Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hallgrímur Kristmundsson safn055
Þessar tvær ungu konur eru óþekktar. Konan til hægri gæti þó verið Anna Kristmundsdóttir? Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 215
Þorsteinn Sölvason (d. 4.6.1981) frá Álfhóli í Skagahreppi (nú Skagabyggð) með konu sinni Viktoríu Lilju Friðriksdóttur (d.15.10.1936) og börnum. Í fangi móður sinnar situr Eyþór Þorsteinsson (d.22.5.1938), við hlið hennar er Gunnar Friðrik Þorsteinsson (d. 1992) sjómaður og verkstjóri hjá Eimskip. Næstur föður sínum er Sölvi Þorsteinsson (d.1978) matsveinn. Þorsteinn var bróðir Sigurðar Sölvasonar kaupmanns í versluninni Borg á Skagaströnd. E
María Magnúsdóttir - safn 199
Aftan á þessari mynd stendur: "Sigurbjörg Andrésdóttir frá Bægisá húsfreyja á Fjalli á Skagaströnd".
Árni Geir Ingvarsson - safn 653
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er búið að gera klárt í salnum kvöldið fyrir blótið. Magnús B. Jónsson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri fylgjast með lokaæfingu á skemmtiatriðunum á sviðinu. Ártalið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson622
Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. <br>Um leið þakkar safnið heimóknir og ábendingar sem það hefur fengið og hafa orðið til að lýsingar myndanna eru réttari og betri en annars hefði verið. Þá auglýsum við eftir myndum til að bæta við safnið og heitum endurskilum á öllum myndum sem okkur eru lánaðar til birtingar á vef Ljósmyndasafnsins. Nýverið náðum við að setja inn 10 þúsundustu myndina og hvetjum við fólk til að skoða safnið og senda inn athugasemdir ef einhverjar eru. Mynd vikunnar var tekin nýlega og getur fólk spreytt sig á að finna út hvar hún var tekin.
Óþekktur ljósmyndari 387
Keppni í pokahlaupi á sjómannadegi. Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) er í pokanum til hægri en konan til vinstri gæti verið Guðbjörg Lárusdóttir?. Drengurinn fremst til vinstri er líklega Steindór Haraldsson en konan í bláu kápunni með staf til hægri er Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) og með henni, með húfu, er maður hennar Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981). Þau hjón voru alltaf kennd við heimili sitt í Þórsmörk. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 109
Systur frá Syðra Hóli. Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) í Laufási á Skagaströnd til vinstri og Guðrún Ragnheiður Björnsdóttir (d. 6.11.1958), sem var kennari á Blönduósi um tíma, til hægri.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 052
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Haraldur Árnason, Erna Rós Magnúsdóttir, Einar Þór Ásgeirsson, Elísabet Anna Traustadóttir (fjær), Magnús Guðmannsson (nær), Guðrún Magnúsdóttir (fjær), Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d.15.2.2016) (nær) og Kristján Karlsson.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 076
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd er blúshljómsveitin Vinir Dóra að spila þar 20. desember 1993.
María Magnúsdóttir - safn 342
Með þessari mynd stendur: "Ketilríður og Friðrik". Ketilríður mun hafa verið Friðgeirsdóttir en ekki er vitað hver son Friðrik var.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 047
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þar sem fólkið fór saman út að borða. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Kristín Sigurðardóttir (nær), Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016)(fjær), Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016), Sólveig Róarsdóttir, Haraldur Árnason, Pálfríður Bjarnadóttir, Gunnar Jónsson, Magnús Guðmannsson, Erna Högnadóttir, óþekkt, Rögnvaldur Ottósson og Erna Rós Magnúsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 181
Á myndinni er Guðmundur Þór Hu 17 að verða fullsmíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Guðmundur Þór var annar tveggja fyrstu bátanna sem smíðaðir voru í stöðinni. Hinn var Ásdís Hu 10. Guðmundur Þór er enn gerður út frá Skagaströnd undir nafninu Dagrún St 12 síðan árið 1975 er núverandi eigendur keyptu bátinn.
