Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 330
Þessi kona er óþekkt. Ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 199
Guðrún Pálsdóttir launafulltrúi hjá Skagstrendingi hf við vinnu sína á skrifstofu félagsins. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Fisk Seafood - safn 163
Þessi mynd var tekin af Adolf H. Berndsen, stjórnarformanni Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
María Magnúsdóttir - safn 271
Þessi kona er óþekkt. Myndin var tekin í Carberry í Manitoba og hefur verið send heim til ættingja á Íslandi. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 035
Til hægri á myndinni er Björn Magnússon (d.13.11.2010) bóndi á Syðra Hóli en maðurinn vinstra megin er Árni M. Jónsson (d. 18.11.2009) kenndur við Skriðu á Sauðárkróki - Árni í Skriðu. Myndin var líklega tekin á hlaðinu á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 015
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Líney Jósefsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Sigurður Bjarnason. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
María Magnúsdóttir - safn 087
Fjóla Jónsdóttir með litla bróður sinn, Ragnar Jónsson, í fanginu. Myndin var sennilega tekin 1964.
Fisk Seafood - safn 201
Þetta voru konurnar á skrifstofunni hjá Skagstrendingi hf á árinu 2000. Frá vinstri: Erla Jónsdóttir fjármálastjóri, Sigríður Gestsdóttir skrifstofustúlka, Guðrún Pálsdóttir skrifstofustúlka og Dagný Marín Sigmarsdóttir bókari.
María Magnúsdóttir - safn 286
Stúlkan á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 280
Myndin var tekin á hlaðinu á Syðra-Hóli. Frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015), Jóhanna Albertsdóttir (d.3.3.1996), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) og Sigurlaug Kristjánsdóttir seinna húsfreyja á Tjörn á Skaga.
María Magnúsdóttir - safn 021
Þórarinn Hjartarson (d.28.1.1991) og Signý Ástmarsdóttir pakka frystri rækju í Rækjuvinnslunni hf. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
María Magnúsdóttir - safn 031
Þessi systkini eru börn hjónanna í Asparlundi (Bogabraut 24), Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991) og Maríu Magnúsdóttur (d. 2.2.2016). Systkinin eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Fjóla Jónsdóttir með Ragnar H. Jónsson í fanginu og Gunnar Jón Jónsson. Myndin var líklega tekin 1964 eða 1965.
María Magnúsdóttir - safn 154
Aftan á þessari mynd stendur: "Páll Arnljótsson Sauðárkrók sonur Sigurbjargar Pálsdóttur frá Bústöðum og Arnljóts Kristjánsson Hafgrímsstöðum".
María Magnúsdóttir - safn 329
Aftan á þessari mynd stendur :"Friðrik ?". Myndin var tekin af Daníel Davíðssyni á Sauðárkróki en annað er ekki vitað um manninn á henni. Ef þú veist hver Friðrik er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 314
Systur frá Syðra-Hóli. Frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013), Guðrún Ragnheiður Magnúsdóttir (dó 13 ára af slysförum, ár óþekkt) og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016).
Fisk Seafood - safn 100
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd af mágkonunum Guðrúnu Sigurðardóttur til vinstri og Guðrúnu Guðbjörnsdóttur til hægri var tekin í Grillinu á hótel Sögu en hópurinn gisti á hótelinu og borðaði hátíðakvöldverð á Grillinu í boði Hólaness hf.
María Magnúsdóttir - safn 030
Konurnar sitja við pillunarfæribandi í Rækjuvinnslunni hf. Vinstra megin við bandið eru frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Díana Kristjánsdóttir. Hægra megin eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir?, Jóna Guðjónsdóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 656
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, er Björn Ingi Óskarsson sem sá um tæknimál á blótinu.
María Magnúsdóttir - safn 245
Aftan á þessa mynd er skrifað: "Stína 14 ára. Kær kveðja". Ef þú veist hver Stína er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 153
Helga Bergsdóttir var leikskólastjóri á Barnabóli á Skagaströnd í nokkur ár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 132
Sveinn S. Ingólfsson kennari og framkvæmdastjóri Skagstrendings hf á Skagaströnd. Oddviti Höfðahrepps (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) 1966 - 1974 og svo aftur 1990 - 1994.
