Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 355
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu í Fellsborg, eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Steindór Haraldsson og Björk Sveinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 761
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd er verkið komið vel á veg undir yfirstjórn Helga Gunnarssonar verktaka á Skagaströnd. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) og Sigurður F. Björnsson smiðir frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Hjá þeim stendur Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að virða fyrir sér framvindu verksins.<br><br>
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 042
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni. Fólkið er, talið frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Birgir Árnason (d. 2.2.2005) maður hennar, Sólveig Róarsdóttir og Árni Björn Birgisson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 850
Þessi mynd var tekin þegar Arnar Hu 1 2173 kom til Skagastrandar rétt fyrir jól 1992 ný smíðaður í Bergen í Noregi. Karlarnir í brúnni eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipsstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson fyrsti stýrimaður, Ernst Berndsen 1. vélstjóri, Gylfi Sigurðsson stjórnarformaður Skagstrendings hf og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri fyriortækisins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 869
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hluta tjaldsvæðisins. Fólk kom víða að og margir gistu í tjöldum á svæðinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 773
Hallgrímur Jónsson (d.?) við kaffiborðið í áhaldahúsinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 347
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) flytur hátíðaræðu sjómannadagsins á Skagaströnd á sviðinu í gömlu Tunnunni. Ekki er vitað hvaða ár þetta var.
Hallgrímur Kristmundsson safn026
Á sínum tíma voru bílar eins og er á myndinni alltaf kallaðir drossíur. Orðið er lítið notað í dag og þá helst um gamla stóra fólksbíla. Samkvæmt Vísindavefnum á það uppruna sinn í rússnesku "drozki" sem þýðir víst ´vinnuvagn´. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin. Gaman væri líka að fá upplýsingar um hvaða tegund þessi drossía var.
Árni Geir Ingvarsson - safn 725
Gamli slökkvibíllinn á Skagaströnd sendur burt eftir að hafa verið leystur af hólmi með nýrri og fullkomnari bíl. Þessi var af Bedford gerð með öflugri dælu. Dælan og allur annar búnaður sem hægt var að nota áfram var tekin úr bílnum áður en hann var sendu burt á bílasafn.
Hallgrímur Kristmundsson safn067
Þessi þrjú hús stóðu upp undir Höfðanum mjög norðarlega. Húsið sem sér í til vinstri er Laufás en á miðri mynd er Melstaður og svarta húsið til hægri er Ægissíða. Laufás er eina húsið af þessum þremur sem enn stendur og er notkun þó ekki sé um fasta búsetu að ræða.
Jósef H Sigurðsson - safn 008
Auðbjörg Hu 6 í höfn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 865
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Þar var reistur danspallur því að víslu lokinni var dansað. Fjöldi manns sótti vígsuhátíðina meðal annars hópur á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík og gistu margir í tjöldum á svæðinu. Á þessari mynd er Borgarvirkið sjálft í baksýn.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn046
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004 ásamt nokkrum fylgifiskum. Frá vinstri: Kristín Birna Guðmundsdóttir og Rósa Björg Högnadóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 093
Myndin var tekin á hlaðinu hjá Hólaneshúsinu upp Fellsbraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Næst okkur eru áhaldahús hreppsins til vinstri og gamla Tunnan til hægri. Yfir Tunnuna sjást Hólaneskirkja (eldri), Litla-Berg (Fellsbraut 2) og Hjarðarholt (Fellsbraut 4) og Reykholt (Fellsbraut 6). Bak við áhaldahúsið sér í Herðubreið (Fellsbraut 1). Hægra megin við Tunnuna sér í, talið frá vinstri: Sólvellir, Iðavellir, Túnbraut 7 og Dagsbrún. Sum þessara húsa er nú horfin og ný komin í staðin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 448
Björn Árnason (1870 - 24.8.1932) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Björn fæddist að Þverá í Hallárdal en varð seinna bóndi, hreppsstjóri og kennari á Syðri-Ey. Björn bjó um tíma í Brimnesi á Skagaströnd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 012
