Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 336
Þessir nemendur Höfðaskóla unnu í samkeppni um áróðursefni fyrir reykleysi á vegum Tóbaksvarnarnefndar. Verðlaunin voru ferðalag til Danmerkur, sem þessir krakkar fóru í um vorið. Myndin var tekin árið 2000 eða 2001. Aftari röð frá vinstri: Kristinn Andri Hjálmtýsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Hanna Rúna Gestsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Björn Viðar Jóhannsson, Rósa Björg Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
Ólafur Bernódusson612
Hallbjörn Hjartarson, sem gaf sér listamannsnafnið "Kúreki Norðursins", að skemmta fólki á kántrýhátíð í ágúst 2001.
María Magnúsdóttir - safn 149
Aftan á þessa mynd er skráð: "Hópurin minn, ekki allur samt. Some of John Hillman´s family. Granddaughter Ruth. Dóttur Marilyn. Dóttur June, hired man, Clifford´s wife - Deemie, John´s kona Dora, granddaughter Lois, dottir Johanna. Kona Viola + son Elmer. Evarta Alberta Canada 1945?".
María Magnúsdóttir - safn 108
Systkini frá Syðra Hóli. Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) til hægri og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri. Milli þeirra stendur bróðir þeirra, Björn Magnússon (d. 13.11.2010). Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1930.
Fisk Seafood - safn 218
Vélamennirnir Þórarinn Grétarsson til vinstri og Vilhelm Þórarinsson til hægri vinna að endurbótum í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
María Magnúsdóttir - safn 135
Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra Hóli
María Magnúsdóttir - safn 055
Þessi kona, sem virðist vera íklædd hermannajakka, er Ingibjörg Steinvör Þórarinsdóttir Bozin frá Skúfi. Til gamans má geta þess að aftan á myndinni stendur skrifað: eg sendi þér þessa mynd að gamni mínu. Gettu hver þar er
María Magnúsdóttir - safn 127
Hulda Pálsdóttir frá Njálsstöðum.
María Magnúsdóttir - safn 247
Þessi mynd eftir Kaldal er af Helga Haraldssyni Litla Bergi Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari 397
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að ná tökum á eldinum, sem var gríðarlegur. Ekki þótti óhætt að fara inn í húsið af því að þar voru gaskútar að springa og svo var húsið stálgrindahús og vegna hitans hefði það getað lagst saman hvenær sem var. Lengst til hægri er Sigurjón Ingólfsson, Gísli Snorrason er að ganga að húsinu en Vilhelm Jónsson er að ganga frá því. Aðrir eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 006
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í ræðustól á sjómannadegi. Honum til aðstoðar er kynnir dagsins Jón Ingi Ingvarsson. Eins og sjá má hefur Pétur verið heiðraður með heiðurspeningi sjómannadagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 223
Hér er fagnað 10 tonna rækjuholi um borð í Helgu Björg Hu 7. Frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Jón Jósefsson og Hjalti Indriðson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Höfðaskóli - safn 332
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er tískusýning í gangi en hún var eitt af atriðunum sem sýnd voru þennan dag. Frá vinstri: Sóley Elsa Blöndal, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Silfá Árnadóttir, Amy Ósk Ómarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson og Elva Ösp Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 666
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var í eldhúsinu í Fellsborg í pásu frá æfingu á skemmtiatriðunum, eru talið frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Kristjana Jóhannsdóttir, Guðlaugur Hjaltason, Einar Haukur Arason, Ingibergur Guðmundsson og Fannar Viggósson. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 256
Aftan á þetta póstkort er skrifað: "Þessi mind var tekin af þreskivjelini þegar var virið að þreska hjá okkur í haust sem leið. Manni minn vann með henni firir tíma". Eitthvað er stafsetningin farin að skolast til hjá bréfritara en meiningin er þó öllum augljós. Engin undirskrift er á kortinu né nafn viðtakanda. <br>
María Magnúsdóttir - safn 099
Vinkonurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli til vinstri og Rannveig? vinkona hennar úr menntaskóla. Föðurnafn Rannveigar er óþekkt en hún flutti snemma til Noregs og hefur búið þar síðan. Ef þú veist föðurnafn hennar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 43
Séra Pétur Þórður Ingjaldsson (d.1.6.1996) 17 ára gamall.