María Magnúsdóttir - safn 175
Aftan á myndina er ritað: "Ragnheiður Margrét Ögmundsdóttir Stígshúsum, Sandgerði,
Ólafur Bernódusson578
Kántrýdansarar sýna dans á kántrýhátíð. Á sviðinu syngur Hallbjörn Hjartarson við undirleik hljómsveitar. Dansararnir eru frá vinstri: Óþekkt, Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016), óþekkt, María Alexandersdóttir, Vigdís Viggósdóttir, óþekktur, Ragnheiður Magnúsdóttir, Linda Ævarsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson592
Á myndinni er séra Guðmundur Karl Brynjarsson í hópi unglinga fæddra 1983 - 1985 í æskulýðsstarfi í Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir (framar) og Birna Sæmundsdóttir (aftar). Næsta röð: séra Guðmundur Karl, tvær óþekktar og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir). Strákarnir eru frá vinstri: Jón Oddur Hjálmtýsson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Gunnlaugur Briem, Vignir Örn Hafþórsson, Magnús Filip Sævarsson, Eyþór Ernstsson og Gunnar Helgason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 37
Bærinn að Spákonufelli og Spákonufellskirkja lengst til hægri. Þessar byggingar stóðu þar sem hluti kirkjugarðsins er í dag. Samkvæmt bókinni: "Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 -2012" eftir Lárus Ægi Guðmundsson er víst að kirkja var reist að Spákonufelli kringum aldamótin 1300. Kirkja safnaðarins var svo færð í nýja kirkju á Hólanesi 1928 en fram að því var kirkja að Spákonufelli en í afar misjöfnu ásigkomulagi gegnum árin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 207
Örlygsstaðir í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 095
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Hér er hópurinn að borða veislumat á Grillinu í hótel Sögu. Vinstra megin við borðið sitja, talið frá okkur: Sigurjón Guðbjartsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998), Gunnar Sveinsson, Bára Þorvaldsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og óþekkt fólk. Hægra megin við borðið sitja, talið frá okkur: Benóný Gunnarsson, Hjalti Skaftason, Friðbjörg Oddsdóttir, Adolf J. Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir og óþekkt fólk.
Fisk Seafood - safn 138
Guðmundur Jóhannesson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma meðan Guðmundur vann í Rækjuvinnslunni hf.
María Magnúsdóttir - safn 316
Samkvæmt texta með þessari mynd er þetta Jón Magnússon á Hurðabaki ættaður frá Holti.
Fisk Seafood - safn 161
Þessi mynd var tekin af áhöfnum Arnars Hu 1 hinn 23. desember 1999. Þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð. Af þessu tilefni var drifið í myndatöku og á eftir bauð útgerðin upp á léttar veitingar um borð fyrir áhöfnina og aðstandendur þeirra. Á myndinni eru frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Bæring Skarphéðinsson, Guðmundur Andersson (nær), Ólafur Ásgeirsson (fjær), Ernst Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ágúst Ómarsson, Ósvald Indriðason (fjær), Ingibjörg Skúladóttir (d.30.7.2023) (nær), Sigurjón Ingólfsson, Hólmgeir Kristmundsson, Valdimar Viggósson, Indriði Sigurðsson (nær), Hafþór Gylfason (fjær), Jónas Þorvaldsson, Óskar Kristinsson (nær), Einar Ásgeirsson (í miðið), Reynir Lýðsson (fjærst), Þröstur Árnason (fjær), Jóhannes Indriðason (nær), Einar Kristberg, Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Finnbogason, Guðmundur Gunnlaugsson?, Björn Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) (fjær), Sævar Berg Ólafsson (nær), Jóhann Ásgeirsson (fjær), Slavko Velemir, Bjarni Ottósson, Guðmundur Henry Stefánsson, Gunnar Reynisson, Alfreð Hafsteinsson, Víðir Jóhannesson og Finnur Kristinsson. Eins og sjá má á borðanum voru aflaverðmætin orðin einn milljarður og 25 milljónir þennan dag. "Milljarðakassinn" er svo fyrir framan hópinn.
