Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson661
Eldurinn er að ná sér á strik í áramótabrennunni 2010 enda nýbúið að kveikja í. Fólk fylgist með og spjallar á þessum síðasta degi ársins meðan það bíður eftir hápunkti kvöldsins sem er flugeldasýning björgunarsveitarinnar Strönd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 348
Þessi mynd var tekin þegar Kristján Eldjárn forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1969. Á henni ganga prestar úr kirkju. Frá vinstri: Séra Sigurður Stefánsson vígslubiskup Möðruvöllum, séra Pétur Þ. Ingjaldsson Skagaströnd, séra Lárus Arnórsson Miklabæ, óþekktur, séra Birgi Snæbjörnsson Æsustöðum og séra Kristján B. Ólafsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 391
Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 126
Neðstibær í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Neðstibær stendur í Norðurárdal og er löngu kominn í eyði.
Héraðsskjalasafn A-Hún 456
Laufey Ólafsdóttir - Sísí í Sævarlandi - á fermingardaginn sinn vorið 1954.
Héraðsskjalasafn A-Hún 273
Páll Jónsson (d.19.7.1979) Skólastjóri á Skagaströnd. Páll varð fyrsti skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd þegar Höfðahreppur varð til 1939 eftir skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjá hreppa. Sinnti hann því starfi allt til ársins 1966 er sonur hans Jón Pálsson tók við.
Héraðsskjalasafn A-Hún 462
Þessi mynd var tekin 5. ágúst 1933 á brúðkaupsdegi þeirra séra Helga Konráðssonar (d.30.6.1959) og Jóhönnu Petreu Þorsteinsdóttur (d.1973) á Höskuldsstöðum.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn005
Hrafnhildur Jóhannsdóttir úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd tekur hér við verkefnablaði á einhveju skátamóti kringum 1960. Skátadrengurinn er óþekktur.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 017
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þeir Hallbjörn Hjartarson til vinstri og Magnús B. Jónsson frá hægri. Myndina tók Jónas Baldursson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 264
Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd og Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum á sýslunefndarfundi þar sem þeir voru fulltrúar hvor síns sveitarfélags í nefndinni.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn009
Fánahylling á skátamóti að Hólum í Hjaltadal. Dagur frá 4. september 1963 segir frá þessu skátamóti á eftirfarandi hátt undir fyrirsögninni: "SKÁTAMÓT AÐ HÓLUM Í HJALTADAL". <br>"Um s.l. helgi gengust St.Georgs-skátar á Akureyri fyrir útilegu að Hólum í Hjaltadal. Þar voru samankomnir skátar frá Höfðakaupstað, Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Dalvík og Akureyri, um 70 manns. <br>Laugardagskvöldið leið við leiki og varðeld, en á sunnudagsmorgun kl. 10 f.h., að afloknum föstum dagskrárliðum, svo sem morgunþvotti, tjaldskoðun og fánahyllingu, var gengið til kirkju þar sem sr. Björn Björnsson sagði sögu kirkjunnar og kirkjugripa, að aflokinni bænagjörð.<br>Eftir hádegi lögðu 29 skátar frá Akureyri og Dalvík af stað á heyvagni dregnum af dráttarvél, og var ekið að Skriðulandi í Kolbeinsdal og þaðan síðan gengið sem leið liggur, fram Kolbeinsdal og yfir Heljardalsheiði og var komið niður að Atlastöðum í Svarfaðardal eftir 7 klst. rólega göngu. <br>Þeir, sem eftir urðu á Hólum, gengu upp í Gvendarskál og yfirgáfu síðan staðinn um kl.5."
Héraðsskjalasafn A-Hún 292
Sigurlaug Indriðadóttir (d.15.5.1953) frá Ytri-Ey.
