Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 60
Hjónin Guðný Finnsdóttir og Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) á Skagaströnd. Kristinn gegndi ýmsum störfum um æfina var m.a. skipstjóri, hafnarvörður og rafmagnseftirlitsmaður. Kristinn gegndi líka ýmsum trúnaðarstörfum var lengi stjórnarmaður í Skagstrendingi hf og hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma. Guðný er verkakona og húsmóðir en saman eignuðust þau Guðný og Kristinn fjögur börn.
Fisk Seafood - safn 177
Linda Kristjánsdóttir til vinstri og Marta Kristín Jónsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 29
Þessi gamla mynd sýnir "Litlu bryggjuna" sem lengi var aðal bryggja smærri báta á Skagaströnd. Bryggjan hallaði fram, eins og sjá má, sem auðveldaði löndun og aðra vinnu við litla báta. Húsið til vinstri á myndinni er Hafnarhúsið sem byggt var á þessum stað 1935 en síðan flutt á núverandi stað þegar það þurfti að víkja fyrir verksmiðjubyggingunni einhverntíma á árunum 1943- 1946. Síldarsöltunarbásarnir sjást svo líka til vinstri og í baksýn sjást m.a. gömlu verslunarhúsin á Skagaströnd og yfir Einbúann sér í Kaupfélagshúsið sem byggt var 1929.
Jón Jónsson 435
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d. 10.12.2015), Gylfi Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson með dóttur sína Höllu Kristínu í fanginu, Hlíf Sigurðardóttir kona Árna, Anna Heiður Guðmundsdóttir með óþekktan son sinn í fanginu og lengst til hægri er Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Jón Jónsson 390
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátraskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan bát: "Guðbjörg HU 31. Sigurður Guðmonsson í Þórsmörk keypti þennan bát frá Akranesi um 1950. Þetta var opin trilla, rúmlega 2 tonn að stærð og frambyggð. Björgvin Guðmundsson frá Saurum í Skagahreppi keypti bátinn af Sigurði og lét setja í hann 8 ha. Saab vél og er hún nú í eigu Gunnars Albertssonar. Eðvarð Ingvason og Jón Jónsson keyptu bátinn af Björgvini 1964 og létu setja á hann nýtt stýrishús að aftan en þá ver hægt að standa frammi í barka þegar grásleppuveiðar voru stundaðar. Þeir félagar áttu bátinn í um 20 ár en þá var hann orðinn ónýtur".
Héraðsskjalasafn A-Hún 338
Jón Sveinn Pálsson kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd 1966 - 1986.
Ólafur Bernódusson 575
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá framkvæmdastjóra fyrirtækisins Guðmund Hauk Sigurðsson sýna jakkapeysu úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum en hún var líklega tekin 1983-84.
María Magnúsdóttir - safn 343
Þessi hárprúðu börn eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 411
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Gísli Kristjánsson, Guðmundur J. Björnsson og óþekkt.
Fisk Seafood - safn 174
Halldór Gunnar Ólafsson, í blárri skyrtu til hægri, rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd, í skoðunarferð í Rækjuvinnslu Bakka í Bolungavík. Maðurinn í gráu peysunni er Ásgeir Hjörleifsson en hann kom að smíði nokkurra véla sem notaðar voru í rækjuvinnslum á landinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 687
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, er Ingibergur Guðmundsson að lesa kynningu á næsta atriði. Ártalið er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 18
Þessi mynd var tekin 1941. Frá vinstri: Ingiríður Jónsdóttir (d. 21.10.2011), Una Jónsdóttir (d. 1.5.2009), Jón Hinrik Árnason (d. 10.12.1986) bóndi á Steinnýjarstöðum faðir þeirra, Jakobína Pálsdóttir (d. 28.11.2003) og María Ólafsdóttir (d. 3.7.1975) móðir hennar, húsmóðir á Bakka og hálfsystir Jóns af móður.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 097
Nýr Kántrýbær var vígður árið 1998 eftir að sá gamli brann til grunna 22. nóvember 1997. Nýi bærinn var m.a. byggður fyrir söfnunarfé og reis sem sagt á mjög stuttum tíma á sama stað og gamla húsið stóð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 701
Loftmynd af Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær hún var tekin en það hefur verið fyrir 1997 því íþróttahúsið hefur enn ekki verið byggt. Á myndinni má sjá að enn standa olíu- og lýsistankarnir á og við Höfðann og ekki er búið að rífa þrærnar við verksmiðjuna.Tankarnir og þrærnar eru nú horfnar fyiri nokkru.
