Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 383
Myndin var tekin af þessum tveimur heiðursmönnum í tengslum við fund hjá sýslunefnd A-Húnavatnssýslu þar sem þeir voru báðir kjörnir nefndarmenn síns sveitarfélags. Vinstra megin er Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) á Skagaströnd fyrir Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) og til hægri er Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum fyrir Sveinsstaðahrepp (nú Húnavatnshreppur).
Árni Geir Ingvarsson - safn 700
Það getur verið erfitt að halda sér vakandi á heimstími í góðu veðri eftir langan og erfiðan dag á miðunum. Það fékk eigandi og eini áhafnarmeðlimur Beggu Gk 717 að reyna 23. júlí 2007 þegar hann vaknaði með andfælum við að vera kominn langt upp í fjöru í Vækilvíkinni á Höfðanum. Það var lán í óláni að hann hitti á víkina en keyrði ekki á fullri ferð í klettana sem eru beggja vegna við víkina. Báturinn skemmdist nokkuð við slysið missti stýrið, skrúfan ónýttist og leki kom í ljós í lúkar. Maður slasaðist lítilega en gekk þó þurrum fótum frá bátnum á strandstað.
Jósef H Sigurðsson - safn 058
Hugrún Sigurðardóttir lætur fara vel um sig heima í Hólaneshúsinu. Hugrún fæddist 1973.
Elínborg Jónsdóttir - safn 15
Texti með þessari mynd segir:"Guðrún". Líklega er þetta Guðrún Halldórsdóttir (d.2.5.2012) forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur, kennari og alþingismaður. Hún var mikil vinkona Elínborgar M. Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara og fræðimanns frá Másstöðum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 288
Samkvæmt upplýsingum Héraðsskjalasafns A-Hún eru þetta þær Elín Rannveig Jónsdóttir (1899-28.6.1984), Margrét Jónsdóttir og ókunn frá Hökuldsstöðum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 357
Hjónin Steinunn Þórdís Siemsen (d. 29.10.1953) og Carl Berndsen (d. 15.12.1954). Carl var kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Skagaströnd í rúmlega hálfa öld; 1896 - 1947. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 140-141).
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn011
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum á leið upp í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni eru þeir að taka pásu áður en lagt er á mesta brattann. Á myndinni eru þekktir nokkrir skátar úr Sigurfara á Skagaströnd. Lengst til vinstri situr Ólafur Bernódusson, fimmta frá vinstri í grárri peysu er Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Gissur Jóhannsson situr við steininn lengst frá okkur. Þorvaldur Skaftason er sá með svarta hattinn, Karl Lúðvíksson krýpur á steininum og Sigurjón Ástmarsson stendur á honum lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hallgrímur Kristmundsson safn009
Ekkert er vitað um þennan ómerkta bát né heldur hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugsemd um það.
Árni Geir Ingvarsson - safn 941
Ms Helgafell I, smíðað 1954. Þessa mynd af Helgafellinu tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á sjötta ártugnum.<br><br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 346
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið að Hólum í Hjaltadal. Ekki er heldur vitað hvenær hún var tekin. Á henni eru frá vinstri prestarnir: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), séra Gísli Kolbeins og séra Sigurður Guðmundsson (d. 9.1.2010) vígslubiskup að Hólum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 754
Hér eru þeir á kunnuglegum slóðum tengdafeðgarnir Magnús B. Jónsson til vinstri og Viggó Brynjólfsson til hægri. Viggó byrjaði ungur að vinna á eigin jarðýtum og öðrum vinnuvélum og Magnús vann lengi á þessum tækjum hjá tengdaföður sínum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 316
Sigurlaug Björnsdóttir (d. 15.9.1989) frá Veðramóti í Gönguskörðum. Hún var dóttir Björns Jónssonar bónda og hreppsstjóra í Háagerði á Skagaströnd og konu hans Þorbjargar Stefánsdóttur frá Heiði í Gönguskörðum í Skagafirði.
Héraðsskjalasafn A-Hún 320
Sigrtyggur Bergsson (1890- 8.8.1928) ráðsmaður í Tungu var giftur Helgu Brynjólfsdóttur frá Engey.
