu á myndinni en hún virðist láta sér vel líka athyglina sem hún fær. Magnús Líndal Þrastarson heldur á hænunni og við hlið hans er Marta Kristín Jónsdóttir. Stúlkan á móti þeim er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 298
María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Syðra-Hóli. María bjó lengst af í Asparlundi (Bogabraut 24) á Skagaströnd með fjölskyldu sinni.
María Magnúsdóttir - safn 145
Á þessari mynd stendur: "Elín Jónsdóttir frá Höskuldsstöðum. Kögen 13. júlí 1926.":
Höfðaskóli - safn 316
10. bekkingar Höfðaskóla veturinn 1996 - ´97. Fremsta röð frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Birna Ágústsdóttir, Linda Jónasdóttir, Sigrún Líndal Þrastardóttir og Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir. Miðröð frá vinstri: Sverrir Berndsen, Birkir Rafn Gísladóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Bæring Skarphéðinsson og Heiðrún Ósk Níelsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Davíð Bragi Björgvinsson, Þorsteinn Pálsson, Hallgrímur Axelsson og Rebekka Jóelsdóttir.
Höfðaskóli - safn 388
Margrét Harðardóttir í Höfðaskóla. Margrét kenndi einn vetur í skólanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 009
Sigursveit í kappróðri kvenna á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum úr höndum Jóns Inga Ingvarssonar kynnis dagsins. Frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Lilja Kristinsdóttir, Þórunn Þorláksdóttir, Linda Kristjánsdóttir og Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 396
Kamilla Hildu Gísladótti var kennari við Höfðaskóla í nokkur ár. Þessi mynd var tekin af henni í vorfagnaði kennara 26. maí árið 2000.
Fisk Seafood - safn 126
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Hér skála vinkonurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Guðrún Sigurðardóttir til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 113
Sigurður Pálsson Neðstabæ
Fisk Seafood - safn 113
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri við borðið næst okkur: Sigmar Jónsson (d.18.9.1986), Sigrún Kristófersdóttir, Jóninna Pálsdóttir og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Við næsta borð, frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Kristmundur Ingibjörnsson, Sveinn Ingi Grímsson (fjær), Guðrún Guðbjörnsdóttir (nær), Bjarney Valdimarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Hjördís Sigurðardóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Gunnar Sveinsson, Heiðrún Sigurðardóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Marías Bjarni Viggósson, Guðný Sigurðardóttir og óþekkt. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 159
Þessir nemendur Höfðaskóla eru að syngja í skólanum. Hörður Aðils og Laufey Sunna leiddu sönginn í laginu um Nínu og Geira, sem skýrir lopapeysuna og húfuna sem Hörður er með. Á myndinni eru frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Hanna María Gylfadóttir, Rósa Björg Einarsdóttir (nær), óþekkt (fjær), Hörður Aðils Vilhelmsson (fjær), Ómar Ísak Hjartarson (nær), óþekkt, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær) og Laufey Sunna Guðlaugsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en börnin á myndinni eru fædd á árunum 1986 - 1992. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 204
Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi elstu nemenda Höfðaskóla til Vestmannaeyja einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Inga Kristjánsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Pálína Freyja Harðardóttir, Ingimar Oddsson og Jensína Lýðsdóttir.
Fisk Seafood - safn 237
Signý Ástmarsdóttir kokkar um borð í einu af skipum Skagstrendings hf, líklega Arnari Hu 1 fyrsta skuttogara félagsins. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Fisk Seafood - safn 065
Sigursveit Hólanes - kvenna í kappróðri á sjómannadegi 14. júní 1992. Frá vinstri: óþekkt, Rakel Jónsdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Erna Magnúsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir og Þorvaldur Skaftason stýrimaður. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 026
Hrönn Árnadóttir.
Fisk Seafood - safn 076
15. maí 1990 hlaut starfsfólk frystihúss Hólaness hf viðurkenningu fyrir vandaða framleiðslu frá Coldwater Seafood, sem keypti vörur frá frystihúsinu og dreifði þeim erlendis. Á þessari mynd er starfsfólkið að fylgjast með ræðuhöldum áður en Jóhanna Jónasdóttir tók við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd. Frá vinstri: óþekktur, Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002), Guðmundur Kristinsson, Baldur Eðvarðsson, Erna Sigurbjörnsdóttir, Magnús Guðmannsson, óþekktur, Jóhann Björn Þórarinsson og Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004).
María Magnúsdóttir - safn 319
Jóhanna Albertsdóttir (d. 3.3.1996) húsfrú á Syðra-Hóli.
Höfðaskóli - safn 383
Djúpt sokknar í verkefnavinnu í Höfðaskóla. Frá vinstri: Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og Erla Björk Ágústsdóttir . Myndin var tekin í vinnuviku 1988.
