Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Binna ca 6 mánaða
Birna Lúkasdóttir - Binna - 6 mánaða.
larus070
Altarið sem var notað í fyrstu messunni í nýrri hálfkláraðri Hólanesskirkju 30. júlí 1989.
mundi376
Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) situr í eldhúsinu í Akurgerði
Erla og Gerða
Frá vinstri: Erla Lárusdóttir og Þorgerður Bogadóttir og tvö óþekkt börn.
Myndir frá Skagaströnd 057
Frá vinstri: Ása Hafsteinsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Anna Steingríms

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d. 6.3.2007) frá Læk

larus072
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Á myndinni má sjá Guðbjörgu Viggósdóttur með barn og Særún Jónsdóttir sitjandi við hlið hennar. drengurinn í röndóttu peysunni er óþekktur en aftan við hann er Karl Rósinbergsson. Maðurinn í hvítu peysunni er Gunnar Reynisson síðan frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Magnús B. Jónsson, óþekktur, Sigurjón Ástmarsson, Magnea Harðardóttir, Jökulrós Grímsdóttir, Vilhjálmur Skaftason og Helgi Gunnarsson.
mundi433

Strákarnir á myndinni eru Karl Lúðvíksson sem er að detta og Óskar Kristinsson sem stendur á höndum. Myndin er tekin í fjörunni neðan við þar sem fiskmarkaðurinn er í dag

mundi409
Lárus Hinriksson frá Kurfi fyrir utan skemmuna sína að Kurfi
myndir frá Skagaströnd 037
Ólína Marta Steingrímsdóttir frá Höfðakoti með tvö óþekkt börn. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óla Steingríms
Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) fyrir utan heimili sitt, Höfðakot.
mundi336
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver.
Bjarni Th Guðmundsson
Bjarni Th. Guðmundsson
Sólveig Benidiktsdóttir
Sólveig Benediktsdóttir
mundi355
Frá vinstri: Hallbjörn Björnsson, Birgir Júlíusson og Thorleif K.Jóhannsson.
Mundi316

Þetta er fjölskyldan í Dvergasteini. Dvergasteinn var hús sem stóð ofan við Skálholt en var við Bankastræti. Húsið var lítið og lágreist með viðbyggð fjárhús og hlöðu. Á myndinni er ekkjan Svanbjörg Magdalena Jósefsson (Svana Fossdal) (f. 27.4.1925 - d. 31.3.2002) með börnin sín. Svana var færeysk að uppruna en maður hennar var Hafsteinn Björnsson Fossdal. Hafsteinn drukknaði í Skagastrandarhöfn í hörmulegu slysi 22. febrúar 1962 og er því ekki á myndinni. Börnin þeirra á myndinni eru frá vinstri: Ingi Jóhann Hafsteinsson Fossdal, sem drukknaði í Hólmavatni við Blönduós 12. desember 1987, Matthilda Alvilda Hafsteinsdóttir Fossdal, Björn Hafsteinsson Fossdal (d. 13.4.1983) og Sævar Hafsteinsson Fossdal. Sævar var seinna í fóstri á Holtastöðum í Langadal og eyddi þar unglingsárum sínum. Myndin var tekin heima í Dvergasteini um jól á árunum 1963 eða1964. Svana flutti til Reykjavíkur með fjölskyldu sína árið 1965.
Myndir frá Skagaströnd 063
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti
Mundi320
Strákarnir í Dvergasteini talið frá vinstri: Ingi Jóhann Hafsteinsson Fossdal (d.12.2.1987), Björn Hafsteinsson Fossdal (d.13.4.1983) og Sævar Hafsteinsson Fossdal
larus007

Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.Á fremsat bekk sitja hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir. Á næsta bekk eru Hlíf Sigurðardóttir með dóttur sína Elvu Dröfn Árnadóttur. Á þriðja bekknum sitja, frá vinstri: Guðný Hjartardóttir, Skafti Fanndal Jónasson og kona hans Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir. Næsti bekkur þar fyrir aftan geymir: Hauk Gunnlaugsson, Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur óþekkt barn og Hörð Ragnarsson. Aftan við Hörð sér í Jónínu Valdimarsdóttur og aftan við hana sér í feðginin Ásu Jóhannsdóttur og Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka. Yfir hægri öxl Jóhanns sér í Pétur Eggertsson en aftan við Ásu er Sylvía Hrólfsdóttir. Á ganginum situr Fjóla Gísladóttir með stafinn sinn. Aðrir eru óþekktir.