Ólafur Bernódusson614
Mikill fjöldi gesta sótti Kántrýhátíð í ágúst 2001. Eitt af því sem boðið var upp á á hátíðinni var að fara rúnt um bæinn í opnum hestvagni af flottustu gerð. Myndin sýnir ánægða gesti í einni slíkri hringferð.
Ólafur Bernódusson 574
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá tvær peysur úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84. Sýningastúlkurnar á myndinni eru Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Guðbjörg Gylfadóttir til hægri.
Jón Jónsson 392
þessi mynd var tekin af kennaraatriði á árshátíð Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Sveinn Pálsson skólastjóri, Jónas Baldursson, Sigurður Guðmundsson, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015), Ólafur Bernódusson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Elínborg Margrét Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Magnús B. Jónsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 367
Kristján Arinbjörn Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Vík og síðar Grund á Skagaströnd. Kristján var gott ljóðskáld og tónlistarmaður. M.a. var hann um langa hríð organisti og kórsstjóri við Hólaneskirkju og eftir hann liggur ljóðabókin "Við brimsins gný" sem út kom 1995. Þar er m.a. að finna eftirfarandi vísu:<br>Hálfur dvelur hugurinn<br>heima daga og nætur.<br>Annars staðar andi minn<br>ekki festir rætur.<br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 686
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, er Hallbjörg Jónsdóttir að æfa símtal og að læra textann um leið. Ártalið er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 325
Hjónin María Kristjánsdóttir (d.27.6.2017) og Sveinn Guðberg Sveinsson frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 187
Margrét Jóhannesdóttir (d. ?) frá Lundi á Skagaströnd. Margrét var gift Ole Aamundsen (d. ?).
Árni Geir Ingvarsson - safn 667
Árni Geir Ingvarsson á fæðingardeildinni með nýfædda dóttur sína í fanginu og hinar stelpurnar sínar til sinn hvorar handar. Til vinstri er Silfá Árnadóttir, litla stúlkar fékk nafnið Ásdís Birta Árnadóttir og til hægri er Helga Dögg Jónsdóttir fósturdóttir Árna.
Héraðsskjalasafn A-Hún 10
Pétur Sigurður Ágústsson (1902 - 1980) bróðir Stefáns Ágústssonar bónda á Ytri-Ey.
Jón Jónsson 374
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Árni Guðbjartsson, Guðrún Angantýsdóttir, Agnar Hávarðarson og Sigurjón Guðbjartsson. Barnið á myndinni er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 163
Þessir ungu drengir eru óþekktir. Myndin kemur úr safni Kristófers Péturssonar. Ef þú þekkir drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 003
Myndin var tekin í saumaklúbbi á heimili Amyar Eymundsdóttur í Brimnesi en ekki er vitað hvenær. Frá vinstri eru: Rósa Björg Högnadóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir? (d. 25.9.2006), Þórunn Óladóttir, Árnína Guðrún Fossdal og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012).
Árni Geir Ingvarsson - safn 743
Það verður að teljast óvenjulegt, a.m.k. í seinni tíð, að það þurfi að smala kindum á höfninni. Þessar kindur voru þó að villast þar og fóru m.a. fram á Útgarð til að skoða sig um. Kindunum var smalað í aðhaldið sem sést á myndinni þar sem Rúnar Jóhannsson er að athuga markið á þeim svo hægt sé að finna eiganda kindanna. Sjá einnig mynd nr 10073.
Héraðsskjalasafn A-Hún 200
Árni Árnason (d. ?) frá Höfðahólum á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 70
Hafnir Skagahreppi nú Skagabyggð. Gamli bærinn er til hægri á myndinni. Hafnir eru hlunnindajörð með æðarvarpi, selveiðum og reka.
Óþekktur ljósmyndari 391
Elínóra Rafnsdóttir kennari á kennarastofunni í Höfðaskóla 1986.
Héraðsskjalasafn A-Hún 287
Steinunn Guðbjörg Árnadóttir (1898-11.5.1990) frá Ásgarði á Skagaströnd og maður hennar Guðjón Marteinssson (1903 - 11.2.1976) sjómaður frá Reykjavík.