María Magnúsdóttir - safn 142
Hjónin Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir og Björn Einarsson sem bjuggu í Hillebrantshúsi á Blönduósi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 18
Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri) í sunnudagaskóla eða æskulýðsmessu einhverntíma kringum 1968. Á fremsta bekk sitja frá vinstri: Sigríður Birna Björnsdóttir, Aðalheiður Másdóttir frá Réttarholti, Elsa Lára Blöndal með bróður sinn Kristján Blöndal í fanginu og Hrönn Árnadóttir. Lengst til vinstri á öðrum bekk er Jón Hallur Pétursson síðan koma systkinin Ragnar Högnason og Rósa Björg Högnadóttir. Upp við vegginn, með úlpuhettuna á höfðinu er Sólveig Gunnarsdóttir. Konan með hattinn er Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) kaupkona í versluninni Borg og aftan við hana eru Ástmar Kári Ástmarsson og Gísli Snorrason. Aftast til hægri sér í Guðmund Lárusson (d.15.10.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson605
Í september 2001 kom nýr Benz slökkvibíll til Slökkviliðs Skagastrandar. Gamli bíllinn, sem er til hægri á myndinni, var af Bedford gerð og hafði þjónað liðinu í áratugi en þótti orðinn gamaldags og ekki næganlega góður. Á myndinni er hluti af slökkviliðinu að skoða nýja bílinn og prófa hann. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Tryggvi Hlynsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) slökkviliðsstjóri, Gunnar Stefánsson, Sigurður Björnsson, Helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Baldvin Hjaltason, Þröstur Líndal og Ari Þórsson.
Fisk Seafood - safn 080
<p>Þessi mynd var tekin í flökunarsal frystihúss Hólaness hf 1976. Ungi maðurinn, sem heldur á stórþorskinum, er óþekktur en til vinstri, í skugganum, bíður handflakarinn Ingvi Sveinn Guðnason (d. 31.12.1991) með hnífinn í hendinni eftir að fá þorskinn á flökunarborðið hjá sér. Ef þú þekkir unga manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
María Magnúsdóttir - safn 258
Aftan á myndinni stendur: "Fjóla Sigurðardóttir frá Laufási Skagaströnd. Fædd í Vestmannaeyjum 25/9 1929". Fjóla dó 15.7.1988.
Fisk Seafood - safn 070
Á árunum 1987 - 1989 var unnið töluvert magn af saltfiski í salthúsi Hólaness hf á Hólanesinu. Þessi mynd var tekin í kaffitíma af starfsfólkinu í salthúsinu. Frá vinstri: Gunnar Albertssson, Erla Theódórsdóttir, Danica Zupancic, Ingunn Kristjánsdóttir, Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Davíð Reynisson, Sigfús Sævar Sigurðsson, óþekkt, Sigrún Benediktsdóttir og Ottó Ákason (d.17.9.2005). Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 088
Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) frá Syðra Hóli með son sinn Hún Snædal í fanginu. Myndin hefur líklega verið tekin 1945 eða 1946.
Höfðaskóli - safn 335
Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) á sameiginlegri vorsýningu nemenda Höfðaskóla og eldri borgara á Skagatrönd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið í kringum 1990.
Páll J. Pálsson safn 7
Myndin var tekin 1946 á hlaðinu á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Páll Tómasson (d. 3.6.1963) bóndi á Bakka að járna hest með aðstoð Þorgríms (d. 7.9.2013) sonar síns. Önnur börn Páls fylgjast með en þau eru frá vinstri: Páll Jónatan, María og Björg.
María Magnúsdóttir - safn 330
Þessi kona er óþekkt. Ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 199
Guðrún Pálsdóttir launafulltrúi hjá Skagstrendingi hf við vinnu sína á skrifstofu félagsins. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
María Magnúsdóttir - safn 015
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Líney Jósefsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Sigurður Bjarnason. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
María Magnúsdóttir - safn 087
Fjóla Jónsdóttir með litla bróður sinn, Ragnar Jónsson, í fanginu. Myndin var sennilega tekin 1964.
