Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 050
Björn Magnússon (d. 13.11.2010) bóndi á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 163
Aftan á myndinni stendur, ritað með blýanti: "Magnús Guðmundsson 9 ára 15 október 1943 Til Ragnheiðar Björnsdóttir".
Páll J. Pálsson safn 1
Hjónin Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968) verslunarmaður á Skagaströnd og kona hans Sigurborg Hallbjarnardóttir (d. 3.12.1983) ljósmóðir á Skagaströnd. Þau hjón bjuggu í Andrésarhúsi og ráku verslun sína þar. Andrésarhús var seinna þekkt sem veitingahúsið Kántrýbær. Andrés var oddviti Höfðahrepps 1942 - 1954 en það voru miklir uppgangstímar á Skagaströnd t.d. með byggingu síldarverksmiðjunnar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 144
Ásholt í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 066
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þegar fólkið fór saman út að borða. Við borðið til vinstri eru: vinstra megin: Svava Sigurðardóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir, Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Grétar Smári Hallbjörnsson og Rósa Björg Högnadóttir. Hægra megin: Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, Pálfríður Bjarnadóttir, Gunnar Jónsson og Sigrún Guðmundsdóttir. Við borðið til hægri eru: vinstra megin: Dagný Hannesdóttir, Hólmgeir Kristmundsson, Ása Ásgeirsdóttir, Guðný Björnsdóttir og Kristín Sigurðardóttir. Hægra megin: Elísabet Anna Traustadóttir og Einar Þór Ásgeirsson.
María Magnúsdóttir - safn 148
Aftan á myndinni stendur: "Dóris May. Tekið þegar hún vann við hjúkrun í Calgary". Einnig er myndin stimpluð með: GOODALL PHOTO CO. 321 Carlton St. WINNIPEG.
María Magnúsdóttir - safn 234
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 080
Aftan á Þessari mynd stendur: "Bjössi" . Ef þú veist deili á Bjössa vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 171
Komið að landi eftir langan túr. Sennilega var myndin tekin í desember 1999 og skipið er líklega Arnar Hu 1. Maðurinn í miðið er Sigurjón Ingólfsson og lengst til hægri er Guðmundur Finnbogason? en maðurinn til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 237
Kambakot í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 12
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) frá Viðvík á Skagaströnd við bátinn sinn í fjörunni neðan við Læk. Gísli bjó seinna í Reykholti (Fellsbraut 6) á Skagaströnd. Viðvík er húsið sem sést lengst til vinstri á myndinni en þar var rekið gisti- og veitingahús í lok nítjándu aldar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 337
Hjónin í Víkum í Skagahreppi (nú Skagabyggð) þau Margrét Jónsdóttir (d. 21.11.1986) og Karl Hinrik Árnason (d. 25.12.1995). Þau hjón eignuðust fimm börn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 98
Bærinn á myndinni hét Klettur og var í Kálfshamarsvík á fyrri hluta 20. aldar. Vinstra megin, og áfastur við húsið, er skúr sem m.a. var notaður undir spunavél í eigu kvenfélagsins Heklu sem félagskonur notuðu um alllangt skeið. Konan á myndinni er óþekkt. <br><br>
María Magnúsdóttir - safn 251
Aftan á þessa mynd, sem tekin var í Kaupmannahöfn eins sést á stimplinum, er skrifað: " Anna Guðmundsdóttir maður hennar og dóttir". Þetta munu vera hjónin Anna Guðmundsdóttir (1852 - 1940) og Eyþór Vilhjálmur Guðbjörn Oddsson (1867 - 1933) og dóttir þeirra Guðrún Eyþórsdóttir (1893 - 1933). Myndin var líklega tekin í tilefni fermingar Guðrúnar. (Heimild: Reykvíkingar, Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg. kafli: Bergstaðarstræti 28). Ábending frá Söru Björk Biering Pétursdóttur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 36
Höfðaskóli eins og hann var þegar hann var tekinn í notkun haustið 1958. Byggt var við suðurenda skólans snemma á níunda áratugnum. Maðurinn á myndinni er líklega Páll Jónsson (d. 19.7.1979) fyrsti skólastjóri Höfðaskóla.