Héraðsskjalasafn A-Hún 332
Hjónin Auður Lundfríður Sigurðardóttir (d. 6.4.2009) og Ingimar Sigvaldason (d. 4.5.1991) bændur á Króki og seinna Hróarsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 458
Spariklædd frændsystkin í sumarblíðu. Drengurinn er Kristján Helgi Gunnarsson og stúlkan er frænka hans Ingibjörg Engilbertsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 254
Fritz Berndsen (1837-1927) og kona hans Jónína Jónsdóttir (1855 - 1933). Hjónin bjuggi í Árnesi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 378
Ekki er vitað hvernær þessi mynd var tekin né tilefni myndatökunnar. Á henni eru frá vinstri: Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004) frá Kálfshamri og síðar lengi á Skagaströnd, Arndís Ágústsdóttir Baldurs (d.31.3.1990) Blönduósi, Alma Steihaug Ellertsdóttir (d. 6.10.2000) Blönduósi og Björk Axelsdóttir frá Skagaströnd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 061
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið vinstra megin við borðið til vinstri eru: Þórhalla Þórhallsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Svava Sigurðardóttir, óþekkt, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Grétar Smári Hallbjörnsson og Rósa Björg Högnadóttir. Hægra megin við borðið eru: Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016), Sólveig Róarsdóttir, óþekkt og Gunnar Jónsson. Við borðið til hægri má þekkja Dagný Hannesdóttur.<br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 117
Hólaneshúsið á Skagaströnd. Til hægri sér í nokkur hús við Fellsbraut en til vinstri eru Þorfinnshús (Bogabraut 9) og Bláland.
Héraðsskjalasafn A-Hún 372
Guðrún Sigurðardóttir (d.?9.1.1964?) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 224
Björg Ólafsdóttir (d. 1953) frá Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð)
Jón Jónsson 423
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Hökuldsstaðakirkju en líklega hefur það verið einhverntíma 1978-1980. Tilefnið gæti verið fjölskyldumessa eða sunnudagaskóli. Drengurinn í bláu úlpunni á öðrum bekk er Ólafur Kristjánsson frá Höskuldsstöðum og við hlið hans er Magnús Björnsson frá Syðra-Hóli. Konan í gráa jakkanum er Ingibjörg Jósefsdóttir frá Enni og maðurinn aftan við hana til vinstri er Einar Guðmundsson frá Neðri-Mýrum. Aðrir á myndinni eru óþekktir þannig að ef þú þekkir einhverja á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 948
Þessi strákur er óþekktur. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær né hvar. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 080
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd er hljómsveitin Sniglabandið að leika fyrir dansi á unglingadansleik 29.mars 1994. Í texta með myndinni kemur fram að 40 unglingar hafi mætt á dansleikinn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 189
Hafsteinn J. Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) með tvo til reiðar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 469
Séra Jón Pálsson (d. 18.9.1931) prestur á Höskuldsstöðum 1891 - 1931.
Jón Jónsson 431
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987), sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á henni eru synir hennar og Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981) ásamt eiginkonum sínum. Frá vinsttri: Árni Ólafur Sigurðsson, Hlíf Sigurðardóttir, Reynir Sigurðsson, Anna Heiður Guðmundsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 230
Fritz Hendrik Berndsen (d. 20.6.1927) kaupmaður Hólanesi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 306
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) prestsfrú á Skagaströnd flytur hugvekju í ókunnri kirkju.
Jón Jónsson 371
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Fremst á myndinni má sá bakið á Guðmundi Jóhannessyni og Hrafnhildi Jóhannsdóttur að dansa. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Jónsdóttir (stendur), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) (situr), Þórey Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir en hinar konurnar eru óþekktar.
Jón Jónsson 388
Myndin var tekin 1985 á sjómannadegi þegar Lárus Ægir Guðmundsson, fyrir hönd sjómannadagsráðs, heiðrar Guðbjart Guðjónsson (d. 23.9.1992) til vinstri og Harald Sigurjónsson (d. 13.5.1986) með heiðurmerki sjómannadagsins.