Leikritið Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir (d.25.6.2009). Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Viggó Brynjólfsson í stiganum Elín Njálsdóttir (næst), Hallveig Ingimarsdóttir (í miðið) og Guðmundur Haukur Sigurðsson (fjærst), Lárus Ægir Guðmundsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Hallbjörn Hjartarson. Í stiganum má reyndar líka sjá handlegginn á Gunnari Benónýssyni (d. 29.7.2003) sem þar var ásamt hinum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 396
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) í Asparlundi á Skagaströnd síðast framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson674
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er áð við álfastein á leiðinni upp með Skagaströnd í baksýn. Hönd er lögð á steininn til að komast í samband við álfana í honum. Margrét Einarsdóttir reynir að ná sambandi með tvíþumla ullarvettling á hinni hendinni til að bæta sambandið. Beint aftan við Margréti er Ólafur Bernódusson og til hægri er Helgi Gunnarsson. Aðrir eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 243
Thomas Jarowsky Thomsen (d. 24.6.1877) kaupmaður (faktor) á Hólanesi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 449
Lárus Jónsson (d.3.7.1983) læknir frá Haga í Þingi. Lárus var læknir á Skagaströnd 1956 -1966 og var hann síðasti læknir Höfðalæknishéraðs en það var lagt niður 1973 og lagt undir Blönduóslæknishérað sem breytt var í heilsugæslustöð H2 sem hafa skyldi tvo lækna hið minnsta.
Árni Geir Ingvarsson - safn 878
Maðurinn uppi á stýrishúsinu er að skyggnast um eftir síldartorfum. Ekki er vitað hver maðurinn er en báturinn er Sæljón Re 317 sem var mikið aflaskip, varð meðal annars aflahæst síldarskipa 1957. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), sem tók þessa mynd, var lengi háseti á Sæljóninu þar með talið aflaárið 1957. Yfirleitt voru menn inni í skýlinu sem er aftan við manninn - bassaskýlinu - þegar þeir voru á útkikki eftir síldarvöðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 929
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) og vinkona hans með hvannir í fanginu líklega í Kúvíkum þar sem Herbert átti heima. Myndina tók Herbert líklega kringum 1940. Konan er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 787
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Frá vinstri: Þröstur Guðbjartsson leikstjóri, Guðjón Árnason hljóðmaður, Árni Geir Ingvarsson ljósameistari og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 792
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af þeim Herborgu Þorláksdóttur til vinstri og Þórey Jónsdóttur til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 435
Ólafur Austfjörð Björnsson (d.22.2.1958) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 455
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og séra Pétur.
Hallgrímur Kristmundsson safn047
Mynd tekin í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950 af þeim félögum Guðmundi Jóhannessyni til vinstri og Hallgrími Kristmundssyni (d.9.10.1998) til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 844
Bára Þorvaldsdóttir leikskólastjóri með nokkur börn í útivist. Börnin eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 873
Hér er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með tveimur óþekktum vinkonum sínum líklega í Djúpuvík í Reykjarfirði kringum 1940.
Jón Jónsson 447
Þessi mynd, sem var líklega tekin 1985, er af þeim Þórunni Óladóttur til vinstri, Þórarni Hjartarsyni (d. 28.1.1991) og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d. 10.9.1997) til hægri að vigta og pakka rækju í neytendapakkningar í Rækjuvinnslunni hf. Greinilegt að Þórarni leiðist ekki í vinnunni.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 006
Þessi mynd var tekin vorið 1983 í Kaupmannahöfn af vinunum Bernódus Ólafssyni (d.18.9.1996) og Guðrúnu Þórbjarnardóttur. Þar voru þau á ferðalagi með fleiri Skagstrendingum. Tveir þeirra sjást í bakgrunninum, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) nær og Sigurður Bjarnason fjær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 727
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Alma Eik Sævarsdóttir og Ellen Lind Sigurjónsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 404
Fermingarmynd af Sigurði Jónssyni (d.17.4.1956) hreppsstjóra í Hólanesi á Skagaströnd. Myndin var tekin í Voss í Noregi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 842
Hressir ungir menn í snjó. Fjær: Jón Indriðason til vinstri og Sigubjörn Fanndal Þorvaldsson(d.13.8.2000) til hægri. Nær okkur: Stefán Ægir Lárusson til vinstri og Ingimar Oddsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið um eða upp úr 1980.