Árni Geir Ingvarsson - safn 745
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og greinilegt að börnin kunna vel að meta nýframkvæmdirnar. Börnin á myndinni eru óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 338
Aftan á þessa mynd stendur skrifað: (með penna)" Jóhanna Hjálmarsdóttir fósturdóttir Jóhönnu og Ögmunda á Fjalli". "Bjó á Ísafirði".(með blýanti): "Jóhönnu er getið í þætti um Sigurð stóra í Búsæld og Barningum". Jóhanna Hjálmarsdóttir giftist Eiríki Brynjólfi Finnssyni (mynd 9165) og eignaðist með honum eina dóttur Jóhönnu Ögmundu en lést af barnsförum 29.4.1905. Dóttirin Jóhanna Ögmunda lést 1909. Eiríkur kvæntist aftur og á fjölda afkomenda.
Héraðsskjalasafn A-Hún 290
Gunnfríður Matthildur Jónsdóttir (1889-28.7.1968) frá Kirkjubæ fædd að Sæunnarstöðum í Hallárdal. Gunnfríður giftist Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara 1924 en þau slitu samvistir. Gunnfríður var sjálf myndhöggvari en Björn Th. Björnsson listfræðingur sagði m.a. um verk hennar:"...Það er enda sannast sagna, að þrátt fyrir kunnáttuskort og margvíslegan klunnaskap, koma fyrir í myndum Gunnfríðar svo furðulega góðir hlutir, að manni verður trúað með henni á upprunalega hæfileika..." (Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/678008/).
Héraðsskjalasafn A-Hún 368
Sigurður Björnsson (d.10.5.1987) bóndi á Örlygsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Sigurður gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir sína sveit var m.a. hreppsjóri Skagahrepps.
Héraðsskjalasafn A-Hún 81
Kvenfélagskonur úr Höskuldsstaðasókn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né tilefnið. Á póstkort sem fylgir myndinni er skrifað: "Sitjandi frá vinstri Kristín Vilhjálmsd, Kristín frá Ysta-Gili, Jóhanna frá Vindhæli kona Sigurjóns kennara. Ragnhildur Þórarinsd, Teitný Guðmundsd. Blöndubakka (yfirstrikað) frá Kringlu, Magdalena frá Sölvabakka. Standandi f.v. Magdalena á Síðu Ingibjörg á Björnólfsstöðum, Indiana Albertsd. og Björg frá E-Lækjardal."<br>Magdalena frá Sölvabakka var Jónsdóttir (d.3.4.1972) en Magdalena á Síðu var Einarsdóttir (d. 3.3.1985). Björg frá Efri-Lækjardal var Benediktsdóttir (d. 20.11.1991), Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000).
Héraðsskjalasafn A-Hún 73
Efri-Harrastaðir á Skagahreppi nú Skagabyggð.
Héraðsskjalasafn A-Hún 32
Gömul mynd af Skagaströnd tekin af Höfðanum snemma á 20. öldinni. Ljósmyndarinn var Pétur Hannesson sem starfaði sem slíkur á Sauðárkróki 1913 - 1928. Fyrir þann tíma lærði og stafaði Pétur á Akureyri og í Reykjavík þannig að ekki er ljóst hvaða ár myndin var tekin. Fremst á myndinni eru verslunarhúsin á Skagaströnd. Til vinstri við þau er Sæmundsenbúð og lengra frá er Lækur (Efri-Lækur) og Jaðar. Nær sjónum eru svo Lækjarbakki, Karlsminni þar sem rekin var verslun um tíma og Viðvík sem var veitinga- og gistihús um árabil. Aðrar byggingar á myndinni eru óþekktar.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 077
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd frá 20. desember 1993 eru frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir, Helga Kristmundsdóttir og Davíð Reynisson að skemmta sér við að hlusta á Vini Dóra spila fyrir gesti.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 068
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: óþekkt, Erna Högnadóttir, Árni Björn Birgisson, Birgir Árnason (d. 2.2.2005) og Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012). Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 181
Húnn Snædal
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 015
Leikritið Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir (d.25.6.2009). Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Rúnar Loftsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Magnús B. Jónsson.
