Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson609
Hallbjörn Hjartarson (með hatt) innan um gesti á kántrýhátíð í ágúst 2001. Hallbjörn Var frumkvöðull að kántrýhátíðunum og skemmti á þeim öllum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 297
Jóhanna Pálsdóttir (1866 - 1949) frá Stapadal í Arnarfirði prófastsfrú á Bíldudal, kona séra Jóns Árnasonar (d. 12.4.1944) frá Þverá í Hallárdal.
María Magnúsdóttir - safn 126
Ragnheiður Björnsdóttir
Fisk Seafood - safn 219
Stefán Þór Árnason verkstjóri hugar að vélbúnaði í Rækjuvinnslunni við endurbætur þar árið 2003 eða 2004.
María Magnúsdóttir - safn 297
Aftan á myndinni stendur: "Dísa og Gulli á Akranesi 17. september 2000". Dísa er Ásdís Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 151
María Björnsdóttir frá Svangrund.
Ólafur Bernódusson619
Eins og sjá má var fjölmenni við varðeld á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð í ágúst 2001.
Héraðsskjalasafn A-Hún 198
Þessi mynd af sýslunefnd A-Húnavatnssýslu var tekin einhverntíma á árunum 1980 - 1985. Í fremri röð frá vinstri: Jón Tryggvason (d. 7.3.2007 Ártúnum, Sigurður Þorbjarnarson (d. 15.3.2002) Geitaskarði, Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður Blönduósi, Björn Jónsson (d. 21.4.1992) Ytra-Hóli og Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) Sveinsstöðum. Aftari röð frá vinstri: Gísli Pálsson (d. 30.1.2013) Hofi í Vatnsdal, Þorfinnur Björnsson Ytri-Löngumýri, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Skagaströnd, Valgarður Hilmarsson Fremsta-Gili (Blönduósi), Sveinn Sveinsson Tjörn á Skaga, Sigursteinn Guðmundsson (d. 20.4.2016) Blönduósi og Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) Kagaðarhóli. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 38
Húsið næst okkur á myndinni var hús verslunarstjóra verslunarinnar sem sést örlítið fjær eins og tvö sambyggð hús. Á sínum tíma voru tvær verslanir á núverandi Skagaströnd. Var önnur á Hólanesi en hin, sú sem er á myndinni, var á Skagaströnd. Svæðinu var sem sagt skipt í Hólanes og Skagaströnd, sem var svæðið kringum Einbúann. Húsið lengst til hægri á myndinni er óþekkt en ef þú veist hvað það hét vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson582
Hópur kántrýdansara sýnir dans við endurvígslu Kántrýbæjar 1998. Dansararnir eru frá vinstri í fremstu röð: Linda Kristjánsdóttir, Kristín Blöndal og Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016). Miðröð frá vinstri: Linda Ævarsdóttir, Sæmundur Gunnarsson og Kristín Kristmundsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Vigdís Viggósdóttir. Lengst til vinstri á myndinni standa hjónin Hallbjörn Hjartarson og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), eigendur Kántrýbæjar. Fyrir aftan Amy í gulum jakka er Guðrún Pálsdóttir og ljóshærði maðurinn með gleraugun sem sér í yfir höfuð Lindu Ævars er séra Guðmundur Karl Brynjarsson. Hægra megin við dyrnar eru hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir. Maðurinn í dökku jakkafötunum sem stendur upp við súluna er Helgi Gunnarsson. Sitjandi eru frá vinstri: Steinunn Steinþórsdóttir, Jóhanna Harðardóttir (fjær), Sandra Ómarsdóttir (nær), Hrólfur Pétursson (nær) og Ástmar Kári Ástmarsson (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 399
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir hve snjóþyngsl geta verið mikil á Skagaströnd. Húsið, sem er á kafi í snjó á myndinni, er Hólabraut 17.