Ólafur Bernódusson 571
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd sýna þrjár ungar konur peysur úr framleiðslulínu Violu. Frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Margrét Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson586
Nokkrum sinnum hefur vetrarstarfið í Höfðaskóla verið brotið upp með vinnuviku eða starfsviku þar sem allir nemendur og kennarar skólans vinna að sameiginlegu verkefni með mismunandi nálgun allt eftir aldri og getu nemendanna. Hér gefur að líta nokkra nemendur í vinnu í einni slíkri viku líklega einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Björk Axelsdóttir kennari, óþekktur, Svava Magnúsdóttir (nær), Aðalheiður Árnadóttir (fjær), Margrét Anna Jóhannsdóttir, óþekktur (fjær), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (nær), Baldur Eðvarðsson, Jón Pálsson skólastjóri, óþekkt (fjær), Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir og tvær óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 706
Hér er verið að auka og bæta grjótvörnina fyrir Víkina. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 22
Hjónin Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og Hulda Pálsdóttir (d.29.9. 2011). Þorfinnur var oddviti og sveitarstjóri á Skagaströnd á árunum 1954 - 1972 ásamt því að vera framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Höfðakaupstaðar. Þá var hann varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Norðurlandi Vestra og settist á þing um tíma í maí 1969.
Héraðsskjalasafn A-Hún 397
María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Syðra-Hóli verslunarmaður og kennari á Skagaströnd og bjó þá í Asparlundi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 169
Hjónin Rafn Georg Sigurbjörnsson og Ingibjörg Margrét Ólafsdóttir Örlygsstöðum II í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 427
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) blessar fermingarsystur við fermingu þeirra í Höskuldsstaðakirkju vorið 1981. Til vinstri eru Kristín Ásgerður Blöndal frá Blöndubakka fjær okkur en Signý Gunnlaugsdóttir (d. 4.5.2015) frá Balaskarði nær. Hægra megin eru Jófríður Jónsdóttir frá Sölvabakka nær okkur en stúlkan fjær er Anna Lilja Björnsdóttir frá Syðra-Hóli. Lengst til hægri má sjá vangasvipinn á Birni Magnússyni (d. 13.11.2010) frá Syðra-Hóli. Sofandi barnið er Anna Margrét Jónsdóttir, systir Jófríðar, í fangi föður síns Jóns Árna Jónssonar (d.9.3.2004) bónda á Sölvabakka.
Héraðsskjalasafn A-Hún 176
Sviðningur í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson704
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Signý Richter, Björk Sveinsdóttir og Steindór Haraldsson.
Ólafur Bernódusson608
Viggó Brynjólfsson, glæsilegur að vanda, á Kántrýhátíð í ágúst 2001.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 057
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012) á góðri stundu.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 001
Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016). Myndin var tekin í saumaklúbbi á heimili Amyar Eymundsdóttur í Brimnesi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 9
Elín Rannveig Briem (1856 - 4.12.1937). Elín var skólastýra kvennaskólans að Ytri-Ey og seinna aftur þegar skólinn hafði verið fluttur á Blönduós. Hún skrifaði bókina Kvennafræðarinn sem út kom um áramótin 1888 -89 og seldist afar vel og hafði mikil áhrif á íslenska matargerð, hússtjórn og hreinlæti á heimilum. Elín starfaði mikið að kvenréttindamálum sérstaklega þeim sem tóku til menntunnar kvenna.