Fisk Seafood - safn 098
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Í forgrunni myndarinnar eru hjónin Bjarney Valdimarsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson. Í baksýn frá vinstri: Guðmundur Viðar Guðmundsson, óþekkt, Jóninna Pálsdóttir, Kristófer Árnason (d.10.5.2000) og Björn Ingi Óskarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 672
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum er sungið af krafti. Frá vinstri: Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari 383
Myndin var tekin af kappróðri á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Þá var róið frá bryggjunni milli Ásgarðs og Miðgarðs og endað fram af enda Skúffugarðs. Róðurinn er kominn á endasprettinn því belgurinn sem sést fyrir framan bátana afmarkar endamarkið. Yfir bátana má sjá þurkhjalla sem stóðu á Hólanesinu við hlið fiskvinnslunnar þar.
Hérðasskjalasafn A-Hún 2
(Lilja) Þuríður Jakobsdóttir (1880 - 19.7.1965) Brautarholti á Skagaströnd. Þuríður var kona Ólafs Guðmundssonar (d.6.10.1985) í Brautarholti.
María Magnúsdóttir - safn 184
Aftan á myndinni stendur:" Guðrún, Auðbjörg, Indíana Albertsdætur frá Neðstabæ".
Fisk Seafood - safn 003
Skákþing Norðlendinga var haldið í Fellsborg á Skagaströnd 2.- 5.mars 1989. Hólanes hf var aðalstyrktaraðili mótsins og á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson, lengst til vinstri, framkvæmdastjóri félagsins að afhenda sigurvegurunum verðlaun sín. Verðlaunahafarnir eru því miður óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 090
Kaffistofa Hólaness hf er mjög aðlaðandi og býður upp á ýmsa möguleika. Stöku sinnum tók starfsfólk fyrirtækisins sig saman og hittist að kvöldi til á kaffistofunni og átti þar notalega stund. Þessi mynd var tekin á einni slíkri samkomu. Frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Þorgeir Jónsson, tvær óþekktar, Valdís Valdimarsdóttir og Sólveig Eiðsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 136
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) frá Syðra Hóli til vinstri og Guðmundur R. Guðlaugsson (d. 8.5.1985) frá Árbakka til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 678
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason og Magnús B. Jónsson. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 239
Gunnar Þór Gunnarsson var kokkur um borð í Arnari nýja eins og hann var kallaður. Hér er Gunnar við störf sín um borð. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
María Magnúsdóttir - safn 337
Á þessari mynd stendur skrifað: "Björn Gunnlaugsson maður Margrétar og synir". Líklega er hér átt við Margréti Magnúsdóttur frá Holti.
Fisk Seafood - safn 044
3. júní 1987 útskrifaðist hópur starfsfólks Hólaness hf sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Á myndinni afhendir Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012) skírteinið sitt í samsæti sem haldið var af þessu tilefni.
Fisk Seafood - safn 238
Óskar Þór Kristinsson var einn tryggasti sjómaður Skagstrendings hf um áratuga skeið. Hér er hann um borð í vinnugallanum að bíða eftir að trollið komi úr kafinu. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Fisk Seafood - safn 154
<p>Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá var slegið upp veislu í Fellsborg. Myndin sýnir hluta gesta í veislunni hlýða á ávarp óþekkts ræðumanns. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Aðalbjörg Helga Sigfúsdóttir, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Guðbjörg Ólafsdóttir, óþekktur maður með sólgleraugu, Lárus Ægir Guðmundsson, Páll Pétursson alþingismaður, Kári Kristjánsson (d.11.12.1990), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) og Hjalti Skaftason. Aðrir á myndinni eru óþekktir. </p>
María Magnúsdóttir - safn 117
Aftan á þessa mynd stendur skrifað: "Jóhannes Guðmundsson 14 ára 14 ágúst 1943 Kær kveðja til Ragnheiðar Björnsdóttur"
Árni Geir Ingvarsson - safn 683
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, er Halldór Gunnar Ólafsson að leika Lárus Ægi Guðmundsson sem framkvæmdastjóra Hólaness hf. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 226
Sambýlisfólkið Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason sjómaður á sjómannadegi á Skagströnd. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
María Magnúsdóttir - safn 313
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Við borðið næst okkur eru: Guðmundur Jóhannesson sem snýr baki í okkur, Benóný Gunnarsson í ljósri skyrtu og Lárus Ægir Guðmundsson. Við næsta borð má þekkja Ólöfu Ardísi Arelíusdóttur en aðrir í kaffistofunni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 069
Systkinin Fjóla Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson á reiðhjóli. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1955.