Fisk Seafood - safn 187
Halldór Gunnar Ólafsson rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar hf við skrifborðið sitt í vinnunni. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
María Magnúsdóttir - safn 038
Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d.13.11.1987) frá Syðra Hóli.
Fisk Seafood - safn 200
Erla Jónsdóttir fjármálastjóri Skagstrendings hf við vinnu sína á skrifstofu félagsins. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
María Magnúsdóttir - safn 076
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli er hér til hægri með vinkonu sinni Valgerði Bjarnadóttur (Lóu) (d.6.12.2013) frá Efri Mýrum.
Fisk Seafood - safn 041
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Þessi mynd var tekin þennan dag þar sem þær vinna við snyrtingu á þorskflökum þær Sigríður Ásgeirsdóttir til vinstri og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012)
Höfðaskóli - safn 363
Í áratugi fékk Höfðaskóli árlega úthlutað græðlingum frá Yrkjusjóði og fær enn þó í minna mæli sé. Plönturnar voru svo settar niður framan í hlíðum Spákonufellsins þar sem nú má sjá vísi af skógi. Yfirleitt var valinn einhver góður dagur að vori í þessar gróðursetningar þó haustið sé líka tilvalinn tími til gróðursetninga eftir að plönturnar hafa lokið undirbúningi sínum fyrir veturinn. Stundum var einum bekk falið að gróðursetja en stundum nokkrum bekkjum saman. Á myndinni er Elva Mjöll Þórsdóttir að vanda sig við gróðursetningu birkiplöntu sem í dag (2019) er sjálfsagt orðin töluvert á þriðja metra á hæð. Myndin var sennilega tekin einhverntíma upp úr 1990.
María Magnúsdóttir - safn 318
Magnús Björnsson (d.20.7.1963) bóndi og fræðimaður frá Syðra Hóli
María Magnúsdóttir - safn 109
Aftan á þessari mynd stendur: "Pétur Hillmann 1920 ?".
Fisk Seafood - safn 128
Guðmunda Ólafsdóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 233
Þessi mynd var tekin á blettinum framan við Ægissíðu. Maðurinn á myndinni er Rósbeg G. Snædal að leika við börnin sín: Hólmstein, Hún og Gígju. Mennirnir sem eru að krunka yfir jeppanum eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma upp úr 1950.
Fisk Seafood - safn 087
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er óþekkt kona á árshátíðinni. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 165
Ólína Hermannsdóttir Hillmann. Myndin var tekin hjá: Stanton Photo Novelty Co. Springfield Ohio.
Fisk Seafood - safn 079
Þessi mynd var tekin yfir vinnslusal frystihúss Hólaness hf árið 1976. Á myndinni má telja a.m.k 26 starfsmenn en aðeins hluti starfsmannanna var í vinnslusalnum þegar fiskvinnsla var í gangi. Áætla má að starfsmenn frystihússins hafi verið a.m.k. 50 talsins þegar myndin var tekin. Í dag (2016) er enginn fiskur unninn á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 145
Hér er hópastarf í gangi í Höfðaskóla. Myndin hefur líklega verið tekin um eða uppúr 1995. Frá vinstri: óþekkt, Elva Mjöll Þórsdóttir, Magnús Árni Hallgrímsson, Jón Ingi Ragnarsson, Sveinn Elvar Jóelsson og María Markovic. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinasamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 228
Á leið í aðgerð um borð í fyrsta skuttogara Skagstrendings hf, Arnari Hu 1. Frá vinstri: Guðmundur Ólafsson, Ómar Jakobsson, Finnur Kristinsson og Vilhelm Þórarinsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
María Magnúsdóttir - safn 059
Brúðhjónin Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði og Gunnlaugur Melsteð (d. 6.8.1979).
Höfðaskóli - safn 356
Þessi mynd var sennilega tekin kringum 1990 í myndmenntatíma í Höfðaskóla. Ólafur Guðmundsson er til vinstri og Hallgrímur Axelsson er til hægri. Báðir eru þeir að mála skuggamynd af sjálfum sér svipaðar þeim sem eru á veggnum í baksýn.
María Magnúsdóttir - safn 040
Gunnar Jón Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 169
Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra Hóli
Árni Geir Ingvarsson - safn 697
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 168
Myndin var tekin 23. desember 1999 þegar áhöfnin á Arnari Hu 1 skálaði í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Á þessari mynd er Finnur Kristinsson yfirvélstjóri í forgrunni, Guðmundur Gunnlaugsson er vinstra megin við hann og Dagbjört Bæringsdóttir hægra megin.
