Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 211
Jakob Jósefsson (d. 1907) frá Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún virðist hafa verið tekin um borð í skipi.
Páll J. Pálsson safn 11
María Ólafsdóttir (d.4.7.1975) tíu ára gömul 1913. María giftist síðar Páli Tómassyni (d.3.6.1963) og bjó með honum á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð árin 1923 - 1960. Saman eignuðust þau níu börn.
Ólafur Bernódusson656
Fasteignaeigendur í Smábæ buðu gestum og gangandi í heimsókn á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2010. Eins og sjá má hafði mikil vinna verið lögð í að gera Smábæ sem snyrtilegastan og boðið var upp á brúðuleikhús í tilefni dagsins. Fljótlega eftir að þessi mynd var tekin splundraðist hópurinn út um allt því yfir flaug flugvél og kastaði út karamellum sem þurfti að flýta sér að tína upp.
Árni Geir Ingvarsson - safn 733
Hallbjörn Björnsson rafverktaki hjá Neistanum sinnir einhverri fínvinnu við dælu eða mæli á ókunnum stað.
Héraðsskjalasafn A-Hún 138
Ytri Hóll í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) ? Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson653
Stefán Velemir situr á nýrri sláttuvél sinni og Róbert Björn Ingvarsson aðstaðamaður hans stendur með hrífuna. Stefán byrjaði mjög snemma á að taka að sér garðslátt fyrir fólk. Það þróaðist fljótlega út í allsherjar sláttuþjónustu þar sem hann bætti við sig að slá opin svæði í sveitarfélaginu. Til þess að það gengi upp þurfti hann auðvitað að eiga góð tæki og sláttuvélin á myndinni reyndist honum vel. Myndin var tekin 3. júlí 2009 nokkrum dögum áður en Stefán varð 15 ára.
Héraðsskjalasafn A-Hún 171
Hjónin Soffía Aðalheiður Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) og Hafsteinn J. Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 299
Árni Stefán Björnsson (1898-1978) tryggingafræðingur sonur Björns Árnasonar (1870-1932) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) með konu sinni Sigríði Björnsdóttur (d.?). Myndin var tekin af þeim hjónum á ferð í Róm.
Árni Geir Ingvarsson - safn 740
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er verið að vinna á lóðinni. Vilhjálmur Jónsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri leggja hellusteina á göngustíg og Gunnar Þór bílstjóri fylgist með.
Héraðsskjalasafn A-Hún 110
Systkini frá Syðra Hóli. Magnús Björnsson (d.20.7.1963) bóndi og fræðimaður er til vinstri, Guðrún Ragnheiður Björnsdóttir (d. 6.11.1958) og Lárus Björnsson (d. 30.9.1985) smiður á Akureyri.
Jósef H Sigurðsson - safn 051
Drífa Kristjánsdóttir og Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015).
Árni Geir Ingvarsson - safn 734
Hér er verið að vinna við undirstöðu skiltis við Tjaldklaufina í Höfðanum. Þarna er nú komið upplýsingaskilti sem sýnir gönguleiðina um Höfðann því þarna er einn af upphafsstöðum hennar. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson og Vilhelm Harðarsson stjórnar bílkrananum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 170
Hjónin Helga Guðrún Guðmundsdóttir og Kristján Guðmundur Sigurðsson (d.4.12.2019) frá Höskuldsstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 463
Bræðurnir séra Helgi Konráðsson (1902 -30.6.1959) prestur á Hökuldsstöðum og Sauðárkróki og Hjálmur Konráðsson (1895 -17.12.1933) framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 927
Strandferðaskipið ms Skjaldbreið kemur til hafnar á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). <br>Ms Skjaldbreið var lengi í strandsiglingum á Íslandi en 16. janúar 1962 strandaði skipið á skeri nálægt Bjarnarey á Breiðafirði í vonsku veðri. 18 manns voru um borð og komust níu þeirra við illan leik í gúmmíbát sem þá slitnaði frá skipinu og rak burt. Því fólki var bjargað eftir fjóra og hálfan tíma um borð í vélbátinn Sigurfara. Skjaldbreiðin rann fljótlega af skerinu með lestarnar fullar af sjó en skilrúm héldu þannig að hægt var að dæla sjó úr vélarrúm með eigin dælum skipsins. Því var lagt við ankeri á staðnum því ekki þótti óhætt að hreyfa það í svo vondu veðri. 18. janúar fór skipið svo fyrir eigin vélarafli til Stykkishólms í fylgd með varðskipinu Þór. Þar voru lestarnar þéttar til bráðabirgða en síðan fór það til Reykjavíkur í fylgd vaðskipsins. (Heimild: Morgunblaðið 13. og 14. tölublað 17.og 18.janúar 1962)
Héraðsskjalasafn A-Hún 71
Víkur í Skagahreppi nú Skagabyggð.