María Magnúsdóttir - safn 281
Stúlkurnar með köttinn eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Páll J. Pálsson safn 23
Síld landað úr Húna Hu 1 í september 1963 Siglufirði. Á myndinni eru Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) til vinstri og Páll J. Pálsson til hægri. Mennirnir til hægri eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 139
Á bakhlið þessarar myndar er ritað með blýanti: "þettað er Jennu strákur". Með penna er skrifað: "Ögmundur Rúnar Marvinsson sonur Jennýar Sigurðardóttur og Sumarliða Lárussonar". Rúnar Marvinsson er vel þekktur matreiðslumaður í dag (2016)
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 040
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Gunnar Jónsson, Pálfríður Bjarnadóttir kona hans, Rósa Björg Högnadóttir, Erna Högnadóttir, Guðrún Magnúsdóttir og Sólveig Róarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 562
Spurningaleikurinn Sveitastjórnirnar svara var haldinn í Fellsborg á níunda áratugnum. í hléi voru síðan skemmtiartriði og eitt af þeim var kórsöngur undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar (d. 2.8.2003). Í kórnum eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, óþekkt, Þorvaldur Skaftason, Sigurður Bjarnason, Guðný Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Anna Skaftadóttir. Kristján snýri baki í okkur við stjórnunina. Til vinstri sitja: Lárus Ægir Guðmundsson og óþekktur maður en hægra megin situr Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson 563
Hallbjörn J. Hjartarson við framreiðslustörf í Kántrýbæ eldri þ.e. fyrir bruna og endurbyggingu. Í baksýn er Guðmundur Haukur Sigurðsson.
María Magnúsdóttir - safn 085
Hér standa frændsystkin upp við vegg á gamla bænum á Syðra Hóli. Frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015 ), Magnús B. Jónsson og Fjóla Jónsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 344
Ragnar Ólafsson fæddist í Viðvík á Skagaströnd 25. nóvember 1871 sonur Ólafs Jónssonar veitingamanns þar og Valgerðar Narfadóttur. Bjó í föðurhúsum til 1888 er hann fór til Kaupmannahafnar í skósmíðanám. Hann kláraði námið en vann ekki við skósmíðar í framhaldinu heldur flutti hann til Eskifjarðar og vann þar við verslun Jóns Magnússonar á árunum 1892 - 1894. Fór þá til starfa á Norðfirði við verslun Sveins Sigfússonar 1895. Varð verslunarstjóri við útibú Túliniussonar á Reyðarfirði 1896 - 1898 og síðan á Búðareyri í Fáskrúðsfirði fyrir Túliníus 1899 - 1902.<br>Giftist á Eskifirði 18. júní 1901 Guðrúnu Johnsen, hún var fædd á Eskifirði 11. febrúar 1880. Þau fluttu til Akureyrar haustið 1902 og eignuðust 11 börn. Í ársbyrjun 1903 tók Ragnar við forstjórn Gránufélags verslunar á Oddeyri eftir Jón Norðmann, lét af henni aftur í ársbyrjun 1906 og byrjaði þá sjálfur kolaverslun og útgerð á Oddeyri. Keypti íbúðarhús á Strandgötu 5 og fjölskyldan settist að þar. Á neðri hæðinni var Ragnar með skrifstofu og leigði einnig fyrir Sápubúð (Schou´s) og hélt þeirri atvinnugrein til dauðadags og erfingjar hans eftir hann. Húsið var svo selt Búnaðarbankanum árið 1937.<br>Ragnar var mikill dugnaðar og athafnamaður. Frá 1908 var hann einn af aðal framkvæmdar mönnum klæðaverksmiðju Gefjunar og framkvæmdastjóri hennar 1908 - 1913, en formaður stjórnar frá 1913 til æviloka. Var einn af frumkvöðlum Kristnesshælisins og formaður í stjórn þess. Var í bæjarstjórn Akureyrar óslitið frá 1913 og þótti þar tillögugóður og atkvæðamikill. Var breskur varakonsúll á Akureyri 1915 - 1927. Var hann sæmdur stórriddara Fálkaorðunni. Bróðir Ragnars var Pétur A. Ólafsson athafnamaður. <br>Ragnar lést á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn þann 14. september 1928, eftir 10 mánaða veikindi. (Heimild: Endurminningar Péturs A. Ólafssonar, sem var bróðir Ragnars - sent inn af Söru Haynes)
María Magnúsdóttir - safn 123
Páll Jónsson frá Höskuldstöðum
Héraðsskjalasafn A-Hún 125
Björg Ólafsdóttir (d. ?) og Þórhildur Jakobsdóttir (d.19.8.1996) frá Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 227
<p>Skagstrendingur hf var stofnaður 8. desember 1968. Fyrsta skip félagsins var Arnar Re 21 sem var 187 tonn stálskip sem hélt í sinn fyrsta túr frá Skagaströnd 15. febrúar 1969 undir nafninu Arnar Hu 1. Þessi mynd var tekin um borð í þessum Arnari af þeim, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Þór Kristinsson, Ómar Jakobsson og Jón Þorgeirsson.<font size="1"> Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font> </p>
María Magnúsdóttir - safn 267
Því miður er ekkert vitað um þessa mynd. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari 396
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn sem var gríðarlegur eins og sjá má. Maðurinn með talstöðina er Sigurjón Ingólfsson og yfir öxlina á manninum í græna samfestingnum (Karl Berndsen?) má þekkja Hallbjörn Björnsson með gleraugu og síðhærði maðurinn er Vilhelm Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 299
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) í Asparlundi (Bogabraut 24) þar sem hann bjó ásamt fjölskyldu sinni.