larus051
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Kirkjukórinn samanstendur af kórunum á Skagaströnd og á Blönduósi.
Mundi296
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni. Frá vinstri: Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966), Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) og óþekkt leikkona.
Birna Sólveig

Birna Sólveig Lúkasdóttir

mundi372
Þetta er hún Hjálma, kýrin hennar Klemensínu Klemensdóttur og Guðna Sveinssonar í Ægissíðu á Skagaströnd. Þau vou foreldrar Guðmundar Guðnasonar. Kötturinn er líka þeirra og myndin er að öllum líkindum tekin á seinni hluta 6. áratugar síðustu aldar.
myndir frá Skagaströnd 018
Kappróður á sjómannadegi.
mundi354
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver. Bak við þessa grímu leyndist Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d. 6.3.2007) frá Læk.
larus045
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.

Mundi315
Margrét Steinnun Ellertsdóttir. Sennilega er myndin tekin um 1961
mundi356
Ekki er vitað hvaða barn þetta er. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
larus056
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Rosemary Hewlet leikur á þverflautu
myndir frá Skagaströnd 016
Óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
larus067
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Gamla kirkjan frá 1928 í baksýn.
mundi332
Björn Fossdal Hafsteinsson (d.13.4.1983) alinn upp í Dvergasteini á Skagaströnd.
mundi393
Sveitastjórnarkosningar 1970. Talið upp úr kjörkössunum. Við borðið sitja kjörstjórnarmennirnir Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) og Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986). Milli þeirra stendur Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppsstjóri og formaður kjörstjórnar. Fyrir aftan standa, og fylgjast með að allt fari rétt fram, (frá vinstri) Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) fyrir Alþýðubandalagið, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) fyrir Alþýðuflokkinn
mundi345
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver.
larus028
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Sameinaðir kirkjukórar Skagastrandar og Blönduóss syngja.
oþekkt137
Starfsfólk frystihús Kaupfélags Skagastrendinga.
Frá vinstri: Vilborg Jónsdóttir og Hjördís Sigurðsdóttir.
Mundi311
Fólk streymir úr Hólaneskirkju (eldri) eftir fermingu 1961.
mundi335
Myndin er tekin á skemmtur í Tunnunni kringum 1960. Frá vinstri má þekkja: IngiríðurJónsdóttir (d. 21.10.2011) Ólafsvöllum(Náttbrún), Guðmunda Árnadóttir á Flankastöðum, Guðný Pálsdóttir Hólabraut 4, Jósep Stefánsson (d.9.12.2001) Reykholti, Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) Árnesi með barn í fanginu, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Ingibjörg Þorfinnsdóttir fyrir aftan Reyni, Þorvaldur Skaftason Dagsbrún, Konráð Guðmundsson Konnabæ fyrir aftan hann og Gunnar Pálmason. Út við vegg til vinstri í köflóttri skyrtu er Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011)Valhöll, Kristmundur (Diddi) Ingibjörnsson, Árni Ingibjörnsson Hólabraut 7, Andrés Árni Baldursson Þórshamri, Sigurður Bjarnason Bjargi, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Bergi, Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004) Náttbrún, Árni Sigurðsson Þórsmörk, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001) (með skegg), Jóhann Ingibjörnsson Hólabraut 7, Birgir Júlíusson Höfðabergi, Pétur Jóhannsson Lækjarbakka, Ari Jónsson Hólanesi og Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) sem gnæfir yfir með sexpensarann sinn.
mundi375
Sóley Benjamínsdóttir ólst upp í Skálholti.
mundi338
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver.
Guðr B og Viggó
