Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 254
Aftan á þetta póstkort stendur skrifað: "Ingibjörg Jóhannsdóttir Thorlaksson og sonur hennar Benedikt, lítill og 3 önnur börn hennar". Þau börn munu heita Sölvi, Aðalbjörg og Anna samkvæmt því sem ritað er framan á kortið. Reyndar hefur litla myndin verið límd á kortið eftir á.
Ólafur Bernódusson596
Höfnin á Skagaströnd er vel varin með stórgrýti utan af Skaga. Á þessari mynd er hluti af grjótinu sem nýttur var í grjótvörn vestan við verksmiðjuna. Vinnulagið var þannig að grjótið var sótt út á Skaga og sett í geymslu á planið sunnan við sundlaugina, þar sem þessi mynd var tekin. Síðan þegar nóg var komið af grjóti var farið í að raða því á sinn stað í grjótvörninni. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 106
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Vinstra megin við borðið nær okkur: Sigurður Bjarnason, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Adolf J. Berndsen, óþekkt, Lárus Ægir Guðmundsson, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Kristmundur Ingibjörnsson og óþekkt fólk. Hægra megin við borðið: Sigrún Lárusdóttir, Hallbjörn Björnsson, Guðný Sigurðardóttir og óþekkt fólk. Við litla borðið til hægri má þekkja Önnu H. Aspar (d.1.9.1999) og óþekkt fólk. Við borðið Vinstra megin snúa baki í okkur: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), tveir óþekktir, Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og óþekkt fólk. Hinum megin við þetta borð eru: Guðmundur Jóhannesson, Guðný Björnsdóttir, Sveinn Garðarson og Viggó Brynjólfsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 120
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri: Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990), Eiður Hilmarsson, Marías Bjarni Viggósson og Heiðdís Sigurðardóttir.
Hérðasskjalasafn A-Hún 154
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 648
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er séra Magnús Magnússon sem var veislustjóri á einu blótanna að næra sig á æfingu. Hjá honum í eldhúsinu er Fjóla Ævarsdóttir úr kvenfélaginu. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 107
Lárus Björnsson (d. 1985) frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 036
Þessi mynd var líklega tekin á hlaðinu á Syðra Hóli. Samkvæmt texta aftan á myndinni eru á henni, talið frá vinstri: Hjónin Hólmfríður Magnúsdóttir og Rósberg G. Snædal (d. 9.1.1983) , hjónin Sigurbjörg Jónsdóttir (d.15.1.1985)og Stefán Einarsson (d.25.6.1969) frá Höskuldsstöðum og hjónin á Syðra Hóli Jóhanna Albertsdóttir(d.3.3.1996) og Magnús Björnsson (d.20.7.1963). Tilefni myndatökunnar var ferming Ásdísar Magnúsdóttur frá Syðra Hóli 20. maí 1945.
Héraðsskjalasafn A-Hún 111
Núpur í Laxárdal. Núpur hefur verið í eyði lengi og flest öll húsin á myndinni eru horfin.
Jón Jónsson 422
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) kennari, Jörundur Þorgeirsson, Edda Þórarinsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Finnur Kristinsson og óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 433
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) sem lengst af bjó í Þórsmörk. Með henni á þessari mynd eru synir hennar og Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981). Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Reynir Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
María Magnúsdóttir - safn 311
Guðmundur Jóhannesson við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd. Í baksýn er Sigurður Bjarnason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari 388
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) gengur niður landganginn á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið sæmdur heiðursmerki sjómannadagsins á Skagaströnd árið 1984.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 033
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Erna Sigurbjörnsdóttir, Hulda Birna Frímannsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Rut Jónasdóttir og Erla Sigurbjörnsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 082
María Magnúsdóttir (d. 2.2.1016) er hér í miðið með tveimur óþekktum vinkonum sínum. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 029
Konurnar sitja við pillunarfæribandi í Rækjuvinnslunni hf. Hægra megin má þekkja Díönu Kristjánsdóttur en vinstra megin eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir?, Jóna Guðjónsdóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Héraðsskjalasafn A-Hún 149
Hólmfríður M. Guðjónsdóttir (d.1974) frá Neðstabæ í Vindhælishreppi og María Guðrún Ögmundsdóttir (d. 1945) frá Syðra-Hóli Vindhælishreppi (nú Skagbyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 395
Cora Balvinnssen Paulsen (1904 - 31.8.1986) var kona Jóhanns D. Baldvinssonar - Jóa norska (d.9.4.1990) en þau bjuggu á Skagaströnd í mörg ár m.a. í Skálholti.
María Magnúsdóttir - safn 147
Aftan á þessari skemmtilegu mynd stendur: "Jeg sjalfur, Elmur og Clifford við sláttuvél. John Hillmann & sons 1940. Evarts Alberta Canada". Einnig er myndin stimpluð: GOODALL PHOTO SUPPLY WINNEPEG.