María Magnúsdóttir - safn 017
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Við borðið nær okkur sitja frá vinstri: Kristófer Árnason (d. 10.5.2000), Jóna Guðjónsdóttir, Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) og svo sér í hálft andlit Sigurbjargar Björnsdóttur (d. 3.4.1981) (Boggu í Grund). Dökkhærði maðurinn við hitt borðið er Sigurður Bjarnason en aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 750
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og krakkarnir fagna nýjum tækjum. Á myndinni eru frá vinstri: Rebekka Róbertsdóttir, Sindri Björnsson, Ólafur Halldórsson, Telma Jónasdóttir, Ingólfur Björnsson og Guðrún Björgvinsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 328
Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) frá Kárastöðum á Skagaströnd. Sigurbjörn var bóndi og verkamaður sem rak heimili með bróður sínum, Kára, að Kárastöðum og ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur þar til þau fluttu á dvalarheimilið Sæborg 1988.
María Magnúsdóttir - safn 191
Sigrún Eiðsdóttir
Jón Jónsson 429
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987), sem lengst af bjó í Þórsmörk. Með Hallbjörgu á þessari mynd er dótturdóttir hennar, Þórey Jónsdóttir með son sinn, Guðjón Hall Sigurbjörnsson í fanginu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 58
Fossárfoss er einn af fáum fossum á Íslandi sem falla beint í sjó. Eyjan á myndinni er kölluð Bjargastapi en sumir segja að nafnið eigi við um allt svæðið sem sést á myndinni næst okkur. Fossinn, sem fellur fram af Króksbjargi, er falin gersemi því hann sést ekki af þjóðveginum og þess vegna aka ókunnugir fram hjá þessum fallega stað óséðum.
Höfðaskóli - safn 347
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla líklega kringum 1990. Við borðir sitja frá vinstri: tveir óþekktir, Erla María Lárusdóttir, tvær óþekktar, Auður Eva Guðmundsdóttir og Bjarney Katrín Gunnarsdóttir?. Uppi á borðum sitja, frá vinstri: Vignir Örn Hafþórsson, Sverrir Berndsen, Guðjón Ebbi Guðjónsson?, þrír óþekktir, Skúli Már Matthíasson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Linda Jónasdóttir, Bæring Jón Skarphéðinsson, Elva Dröfn Árnadóttir, Birkir Rafn Gíslason, óþekktur, Magnús Líndal Þrastarson, Eyþór Ernstsson og Patrik Ingi Heiðarsson?. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 315
Við þessa mynd stendur: "Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir og frænka hennar Nikulásdóttir". Ef þú veist hvað Nikulásdóttir heitir að fornafni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 226
"Lárus Björnsson frá Syðra - Hóli og Hermína". Stendur aftan á þessari mynd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Lárus dó árið 1985.
Jón Jónsson 430
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987), sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á henni eru dætur hennar og Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981). Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d. 10.12.2015) og Guðrún Sigurðardóttir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 022
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Fólkið á myndinni er að taka þátt í fjöldasöng á henni eru frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Ólafur Bernódusson, þrjár óþekktar konur, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Helga Guðmundsdóttir, óþekktur, Gylfi Sigurðsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 158
Fjölskylda frá Syðra-Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Hjónin eru María Guðrún Ögmundsdóttir (d. 1945) og Björn Magnússon (d.1921). Börnin eru frá vinstri: Ólafur Björnsson (d. 10.10.1972), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) og Jóhanna Björnsdóttir (d. 28.8.1991) sem situr í fangi föður síns.
Árni Geir Ingvarsson - safn 691
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Gylfason, Halldór Gunnar Ólafsson, Kristín Kristmundsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 295
Sveinbjörn Albert Magnússon (d. 13.11.1987) frá Syðra-Hóli. Sveinbjörn var alltaf kallaður Atli af þeim sem hann þekktu.
Höfðaskóli - safn 382
Hér mæta þau prúðbúin í skólann Viktor Pétursson og Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 1992 eða 1993.
Héraðsskjalasafn A-Hún 355
Hjónin Auðbjörg S. Albertsdóttir (d. 13.9.1994) og Sigurður Guðlaugsson (d. 19.7.1992) bændur á Hafursstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 25
Á þessari mynd eru herramennirnir Carl Emil Berndsen (d. 1939) kaupmaður á Hólanesi til vinstri og Oddur Sigurðsson (d. ?) skipstjóri frá Hrísey. Ekki er vitað um tilefni myndatökunnar né hvenær myndin var tekin.