Páll J. Pálsson safn 25
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 sumarið 1964 þegar hann var á síldveiðum. Á myndinni er verið að þurrka upp úr nótinni til að hægt sé að háfa síldina um borð. Karlarnir þurftu að draga netið/nótina inn á höndum til að mynda poka á móti korkateininum sem sést hanga strekktur í bómunni að framan. Síðan var háfnum sökkt í síldarkösina og hann hífður fullur um borð og þar hleypt úr honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir nema Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016)stýrimaður sem er fremstur og næstur honum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Myndina tók Páll J. Pálsson frá Bakka en hann var háseti á Húna á þessum tíma.
Héraðsskjalasafn A-Hún 174
Hjónin Ingunn Lilja Hjaltadóttir og Björn Magnússon (d. 13.11.2010) frá Syðra-Hóli Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Óþekktur ljósmyndari 384
Myndin var tekin á sjómannadegi. Jón Þorsteinsson (d.17.9.1994) alþingismaður Norðurlands vestra 1959 - 1971, fyrir Alþýðuflokkinn, flytur hátíðaræðu. Til gamans má geta þess að Sigfús Jónsson sonur hans varð seinna sveitarstjóri á Skagaströnd um tveggja ára skeið 1984 -1986.
Óþekktur ljósmyndari 392
Myndin var tekin á skólastjóraskrifstofunni í Höfðaskóla líklega 1986. Jóhanna Jónsdóttir kennari í vinnu með Jóni S. Pálssyni skólastjóra.
María Magnúsdóttir - safn 028
Ólöf Ardís Arelíusdóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
María Magnúsdóttir - safn 022
Myndin var tekin í einhverri skólaferð líklega kringum 1976. Frá hægri: Árni Geir Ingvarsson, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989), Kolbrún Viggósdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir og Vilhelm Harðarson.
María Magnúsdóttir - safn 239
Konan og stúlkurnar á myndinni eru óþekktar. Líklegt er þó að stúlkurnar heiti Steinunn og Sif því aftan á myndina er ritað: "Til Maríu Ögmundsdóttur frá Steinunni og Sif". Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 011
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru þau Magnús B. Jónsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
María Magnúsdóttir - safn 144
Þessi mynd var tekin í Winnipeg af frændfólki. Aftan á henni stendur: "1. Haraldur Hlaverdson sonur Lenu frænku 2. Manni frændi 3.Winnie kona Haraldar 4. Anna Hillmann 5. Amma 6. Lena frænka. Þetta eru ekki goðar myndir af ummu". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið um eða fyrir 1940.
Héraðsskjalasafn A-Hún 57
Í Skagastrandarhöfn. Stóri báturinn er Stígandi Hu 9 en sá næst stærsti er líklega Ósk Hu 33. Trillan með mastrið er óþekkt en trillan til vinstri er sennilega Helga Hu 30. Húsin í baksýn eru, talið frá vinstri: Hafnarhúsið, Gamla smiðjan, Lækjarbakki, slökkvistöðin/vélaverkstæði Karls og Þórarins, Karlsminni, Strandgata 10, Viðvík, Höfðatún og Vík. Húsin sem standa lengra frá sjónum eru útihús og hlöður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 016
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Karl Berndsen.
Ólafur Bernódusson584
Jón Pálsson skólastjóri afhendir syni sínum, Þorsteini Jónssyni, viðurkenningarskjal á skólaslitum Höfðaskóla vorið 1984. Með Þorsteini eru þeir Þorlákur Sigurður Sveinsson og Hjalti Kristjánsson. Ekki er vitað fyrir hvað strákarnir fengu viðurkenninguna.