María Magnúsdóttir - safn 335
Ekkert er vitað um þessar prúðbúnu konur sem Carl Olafsson í Reykjavík tók myndina af. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson589
Myndin var tekin kringum 1980 af málaragengi unglinga sem unnu við að mála togarann Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) í Skagastrandarhöfn. Þessi fjörmikli hópur vann verkið undir verkstjórn fullorðinna. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson (fjær með húfu), Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Guðmundur Óskarsson (fjær), Arnar Erlingsson, Björn Halbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir (nær), Ingimar Oddsson (í miðið), Arnar Arnarsson (fjærst), Pálína Freyja Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 279
Aftan á þessa mynd, sem tekin var í Vesturheimi, stendur skrifað: "Thordís Anna Hillman, Markerville Altu, Can.".
Jón Jónsson 408
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Inga Björgvinsdóttir og Steindór R. Haraldsson.
Páll J. Pálsson safn 8
Bærinn Bakki í Skagahreppi nú Skagabyggð. Myndin er af gamla bænum á Bakka. Hana tók Gunnar Guðmundsson sumarið 1950 en hann er maður Lilju Pálsdóttur sem er fædd þar og upp alin. Lengst til vinstri er gamla baðstofan sem var byggð kringum 1900. Svo kemur hærri bygging sem er svefnherbergi á efri hæð með tveimur tveggja manna rúmum. Stofa á neðri hæðinni en hún var oft notuð sem svefnherbergi. þessi bygging var reist kringum 1943. Herbergin voru hituð með móofnum. Lengst til hægri er heyhlaða. Á bak við gömlu baðstofuna var eldhús með móeldavél. Bak við stofuna var fjós sem tók fjóra gripi og súrheysgrifja við enda hlöðunnar. Haughús var á bak við eldhúsið, mógeymsla á milli fjóss og eldhúss. Innangengt var milli allra rýma hússins. Páll Tómasson (d. 3.6.1963) og María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) bjuggu á Bakka 1923 -1960 og eignuðust níu börn. Eitt barnanna dó í æsku en hin komust öll til fullorðinsára. <br>Mynd númer 9580 í Ljósmyndasafninu er grunnmynd af Bakka þ.e.a.s. af neðri hæðinni.
Fisk Seafood - safn 195
Ólafur Guðmundsson við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 278
Þetta fólk er frá Syðra-Hóli. Frá vinstri: Björn Magnússon (d. 13.11.2010), Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013), Ragnheiður Björnsdóttir (d.?) og Ólafur Björnsson (d.?).
Héraðsskjalasafn A-Hún 5
Séra Björn Lárusson Blöndal (1870 - 1906) prestur á Hofi á Skagaströnd og á Hvammi í Laxárdal.
María Magnúsdóttir - safn 336
Margrét Magnúsdóttir frá Holti og börn.
María Magnúsdóttir - safn 305
Konur að keppa í reiptogi á sjómannadegi. Á kaðlinum eru talið frá hægri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Sólveig Eiðsdóttir og óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 079
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri ásamt óþekktri vinkonu sinni. Ef þú þekkir vinkonuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 078
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd frá 20. desember 1993 eru, frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir, Helga Kristmundsdóttir, Davíð Reynisson og Erna Rós Magnúsdóttir að njóta tónlistar hljómsveitarinnar Vinir Dóra.
Óþekktur ljósmyndari 381
Mynd tekin á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Myndin er af tunnuboðhlaupi á planinu við Hafnarhúsið og greinilegt að fólk fylgist spennt með keppninni. Maðurinn sem blæs í blöðru til hægri er Jón S. Pálsson skólastjóri en andstæðingur hans í hinni tunnunni er óþekktur. Barnið sem horfir í átt að ljósmyndaranum er Soffía Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 664
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var í eldhúsinu í Fellsborg í pásu frá æfingu á skemmtiatriðunum, eru talið frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Kristjana Jóhannsdóttir, Guðlaugur Hjaltason, Fannar Viggósson og bakið á Birni Inga Óskarssyni. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 105
Aftan á þessa mynd er skrifað:" Margrét Björnsdóttir frá Syðra - Hóli standandi til hægri". Margrét (d.11.9.1993) bjó lengi í Laufási á Skagaströnd. Hinar konurnar tvær á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 187
Aftan á myndini stendur:"Lundfríður Ögmundsdóttir Stígshúsum, Sandgerði".
María Magnúsdóttir - safn 283
Aftan á myndinni stendur: "Gósí". Ef þú veist hver Gósí er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 302
Systkini frá Syðra-Hóli. Frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013), Björn Magnússon (d. 13.11.2010) og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016). Myndin var tekin við húsgaflinn á Syðra-Hóli einhverntíma kringum 1930.
Héraðsskjalasafn A-Hún 62
Hjónin Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) í Höfðakoti. Steingrímur var bátsformaður og útgerðarmaður og seinna verkamaður ættaður frá Brúarlandi á Skagaströnd. Halldóra var verkakona og húsmóðir. Saman eignuðust þau hjónin fimm dætur og einn son.