Fisk Seafood - safn 129
<p>Það er gaman á þessari mynd hjá þeim Guðrúnu Sigurðardóttur, Guðmundi Jóhannessyni, Þórunni Óladóttur og Jónu Guðjónsdóttur í vinnunni í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. </p>
Fisk Seafood - safn 013
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á þessari mynd má sjá starfsfólk Hólaness hf, ásamt stjórnendum félagsins, í upphafi samsætisins. Þekkja má við borðið næst okkur, vinstra megin við borðið: innst Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Grétar Haraldsson, Sigríður Gestsdóttir er svo önnur frá hægri þeim megin við borðið. Hægra megin við borðið sitja, frá vinstri: Guðmundur Óskarsson, Guðmundur Kristinsson, tvær óþekktar konur, Sigrún Lárusdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt, Hrönn Árnadóttir og tvær óþekktar konur. Við næsta borð sitja við endann: Adolf J. Berndsen vinstra megin og Jóhanna Jónasdóttir og Birgir Árnason (d.2.2.2005) hægra megin. Aðrir við það borð eru óþekktir. Við borðið upp við vegginn eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Gylfi Sigurðsson, Ingibergur Guðmundsson og Gunnar Sveinsson. Guðný Björnsdóttir situr svo lengst til vinstri við borðið sem er lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir á myndinni. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
María Magnúsdóttir - safn 120
Magnús R. Snædal
Fisk Seafood - safn 241
Áhöfn Örvars Hu 21 eftir að hafa setið námskeið um góða meðferð á fiski. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Sitjandi í fremstu röð, eru frá vinstri: Bjarni Ottósson, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989), Ingvar Þór Jónsson, Ingi Björn Sigurjónsson, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, Jón Alexandersson, Hilmar Stefánsson og Gylfi Guðjónsson. Miðröð frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000), Hafsteinn Pálsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Sigurjón Ingólfsson, Jens Jónsson, Jóhannes Símonsen, Ingólfur Sveinsson, Gunnar Jón Jónsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Eiður Hilmarsson, Þórarinn Grétarsson, Sveinn Sævar Ingólfsson og Sveinn N. Gíslason. Aftasta röð frá vinstri: Rúnar Jósefsson, Hjörtur Þór Guðbjartsson, Ragnar Högnason, Axel Jóhann Hallgrímsson, Skúli Tómas Hjartarson, Arnar Arnarsson, Sigurjóm M. Alexandersson, Þorsteinn Jakobsson, Kristján Alexandersson og Sævar Rafn Hallgrímsson. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Höfðaskóli - safn 344
Þessi mynd var tekin í einhverri samverustund á sal í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1990. Frá hægri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Baldur Magnússon og lengst til vinstri er Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 233
Þessir krakkar úr Höfðaskóla hafa verið að föndar piparkökukarla úr pappa. Þau sýna hér ánægð afrakstur vinnu sinnar en myndin var tekin í íþróttahúsinu einhverntíma kringum 2000. Aftari röð frá vinstri: óþekktur, Brynjar Max Ólafsson, Kristján Ýmir Hjartarson, Þórður Óskar Björnsson, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Þórir Indriði Björnsson, óþekkt, Andrea Kristjánsdóttir og Guðjón Kristjánsson. Fremri röð frá vinstri: Davíð Víðisson, Alex Már Gunnarsson, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Halla Björk Víðisdóttir, óþekkt, Sonja Sif Ólafsdóttir, tvær óþekktar, Sara Rut Fannarsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 160
Aftan á þesssari mynd stendur: "Hólmfríður Stefánsdóttir ? Indíönu Albertsdóttur".
Höfðaskóli - safn 188
<p>Í svokallaðri Vinnuviku, sem haldin var í Höfðaskóla annað hvert ár, var hefðbundið skólastarf lagt til hliðar og nemendurnir fengu önnur verkefni til að fást við. Á þessari mynd, sem tekin var í einni slíkri viku á níunda áratugnum, vinna við skólaútvarp þeir Brynjar Pétursson nær okkur og Ægir Jónsson fjær. Útvarpið var rekið í vinnuvikunni með tónlist, viðtölum og ýmsum fróðleik undir stjórn útvarpsráðs, sem skipað var nokkrum nemendum, og einum kennara. </p>
Fisk Seafood - safn 204
Einar Karlsson pípulagnamaður vinnur að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík.
Fisk Seafood - safn 213
Unnið að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík. Á myndinni vinna starfsmenn Rækjuvinnslunnar að því að koma hluta nýju tækjanna fyrir. Frá vinstri: baksvipur Bjarka Gunnarssonar vélamanns, Árni Geir Ingvarsson verkstjóri í miðið og Vilhjálmur Skaftason.
Höfðaskóli - safn 306
Föndrara í úr Höfðaskóla fæddir 1992 þannig að myndin hefur verið tekin kringum 2000. Frá vinstri í aftari röð: Kristján Ýmir Hjartarson, Þórir Óskar Björnsson og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Karl Aron Bender, Laufey Inga Stefánsdóttir og Þórður Indriði Björnsson.
1
…
124
125
126
…
167
Leita í myndasafninu
Leita