Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 455
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og séra Pétur.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 039
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Hulda Birna Frímannsdóttir, Rut Jónasdóttir, Erla Sigurbjörnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson og Hrönn Valgarðsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 442
Gunnar Grímsson (d.11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn042
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) og Gestur Jónsson (d. 27.1.2015).
Árni Geir Ingvarsson - safn 844
Bára Þorvaldsdóttir leikskólastjóri með nokkur börn í útivist. Börnin eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 447
Þessi mynd, sem var líklega tekin 1985, er af þeim Þórunni Óladóttur til vinstri, Þórarni Hjartarsyni (d. 28.1.1991) og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d. 10.9.1997) til hægri að vigta og pakka rækju í neytendapakkningar í Rækjuvinnslunni hf. Greinilegt að Þórarni leiðist ekki í vinnunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 852
Þetta skip Arnar Hu 1 skipaskrárnúmer 2173 var smíðað fyrir Skagstrending hf í Bergen í Noregi. Skipið kom til heimahafnar rétt fyrir jól 1992 og var eitt glæsilegast skip íslenska flotans á þeim tíma. Skipið var svo selt til Grænlands í október 1995 eftir að mikill kvótaniðurskurður á Íslandi hafi kippt rekstargrundvelli þess í burtu. Keypt var annað ódýrara skip frá Rússlandi sem einnig var skírt Arnar Hu 1 með skipaskrárnúmerið 2265. Það skip var einnig smíðað í Noregi árið 1986.
Hjördís Sigurðardóttir - safn057
Feðgarnir Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) í bátnum og Adolf H. Berndsen á steininum að snúast við silungsveiði í sjónum við Höfðann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið upp úr 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 778
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Bíllinn var í eigu Benedikts Ólafssonar sem gerði út vöruflutningabíla frá Blönduósi í allmörg ár
Árni Geir Ingvarsson - safn 835
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Kristínu Jónsdóttur fyrir útgáfu leikskrár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 476
Steinunn G. Þorsteinsdóttir (d. júlí 1919) frá Úthlíð í Biskupstungum var kona séra Jóns Ó. Magnússonar (d.1929) á Hofi í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 365
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma kringum 1985. Skemmtiatriðunum er lokið og fólk að tygja sig heim. Á myndinni er María Alexandersdóttir með dóttur sína Elvu Ösp Gunnarsdóttur í fanginu og hjá þeim er hin dóttir hennar, María Jóna Gunnarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 342
Þessi hjón? eru óþekkt en myndin kom til Héraðsskjalasafnsins frá Soffíu Lárusdóttur á Skagaströnd. Til hennar kom hún úr Vindhælisbúinu. Ef þú þekkir þetta fólk á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 081
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) verkstjóri úr Hólaneshúsinu er íbygginn á þessari mynd enda hafði hann oft í mörg horn að líta á sinni tíð.
Hallgrímur Kristmundsson safn021
Skemmtileg mynd af Skagastrandarhöfn tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944. Bryggjan í forgrunninum, þar sem fiskaðgerð er í gangi, var byggð 1922 -1923 með sameiginlegu átaki sjómanna á Skagaströnd. Hafnarhúsið, sem er á myndinni, var reist 1935 á þessum stað en flutt á núverandi stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir byggingu síldarverksmiðjunnar. Í dag sést því miður hvorki tangur né tetur af gömlu bryggjunni í forgrunninum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 21
Hópmyndataka við Másstaði í Vatnsdal. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Maðurinn með gráa skeggið, sem stendur aftan við steininn á miðri mynd, er Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) bóndi á Másstöðum. Vinstra megin við hann er kona hans Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977) og vinstra megin við hana er dóttir þeirra Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Það eru þó líklega börn Jóns bónda af fyrra hjónabandi með afkomendur sína og tengdafólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn057
Anna Kristmundsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 467
Björn Guðmundsson (d.24.8.1938) hreppsstjóri frá Örlygsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 009
Vinkonurnar Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Steinunn Steinþórsdóttir sem situr í fangi vinkonu sinnar.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 069