Héraðsskjalasafn A-Hún 216
Jón Helgason (d. 20.5.1940) frá Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 165
<p>Skipstjórarnir á Arnari Hu 1 Guðjón Guðjónsson (Jonni) og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri skála hér í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin 23. desember 1999 og eftir að hafa skálað hvor við annan skálaði öll áhöfnin með þeim félögum. Myndin var tekin í brúnni á Arnari. </p>
María Magnúsdóttir - safn 317
Á þessa mynd er skrifað: "Björn Magnússon Syðra-Hóli og Margrét systir hans Múla".
Fisk Seafood - safn 055
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru þær á spjalli Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir til vinstri og Danica Zupancic til hægri. Lengst til hægri sér svo í Ómar Jakobsson.
María Magnúsdóttir - safn 068
Því miður er ekkert vitað um þessa mynd þannig að allar upplýsingar um fólkið á henni væru vel þegnar. Líklega er hér um bekk í skóla að ræða og þá gæti konan lengst til hægri í miðröðinni verið kennarinn. Endilega, ef þú þekkir einhvern á myndinni, sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 24
Árni Stefán Björnsson (d. 1978) sonur Björns Árnasonar (d. 1932) frá Syðri Ey.
Héraðsskjalasafn A-Hún 94
Halldóra Runólfsdóttir (d. 1918) Vatnahverfi eiginkona Eggerts Eggertssonar (d. ?) í Vatnahverfi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 21
Ólafur Árnason (d. 2.6.1915) frá Þverá í Hallárdal. Hann var umsvifamikill kaupmaður á Stokkseyri og Eyrarbakka um aldamótin 1900. Ólafur var bróðir Björns Árnasonar bónda á Syðri-Ey.
Árni Geir Ingvarsson - safn 680
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, Magnús B. Jónsson, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Ingibergur Guðmundsson. Frammi í sal sést í hnakkann á Ólafi Bernódussyni. Ártalið er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 226
Sigurður Björnsson (d. 10.5.1987) bóndi og hreppsstjóri á Örlygsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 209
Hjalti Viðar Reynisson rafvirki við vinnu í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
María Magnúsdóttir - safn 124
Aftan á þessari mynd stendur: "Guðbjörg Kristm.dóttir Tjörn". Ef þú getur sagt til um föðurnafn Guðbjargar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 041
Ásdís Magnúsdóttir frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 066
Aftan á þessari mynd stendur: "Hellir neðan við Syðri-Hóli". Fólkið á myndinni er óþekkt en a.m.k. konurnar eru prúðbúnar með hatta. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 384
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Eftir langa illviðriskafla er gott að fara út og sýna sig og sjá aðra. Oft er líka eins og veðrið sé alveg sérstaklega gott eftir illviðriskafla. Á þessari mynd eru þær á spjalli upp á háum skafli, nágrannakonurnar Helga Jóhannesdóttir til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 252
Þessi mynd hefur verið send heim til gamla landsins úr Vesturheimi (Kanada) en aftan á henni stendur: "Ólína Hermansdóttir Hillman, Jón Rugnvaldur Hermanson Hillman, Herman (Harry) Hermanson Hillman, Johann Hermanson Hillman. 1896 ? ". Börnin á myndinni eru börn Hermanns Jónssonar frá Hóli á Skaga og Margrétar Ögmundsdóttur frá Fjalli á Skaga. Þau fóru til Kanada og bjuggu í Alberta. Hermann kenndi sig við Hól og tók upp ættarnafnið Hillmann.
María Magnúsdóttir - safn 228
Óþekkt kona með barn í fanginu. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 321
Ögmundur Björnsson frá Syðra-Hóli.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 081
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd eru Borgardætur að skemmta milli 120 og 130 manns 30. júní 1994.
Fisk Seafood - safn 214
Ástmar Kári Ástmarsson við vinnu að endurbótum í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Páll J. Pálsson safn 15
Hjónin María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) og Páll Tómasson (d. 3.6.1963) bændur á Bakka í Skaghreppi nú Skagabyggð árin 1923 - 1960. Myndin var tekin 1957.
Höfðaskóli - safn 366
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. M.a. gisti hópurinn á tjaldsvæði í nokkrum húsum eins og sjást á myndinni. Á myndinni sést hluti hópsins að bíða eftir rútu, sem flutti þau til Árósa. Frá vinstri: Adolf Þór Lúðvíksson, Marta Kristín Jónsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir?, Ásdís Lýðsdóttir, óþekkt, Karen Peta Karlsdóttir (snýr baki í myndavélina) , Geirþrúður Guðmundsdóttir, óþekktur, Jón Ingi Ragnarsson, Magnús Líndal Þrastarson og Gunnlaugur Briem.
1
…
131
132
133
…
167
Leita í myndasafninu
Leita