Páll J. Pálsson safn 26
Húni Hu 1 á netaveiðum 1963. Karlarnir eru að draga færið á einni trossunni. Mennirnir eru, frá vinstri: Gunnlaugur Árnason stýrimaður, Þorleifur Þórarinsson, sem dregur af koppnum, og bræðurnir Steingrímur Einarsson og Pálmi Einarsson.
María Magnúsdóttir - safn 344
Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra-Hóli sem lengi bjó í Laufási á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 662
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, syngur Dagný Sigmarsdóttir af innlifun. Ártalið er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 20
Bræðurnir Baldvin Hjaltason til vinstri og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014) frá Skeggjastöðum á leið að smala heimahagana haustið 1959. Myndin var tekin á hlaðinu á gamla bænum á Bakka.
Ólafur Bernódusson634
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Hjalti Reynisson fallbyssuskytta að gera sig kláran fyrir að skjóta úr fallbyssunni góðu sem hleypt var af í tilefni dagsins.
Héraðsskjalasafn A-Hún 400
Guðný Kristín Guðmundsdóttir (1867 -1951) frá Karlsminni á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 311
Þessi mynd var tekin fyrir utan Hólaneskirkju - eldri af kirkjukórnum. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Guðnason Ægissíðu, Stefán Kristinsson Herðubreið, Hjördís Sigurðardóttir Þórsmörk, Sigurður Sigurðsson Kaupfélagshúsi, Jón Kristinsson sem síðar varð rafveitustjóri við rafstöðina í Laxá á Ásum. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Engilbertsdóttir, Sigríður Helgadóttir Skálholti móðir Ingibjargar, Páll Jónsson organisti og skólastjóri Breiðabliki, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum, Ingibjörg Sæmundsdóttir Hólanesi og Sigurlaug Björnsdóttir Iðavöllum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 182
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn 15. október 1973 eftir langa ferð frá Japan þar sem hann var smíðaður. Þennan dag var fögnuður og hátíð í bæ á Skagaströnd. Þetta skip var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf.
Héraðsskjalasafn A-Hún 63
Hjónin Hildigunnur Magnea Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Guðmundur Árnason (d.14.10.2009) í Stórholt (Bankastræti 3). Guðmundur var sjómaður en Hildigunnur var sauma- og verkakona. Saman eignuðust þau þrjú börn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 381
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin ná af hvaða tilefni. Á henni eru frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) Skagaströnd, séra Gísli H. Kolbeins, Jón Stefánsson (d.24.11.1973) frá Kagaðarhóli, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli (fjær) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) frá Skagaströnd. Dómhildur og séra Pétur voru hjón.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 065
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Rósa Björg Högnadóttir, Grétar Smári Hallbjörnsson, Pálfríður Bjarnadóttir og Sólveig Róarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 177
Garðshorn í Kálfshamarsvík á Skagahreppi (nú Skagabyggð). Húsið er nú löngu horfið.
María Magnúsdóttir - safn 095
Konurnar á þessari skemmtilegu mynd eru óþekktar. Ef þú veist hverjar þær eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 83
Jónína Jónsdóttir Berndsen (d. 8.10.1933) kaupmannsfrú frá Hólanesi
María Magnúsdóttir - safn 301
Systkini alin upp í Asparlundi (Bogabraut 24), börn Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) og Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991). Frá vinstri: Magnús Björn Jónsson, Ragnar Hlynur Jónsson, Fjóla Jónsdóttir og Gunnar Jón Jónsson. Myndin var líklega tekin kringum 1964.
Árni Geir Ingvarsson - safn 668
Þessi mynd var tekin á einhverri skemmtun í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Pétur Ingjaldur Pétursson, Ragnar Hlynur Jónsson, Guðmundur Jónsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Kristín Jónsdóttir?. Ef þú veist tilefni myndatökunnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
136
137
138
…
167
Leita í myndasafninu
Leita