Jón Jónsson 372
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Árni Guðbjartsson, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Aðalheiður Guðmundsdóttir og Sólveig Eiðsdóttir.
Fisk Seafood - safn 175
Húsnæði Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 450
Sigríður Árnadóttir (1870-6.1.1958) frá Þverá í Hallárdal.
Héraðsskjalasafn A-Hún 323
Hjónin Auðbjörg Sigríður Albertsdóttir (d. 13.9.1994) og Sigurður Guðlaugsson (d.19.7.1992) frá Hafursstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 159
Elín Rannveig Briem (d. 4.12.1937. Elín var skólastýra kvennaskólans að Ytri-Ey og seinna aftur þegar skólinn hafði verið fluttur á Blönduós. Hún skrifaði bókina Kvennafræðarinn sem út kom um áramótin 1888 -89 og seldist afar vel og hafði mikil áhrif á íslenska matargerð, hússtjórn og hreinlæti á heimilum. Elín starfaði mikið að kvenréttindamálum sérstaklega þeim sem tóku til menntunnar kvenna.<br>
Páll J. Pálsson safn 3
Árabátur sem notaður var til að róa til fiskjar frá Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Bátinn átti Páll Tómasson bóndi á Bakka 1923 - 1960.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 092
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Stöku sinnum fengu minna frægir listamenn að taka lagið í pásu hjá hljómsveitinni. Á þessari mynd eru tvær söngkonur að troða upp í pásu 28. október 1994. Til vinstri er Súsanna Þórhallsdóttir og til hægri er Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 259
Á þessu korti stendur: "Dóra Hillman. Kona Jóns Hermannss. Hillmans".
Jón Jónsson 418
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Finnur Kristinsson, Edda Þórarinsdóttir, Sigurður Þorbjörnsson og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) kennari.
Fisk Seafood - safn 225
Guðlax er sjaldséður fiskur á togslóð. Hér hafa þó þrír slíkir slæðst með í trollið. Sjómennirnir eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Axel J. Hallgrímsson og Ragnar Högnason. Maðurinn fyrir framan er Hilmar Stefánsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Héraðsskjalasafn A-Hún 213
Diðrik Ludvig Knudsen (d.30.4.1930) fæddur á Hólanesi á Skagaströnd, prestur á Bergsstöðum og Breiðabólsstað og kona hans Sigurlaug Björg Árnadóttir (d.1949) frá Höfnum á Skaga.
Héraðsskjalasafn A-Hún 192
Vitinn í Kálfshamarsvík. Vitann teiknaði Guðjón Samúelsson sem var húsameistari ríkisins 1920 - 1950. Vitinn, sem er 16,3 metrar á hæð, var byggður 1940 en ekki tekinn í notkun fyrr en 1942 því ekki tókst að afla ljóstækja í hann fyrr. Gasljós var í vitanum til 1973 en þá var hann rafvæddur. (heimild: http://www.sjominjar.is/vitar/kalfshamarsviti/)<br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 209
Hróarsstaðir í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 230
Aftan á þessari mynd stendur: "Jóhanna, Ragna, Ólafur, Fríða og Lárus". Þetta munu vera systkini frá Syðra-Hóli, Björns-börn.
María Magnúsdóttir - safn 275
Fólkið á myndinni er óþekkt. Eina sem vitað er um myndin er að hún var tekin af Birni Pálssyni ljósmyndara á Ísafirði. Hann rak ljósmyndastofu þar á árunum 1891 -1913 þannig að þessi mynd hefur verið tekin einhverntíma á því tímabili. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 409
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Sveinn S. Ingólfsson kennari, Guðmundur Guðmundsson, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir og Hlíf Sigurðardóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 146
Sigurður "stóri" Jóhannsson (d. 17.12.1913) frá Fjalli í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Sigurður var fæddur á Hróarsstöðum 24.júlí 1869. Hann drukknaði á siglingu frá Kálfshamarsvík út að<br>Hrauni 17.des.1913 ásamt Baldvini Gíslasyni frá Víkum. Líkamsleifar Sigurðar rak í mars 1914 á svonefndum Langatanga, vestarlega í Hraunsvík. Kista var að þeim gerð og þær jarðsettar í Hofskirkjugarði. Magnús á Syðra-Hóli skrifaði merkan þátt um Sigurð í bókaflokknum Svipir og sagnir IV.