María Magnúsdóttir - safn 189
Magnús Björnsson (d.20.7.1963) bóndi og fræðimaður á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 020
Helga Ottósdóttir í heimsókn hjá Kristófer Árnasyni (d.10.5.2000) verkstjóra í Rækjuvinnslunni hf.
Jón Jónsson 367
Jón Jónsson, sem tók þessa mynd, átti nokkrar kindur í fjárhúsi við heimili sitt. Eins og aðrir sauðfjáreigendur var hann stoltur af kindunum sínum og þótti vænt um þær. Myndin sýnir nokkrar þeirra á lóð sem nú er löngu byggð. Ef grannt er skoðað sést að ekki er búið að byggja neitt sunnan við Hólabrautina sem er til hægri á myndinni. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1950.
María Magnúsdóttir - safn 034
Þessi mynd var tekin á blíðum sumardegi við trjálund í túninu á Syðra Hóli. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 67
Skeggjastaðir Skagahreppi nú Skagabyggð. Húsið var byggt á fimmta áratugnum.
Fisk Seafood - safn 099
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á hótel Sögu, þar sem hópurinn gisti, af hjónunum Gylfa Sigurðssyni og Guðrún Guðbjörnsdóttur.
María Magnúsdóttir - safn 141
Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015).
Fisk Seafood - safn 072
Þessi hópur starfsfólks Hólaness hf útskrifaðist 7. desember 1989 sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Var þetta þriðji hópur starfsfólks Hólaness hf sem útskrifaðist á rúmum tveimur árum. Fremri röð frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004), Signý Magnúsdóttir og Súsanna Þórhallsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Stefán Sveinsson, Þórður Sigurðsson, Úrsúla Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Jónsson og Rut Jónasdóttir.
Páll J. Pálsson safn 19
Heimilisfólk á Bakka í Skagahreppi 1951. Sitjandi eru hjónin María Ólafsdóttir (d.4.7.1975) og Páll Tómasson (d. 3.6.1963) bændur á Bakka 1923 - 1960. Standandi eru börn þeirra, frá vinstri: Björg Þóra Pálsdóttir, Lilja Guðrún Pálsdóttir, Jakobína Pálsdóttir (d. 28.11.2003), Páll Jónatan Pálsson, Ólafur Helgi Pálsson (d. 22.1.2011), Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013), Guðríður Ásgerður Pálsdóttir (d. 27.2.2015) og María Pálsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 183
Aftan á þessa mynd, sem framleidd var hjá: GOODALL PHOTO SUPPLY WINNIPEG, er skrifað:"Clifford og jag að slá. Kesm. (eða Korm.) með Bindara".
María Magnúsdóttir - safn 190
Aftan á myndinni stendur:"Marilyn dóttir Jón Hillmans".
Héraðsskjalasafn A-Hún 225
Margrét Jónsdóttir (d. ?) frá Stóra-Bergi með þrjú börn sín. Ef þú veist nöfn barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Páll J. Pálsson safn 22
Hjónin Guðjón Einarsson (d. 4.5.1915) og Lilja Pétursdóttir (d. 7.8.1921) bændur á Efri Harrastöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Þau voru fósturforeldrar Maríu Ólafsdóttur (d. 4.7.1975) sem seinna var húsmóðir á Bakka í sömu sveit.
Héraðsskjalasafn A-Hún 35
Karlsminni sem stóð á túninu upp af víkinni milli Lækjarbakka og Strandgötu 10. Á þessum stað hóf F.H. Berndsen (d. ?) beykir verslunarrekstur 1875 mitt á milli verslanna á Hólanesi og á Skagaströnd (við Einbúann). Var hún rekin þarna fram að 1887 en þá brunnu þáverandi hús til grunna í miklu mannskaðaveðri. Eftir það var verslunin færð inn á Hólanes og starfrækt þar af Carli Berndsen (d. 1939), syni F.H. Berndsen, fram að fyrra stríði. Karlsminni var þá orðin þurrabúð eða venjulegt heimili þar sem ekki var skepnuhald. (heimild: Byggðin undir Borginni).