Óþekktur ljósmyndari 390
Myndin var tekin af krökkum úr Höfðaskóla í skólaferð að Hvítserk sem sést í baksýn. Frá vinstri: Stefán Sveinsson, Baldur Eðvarðsson, Gunnar Ásgeirsson, óþekktur, Jóhann Ásgeirsson, Hjalti Kristjánsson, óþekktur, Rafn Ingi Rafnsson?, óþekktur, Viggó Magnússon, Þorsteinn Jónsson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Hólmgeir Kristmundsson (nær), Ægir Jónsson (fjær), Jón Arnarson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Eiríkur Lýðsson, Hólmfríður Oddsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Elín Rafnsdóttir, Hallgrímur Oddsson? og óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 202
Sigríður Jónsdóttir (d.?). Sigríður var gift Lárusi Árnasyni (d.?) Gili í Svartárdal. Þau voru svo foreldrar Ólafs Lárussonar (d. 1953) fyrsta kaupfélgasstjóra á Skagaströnd (1912-1936).
María Magnúsdóttir - safn 174
Aftan á þetta póstkort er skrifað:"Kristín Ágústsdóttir Blönduósi. Dóttir Ágústs Jónssonar bílstjóra og Margrétar Jónsdóttur konu hans".
Héraðsskjalasafn A-Hún 208
Hlíð í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 40
Hjörtur Jónas Klemensson (d. 6.2.1965) frá Vík. Hjörtur var giftur Ástu Þórunni Sveinsdóttur (d. 30.12.1960) og saman áttu þau 16 börn. Tvö þeirra dóu í frumbernsku en 14 komust á fullorðinsár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 39
Félagsheimilið Fellsborg á Skagaströnd. Húsið til vinstri á myndinni er Röðulfell.
Árni Geir Ingvarsson - safn 690
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri að leika kaffistofu Hólaness hf: Hafþór Gylfason, Hallbjörg Jónsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 14
Páll Tómasson (d. 3.6.1963) á mynd sem var tekin 1914. Páll var bóndi á Bakka í Skagahreppi og bjó þar ásamt konu sinni Maríu Ólafsdóttur (d. 4.7.1975) árin 1923 - 1960. Saman eignuðust þau níu börn.
María Magnúsdóttir - safn 285
Óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 266
Óþekkt jólastúlka. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 353
Fermingarbörn frá Hólaneskirkju eldri, vorið 1966 - fædd 1952. Börnin voru fermd af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni þó hann sé ekki á myndinni. Aftasta röð frá vinstri: Rúnar Hartmannsson, Ari Ólafsson, Kristinn Ágústsson, Kári Sigurbjörn Lárusson og Magnús B. Jónsson. Miðröð frá vinstri: Skúli Bjarnason, Árni Másson, Hjörtur Guðbjartsson, Hinrik Jóhannesson, Kristmundur Ingibjörnsson og Kristján Helgi Gunnarsson. Fremsta röð frá vinstri: Guðrún Jónsdóttir, Ingibjörg Þorfinnsdóttir, Gígja Axelsdóttir, Margrét Guðlaugsdóttir, Eyrún Birgisdóttir og Ása Hrólfsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 61
Hjónin Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) og Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi á Skagaströnd. Árni var verkamaður og hestamaður og þótti góður hagyrðingur. Guðrún var ljósmóðir og tók á móti fjölda barna á Skagaströnd. Saman eignuðust Guðrún og Árni sex börn og ólu auk þess upp einn fósturson. Heimili þeirra hjóna að Árnesi er nú safn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 649
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er Kristín Birna Guðmundsdóttir úr kvenfélaginu að leggja á borð kvöldið fyrir blótið. Ártalið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 660
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, syngur Þórey Jónsdóttir af innlifun. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 300
Sveinbjörn Albert Magnússon (d. 13.11.1987) frá Syðra-Hóli. Sveinbjörn gekk undir nafninu Atli meðal vina sinna.
María Magnúsdóttir - safn 078
Þessi prúðbúna kona með fjöður í hattinum er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 647
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er Kristjana Jóhannsdóttir á æfingu á skemmtiatriðunum. Ártalið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 693
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 126
Ragnheiður Björnsdóttir
1
…
133
134
135
…
167
Leita í myndasafninu
Leita