Héraðsskjalasafn A-Hún 210
Krókssel í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 167
Myndin var tekin 23. desember 1999 þegar áhöfnin á Arnari Hu 1 skálaði í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Á þessari mynd er Gunnar Þ. Ásgeirsson í forgrunni, vinstra megin við hann sér í Hallbjörgu Jónsdóttur en hægra megin við hann eru Hólmgeir Kristmundsson? og Sævar Berg Ólafsson.
Fisk Seafood - safn 178
Hrefna Þorsteinsdóttir glaðbeitt við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 113
Njálsstaðir í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 162
Aftan á þessa fjölskyldumynd stendur: "Páll Steingrímsson Ingibjörg og börn Njálsstöðum". Ljósmyndasafnið veit að tveir af drengjunum munu vera Þormóður Pálsson og Guðmar Pálsson en veit ekki nöfn hinna systkinanna. Ef þú veist nöfnin, og e.t.v. þekkir þau á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 309
Leikskólabörn á öskudegi með kennurum sínum. Konan með pokann er óþekkt en Þórunn Bernódusdóttir er í drapplitri úlpu í miðið og Bára Þorvaldsdóttir er lengst til hægri. Grímubúin börnin eru óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 240
Konan til hægri á myndinni er Ragnheiður Björnsdóttir (d.?) frá Syðra-Hóli en konan til vinstri er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 316
Samkvæmt texta með þessari mynd er þetta Jón Magnússon á Hurðabaki ættaður frá Holti.
Fisk Seafood - safn 161
Þessi mynd var tekin af áhöfnum Arnars Hu 1 hinn 23. desember 1999. Þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð. Af þessu tilefni var drifið í myndatöku og á eftir bauð útgerðin upp á léttar veitingar um borð fyrir áhöfnina og aðstandendur þeirra. Á myndinni eru frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Bæring Skarphéðinsson, Guðmundur Andersson (nær), Ólafur Ásgeirsson (fjær), Ernst Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ágúst Ómarsson, Ósvald Indriðason (fjær), Ingibjörg Skúladóttir (d.30.7.2023) (nær), Sigurjón Ingólfsson, Hólmgeir Kristmundsson, Valdimar Viggósson, Indriði Sigurðsson (nær), Hafþór Gylfason (fjær), Jónas Þorvaldsson, Óskar Kristinsson (nær), Einar Ásgeirsson (í miðið), Reynir Lýðsson (fjærst), Þröstur Árnason (fjær), Jóhannes Indriðason (nær), Einar Kristberg, Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Finnbogason, Guðmundur Gunnlaugsson?, Björn Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) (fjær), Sævar Berg Ólafsson (nær), Jóhann Ásgeirsson (fjær), Slavko Velemir, Bjarni Ottósson, Guðmundur Henry Stefánsson, Gunnar Reynisson, Alfreð Hafsteinsson, Víðir Jóhannesson og Finnur Kristinsson. Eins og sjá má á borðanum voru aflaverðmætin orðin einn milljarður og 25 milljónir þennan dag. "Milljarðakassinn" er svo fyrir framan hópinn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 67
Skeggjastaðir Skagahreppi nú Skagabyggð. Húsið var byggt á fimmta áratugnum.
Fisk Seafood - safn 099
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á hótel Sögu, þar sem hópurinn gisti, af hjónunum Gylfa Sigurðssyni og Guðrún Guðbjörnsdóttur.
1
…
128
129
130
…
167
Leita í myndasafninu
Leita