Fisk Seafood - safn 155
Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá tók fjölmenni á móti skipinu á hafnarbakkanum. Flestir Skagstrendingar áttu hluti í Skagstrendingi hf og því um leið hlut í hinu nýja skipi. Því má leiða rök að því að meirihluti fólksins á myndinni hafi átt í Örvari sem þarna var boðinn velkominn í heimahöfn. Skipið reyndist hið mesta happaskip sem skilaði gríðarlegum verðmætum að landi í formi sjófrystra afurða, sem þá var nýung á Íslandi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 28
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 063
<p>11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er dansleikur í fullum gangi og fólk að skemmta sér. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Erna Sigurbjörnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson (nær), Kristín Mogesen, Sigvaldi Þorsteinsson, Eðvarð Hallgrímsson, Ólafur Ingibjörnsson, Steinunn Friðriksdóttir og Gunnar Albertsson.</p>
María Magnúsdóttir - safn 129
Aftan á þessari mynd stendur:"Jóhannes 14 ára, Eiríkur 5 ára, Magga 11 ára, Jana 10 ára, Vatni ?". Ef þú veist einhver deili á þessum börnum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 167
Ingibjörg Ólafsdóttir (d. 6.3.1991) Króksseli og seinna Björgum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Höfðaskóli - safn 391
Hans Holger Jörgensen íþróttakennari við Höfðaskóla í nokkur ár. Myndin var tekin 8. desember 2000.
María Magnúsdóttir - safn 229
Á þessari mynd eru tvær konur nafngreindar. Jóhanna Björnsdóttir frá Syðra-Hóli lengst til vinstri og Hallfríður hjúkrunarkona á Sauðárkróki lengst til hægri. Hinar tvær eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 361
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru kennarar skólans að flytja eitthvert atriði. Frá vinstri: Páll Leó Jónsson skólastjóri, Jóhanna Jónsdóttir, Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri, Guðrún Kristjánsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, William Sillar, Inga Matthíasdóttir, óþekkt, Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Fisk Seafood - safn 169
Myndin var tekin 23. desember 1999 þegar áhöfnin á Arnari Hu 1 skálaði í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekktur fréttamaður útvarsins, Adolf H. Berndsen (baksvipur), Sigþrúður Magnúsdóttir, Sigurjón Ingólfsson, Halljörg Jónsdóttir, Þröstur Árnason, Hafþór Gylfason, óþekktir, Tryggvi Hlynsson með barn í fanginu, Ingvar Þór Jónsson, Sævar Berg Ólafsson og Hjálmfríður Guðjónsdóttir. Litla, ljóshærða stúlkan í rauðu kápunni er líklega Ellen Sigurjónsdóttir.
Páll J. Pálsson safn 2
Ferming í Hofskirkju árið 1951. Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Eiður Hilmarsson Hofi, Sigurbjörn Björnsson Hlíð, María Kristjánsdóttir Steinnýjarstöðum, Björg Þóra Pálsdóttir Bakka, séra Pétur Höskuldsstöðum, tvær óþekktar fermingarstúlkur, Alda Friðgeirsdóttir Sviðningi og Kristinn Hólm Skeggjastöðum. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 043
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af þeim Önnu Guðrúnu Ásgeirsdóttur og Magnúsi Guðmannssyni á góðri stund.
María Magnúsdóttir - safn 274
Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 661
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, syngur Kristín Kristmundsdóttir af innlifun. Ártalið er óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 062
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: tvær óþekktar konur, Erna Högnadóttir, Magnús Guðmannsson og Árni Björn Birgisson. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 156
Aftan á myndinni stendur: "Hólmfríður Stefánsdóttir frá Sauðárkróki. Húsfreyja á Kálfaströnd við Mývatn".
Höfðaskóli - safn 327
Gunnþór Óskar Sæþórsson í eldhúsinu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1993.
1
…
129
130
131
…
167
Leita í myndasafninu
Leita