Héraðsskjalasafn A-Hún 261
Bjarni Guðmann Jónasson (1896-1981) frá Eyjólfsstöðum til vinstri, Ingvar St. Pálsson (1895-1968) frá Balaskarði og fleiri skólasystkin 1912-1913 í alþýðuskólanum á Hvítárbakka. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 232
Systurnar Kristín Pétursdóttir (d. 5.12.1989), Sigurlaug Pétursdóttir (d. 7.9.1986) og Jóna Pétursdóttir (d. ?) Karlsminni á Skagaströnd áður frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 436
Stefán Jón Björnsson (1905 - 29.8.1998) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Stefán starfaði á Skattstofu Reykjavíkur 1930 - 1975 fyrsti sem almennur starfsmaður en frá 1941 sem skrifstofustjóri þar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 79
Gísli Brandsson (d. 1902) frá Úlfagili húsmaður á Breiðavaði og Balaskarði. Hann var stundum kallaður Laufagosi því hann hafði gaman af að spila. Hann smíðaði spæni fyrir fólk eins og þann sem hann hefur í hægri hendi á myndinni, Gísli var hagyrðingur og gerði töluvert af lausavísum. Hér er ein þeirra líklega gerða af gefnu tilefni:<br> Enginn tekur upp í nef<br> Enginn vekur samviskuna<br> Einhver sekur er um þef<br> Einhver rekur við til muna. <br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 278
Hjónin Sigurður Indriðason (1863- 25.11.1949) frá Ytri-Ey og Guðrún Pálsdóttir kona hans. Sigurður var tvígiftur og bjó með fjölskyldu sinni til skiptis á Íslandi og í Kanada þar sem hann lést 25.11.1949. Sigurður var bróðir Indriða Jóns á mynd 10016 og Regínu Sigríðar á mynd 10017.
Jón Jónsson 396
Halkion VE 27 var keyptur frá Vestmanneyjum til Skagastrandar 1960 og hlaut nafnið Máni Hu 5. Báturinn var dæmdur ónýtur 1965. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægir Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 758
Bræðurnir Guðmundur J. Björnsson til vinstri og Sigurður F. Björnsson til hægri við framkvæmdir vegna endurbyggingar Árness sem sést lengst til vinstri á myndinni. Guðmundur rak vélaleigu, þar með talið gröfuþjónustu, í áratugi á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 729
Hallbjörn Björnsson rafverktaki hjá Neistanum sinnir einhverri fínvinnu við dælu eða mæli á ókunnum stað.
Héraðsskjalasafn A-Hún 446
Þessar kvenfélagskonur eru óþekktar. Hjá Héraðsskjalasafninu er ranglega sagt að þetta séu konur úr kvenfélaginu Eining á Skagaströnd því það eru konurnar ekki. Ef þú þekkir einhverja þessara prúðbúnu kvenna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 450
Myndin var tekin 1985 í Rækjuvinnslunni hf. Á henni eru karlarnir á vaktinni í kaffipásu. Frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Sigurður Bjarnason og Grétar Haraldsson.
Jón Jónsson 438
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru þau hjónin Lárus Ægir og Bjarney Valdimarsdóttir að taka á móti gestum við heimili sitt á Hólabraut 24.
Árni Geir Ingvarsson - safn 676
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Sitjandi frammi á sal eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Ingibergur Guðmundsson. Ártalið er óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 027
Þessi mynd var tekin 25. febrúar 1993. Ekki er vitað um tilefnið né hvar hún var tekin en á henni eru frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), óþekktur, Unnur Kristjánsdóttir kennari, Bjarnhildur Níelsdóttir og Elva Dröfn Árnadóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 66
Bakki í Skagahreppi nú Skagabyggð. Nýja íbúðarhúsið er til vinstri en gamli bærinn er til hægri. Hluti hans var byggður um 1900 en efri hæðinn þar var byggð 1943. Nýja húsið var byggt á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 748
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og krakkarnir eru að prófa nýju kastalann, sérstaklega rennibrautina. Í henni er Sindri Björnsson en hin börnin eru óþekkt.
Jón Jónsson 443
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Vinstra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt og Svanhildur Lýðsdóttir. Hægra megin við borðið, frá hægri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, óþekkt, Gréta Haraldsson og Ingvar Þór Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 004
Hjónin Steinunn Steinþórsdóttir og Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) á ferðalagi í rútu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hallgrímur Kristmundsson safn043
Guðmundur Jóhannesson líklega í Listigarðinum á Akureyrir einhverntíma kringum 1950.
Jón Jónsson 398
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né um hvaða leiksýningu er um að ræða. Líklega hefur sýningin þó verið á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Standandi lengst til vinstri er Óskar Óskarsson. Þorvaldur Skaftason situr og er í rauðu vesti. Hægra megin við Þorvald er Guðjón Árnason? Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú veist hvaða leiksýningu er hér um að ræða eða þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 51
Vindhæli í Skagabyggð áður Vindhælishreppi.