Guðríður Bogadóttir og Viggó Brynjólfsson
mundi352
Grímuball í Tunnunni. Þessi búningur vann fyrstu verðlaun. Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) hannaði og málaði.
mundi390
Jóhann Frímann Pétursson (d.13.1.1999) frá Lækjarbakka. Myndin tekin um 1970.
Mundi294
Frá vinstri: Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) og Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994)að leika í gömlu Tunnunni.
larus079
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Prúðbúnir kirkjugestir. Systurnar Áslaug, Jóninna Þórey (d. 24.11.1994), Ragnheiður Birna (d.26.8.2008) og Aðalbjörg Hafsteinsdætur sitja fremstar í íslenskum búningum. Á næsta bekk eru frá vinstri: Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006). Á þriðja bekk má þekkja frá vinstri: Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) og Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007). Enn aftar er Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002).
mundi429
Fermingarmynd af Stefaníu Guðjónsdóttur, Sólveigu Georgsdóttur og Jóhönnu Ásmundsdóttur (Labba).
Mundi244
Á 30 ára afmæli ungmennafélagsins Fram, veisla í Tunnuni. Dansað að loknu kaffisamsæti.
larus006
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.
Séra Egill Hallgrímsson predikar og þjónar fyrir altari.
mundi329
Fremstur á myndinni er séra Pétur Þ. Ingjaldsson.Vinstra megin við hann er Guðrún Á. Lárusdóttir, Sigríður Þ. Gestsdóttir, Guðbjörg V. Kristinsdóttir, Guðbjörg B. Viggósdóttir og Linda Kristjánsdóttir. Fyrir aftan Guðrúnu er Hallbjörn Ágústsson, síðan Ingvar Ástmarsson, Kjartan Bjarnason, Ragnar Ingvarsson. Aftasta röð: Heiðar E. Friðriksson, Hilmar O. Gunnarsson, Níels Grímsson og Magnús Guðlaugsson. Myndin var tekin á skólatröppunum.
Guðríður Bogad
Guðríður Bogadóttir
mundi420
Pálmi Guðnason (d.23.3.1994) bróðir Guðmundar ljósmyndara.
Mundi286
Á skemmtun í Tunnunni. Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri og Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) keppa í því að vefja tvær stúlkur inn í klósettpappír. Sá sem fyrr kláraði af rúllunni hjá sér vann.
Elsa Kristjánsdóttir
Elísabet G. Kristjánsdóttir (Elsa) (d. 21.31991)
myndir frá Skagaströnd 029
Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
mundi353
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver
myndir frá Skagaströnd 045
Veistu hvaða staður þetta er? Ef svo vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sigrún amma, mynd tekin 28. des 1968
Sigrún ?, mynd tekin 28. des 1968. Ef þú veist frekari deili á þessari konu t.d. föðurnafn hennar, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Viggó
Viggó Brynjólfsson (d.4.3.2021) ýtumaður og verktaki.
mundi368
H 34 með stóran heyfarm. H 34 var í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007) vörubílstjóra sem átti marga bíla með þessu númeri. Áður en núverandi tækni við heyverkun var þekkt þurfti að þurrka heyið á túni og flytja það síðan heim í hlöðu áður en haustaði of mikið að með öllum sínum rigningum og lægðagangi. Þá var heyið gjarnan flutt á vörubíl að hlöðunni og því svo mokað inn með kvíslum. Þá var nóg að gera fyrir börn og unglinga að troða niður heyið, þjappa því saman, í hlöðunni til að koma sem mestu fyrir þar. Það af heyinu sem ekki komst inn í hlöðu var síðan sett í fúlgu við hlöðuna og það þótti mikil kúnst að hlaða fúlguna rétt svo hún verði sig sem best í rigningu. Í þeim tilgangi var oft breiddur strigi eða segl ofan á hana þannig að vatnið rann út af fúlgunni en ekki inn í heyið.
Mundi310
Ísleifur Þorbjörnsson til vinstri (handleggsbrotinn) Magnús B. Jónsson til hægri. Hinir eru óþekktir. Myndin var líklega tekin snemma á sjöunda áratugnum.
1

13
14
15

167
Leita í myndasafninu
Leita