Jósef H Sigurðsson - safn 030
Hjörtur þórarinn Sigurðsson (d. 9.5.2015) úr Hólaneshúsi í tjaldútilegu.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 028
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Jón Ingvar Valdimarsson, Sigríður Einarsdóttir, Gunnar Ásgeirsson, Erla Kristinsdóttir og óþekktur.
Hallgrímur Kristmundsson safn041
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af fólki að vinna við síldartunnur á bryggjusporði. Líklega er verið að pækla tunnurnar en það fólst í því að bæta saltlegi á tunnurnar eftir að þær voru fylltar, hafði verið lokað og látnar standa í nokkra daga. Til að þetta væri hægt var haft gat - spons - á hlið tunnunnar og trétappi rekinn í. Tunnurnar voru svo geymdar liggjandi á hliðinni til að síður læki úr þeim. Ef þú þekkir hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 921
Trillubátur á ferð í hvítalogni á Reykjarfirði fram af Kúvíkum en þar átti ljósmyndarinn, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), heima á þeim tíma sem myndin var tekin líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 694
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru þeir Hafþór Gylfason til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri í hlutverkum sínum. Ártalið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson636
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Steindór R. Haraldsson búinn að koma sér vel fyrir í skjóli fyrir norð-austan gjólunni, sem var þennan dag, meðan hann hlustar á Magnús B. Jónsson sveitarstjóra lýsa gönguleiðinni fyrir opnunina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 717
Eftir að þökur hafa verið lagðar er nauðsynlegt að vökva þær vel. Á þessari mynd vökva, með brunaslöngu, nýlagðar þökur við Einbúann þær: Amy Ósk Ómarsdóttir til vinstri og Alma Eik Sævarsdóttir til hægri.
Jón Jónsson 426
Fermingarsystur í Höskuldsstaðakirkju vorið 1981 ásamt sóknarprestinum og konu hans. Frá vinstri: Signý Gunnlaugsdóttir (d. 4.5.2015) Balaskarði, Kristín Ásgerður Blöndal Blöndubakka, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Jófríður Jónsdóttir Sölvabakka og Anna Lilja Björnsdóttir Syðra-Hóli.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 032
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Guðmundsson, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Helgi Marínó Magnússon og Jón Ingvar Valdimarsson
Héraðsskjalasafn A-Hún 374
Fjölskyldan á Keldulandi í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Frá vinstri: Guðrún Ólafsdóttir (1866-apríl 1922), Sigurlína Lárusdóttir (1907-10.7.1986), Jón Lárusson (1903-1930), Ólafur Lárusson (1904-20.3.1933), Björn Lárusson (1902-20.3.1933) og Lárus Björnsson (1869-2.5.1936). Bræðurnir Ólafur og Björn fórust með bát frá Suðurnesjum ásamt tveimur öðrum mönnum. Annar þeirra var Karl Kristjánsson frá Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 851
Myndin var tekin aftur eftir trolldekkinu á Arnari Hu 1 skipaskrárnúmer 2173. Þessi Arnar var gerður út af Skagstrendingi hf árin 1993 - 1995 er hann var seldur til Grænlands.
Hallgrímur Kristmundsson safn008
Á myndinni eru feðginin, frá vinstri: Anna Kristmundsdóttir, Kristmundur Jakobsson (d.1.5.1976) og Ingibjörg Kristmundsdóttir frá Árbakkabúð á Skagaströnd.
Jósef H Sigurðsson - safn 045
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin en Þeir eru kátir, frá vinstri: Rúnar Jósefsson, Axel Gígjar Ásgeirsson og Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001).
Árni Geir Ingvarsson - safn 824
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu þegar Þröstur er að gefa leikurunum leiðbeiningar um það sem betur má fara. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Kristín Jónsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Viggó Magnússon, Jón Arnarson og bakið á Þresti leikstjóra.
Árni Geir Ingvarsson - safn 730
Smári Hf 122 slitnaði upp í höfninni og endaði upp í grjótvörninni í krikanum milli Sægarðs og Ásgarðs. Báturinn brotnaði eitthvað þannig að leki kom að honum. Hann var síðan tekinn á land og gerður sjóklár á ný.
