Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jósef H Sigurðsson - safn 084
Systkini í eldhúsinu heima í Hólaneshúsi. Frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015), Jósep Sigurðsson og Sigríður Sigurðardóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið 1967.
María Magnúsdóttir - safn 170
Hólmfríður Eggertsdóttir
María Magnúsdóttir - safn 331
Þessi kona er óþekkt. Ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 031
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Guðmundsson, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson, Helgi Marínó magnússon og Gunnar Þröstur Ásgeirsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 91
Þetta er bærinn Hátún á Kálfshamarsnesi, fyrir framan bæinn standa Bogi Björnsson til vinstri og Bjarni Th.Guðmundsson til hægri. Þuríður Guðmundsdóttir ljósmóðir seinni kona Bjarna tók myndina. Í Hátúni ólst upp Ingibjörg Sigurðardóttir skáldkona.
Jón Jónsson 448
Myndin var líklega tekin 1985. Á henni er fólk að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf við að hreinsa frá skeljabrot og annað sem ekki á heima á borði neytenda. Vinstra megin við bandið eru, frá vinstri: Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Björn Ingi Óskarsson og Dagný Hannesdóttir. Hægra megin við bandið, frá hægri: Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990), Guðrún Angantýsdóttir og tvær óþekktar.
Ólafur Bernódusson602
Myndin var tekin í Hólaneskirkju á Gospelnámskeiði í júlí 2001 undir stjórn Óskars Einarssonar. Námskeiðinu lauk svo með messu þar sem tveir einsöngvarar sungu með kórnum. Á þessari mynd eru á æfingu, frá vinstri: Árdís Indriðadóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Elva Dröfn Árnadóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt (fjær) Óskar Einarsson stjórnandi (nær), Erna Berglind Hreinsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir (fjær), Ingibjörg Björgvinsdóttir (nær), Agnes Sævarsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir, séra Magnús Magnússon, Kristjana Jóhannsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Árnadóttir, óþekkt (fjær), Inga Rós Sævarsdóttir (nær), Björn Hannesson?, Sigurður Bjarnason, Sigurjón Guðbjartsson (fjær) og Þórarinn Grétarsson (nær)
Ólafur Bernódusson580
Hallbjörn Hjartarson flytur ræðu við endurvígslu Kántrýbæjar í júní 1998 eftir bruna vorið 1997.
Jón Jónsson 381
Þessi mynd var líklega tekin 1985 en hún er af Jóni Jónssyni (d. 9.7.1991) framkvæmdastjóra Rækjuvinnslunnar hf um árabil.Líklega var myndin tekin um borð í Örvari Hu 21.
Jón Jónsson 394
Myndin var tekin af kennaraatriði á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1986 - 1991. Á myndinni eru, frá vinstri: Einar Haukur Arason, Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri, Ólafur Bernódusson, óþekktur, Páll Leó Jónsson skólastjóri, Jóhanna Jónsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, Hjördís ?, Vilborg Magnúsdóttir, Margrét Harðardóttir og Sigríður Einarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 64
Hjónin Hulda Pálsdóttir (d. 2011) og Þorfinnur Bjarnason (d.6.11.2005) í Þorfinnshúsi (Bogabraut 9) á Skagaströnd. Þorfinnur var oddviti, sveitarstjóri og framkvæmdastjóri fyrir útgerðarfélag Höfðahrepps. Þá sat hann á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Norðurland Vestra í maí 1969. Hulda var húsmóðir en saman eignuðust þau hjónin tvö börn.
Ólafur Bernódusson 564
Mörgum þykir sigin grásleppa vera hnossgæti. Öðrum þykir hún versti matur sem til er eða jafnvel að hún sé alls ekki matur yfirleitt. Á myndinni eru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til vinstri og tengdasonur hans Guðmundur J. Björnsson búnir að skera grásleppu í tvo kassa og eru að fara af stað til að hengja þær upp í hjallinn. Þar eru þær látnar hanga 10 - 20 daga eftir veðurfarinu hverju sinni áður en þær eru tilbúnar í pottinn. Myndin var tekin einhverntíma seint á níunda áratugnum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 27
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Jón Jónsson 389
Myndin var tekin 1983. Gunnar Sveinsson óskar Þórarni Hjartarsyni (d. 28.1.1991) til hamingju með heiðursmerki sjómannadagsins sem hann hlaut það ár. Nær okkur á myndinni er Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) sem einnig var heiðraður þennan sjómannadag. Í baksýn sér í Lárus Ægi Guðmundsson kynni dagsins.
Hallgrímur Kristmundsson safn020
Birgir Árnason (d.2.2.2005) sem lengst af bjó í Straumnesi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 68
Hof í Skagahreppi nú Skagabyggð. Nú hefur verið byggt nýtt hús á Hofi og húsið á myndinni verið rifið. Hof er kirkjustaður en kirkjan á myndinni var vígð 1870 en endubyggð 1950 og síðan aftur 1989. Hofskirkja mun vera meðal elstu húsa í A-Hún. Til gamans má geta þess að Jón Árnason (d.4.9.1888) þjóðsagnasafnari var fæddur á Hofi 1819.
