Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 382
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Með það í huga að öll él birtir upp um síðir er alltaf tekið til eftir illviðriskafla og byrjað að moka göturnar til að gera þær bílfærar. Hér hafa verið kallaðar til jarðýta og grafa til að vinna á snjónum fyrir Víkina svo fólk komist um með góðu móti.
Héraðsskjalasafn A-Hún 48
Ólafur Pálsson (d. 26.3.2004) bóndi á Króksseli og Ytri-Björgum á Skaga.
Héraðsskjalasafn A-Hún 141
Eldri mynd af Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 679
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Magnús B. Jónsson og Ingibergur Guðmundsson. Ártalið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 708
Nágrannakonurnar Gígja Óskarsdóttir til vinstri og Guðbjörg Viggósdóttir til hægri með indíána í fanginu. Indíáninn var svo notaður sem skraut við götuna þeirra, Sunnuveginn, á Kántrýdögum einhverju sinni en svo nefndist bæjarhátíðin á Skagaströnd í nokkur ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 371
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Á þessari mynd er hópurinn í skoðunarferð á óþkktum stað. Frá vinstri: Elva Mjöll Þórsdóttir, óþekktur, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, óþekktur, Ásdís Lýðsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, María Markovic, Guðni Lýðsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Vignir Örn Hafþórsson, Elín Anna Konráðsdóttir og Guðjón Ebbi Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 644
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd eru tveir af tónlistarmönnunum sem komið hafa að skemmtiatriðunum á æfingu. Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Elías Árnason til hægri. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 221
Aftan á þessari mynd stendur: "Siggi stóri". Hann mun hafa heitið Sigurður Jóhannsson en hafði viðurnefnið "stóri". Sigurður Jóhannsson bjó í Bárubúð í Kálfshamarsvík. Um hann ritaði Magnús Björnsson á Syðra Hóli þátt sem birtur var í bókinni "Búsæld og barningur, þættir úr Húnavatnsþingi" bls. 9-52. Sigurður fórst á bát sínum Færeyingi 17 des. 1913
Héraðsskjalasafn A-Hún 193
Síldveiðibátar í vari á Kálfshamarsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma snemma á fimmta áratugnum.
María Magnúsdóttir - safn 062
Það ríkir friðsæld á þessari mynd sem var líklega tekin kringum 1940 - 45. Hún hefur verið tekin nokkurn vegin eins og hún væri tekin niður eftir Mánabrautinni í dag. Árbakkasteinarnir rísa upp úr móskunni, lítill bátur er í fjörunni og annar á floti og ber í steinana.
María Magnúsdóttir - safn 284
Óþekktar konur. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 231
Aftan á myndinni stendur: "Harry + Pete Hillman´s barn. 1940". Myndin var tekin í Vestuheimi sennilega einhversstaðar nálægt Winnipeg. Greinilegt er að eigandinn er stoltur af þessari eign sinni fyrst hann/hún er að senda myndir af hlöðunni heim til gamla landsins.
María Magnúsdóttir - safn 074
Sigurbjörg Hafsteinsdóttir (Silla) frá Njálsstöðum
María Magnúsdóttir - safn 070
Ólafur Björnsson frá Syðra-Hóli
Héraðsskjalasafn A-Hún 246 - Copy
Syðri-Björg í Skagabyggð (áður Skaghreppi).
Héraðsskjalasafn A-Hún 231
Bræðurnir Auðunn Hafsteinn Björnsson Fossdal (d. 22.2.1962) og Sverrir Björnsson Fossdal (d. 7.10.1997) frá Skagaströnd.
María Magnúsdóttir - safn 012
Rækjan eða stóri kampalampi hefur oft verið kölluð rauða gullið vegna tekna sem veiðar hennar og vinnsla hafa gefið þjóðfélaginu. Á Skagaströnd var rekin Rækjuvinnsla í fremstu röð í áratugi sem veitti fjölda manns atvinnu og þar með góðar tekjur. Eftir að veiðar drógust mjög saman við Ísland var vinnslunni hætt og starfsfólkinu sagt upp.