Ólafur Bernódusson680
Fjallganga á Spákonufellsborg er hressandi og á allflestra færi enda nýtur leiðin sívaxandi vinsælda. 5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. Leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er gönguhópurinn búinn að stilla sér upp til myndatöku við vörðuna uppi á Borgarhausnum. Eins og sjá má er fólkið á öllum aldri 4 - 74 ára þannig að það var 70 ára aldursmunur á yngst og elsta göngugarpinum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 439
Árni Árnason (1866- 25.9.1953) og Þuríður Kristjánsdóttir (1861-1943) frá Þverá í Hallárdal.
Jón Jónsson 439
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru gestir hans úti á verönd að taka lagið saman. Frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Guðmundur Jóhannesson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Guðný Finnsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Elín Njálsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Sigfús Jónsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) og Sveinn Ingólfsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 770
Þeir eru miklir golfáhugamenn Hafþór Gylfason til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri. Á myndinni eru þeir að búa í haginn á golfvellinum með því að smíða eitthvað, líklega girðingastiga, til að koma fyrir á Háagerðisvelli. Aðstöðu fyrir smíðina fengu þeir í áhaldahúsi hreppsins þar sem myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 234
Pálina Sigurðardóttir (d. ?) frá Höfnum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 722
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Amy Ósk Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 867
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið og bílastæðið. Pallurinn á myndinni til hægri var danspallur sem reistur var í tilefni hátíðarinnar.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 091
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Stundum tók Hallbjörn Hjartarson, eigandi Kántrýbæjar, lagið með listamönnunum sem komu. Á myndinni er Hallbjörn í góðu stuði á sviðinu 22.október 1994.
Ólafur Bernódusson652
Bogabraut 19 jólaskreytt í kvöldhúminu 15.desember 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 710
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og fólkið er óþekkt nema stúlkan í miðjum hópnum er Helga Dögg Jónsdóttir frá Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 238
Hafursstaðir Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson650
Helga Ólína Aradóttir þroskaþjálfi og sérkennari böðuð í vetrarsól.
Héraðsskjalasafn A-Hún 92
Hvammkot, sem nú er horfið, stóð norð-austan við Hof í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Bærinn fór í eyði 1949.
Héraðsskjalasafn A-Hún 223
Fjölskylda á Stóra-Bergi (seinna á Hjalteyri) Kristján Pálsson (d. 27.5.1943 ? ) og Margrét Jónsdóttir (d. ?) með barn sitt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 741
Á myndinni er verið að steypa kantsteina í beygjunni vestan við Einbúann. Verktakar komu og steyptu slíka kanta víðs vegar um bæinn en síðan hafa víða verið gerðar gangstéttar innan við kantsteininn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 366
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru nokkrir krakkar að flytja skemmtiatriði sitt. Á miðri mynd er Gunnar Halldór Hallbjörnsson að lesa upp en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 437
Björn Árnason (1870 - 24.8.1932) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Björn fæddist að Þverá í Hallárdal en varð seinna bóndi, hreppsstjóri og kennari á Syðri-Ey.
Hallgrímur Kristmundsson safn018
Á þessari mynd er Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) lengst til hægri af þeim sem standa. Konurnar við hlið hans gætu verið Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) Karlsskála ljósklædd og ?Sigríður Ásgeirsdóttir? (d. 11.12.2006) Lækjarbakka dökklædd. Þau/þeir sem sitja eru óþekktir/óþekkt. Ekki er vitað hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson677
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er Hafþór Gylfason að láta líða úr sér uppi á Borgarhausnum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 304
Sigurjón Ólafsson (d.20.7.1946) sem var maður Önnu Pétursdóttur (d. 30.10.1958) frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 736
Myndin er af Vilhjálmi Jónssyni þar sem hann er að hlaða steinavegg á skólalóð Höfðaskóla.
Hallgrímur Kristmundsson safn062
Líklega er þetta Kristmundur F. Jakobsson (d.1.5.1976) frá Árbakkabúð. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 376
Fjölskylda. Hjónin eru Jón Árnason (1864-1944) prestur frá Þverá í Hallárdal og konan er Jóhanna Pálsdóttir (1866-1949). Börnin eru frá vinstri: Sigríður Jónsdóttir (1892-1977), Anna Guðrún Jónsdóttir (1900-1982), Svanlaug Jónsdóttir (1903-1983) og Páll Jónsson (1895 - 1910). Séra Jón var sóknarpretsur í Otradal í Barðastrandasýslu og síðar á Bíldudal.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 095
Veturinn 1995 var mjög snjóþungur og illviðrasamur. Þessi mynd var tekin 24. febrúar 1995 og sýnir Kántrýbæ eldri á kafi í snjó. Inngangurinn var að sunnanverðu og því er búið að moka frá dyrunum þeim megin. Greinilega kunnu börnin vel að meta snjóinn því þau eru búin að búa sér til rennibraut frá mæni hússins og niður á götu.
1
…
143
144
145
…
167
Leita í myndasafninu
Leita