Ólafur Bernódusson700
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd bindur Davíð Bragi Björgvinsson skóþveng sinn á æfingu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 413
Kvenfélagskonur í Skagahreppi (nú Skagabyggð), kvenfélagið Hekla. Sitjandi frá vinstri: Lísebet Gestsdóttir Brandaskarði, Svanlaug Halldórsdóttir Hólma (nú Króksseli) og Guðríður Jónasdóttir (d.20.4.1982) Steinnýjarstöðum. Standandi frá vinstri: Alda Friðgeirsdóttir Sviðningi (Kálfshamri), Ingibjörg Ólafsdóttir Örlygsstöðum, Árný Hjaltadóttir Steinnýjarstöðum og María Kristjánsdóttir Tjörn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 406
Þessi mynd var tekin 1939 á hlaðinu á Karlsminni á Skagaströnd. Því miður er fólkið á myndinni óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 849
Vala Rós Ingvarsdóttir heima á Bogabraut 16. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Héraðsskjalasafn A-Hún 205
Ólafur Árnason (d. 1915) frá Þverá í Hallárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 362
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru krakkar að sýna fimleika undir stjórn íþróttakennarans Ingu Matthíasdóttur. Frá vinstri: Inga Matthíasdóttir, Tinna Gunnarsdóttir?, Trausti Magnússon (efst), óþekkt, tvær óþekktar stúlkur, Elva Dröfn Árnadóttir, Kolbrún Ragnarsdóttir og Guðrún Helgadóttir (sitja) Bergþóra Guðjónsdóttir og Guðjón Hall Sigurbjörnsson efst.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 059
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þar sem fólk slakar á við barinn eftir erfiðar verslunarferðir dagsins. Fólkið er, talið frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Rósa Björg Högnadóttir, Grétar Smári Hallbjörnsson (nær) og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir (fjær).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 054
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Árni Björn Birgisson, Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Birgir Árnason (d. 2.2.2005) og Haraldur Árnason.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 093
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd er Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) í afgreiðslunni í Kántrýbæ innan um minjagripi sem seldir voru á staðnum. Amy var eiginkona Hallbjörns Hjartarsonar og því meðeignadi að Kántrýbæ. Myndin var tekin 28. október 1994.
Jón Jónsson 421
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru fermingarbörnin 20 árum eftir ferminguna ásamt hluta kennara sinna. Standandi frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Finnur Kristinsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) kennari, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari, Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir, Svanhvít Halla Pálsdóttir og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) kennari.
Jósef H Sigurðsson - safn 019
Sigríður Sigurðardóttir skoðar nýfæddan bróður sinn Hjört Þórarinn Sigurðsson (d. 9.5.2015) heima í Hólaneshúsinu. Sigríður, eða Sirrý eins og hún var kölluð á Skagaströnd, hefur verið rúmlega tveggja ára þegar myndin var tekin 1965 því Hjörtur heitinn fæddist 9. júní 1965 og aftan á myndinni stendur að hann hafi verið eins og hálfs vikna gamall þegar hún var tekin.
Páll J. Pálsson safn 24
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 veturinn 1964 þegar hann var á netaveiðum. Við rúlluna þ.e. lengst til vinstri er Gunnlaugur Árnason stýrimaður. Næstur honum er Jónatan Pálsson og bak við hann, með svart hár, sér í MagSveinbjörn Jónsson. Maðurinn með "sixpensarann" er Steingrímur Einarsson og bak við hann bograr Þorleifur Þórarinsson. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er aftur í ganginum við hliðina á stýrishúsinu að leggja niður netin. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina nær okkur við borðið er Pálmi Einarsson og lengst til hægri, ekki í stakk, er Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 002
Þessi mynd var tekin í saumaklúbb á heimili Amyar Eymundsdóttur í Brimnesi en ekki er vitað hvenær. Á myndinni er Árnína Guðrún Fossdal að lesa í bolla fyrir þær Þórunni Óladóttur til vinstri og Amy Evu Eymundsdóttur (d. 7.3.2012) til hægri.
Jósef H Sigurðsson - safn 012
Gunnar Reynisson um borð í óþekktum bát.
Jósef H Sigurðsson - safn 035
Þessi mynd var líklega tekin við Óseyri á Skagaströnd. Veiðimennirnir eru feðgar úr Hólaneshúsinu, frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) og Jósep Hjálmar Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson676
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni eru Adolf H. Berndsen og Guðbjörg Viggósdóttir að safna kröftum fyrir síðustu brekkunu upp á Borgarhausinn.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 023
Þessi mynd var tekin í skemmtiferð líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Á henni eru hjónin Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) (Elsa) og Gunnar Helgason (d.19.10.2007).