Ólafur Bernódusson682
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni eru Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Dagný Sigmarsdóttir til hægri fyrir utan golfskálann en þær eru eigendur og spákonur Spákonuhofsins á Skagaströnd og stóðu fyrir Þórdísargöngunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 684
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, blaða þeir í handritinu: Magnús B. Jónsson til vinstri, Ingibergur Guðmundsson og Ólafur Bernódusson til hægri. Ártalið er óþekkt.
Jón Jónsson 434
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir í fangi föður síns Árna Ólafs Sigurðssonar sem er sonur Hallbjargar, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) vinkona, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d. 10.12.2015) dóttir og Adolf J. Berndsen tengdasonur Hallbjargar.
Jón Jónsson 373
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 45
Hjónin María Kristjánsdóttir og Sveinn G. Sveinsson bændur á Tjörn á Skaga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 726
Nýi slökkvibíllinn prófaður við Rækjuvinnsluna. Í bílnum er öflug dæla sem er að sjálfsögðu nauðsyn í slíkum farartækjum. Mennirnir á myndinni eru óþekktir liðsmenn Slökkviliðs Skagastrandar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 53
Neðri Harrastaðir í Skagabyggð áður Skagahreppi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 183
Systurnar Helga Hannesdóttir (d. 1976) og Ragnheiður Hannesdóttir (d.1973) frá Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 410
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Inga Björgvinsdóttir og Þorvaldur Hauksson eiginmaður Kolbrúnar Haukdal Jónsdóttur sem situr við hlið hans.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 073
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, óþekktur, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Bryndís Ingimarsdóttir.
Páll J. Pálsson safn 4
Gamla baðstofan á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Í þessu húsi fæddust 8 börn Páls Tómassonar (d. 3.6.1961) og Maríu Ólafsdóttur (d. 4.7.1975) sem voru bændur á Bakka 1923 - 1960. Saman áttu þau 9 börn en fyrsta barnið fæddist á bænum Kurfi í Skagahreppi.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 090
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á myndinni skemmtir Gunnar Reynisson sér við undirleik hljómsveitarinnar Vinir Dóra 10. ágúst 1994.
Jósef H Sigurðsson - safn 048
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Árnesi en síðan hún var tekin hefur húsið tekið miklum breytingum því það var endurbyggt í sínu upprunalega horfi og þá voru allar viðbyggingar rifnar. Árnes er safn í dag þar sem sýnir íslenskt alþýðuheimili eins og þau voru á fyrsta hluta 20. aldarinnar.
María Magnúsdóttir - safn 114
Aftan á þessari mynd stendur skrifað: "Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir á Blönduósi".
Héraðsskjalasafn A-Hún 30
Prestssetrið Höskuldsstaðir og gamla Höskuldsstaðakirkja. Kirkjan á myndinni var notuð fram í mars 1963 þegar ný kirkja var vígð skammt norðan gömlu kirkjunnar. Pretssetur var á Höskuldsstöðum um aldir fram til 1964 þegar það var fært til Skagastrandar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 268
Hólmfríður Árnadóttir (1905-1983) og Sigurður Pétursson (1904-1961) frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson595
Íþróttahúsið á Skagaströnd var vígt 15. mars 1998. Á þessari mynd er Helgi Gunnarsson yfirsmiður hússins ásamt konu sinni Ragnheiði Sigurjónsdóttur með stóran lykil sem hann afhenti formlega við vígsluna sem tákn um að verkinu væri lokið.
María Magnúsdóttir - safn 242
Á myndina er skrifað: "Ásta og Solla frá Eyjarkoti". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hérðasskjalasafn A-Hún 153
Hjónin Aðalbjörg Hafsteinsdóttir póstmeistari og Hörður Ragnarsson bifreiðastjóri á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 178
Samkomuhúsið í Kálfshamarsvík í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Húsið mun líka hafa verið notað sem skóli. Húsið er horfið en enn má sjá grunninn undan því.
Árni Geir Ingvarsson - safn 715
Torfi Friðrik Magnason vinnur við þökulagningu í slakkanum norðan við stóru mjölskemmuna á vegum vinnuskólans á Skagaströnd.