María Magnúsdóttir - safn 325
Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra-Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 223
Aftan á þessari mynd stendur: "Þetta er strákurinn hennar Sigrúnar", en framan á henni stendur "Sævar". Annað er ekki vitað um myndina.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 005
Sungið á sviðinu í Fellsborg líklega á einhverju þorrablóti þó ekki sé vitað hvenær. Frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir með gítar, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Jóhanna Sigurjónsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Herborg Þorláksdóttir og Hans Birgir Högnason með gítar.
María Magnúsdóttir - safn 238
Þetta fólk er óþekkt. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 322
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) frá Syðra-Hóli
María Magnúsdóttir - safn 094
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 65
Kelduland í Skagahreppi nú Skagabyggð. Þessi hús standa nær þjóðveginum en gömlu húsin á Keldulandi sem stóðu töluvert nær fjallinu. Síðasti ábúandi á Keldulandi var Óli Albertsson en nú er Kelduland notað sem sumarbústaður.
Héraðsskjalasafn A-Hún 201
Carl Berndsen (d. 1954) verslunar- útgerðar- og póstafgreiðslumaður Karlsskála á Skagaströnd.
María Magnúsdóttir - safn 063
Unnur Ingvarsdóttir (d. 18.6.1977).
Héraðsskjalasafn A-Hún 7
Guðbjörg Jónsdóttir (1864 - 1959) kona Ólafs Eyjólfssonar (d.5.5.1947) á Björgum á Skaga.
María Magnúsdóttir - safn 179
Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015) í ökumannssæti á Farmal Cub á túninu við Syðra Hól. Myndin hefur verið tekin kringum 1950.
Jón Jónsson 425
Fermingarbörn vorið 1981 ganga til Hólaneskirkju ásamt séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) eftir að hafa klæðst fermingarkirtlunum úti í skóla, sem sést í baksýn til hægri. Fremst fara Bergþóra Birgisdóttir og séra Pétur. Næstar koma Laufey Vilmundardóttir til vinstri og Birna Sveinsdóttir til hægri. Þá koma tvær óþekktar stúlkur en stóri drengurinn fyrir aftan þær er Arnar Arnarsson. Aftan við Arnar eru svo Hafsteinn Pálsson til vinstri og Ingvar Þór Jónsson til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 80
Björn L. Blöndal (d.1906) prestur á Hofi í Skagahreppi og á Hvammi í Laxárdal í Skefilsstaðahreppi 1900-1906 og hreppsnefndaroddviti þar 1902 -1906.
Héraðsskjalasafn A-Hún 56
Vitinn í Kálfshamarsvík. Á myndinni stendur að hann sé 16 metra hár en í raun er hann 16,3 metrar. Vitann teiknaði Guðjón Samúelsson sem var húsameistari ríkisins 1920 - 1950. Vitinn var byggður 1940 en ekki tekinn í notkun fyrr en 1942 því ekki tókst að afla ljóstækja í hann fyrr. Gasljós var í vitanum til 1973 en þá var hann rafvæddur. (heimild: http://www.sjominjar.is/vitar/kalfshamarsviti/)
María Magnúsdóttir - safn 219
Jóhanna Björnsdóttir (d. 28.8.1991) frá Syðra Hóli.