Héraðsskjalasafn A-Hún 108
Guðrún Margrét Albertsdóttir (d. 29.4.1970) frá Neðstabæ. Seinna húsmóðir í Hreiðri í Holtum í Rangárvallasýslu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 670
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, óþekktur, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Frammi í sal má sjá sitjandi baksvip þeirra Magnúsar B. Jónssonar til vinstri, Ólafs Bernódussonar í miðið og Ingibergs Guðmudnssonar til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 14
Bakki í Skagahreppi, nú Skagabyggð. Myndin er af suðurhlið bæjarins en hún var tekin sumarið 1960. Það sama haust fluttu síðustu ábúendur þessa gamla bæjar út en þau voru Páll Tómasson (d.3.6.1963) og kona hans María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975). Þau bjuggu á Bakka 1923 - 1960.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 006
Á myndinni sitja saman við eldhúsborðið - líklega á Fellsbraut 3 - þær Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) til vinstri og húsfreyjan á heimilinu, Þórunn Óladóttir til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 081
Þessi kona er óþekkt en gæti verið Björg Björnsdóttir (d.11.11.1989) frá Ytra Hóli. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 176
Heiða Berglind Fannarsdóttir við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 74
Háagerði í Höfðahreppi nú Sveitarfélaginu Skagaströnd. Bærinn á myndinni er horfinn og nú er 9 holu golfvöllur - Háagerðisvöllur - í eigu Golfklúbbs Skagastrandar á jörðinni. þar sem bærinn stóð stendur nú golfskáli klúbbsins.
Héraðsskjalasafn A-Hún 16
Gamla prestsetrið á Höskuldsstöðum og Höskuldsstaðakirkja sem vígð var 31. mars 1963. lengst til hægri á myndinni má sjá í örlítið horn af gömlu kirkjunni. Prestsetrið hefur nú verið rifið.
Fisk Seafood - safn 185
Árni Geir Ingvarsson undir stýri á lyftara í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 86
Hjónin Helena Martha Ottósdóttir Heckel (d. 22.11.2007) og Georg Rafn Hjartarson (d. 13.9.2001) bjuggu lengst af á Oddagötu 1 meðan þau bjuggu á Skagaströnd. Helena var ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur en Georg starfaði meðal annars sem múrari. Þau hjón áttu fjögur börn.
María Magnúsdóttir - safn 125
Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013) frá Syðra Hóli og Ólafur Ögmundsson
Fisk Seafood - safn 016
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á þessari mynd eru þrjú börn starfsmanna, sem fengu að koma með foreldrum sínum í veisluna. Frá vinstri: óþekkt, Leifur Ingi Vilhelmsson og Fjóla Dögg Björnsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 90
Skeggjastaðir í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Íbúðarhúsið á myndinni var byggt snemma á fimmta áratug 20. aldar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 114
Skrapatunga í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 263
Aftan á þetta póstkort frá Kanada stendur skrifað: "Sigríður Bekk dóttir Sigurlaugar Jóhannsdóttir og Lárusar Finnbogasonar".
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 050
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af þeim (talið frá vinstri): Guðnýju Björnsdóttur, Amy Evu Eymundsdóttur (d. 7.3.2012) og Rósu Björgu Högnadóttur.
Páll J. Pálsson safn 9
Þessi mynd er af smalamönnum í haust smölun árið 1958, tekin í Brandaskarði á Skagaströnd.<br>Talið frá vinstri. Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) Skeggjastöðum, Davíð Sigtryggsson (d. 3.7.1971)Neðri-Harrastöðum, Guðmundur Kristjánsson Steinýjarstöðum, Reynir Davíðsson Neðri-Harrastöðum, Kristján Kristjánsson (d. 10.10.2007) Steinýjarstöðum, Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978) Efri-Harrastöðum, strákur frá Brandaskarði, Jón vilhjálmsson (d. 31.8.2011) Brandaskarði strákur frá Brandaskarði og Hilmar Árnason (d. 16.3.1099) Hofi.<br> Myndina tók Páll J. Pálsson Bakka.
María Magnúsdóttir - safn 002
Messu í gömlu Hólaneskirkju lokið. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til hægri og óþekktur prestur til vinstri þakka fólki fyrir komuna. Maðurinn lengst til vinstri er Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) frá Kárastöðum. Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) er að fara að stíga niður tröppurnar en fyrir aftan hana, í ljósri kápu, er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir er að koma út um kirkjudyrnar ásamt óþekktir gamalli konu. Hjá barnavagninum standa hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 407
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kolbrún Haukdal Jónsdóttir, óþekktur, María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) kennari, Ómar Jakobsson og Jón S. Pálsson kennari og skólastjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 692
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, Hafþór Gylfason, Magnús B. Jónsson og Ingibegur Guðmundsson.
María Magnúsdóttir - safn 290
Fjóla Jónsdóttir í Asparlundi (Bogabraut 24), líklega á fermingardaginn sinn vorið 1961.
Héraðsskjalasafn A-Hún 34
Fjöldi síldarskipa í höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1936. Ekki er ólíklegt að einhver þessara skipa hafi verið frá Færeyjum því Færeyingar voru duglegir að stunda veiðar á Íslandsmiðum á þessum tíma.
