Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Mundi255
Eigandi bílsins var Engilbert Óskarsson (d.13.9.1982) sem keyrði farþega og vörur milli Skagastrandar og Reykjavíkur. Engilbert Óskarsson og Sigríður Helgadóttir kona hans áttu heima í Skálholti, en fluttu frá Skagaströnd til Reykjavíkur 1958. Þessi bíll kom til Skagastrandar 1954. Bíllinn var óyfirbyggður og var notaður fyrsta sumarið í stauraflutnínga fyrir Rafmagnsveiturnar. Fór um haustið til Akraness og var byggt yfir hann um veturinn. Engilbert Óskarsson seldi Valdimar Núma Guðmundssyni (d. 14.3.1972) bílinn 1958 og var hann í eigu Núma til 1963. Númerið H275 var á flutningabílum frá Skagaströnd til 1982 og á bílum Hjalta Skaftasonar til 2007.
Binna með Boga bróður sinn
Birna Lúkasdóttir og Bogi bróðir hennar.
Mundi252

Hannes Guðmundsson (d. 6.2.1990) bóndi á Auðólfsstöðum tekur til matar síns.

Mundi295
Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) og Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994) á sviðinu í Tunnunni
Fríða
Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir
Image378
Skagatrandarhöfn 1935 - 1943. Hafnarhúsið, sem er stóra húsið á myndinni, var byggt 1935 og síðan fært 1942 eða 1943 á þann stað sem það stendur í dag, fyrir neðan Karlsskála, til að rýma fyrir byggingu síldaverksmiðjunnar.
Birna Sólveig og Rúnar Már
Birna Sólveig Lúkasdóttir og Rúnar Már
Mundi312
Fólk streymir úr Hólaneskirkju (eldri) eftir fermingu 1961.
fram090

Hér standa í skjóli við einhvern skúr þeir Ólafur Guðmundsson, Garðar Geirfinnsson, óþekktur drengur, Jón Gunnar Einarsson og Gunnlaugur Briem. Talið er frá vinstri.

fram044
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Keppt í langstökki. Karl Lúðvíksson með málbandið. Aðrir óþekktir.
fram105

Körfuboltalið frá umf. Fram í stórum sal.

Mundi289
Flekkóttur hrútur.
larus043
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Lárus Ægir Guðmundsson formaður bygginganefndar afhendir formanni sóknarnefndar Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur lykil kirkjunnar.
Mundi258
Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) frá Akurgerði.
Mundi246
Óþekktur maður syngur einsöng við undirleik óþekkts píanóleikara.
mundi321
Tvær kisur.
Myndir frá Skagaströnd 007
Óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
mundi325
Guðbjörg Vera Kristinsdóttir (Bugga) á fermingardeginum sínum vorið 1968.
fram109
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Soffía Guðmundsdóttir umf. Fram kastar kúlu.
Birna Sólveig Bogadóttir
Birna Sólveig Bogadóttir
fram131
Héraðsmót USAH 1977, 3000 metra hlaup. Kristinn Guðmundsson kemur í mark.
myndir frá Skagaströnd 049
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga sem lést af slysförum 1963. Kistuna bera, frá vinstri: Kristinn Jóhannsson, Þórbjörn Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Magnús Daníelsson og Óli Bogason. Aðstandendur og gestir á leið út úr kirkjunni.
mundi322
Matthildur Hafsteinsdóttir Fossdal í Dvergasteini.
Myndir frá Skagaströnd 056
Neðst á myndinni sést þakið á Steinholti, þar fyrir ofan er Bjarmaland
Mundi281
Leiksýning í Tunnunni. Lengst til vinstri er Helga Berndsen þá kemur Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966). Lengst til hægri er Ólína Steingrímsdóttir (d.4.2.1994). Aðrir eru óþekktir.
mundi341
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver.
larus084
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Páll Þorfinnsson rafvirki, sem sá um allar raflagnir kirkjunnar til vinstri á spjalli við Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt.
oþekkt136
Starfsfólk frystihús Kaupfélags Skagastrendinga.
Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir og Hrólfur Jakobsson
jón116
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi á hestbaki.
mundi436
Björn Hafsteinsson Fossdal (d.13.4.1983) frá Dvergasteini, sem stóð ofan við Skálholt.
Binna ca 6 mánaða
Birna Lúkasdóttir - Binna - 6 mánaða.
Mundi253
Byggingaframkvæmdir við Höfðaskóla í gangi. Myndin tekin einhverntíma á árunum fyrir 1958 því þá var byggingin tekin í notkun. Maðurinn með hjólbörurnar er óþekktur.
fram039
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Karl Lúðvíksson mælir stökk, Ingvar Jónsson er lengt til vinstri og Vala Ingvarsdóttir skrifar. Konan með barnavagninn er Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) með börnin sín við hlið sér þau Þorlák og Bergþóru Guðjónsbörn. Aðrir eru óþekktir.
fram113
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 100m hlaup telpna. Lengst til hægri er Soffía Guðmundsdóttir umf. Fram.
mundi366
Fjölskyldan í Gautsdal. Hjónin Jón Haraldsson (d.20.10.2019) og Elín Valgerður Jónatansdóttir (d.20.10.1995) með börn sín þau Kristínu og Gauta.
Bogi Th Björns
Bogi Th. Björnsson
larus062
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Jóhann Bjarnasson múrari frá Bjargi vinnur við holufyllingar utanhúss.
fram025
Sigfús Jónsson sveitarstjóri ávarpar þátttakendur og gesti á víðavangshlaupi ca 1985.
Mundi274
Þórgunnur Snædal sumarið 1960 í Ægissíðu
fram126
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. 100m undanrásir, frá vinstri: Karl, Kristján og Óskar
fram112
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Kolbrún Viggósdóttir umf. Fram kastar kúlu.
fram133
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. Ingibergur Guðmundsson keppir í langstökki.
Mundi309
Halla Jökulsdóttir (d.16.9.2016) frá Núpi 9 ára gömul.
fram051
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Verðlaunaafhending að hefjast. Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson kynna úrslit.
fram011
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson hlustar á tölu Pálma Gíslasonar formanns UMFÍ í einhverju samkvæmi á vegum umf Fram í Fellsborg.
Höfðakotssystkinin