Héraðsskjalasafn A-Hún 220
Björn Jörgen Sigurbjörnsson Hlíð í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 689
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru þær nýkomnar frá tannlækninum Dagný Sigmarsdóttir til vinstri og Þórey Jónsdóttir til hægri. Ártalið er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 408
Jón Sveinn Pálsson kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd. Jón tók við af föður sínum, Páli Jónssyni (d.19.7.1979), sem skólatjóri 1966 og gegndi því starfi til 1986.
María Magnúsdóttir - safn 027
Þessi mynd var líklega tekin í reisugilli í húsi Kaupfélags Húnvetninga (nú Samkaup á Skagaströnd )því skálað er í plastglösum. Á myndinni eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Rúnar Kristjánsson, Ingvar Sigtryggsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002), Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) og Þórbjörn Jónsson (d. 22.11.1996). Guðmundur Lárusson rak trésmíðaverkstæði og var verktaki við byggingu hússins en karlarnir voru í vinnu hjá honum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975.
María Magnúsdóttir - safn 249
Aftan á þessari mynd stendur: " Lárus Finnbogason Sigurlaug Jóhannsdóttir". Meiri upplýsingar höfum við ekki um þetta fólk né barnið en myndin var tekin í Winnipeg eins og sést í neðra horninu til hægri.
Fisk Seafood - safn 215
Unnið að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík. Í ferlinu var vinnslusalnum breytt með nýjum klæðningum og uppsetningu á veggjum og skilrúmum. Hér vinna við klæðninguna, frá vinstri: Helgi Gunnarsson smiður, Baldvin Hjaltason starfsmaður rækjuvinnslunnar,í rauðum samfestingi, og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) smiður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 645
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er Fannar Viggósson að spila á bassa á æfingu á skemmtiatriðunum. Ártalið er óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 067
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Jóhanna Harðardóttir og Aðalheiður Harðardóttir (Dússý).
Héraðsskjalasafn A-Hún 54
Brandaskarð í Skagabyggð áður Skagahreppi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 293
Systur frá Ytri-Ey, dætur Indriða Jónssonar (d. 21.4.1921) bónda þar. Frá vinstri: Regína Sigríður Indriðadóttir (1858 - 1913), Rósa Indriðadóttir (1860 - ?), Medónía Indriðadóttir (1861 - ?) og Ingibjörg Indriðadóttir (1868 - ?).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 058
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af Önnu Guðrúnu Ásgeirsdóttur á leiðinni út að borða.
Héraðsskjalasafn A-Hún 78
Gísli Brandsson (d. 1902) frá Úlfagili húsmaðurr á Breiðavaði og Balaskarði. Hann var stundum kallaður Laufagosi því hann hafði svo gaman að spila. Gísli var hagyrðingur og gerði töluvert af lausavísum. Hér er ein þeirra:<br> Upp úr sorpi allt í kring<br> í sinn vasa glaður<br> tínir margan tíeyring<br> Thomsen stórkaupmaður.
Héraðsskjalasafn A-Hún 128
Syðri-Hóll í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Brúin á myndinni er nú horfin því ný brú er komin í stað hennar yfir Laxána, örlítið austar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 88
Höskuldsstaðir í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Bæði þessi hús eru nú horfin og ný kirkja, örlítið norðan við þá á myndinni, var vígð 31.mars 1963. Nýtt íbúðarhús á Höskuldsstöðum stendur sunnar og vestar en þetta sem sést á myndinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 244
Pétur Björnsson (d. 1929) frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 224
Þessi mynd var tekin í Vestuheimi og fólkið á henni er merkt með númerum framan á myndinni. Aftan á henni stendur síðan: "1.Guðrún Johannson moðir John´s. 2.Dora Hillman kona Nonna. 3. John Johannson. 4.Evelyn elsta dottir Nonna og er gift John J.. 5.Nonni Hillman. March of 1944". Myndin var líklega tekin í Winnipeg eða nágrenni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 217
Helga Berndsen frá Karlsskála á Skagaströnd.
1
…
134
135
136
…
167
Leita í myndasafninu
Leita