Jón Jónsson 413
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ómar Jakobsson og Jón S. Pálsson kennari og skólastjóri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 180
Saurar í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Húsin er nú hrunin enda hafa Saurar verið í eyði mjög lengi. Saurar urðu frægir á einni nóttu í mars 1964 fyrir draugagang. Blaða- og fréttamenn flykktust á staðinn til að reyna að upplýsa málið og einnig var miðill kallaður til. Dagblaðið Þjóðviljinn rifjaði upp þessa atburði 1983 en þar segir eftirfarandi um draugaganginn: <br> <br>"Þegar líða tók á mars fóru svo að berast fréttir af undarlegum fyrirbærum á Saurum á Skaga í A-Húnavatnssýslu. Þar köstuðust borð og stólar til, leirtau hrundi útúr skápum, rúm hreyfðist og skápar fóru um koll. Hér gat tæpast verið um að ræða náttúrulegar hamfarir heldur miklu fremur yfirnáttúrulegar. Dögum saman voru blöð og útvarp undirlögð fréttum frá Saurum, þangað flykktust fréttamenn, forystumenn Sálarrannsóknarifélagsins, miðlar, jarðfræðingar, og veraldleg sem andleg yfirvöld. Hvað var á seyði? Málið lognaðist svo út af jafnskjótlega og það hafði komið upp og hefur aldrei verið upplýst opinberlega. Var um að ræða stórfelldan draugagang eða stórfelldar blekkingar? Kannski fjölskylduharmleikur á afskekktum torfbæ lengst norður á Skaga?"<br>
Fisk Seafood - safn 210
Vilhelm Þórarinsson vélamaður við vinnu í rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Héraðsskjalasafn A-Hún 164
Ingibjörg Jónsdóttir (d. 15.7.1970) frá Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) við ullarþvott.
Jósef H Sigurðsson - safn 011
Jósep Hjálmar Sigurðsson frá Hólaneshúsi á Skagaströnd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 037
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Kristján Birgisson, óþekkt, Aðalheiður Árnadóttir, Erna Sigurbjörnsdóttir og Hulda Birna Frímannsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 261
Aftan á þessa mynd er ritað: "Tekið syðast liðin Jól. 1953. 1. Pétur Hillman 2. Jón Hillman 3. Hermann Hilmann. Alberta, Canada". Þessir menn voru synir Hermanns Jónssonar frá Hóli á Skaga og Margrétar Ögmundsdóttur frá Fjalli á Skaga en þau fluttu til Kanada. <br>
María Magnúsdóttir - safn 075
Systur frá Syðra Hóli í varpanum við bæinn. Frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013), Ásdís Magnúsdóttir og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
Héraðsskjalasafn A-Hún 42
Einar Guðjónsson (d. 1961) sjómaður frá Draumalandi á Skagaströnd. Draumaland var lítið hús sem stóð við Bankastræti austanvert rétt norðan við Stórholt (Bankastræti 3). Einar bjó reyndar síðustu æfiár sín í lítilli viðbyggingu við norðurenda Bjarmalands (Skagavegur 6?). Bæði Draumaland og viðbyggingin við Bjarmaland eru nú löngu horfin.
María Magnúsdóttir - safn 326
Aftan á myndinni stendur: " Margrét Sigurðardóttir prestsfrú á Höskuldsstöðum. Kennslukona 1889-1894".<br>
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 035
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni er Guðbjörg Þorleifsdóttir að taka til eftir hófið.
Hérðasskjalasafn A-Hún 152
Hjónin Þorgerður B. Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993) og Óskar Axelsson í Ásholti á Skagaströnd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 053
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Kristján Karlsson (snýr baki í okkur), Fjóla Ævarsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 105
Bærinn Hólmi stóð við Fossá í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Hólmi er nú kominn í eyði fyrir mörgum árum og húsin rústir einar. Fjallið í baksýn er Fjallsöxlin sem er nyrsta fjallið af Skagastrandarfjöllunum. Myndina tók Björn Bergmann (d.30.5.1985) en ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 019
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Birna Blöndal, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Magnús B. Jónsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Ólafur Bernódusson593
Myndin var tekin við upphaf lestrarátaks í Höfðaskóla í nóvember líklega 1998. Ingibergur Guðmundsson skólastjóri stendur til hægri en fremst vinstra megin sitja: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Vignir Örn Hafþórsson og Jón Oddur Hjálmtýsson. Hægra megin fremst sitja: Hákon Unnar Þórarinsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 180
Aftan á myndinni stendur:"Jóhanna (Sveinlaug) Ögmundsdóttir Stígshúsum, Sandgerði".
Héraðsskjalasafn A-Hún 150
Frá vinstri: Sigríður Kristmundsdóttir (d. 1941) frá Hafsstöðum, Sigríður Þorsteinsdóttir (d. ?), óþekkt, Zophanías Zophaníasson (d. 10.5.1987), Guðrún Einarsdóttir (d. 1994) og Hólmfríður Eggertsdóttir (d. 1959) í Langaskúr. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 357
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum: Sigrún Jónsdóttir og Þorvaldur Skaftason.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 013
Leikritið Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir (d.25.6.2009). Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Hallbjörn Hjartarson, Birna Blöndal, Magnús B. Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Elín Njálsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 130
Ytri-Hóll í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 010
Myndin var tekin leikárið 1980 - 1981 í Fellsborg en þá setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Guðný Sigurðardóttir, Magnús Jónsson, Elín Njálsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Ólafur Bernódusson.
Jón Jónsson 397
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla en líklega hefur það verið einhverntíma 1986 -1990. Fremst á sviðinu eru Gunnar Halldór Hallbjörnsson til vinstri og Atli Þórsson til hægri. Hægra megin við Atla eru Guðbjörg Kristmundsdóttir, Svava Magnúsdóttir og Baldur Magnússon. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
137
138
139
…
167
Leita í myndasafninu
Leita