Héraðsskjalasafn A-Hún 218
Hjónin Margrét Jónsdóttir (d. 21.11.1986) og Karl H. Árnason (d. 25.12.1995) frá Víkum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 407
Hjónin í Árnesi á Skagaströnd þau Árni Björn Kristófersson (d. 11.10.1982) og Guðrún Sigurlína Teitsdóttir (d. 17.6.1978). Árni var verkamaður og frístundabóndi en Guðrún var mjög farsæl ljósmóðir.<br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 247 - Copy
Ytri-Björg í Skagabyggð (áður Skagahreppi).
Árni Geir Ingvarsson - safn 998
Ragnar Smári Ingvarsson að setja krem á mömmukökur heima í eldhúsi á Bogabraut 16. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1964.
Héraðsskjalasafn A-Hún 271
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) Frá Skagaströnd. Guðmundur var húsasmiður og umsvifamikill atvinnurekandi á Skagaströnd. Rak trésmíðaverkstæði og skipasmíðastöð auk þess að vera frumkvöðull að stofnun, og fyrsti framkvæmdastjóri, Rækjuvinnslunnar hf.
Héraðsskjalasafn A-Hún 387
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á þessari mynd ganga leikmenn og prestar úr gömlu kirkjunni til hinnar nýju með gripi sem tilheyra Höskuldsstaðakirkju. Fremstir ganga óþekktur maður til vinstri og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum til hægri. Á milli þeirra sér í Björn Jónsson (d.21.4.1992) frá Ytra-Hóli og við hlið hans, hægra megin er Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) frá Mánaskál. Aftan við Torfa sér í séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991)og skeggjaði presturinn er líklega séra Sigurður Norland (d. 27.5.1971) frá Hindisvík. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) frá Skagaströnd er aftast til vinstri en maðurinn í svörtu hempunni aftarlega er líklega séra Gísli H. Kolbeins. Ef þú þekkir einhvern óþekktu mannanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 973
Með lagni mátti koma fimm manns fyrir í gömlu Willis jeppunum. Það hefur líklega verið gert í þessu tilfelli. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er lengst til vinstri á myndinni en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 107
Ólafur Björnsson (d.10.10.1972) sjómaður á Akureyri. Ólafur var einn af systkinunum frá Syðra Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Hallgrímur Kristmundsson safn015
Hvar var þessi friðsæla mynd tekin? Á henni eru tvö eða þrjú handsnúin spil, tvö hús og tveir bátar. Ef þú veist hvar þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 036
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Erla Sigurbjörnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson, Hrönn Valgarðsdóttir, Ársæll Guðmundsson og Helgi Marínó Magnússon.
Héraðsskjalasafn A-Hún 173
Hjónin Björk Axelsdóttir kennari og Jón S. Pálsson kennari og skólastjóri frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson640
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að spá í gönguleiðarkortið einhversstaðar á leið sinni um Höfðann. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Hafliðadóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Björk Sveinsdóttir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 084
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd frá 5. ágúst 1994 treður unglingahljómsveitin T-Rex upp fyrir 50 manns. Hljómsveitin var skipuð ungum strákum frá Skagaströnd en þeir eru frá vinstri: Birkir Rafn Gíslason, Jón Ólafur Sigurjónsson, Sigurður Berndsen og Pétur Herbertsson. Birkir er sá eini þeirra sem lagt hefur tónlistina fyrir sig sem atvinnugrein.
Jón Jónsson 401
Þessi mynd var tekin af húsnæði plastverksmiðjunnar Mark hf við Oddagötu eftir bruna sem þar varð 14. apríl 1989. Var það í annað sinn á þremur árum sem stórbruni varð hjá fyrirtækinu. Eins og sjá má var húsið mjög illa farið eftir brunann. Húsið var stálgrindahús en hitinn í brunanum var svo mikill að stálstoðir og bitar undust upp og misstu alla burðargetu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 380
Magnús Daníelsson (d. 1.6.1993) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) með hundi sínum út á túni.
1
…
145
146
147
…
167
Leita í myndasafninu
Leita