Héraðsskjalasafn A-Hún 255
Á myndinni eru hjónin Þórey Jónsdóttir (1868 - 1914) og Björn Árnason (1870 - 1932) frá Syðri-Ey með börn sín. Frá vinstri: Árni Björnsson (1898 - 1978), Þórey, Sigurlaug Björnsdóttir (1896 - 1923), Þórarinn Björnsson (1903 - 1967), Björn og Stefán Björnsson (1905 - 1998).
Héraðsskjalasafn A-Hún 423
Sigurlaug Helgadóttir (d.21.10.2009) frá Skagaströnd. Sigurlaug var gift Gunnari Grímssyni (d.11.9.2003) kaupfélagsstjóra á Skagaströnd 1937-1955. Í vikublaðinu "Víðir", sem gefið var út í Vestmannaeyjum frá 1928 og næstu áratugina, var eftirfarandi frétt í 27. tölulaði 18. júní 1938: "Stórkostlegt bílslys" "Föstudaginn 10. þ.m. var mjög ægilegt bílslys við Blönduóssbrúna. Bíllinn fór út af trébrú, sem er norðan við Blönduóssbrúna, og féll niður 8 - 10 metra hæð í gil og brotnaði mikið. Fimm manns voru í bílnum : Gunnar Grímsson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og kona hans Sigurlaug Helgadóttir. Meiddust þau bæði mjög mikið, og er konunni varla hugað líf. Skemmdist hún svo innvortis, að gera varð á henni holskurð strax. Gerði hann P.V. G. Kolka héraðslæknir með aðstoð Torfa Bjarnasonar héraðslæknis á Hvammstanga. Auk hjónanna voru í bílnum tvö systkyni Sigurlaugar: Laufey Helgadóttir með barn sitt tveggja ára gamalt, og bílstjórinn Óskar Helgason. Orsök slyssins er talin ólag, sem verið hafi á bílnum, einkum bensígjöfinni. Hafi skyndilega komið svo mikið bensín inn á vélina, að bílstjórinn réð ekki við bílinn, og rann hann á trégirðinguna og út fyrir".
Jósef H Sigurðsson - safn 029
Jósep Sigurðsson með tvö óþekkt börn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 270
Með myndinni er textinn: "Guðríður Jósefsdóttir 1874 - 1923 - úr Höskuldsstaðasókn".
Héraðsskjalasafn A-Hún 417
Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988) frá Ægissíðu á Skagaströnd. Guðmundur - eða Mundi póstur- var póstur, organisti, áhugaljósmyndari og mikill kirkjunnar maður.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 038
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Kristján Birgisson og Hafdís Ásgeirsdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn003
Einhverntíma á fyrstu árum hátíðahalda á sjómannadegi á Skagaströnd voru þau haldin á Hólanesinu. Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi fyrir utan Bjarmanes eða gamla skólann eins og húsið var gjarnan kallað eftir 1958 þegar Höfðaskóli flutti í núverandi húsnæði. Þegar myndin var tekin, sem gæti hafa verið einhverntíma 1942 - 1946, var Höfðaskóli í húsinu og eins og sjá má var gengið inn í húsið að sunnan- og vestanverðu eins og gert er í dag eftir endurbyggingu Bjarmaness sem lauk 2004.
Árni Geir Ingvarsson - safn 796
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Kristínu Jónsdóttur til vinstri og Þórey Jónsdóttur til hægri.
Jósef H Sigurðsson - safn 086
Systkin í Hólaneshúsinu. Jósep Sigurðsson situr en liggjandi eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015) og Sigríður Sigurðardóttir. Myndin hefur líklega verið tekin 1966.