Systkinin í Höfðakoti, börn hjónanna Steingríms Jónssonar og Halldóru Pétursdóttur. Sigurður Steingrímsson er lengst til vinstri þá Gyða, Anna, Ólína Marta, Jóna og Guðrún allar Steingrímsdætur. Á myndinni er systkinunum raðað í aldursröð.

mundi349
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver.
larus014

Síðasta messan í gömlu kirkjuni 6. október 1991.
Frá vinstri: Kristján Hjartarsson organisti, Séra Egill Hallgrímsson, Steindór Haraldsson meðhjálpari, Julian Hewlet organisti og kórstjóri.
mundi373
Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður dansar við Þorgerði Sæmundsen konu Hermanns Þórarinssonar. Bak við þau sér í Þorvald Ásgeirsson og Sigurð Kr. Jónsson.
mundi333
Grímuball í Tunnunni. Af auðsjáanlegum ástæðum er ekki vitað hvaða stúlkur þetta eru.
Gúrý Bogad
Guðríður Bogadóttir - Gúrý Boga.
mundi330
Frá vinstri í fremstu röð: Guðrún Á. Lárusdóttir, Sigríður Þ. Gestsdóttir, Guðbjörg V. Kristinsdóttir, Guðbjörg B. Viggósdóttir og Linda Kristjánsdóttir. Miðröð frá vinstri: Hallbjörn Ágústsson, Ingvar Ástmarsson, Kjartan Bjarnason og Ragnar Ingvarsson. Aftasta röð frá vinstri: Heiðar E. Friðriksson, Hilmar O. Gunnarsson, Níels Grímsson og Magnús Guðlaugsson. Myndin var tekin á skólatröppunum.
fram122
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram keppir í langstökki. .
larus009

Síðasta messan í gömlu Hólaneskirkjunni 6. október 1991. Kirkjan var seinna afhelguð og í framhaldi af því var hún rifin. Hafði hún þá þjónað söfnuðinum í rúmlega 63 ár frá 17. júní 1928 þegar hún var vígð. Á myndinni er
Julian Hewlet organisti og Rosemary Hewlet undirleikari á þverflautu. Í kórnum eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason frá Bjargi, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) frá Vindhæli (aftast), Dagný Hannesdóttir, Hidigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) (gráhærður), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Gylfi Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir og Kristín Kristmundsdóttir. Allir kórfélagar, sem hér eru taldir og eru enn á lífi, þjóna nú í nýju kirkjunni nema Kristín sem hætti fyrir nokkrum árum. Kirkjugestir sem sjást á myndinni eru frá vinstri: feðgarnir Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Sigurjón Guðbjartsson frá Vík. Við hlið Sigurjóns situr Hildu Inga Rúnarsdóttir, sem seinna vígðist til prests, og framan við þau þrjú sést Erla María Lárusdóttir.

myndir frá Skagaströnd 052
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga sem lést af slysförum 1963. Kistan borin í kirkjugarð. Hægra megin halda undir kistuna bræður hins látna, Steingrímur, Ingvar og Hrólfur Jónssynir. Hinir burðarmennirnir eru óþekktir.
myndir frá Skagaströnd 051
Frá útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga sem lést af slysförum 1963. Mikið fjölmenni var við útförina.
Jón Ólafur Ívarsson
Jón Ólafur Ívarsson - (Daddi) (d.29.12.2013).
mundi343
Beinagrindárbúningnum klæðist Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) frá Læk. Búninginn málaði Sveinbjörn Blöndal.
Rúnar Már Jóhannsson
Rúnar Már Jóhannsson
larus067
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Gamla kirkjan frá 1928 í baksýn.
1

12
13
14

167
Leita í myndasafninu
Leita