Héraðsskjalasafn A-Hún 281
Systurnar Sigurbjörg Jónsdóttir og Ragnhildur Jónsdóttir frá Skaga.. Annað er ekki vitað um þessar systur. Ef þú þekkir eitthvað til þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 416
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru hjónin Þorvaldur Skaftason og Erna Sigurbjörnsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 305
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) prófastur og sóknarprestur á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 759
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að vinna við upphleðslu á grunninum undir húsið.
Jósef H Sigurðsson - safn 047
Grétar Smári Hallbjörnsson til vinstri og Jósep Hjálmar Sigurðsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 797
Þessi mynd var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni árið 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu og meðal skemmtiatriða voru ýmis konar hestasýningar. Þar á meðal átti að snara kálf af hestbaki.Kálfurinn var reyndar ekkert hrifinn af uppátækinu og stauk úr gerðinu þannig að sýningaratriðið var í hættu um tíma. Allt fór þó vel og kálfurinn var snaraður eins og vera bar. Myndin sýnir nokkra hestamenn sem eru að ráða ráðum sínum og fólkið bíður eftir framkvæmdinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 757
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru ungir menn á vegum áhaldahússins að leggja gúmmímottur undir eitt af leiktækjunum. Slíkar gúmmí-mottu-hellur eiga að koma í veg fyrir slys því þær eru tiltölulega mjúkar. Ungu mennirnir eru frá vinstri: Óskar Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Indriði Björnsson.
Jón Jónsson 437
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru Lárus til vinstri á tali við Adolf J. Berndsen oddvita Höfðahrepps á árunum 1978 - 1990. þeir voru því nánir samstarfsmenn lengst af þeim tíma sem Lárus var sveitarstjóri.
Hallgrímur Kristmundsson safn017
Síldarbátarnir Leifur Eiríksson frá Dalvík og ?? Magnússon frá Hrísey í höfn og hásetarnir á spjalli afturá meðan karlinn tvístígur í stýrishúsinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 303
Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) frá Brúarlandi á Skagaströnd. Ingvar, sem bjó lengi í Norður-Skála, var hreppsstjóri Höfðahrepps í allmörg ár meðfram því að stunda verkamannavinnu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 8
Mennirnir í þessum vinnuflokki eru óþekktir nema sá sem hringur hefur verið dregin um. Hann er Hannes Sigurður Einarsson (1895 - 1940) frá Óseyri á Skagaströnd. Ekki er vitað hvað mennirnir voru að starfa við en það gæti hafa verið mótaka eða vegagerð.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 049
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í rútu í ferðinni af mæðgunum Önnu Guðrúnu Ásgeirsdóttur og Sigrúnu Guðmundsdóttur. Anna Guðrún er að gera grín sem greinilega hrífur vel.
Ólafur Bernódusson579
Myndin var tekin á loftinu í Hólaneskirkju einhverntíma kringum 1997 af unglingastarfi sem þar fór fram. Fremst frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, óþekktur, Eyþór Ernstsson og Jón Oddur Hjálmtýsson. Miðröð frá vinstri: Gunnlaugur Briem?, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir), Birna Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 375
Stúdentarnir Ómar Árnason (1936 - 11.6.2011) tryggingastærðfæðingur frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) og Guðrún Ólafía Jónsdóttir (1935 - 2.9.2016) arkitekt frá Þingeyrum. Ómar og Guðrún voru hjón en slitu samvistum.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn002
Á þessari mynd frá 1960 er Þórður Jónsson (d.25.12.2009), félagsforingi skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd, eini karlmaðurinn innan um kvenskáta frá Skagaströnd og Blönduósi. Við hlið hans í ljósum fötum situr ónefndur skátaforingi frá Finnlandi og við hlið hennar er Gunnhildur Þórmundsdóttir skátaforingi á Blönduósi. Standandi í öftustu röð eru, frá vinstri: óþekkt, Sigrún Kristófersdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Pálína Benjamínsdóttir, Helga Ólafsdóttir, óþekkt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Fjóla Jónsdóttir og Birna Guðjónsdóttir. Í fremstu röð, með liðað ljóst hár, er Ingibjörg Kristinsdóttir. Aðrar stúlkur á myndinni eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd í gegnum vefinn eða á netfangið
[email protected]
.