Jón Jónsson 376
Myndin var tekin 1985 af nokkrum starfsstúlkum Rækjuvinnslunnar hf. Eins og sjá má var oft gleði við færibandið í vinnunni en auðvitað fór það eftir fólkinu sjálfu eins og alltaf er. Konurnar eru, frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Sigrún Jónsdóttir og Þórey Jónsdóttir. Hægra megin frá vinstri: Erna Högnadóttir? og Dagný Hannesdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 650
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristjana Jóhannsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir að æfa einhvern gamanbrag kvöldið fyrir blótið. Ártalið er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 340
Jóhanna Jóhannsdóttir (d. 23.9.1966) frá Vindhæli með Jónu Kristófersdóttur (d. 7.9.2003) í fanginu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 75
Þessi mynd af Skagaströnd hefur verið tekin af Höfðanum sennilega 1948. Skúffugarðurinn er í smíðum og "Dokkin", sem var leiksvæði krakka í útbænum, er vestan við Hafnarhúsið. Hún var seinn fyllt upp með sanddælingu úr höfninni. Á myndinni má sjá mörg hús sem nú eru horfin.
María Magnúsdóttir - safn 227
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 46
Hjónin Alda Friðgeirsdóttir og Sigurður Pálsson fyrrum bændur á Króksseli og Kálfshamri seinna búsett á Blönduósi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 59
Litla-Fell í Sveitarfélaginu Skagaströnd áður Höfðahreppi. Gamli bærinn er til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 132
Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli sem seinna bjó lengi í Laufási á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 96
Jóhanna Hjálmarsdóttir (d. 29.4.1905) frá Fjalli á Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 147
<p>Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, er Dennis Lumbard , eigandi fyrirtækisins, að afhenda Finni Kristinssyni vélstjóra á Örvari Hu 21, til vinstri, viðurkenningu fyrir góða vöru og góð viðskipti gegnum árin. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum öðrum áhafnarmeðlimum persónulegan viðurkenningarskjöld eins og þann sem Finnur er að taka á móti.</p>
Héraðsskjalasafn A-Hún 168
Mæðginin Ingibjörg Ólafsdóttir (d. 6.3.1991) og Ólafur Pálsson (d. 26.3.2004) frá Króksseli og seinna Björgum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 303
Eitt af skemmtiatriðum á sjómannadegi var að hífa karlmenn í kvenmannsfötum frá borði á Örvari Hu 21. "Konurnar´" fluttu síðan skemmtiatriði á bryggjunni við góðar undirtektir áhorfenda. Meðal "kvennanna" voru Guðmundur Haukur Sigurðsson, Magnús Blöndal og Finnur Kristinsson. Árni Sigurðsson skipstjóri fylgist með og Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins, er við ræðupúltið.
Ólafur Bernódusson 572
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá tvær peysur úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84. Stúlkurnar á myndinni eru Bjarney Valdimarsdóttir til vinstri og Sigrún Jónsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson 576
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá Sigrúnu Jónsdóttur sýna peysu úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum en myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson585
Nokkrum sinnum hefur vetrarstarfið í Höfðaskóla verið brotið upp með vinnuviku eða starfsviku þar sem allir nemendur og kennarar skólans vinna að sameiginlegu verkefni með mismunandi nálgun allt eftir aldri og getu nemendanna. Hér gefur að líta nokkra nemendur í vinnu í einni slíkri viku líklega einhverntíma kringum 1990. Drengurinn með spray-brúsann er Kristinn Björgvinsson og til hægri við hann er Auður Eva Guðmundsdóttir. Næst okkur á myndinni til hægri er Guðjón Hall Sigurbjörnsson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 444
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Vinstra megin við borðið eru, frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson, (?Signý Richter eða Vigdís Viggósdóttir?), Gunnar Þór Gunnarsson, Sigurður Bjarnason, Ingvar Þór Jónsson, Grétar Haraldsson og fimm óþekktar konur. Hægra megin við borðið sér í andlit Ara Þórssonar lengst til hægri en aðrir eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 253
Ole Möller (1854 - 1917) kaupmaður á Hólanesi og seinna á Hjalteyri.
María Magnúsdóttir - safn 100
Þetta er mynd af systkinum frá Syðra Hóli. Aftari röð frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Guðrún Magnúsdóttir og Björn Magnússon (d. 13.11.2010). Fremri röð frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) og Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli)(d. 13.11.1987). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1930.
Héraðsskjalasafn A-Hún 101
Saurar í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Saurar eru löngu komnir í eyði og bærinn hruninn að mestu.
María Magnúsdóttir - safn 083
Unnur Ingvarsdóttir (d. 18.6.1977).
Ólafur Bernódusson 566
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Þessi mynd var tekin af Unni Kristjánsdóttur að sýna eina af peysunum sem framleiddar voru hjá Violu. Unnur hannaði flíkur fyrir Violu um tíma og myndin er hluta af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
1
…
132
133
134
…
167
Leita í myndasafninu
Leita