María Magnúsdóttir - safn 268
Þetta par er óþekkt. Aftan á myndina er stimplað nafnið Ari L. Björnsson en það er allt og sumt. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 749
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru menn frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar að slá upp fyrir kantsteini til afmörkunar á svæðinu framan við skólann. Mennirnir eru frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Ómar Ingi Ómarsson og Einar Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson 570
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Sigrún Jónsdóttir að sýna peysu sem framleidd var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Héraðsskjalasafn A-Hún 197
Gert að fiski á bryggju sem reist var upp úr 1920 rétt austan við syðsta odda Höfðans, Hólsnefið. Bátakostur Skagstrendinga þessa tíma sést á myndinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 291
Rut Torp (d.?) var seinni kona Þórarins Björnssonar (d.24.12.1968) frá Þverá í Hallárdal skipherra hjá Landhelgisgæslunni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 194
Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 55
Færeyskir sjómenn á höfninni á Skagaströnd 1938. Algengt var að Færeyskar duggur kæmu í höfn á Skagaströnd allt fram undir 1960.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 071
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Valur Friðvinsson, Ása Ásgeirsdóttir, óþekkt, Andri Þór Ómarsson og Elín Ósk Ómarsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 049
Konan á þessari mynd er líklega Guðrún Hafsteinsdóttir frá Njálsstöðum. Ef þú getur staðfest það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 652
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru þau Þórey Jónsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson í hlutverkum sínum. Bak við Halldór grillir í Guðlaug Hjaltason að spila á gítar. Ártalið er óþekkt.
Hallgrímur Kristmundsson safn029
Ekki er vitað í hvaða skipi þessi mynd var tekin og mennirnir eru óþekktir. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn024
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) á tröppunum við Kaupfélagshúsið. Þó ekki sé vitað nákvæmlega hvenær myndin var tekin var á þeim tíma verslun í húsinu á tveimur neðri hæðunum en skrifstofa og fleira á efstu hæðinni. Húsið var byggt 1929 -1930 fyrir Verslunarfélag Vindhælinga sem seinna breyttist í Kaupfélag Skagstrendinga eins og stendur á húsinu.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 048
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Erna Rós Magnúsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, þrír óþekktir og Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Páll J. Pálsson safn 28
Síldarsöltun á Siglufirði sumarið 1963. Líklega er verið að salta síld úr Húna Hu 1 sem var á síldveiðum þetta sumar og landaði m.a. á Siglufirði. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 16
Þorgrímur Pálsson (d.7.9.2013) frá Bakka í Skagahreppi. Myndin var tekin 1971 af Þorgrími þá 45 ára.
Jón Jónsson 402
Í mörg ár bauð umf Fram upp á leikjanámskeið fyrir yngri krakka á Skagaströnd. Hér er einn hópurinn af fara í hjólatúr saman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremsti hjólagarpurinn er Gunnar Karlsson? næstur er Davíð Bragi Björgvinsson þá Þórarinn Ingvarsson og svo Elva Þórsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 030
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Erla Kristinsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Ragnar Jónsson (með skalla) og Helgi Marínó Magnússon.
María Magnúsdóttir - safn 171
Aftan á þessari mynd stendur:"Systurnar á Neðstabæ í Norðurárdal A-Hún. Auðbjörg í karlmannsfötum og Guðrún á hvíta kjólnum".
Árni Geir Ingvarsson - safn 752
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru þrír ungir menn að gera klárt undirlag fyrir steinalagningu. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Almar Freyr Fannarsson.
Jón Jónsson 404
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Á þessari mynd er verið að afhenda blóm fyrir einhver afrek sem nú eru gleymd. Fullorðnu konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Aðalheiður Harðardóttir og Árný Helgadóttir. Börnin eru: lengst til vinstri Guðrún Elsa Helgadóttir, milli Ingu Láru og Aðalheiðar sér í Árný Guðrún Ólafsdóttir. Milli Aðalheiðar og Árnýjar sést Elva Dröfn Árnadóttir. Ljóshærða stúlkan hægra megin við Árný er Heiðrún Níelsdóttir og lengst til hægri er Guðjón Hall Sigurbjörnsson.
1
…
138
139
140
…
167
Leita í myndasafninu
Leita