Héraðsskjalasafn A-Hún 280
Myndin er af Júlíusi Guðjónssyni? sem var sonur Regínu Sigríðar Indriðadóttur (1858 - 1913) frá Ytri-Ey.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 082
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd treður eigandi Kántrýbæjar, Hallbjörn Hjartarson alias "Kúrekinn", upp með hljómsveitinni Skytturnar hinn 17. júlí 1994 fyrri 125 manns sem keyptu sig inn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 371
Sr. Davíð Guðmundsson (1834-27.9.1905) var ættaður frá Vindhæli á Skagaströnd, sonur hjónanna Guðmundar hreppstjóra Ólafssonar bónda þar og fyrri konu hans Ingibjargar Árnadóttur, prests að Hofi á Skagaströnd, Illugasonar. Jón Árnason þjóðsagnasafnari var þannig móðurbróðir sr. Davíðs. Sr. Davíð kvæntist Sigríði Ólafsdóttur Briem (d.2.11.1920). Meðal barna þeirra hjónanna var Ólafur þjóðsagnasafnari og Ragnheiður sem giftist Stefáni alþingismanni í Fagraskógi, Stefánssyni, en þau voru foreldrar Davíðs skálds. Séra Davíð var ötull maður sem kom víða við, m.a. stundaði hann þýðingar og skrifaði stafrófskver til lestrarkennsu. <br>Davíð bjó að Hofi í Hörgárdal og var lengst af prestur í Möðruvalla-prestakalli og prófastur var hann í Vaðlaþingi 1876-1897, þingmaður Skagfirðinga 1869-1873.<br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 703
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þrír ungir menn úr vinnuskólanum að slétta svæðið þar sem þrír Olís-tankar stóðu. Svæðið var síðan þökulagt og gert aðlaðandi til útivistar. Ungu mennirnir eru frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Viktor Örn Valdimarsson og Torfi Friðrik Magnason.
Héraðsskjalasafn A-Hún 139
Kvennaskólinn á Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Skólinn var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga og hóf starfssemi á þessum stað 1883. Skólinn var í þessu húsi til 1901 þegar hann var fluttur í nýbyggt hús á Blönduósi. Skagfirðingar tóku þátt í rekstrinum meðan skólinn var á Ytri-Ey en hættu þátttöku þegar hann var fluttur til Blönduóss.
Ólafur Bernódusson620
Kántrýhátíð í ágúst 2001 lauk með flugeldasýningu í kvöldrökkrinu á sunnudagskvöldinu. Þetta atriði var einn af föstu liðunum á kántrýhátíðunum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 112
Mánaskál í Laxárdal. Mánaskál var komin í eyði en er nú aftur komin í ábúð.
Héraðsskjalasafn A-Hún 172
Jón Sigurðsson (d. 20.9.1990) frá Mánaskál í Vindhælishreppi (nú Skagbyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 429
Karla Ingibjörg Helgadóttir (!893-25.9.1986) Ásbergi á Skagaströnd. Maður Körlu var Fritz H. Magnússon (d.19.10.1965)
Héraðsskjalasafn A-Hún 294
Medónía Indriðadóttir (1861 -?) frá Ytri-Ey. Medónía flutti vestur um haf og bjó þar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 236
Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 330
Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002) frá Óseyri og seinna Bjargi og Breiðabliki. Var sambýliskona Bjarna Jóhanns Jóhannssonar (d. 12.9.1971) en þau áttu saman átta börn en eitt þeirra dó í frumbernsku.
Héraðsskjalasafn A-Hún 143
Ás í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd).
Jón Jónsson 417
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru fermingarbörnin 20 árum síðar. Þau eru frá vinstri: standandi: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Finnur Kristinsson, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir og Svanhvít Halla Pálsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 353
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
1
…
141
142
143
…
167
Leita í myndasafninu
Leita