Héraðsskjalasafn A-Hún 285
Diðrik Knud Ludvig Knudsen (9.2.1867 - 30.4.1930). Diðrik fæddist á Hólanesi á Skagaströnd þar sem faðir hans, Jens Anders Knudsen, var verslunarstjóri. Diðrik tók guðfræðipróf frá prestaskólanum í Reykjavík árið 1892 og starfaði eftir það sem prestur á nokkrum stöðum meðal annars á Breiðabólstað í Vesturhópi þar sem hann andaðist 30 apríl 1930. (Heimild: Óðinn 27. árgangur 1931, 7.-12. tölublað bls 90-91).
Héraðsskjalasafn A-Hún 260
Gunnar Hermann Grímsson (d. 11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955.<br><br>
Jósef H Sigurðsson - safn 061
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) verkstjóri. Sigurður átti lengi heima í Hólaneshúsinu á Skagaströnd og var verkstjóri við fiskvinnslu. Sigurður var vinsæll maður, tvígiftur og barnmargur því hann eignaðist 11 börn. Eitt barna hans dó í frumbernsku en hin komust til fullorðinsára.
Héraðsskjalasafn A-Hún 377
Hjónin í Réttarholti á Skagaströnd. Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-30.6.1970) og Jón Jónas Sölvason (1889-17.8.1969).
Héraðsskjalasafn A-Hún 52
Árbakki í Skagabyggð áður Vindhælishreppi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 854
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki sem sótti hátíðina en það gerðu fjölmargir. Í Borgarvirki má finna rústir af tveimur hlöðnum húsum og einnig samanhruninn brunn.
Hallgrímur Kristmundsson safn025
Ekki er vitað hvaða glaða barn þetta er. Ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 327
Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) frá Steinnýjarstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 707
Þessir tveir ungu menn taka gjarnan að sér hellu- og steinalagnir fyrir fólk og fyrirtæki. Á myndinni eru þeir að undirbúa hellulögn við hús á Blönduósi. Stefán Sveinsson til vinstri og Vilhjálmur Jónsson til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 042
Þessi mynd var líklega tekin á fermingardegi Vilhjálms Skaftasonar 1956 af honum á nýju hjóli sem hann hefur líklega fengið í fermingargjöf. Húsið í baksýn er Iðavellir sem eitt sinn var í Kálfshamarsvík en síðan tekið niður þar og flutt til Skagastrandar einhverntíma fyrirmiðja 20. öld.
Elínborg Jónsdóttir - safn 2
Másstaðir í Vatnsdal. Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður fæddist á Másstöðum og var alin þar upp.
Elínborg Jónsdóttir - safn 12
Með þessari mynd stendur: Elínborg". Ekki er vitað hvaða Elínborg þetta er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn042
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) og Gestur Jónsson (d. 27.1.2015).
Héraðsskjalasafn A-Hún 249 - Copy
Friðrik Pétur Möller (1846 - 1932) kaupmaður á Skagaströnd og seinna á Eskifirði og síðar póstmeistari á Akureyri. Friðrik var m.a. faðir Ólafs Friðrikssonar sem var umdeildur maður á stjórnmálasviðinu á sínum tíma, stóð t.d. að stofnum Alþýðuflokksins og Alþýðusambandsins og var ritstjóri Alþýðublaðsins um árabil.
Jósef H Sigurðsson - safn 095
Þessi mynd var tekin við skírn eins barna Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) í Hólaneskirkju eldri. Sigurður heldur á barninu undir skírn en presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Héraðsskjalasafn A-Hún 335
Guðmundur Kristinn Guðnason (d. 21.11.1988) póstur í Ægissíðu á Skagaströnd. Guðmundur, sem var almennt kallaður Mundi póstur af íbúum Skagastrandar, var áhugaljósmyndari sem skyldi eftir sig mikið magn ljósmynda, en margar þeirra má finna hér hjá Ljósmyndasafni Skagastrandar. Þá var hann organisti í tveimur kirkjum og ávallt mikill áhugamaður um kirkjusöng og aðrar kirkjulegar athafnir. Hann var ógiftur og barnlaus.
Héraðsskjalasafn A-Hún 399
Guðrún Björnsdóttir (1854 -24.8.1946) frá Örlygsstaðaseli í Skagahreppi (nú Skagabyggð) seinna í Mánaskál í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
1
…
146
147
148
…
167
Leita í myndasafninu
Leita