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af hjónunum Ernu Högnadóttur og Magnúsi Guðmannssyni við að borða skelfisk á veitingahúsi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 828
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg þegar fólk skemmti sér við útúrsnúning á texta verksins. Elín Njálsdóttir til vinstri og Herborg Þorláksdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 914
Frídagur í Djúpavík. Drengurinn á myndinni er óþekktur en maðurinn í baksýn er Skúli Alexandersson (d.23.5.2015) alþingismaður frá Kjós. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Hallgrímur Kristmundsson safn007
Miðað við hvernig allt er útatað í hreistri þá er Elsa á síldveiðum. Maðurinn á myndinni er óþekktur en neðst til vinstri sér í háfinn sem síldin var háfuð með um borð úr nótinni. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 026
Á þessari mynd eru fimm af átta börnum Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) og Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Eitt barnið dó í frumbernsku en á myndinni eru: aftast er Jósep Hjálmar fæddur 1961, í næstu röð eru Sigríður fædd 1963 og Magnús Elías fæddur 1963 (d.16.9.2018). Fremst eru svo Hjörtur Þórarinn fæddur 1965 (d. 9.5.2015) og Rósa Dröfn fædd 1967. Líklega hefur myndin verið tekin um jólin 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 950
Myndin er tekin yfir Djúpavík þegar allt var í fullum gangi við síldarbræðslu í verksmiðjunni og margir bátar í höfn. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Hallgrímur Kristmundsson safn054
Maðurinn á myndinni er Sigurjón Jóhannsson (d.7.12.1973) frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19) bílstjóri og eigandi bílsins sem var af Chevrolet gerð líklega árgerð 1942. Ekki er vitað hver er með honum í bílnum þegar myndin var tekin. <br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 22
Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d. 7.4.2011) frá Brandaskarði í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 910
Á myndinni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með óþekktri vinkonu sinni, líklega í Kúvíkum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 781
Óli Hjörvar Kristmundsson
Jón Jónsson 442
Þessi mynd af Jóni Jónssyni var tekin um áramótin 1985-86 þegar hann lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins.
Hallgrímur Kristmundsson safn064
Konurnar tvær á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn047
Mynd tekin í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950 af þeim félögum Guðmundi Jóhannessyni til vinstri og Hallgrími Kristmundssyni (d.9.10.1998) til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 856
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd þegar fólk var að koma sér fyrir inni í virkinu. Ræðustóllinn bíður eftir ræðumönnum sem voru allmargir við þetta tækifæri. M.a. fór prófessor Sigurður Nordal yfir sögu Borgarvirkis.
Jón Jónsson 440
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Guðbjörnsdóttir og foreldrar Lárusar, Guðmundur Jóhannesson og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010)
Héraðsskjalasafn A-Hún 249 - Copy
Friðrik Pétur Möller (1846 - 1932) kaupmaður á Skagaströnd og seinna á Eskifirði og síðar póstmeistari á Akureyri. Friðrik var m.a. faðir Ólafs Friðrikssonar sem var umdeildur maður á stjórnmálasviðinu á sínum tíma, stóð t.d. að stofnum Alþýðuflokksins og Alþýðusambandsins og var ritstjóri Alþýðublaðsins um árabil.
Jósef H Sigurðsson - safn 095
Þessi mynd var tekin við skírn eins barna Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) í Hólaneskirkju eldri. Sigurður heldur á barninu undir skírn en presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Þórunn Bernódusdóttir - safn 006
Þessi mynd var tekin vorið 1983 í Kaupmannahöfn af vinunum Bernódus Ólafssyni (d.18.9.1996) og Guðrúnu Þórbjarnardóttur. Þar voru þau á ferðalagi með fleiri Skagstrendingum. Tveir þeirra sjást í bakgrunninum, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) nær og Sigurður Bjarnason fjær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 826
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu en leikararnir eru frá vinstri: Ingimar Oddsson, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Birna Blöndal.
Árni Geir Ingvarsson - safn 763
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd eru nágrannar Árness að fylgjast með framkvæmdum við húsið. Frá vinstri: Lilja Nótt Sævarsdóttir, Heiðar Sigurbjörnsson og Rósa Björg Högnadóttir en þau bjuggu í Miðnesi á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 875
Ekkert er vitað um þessar sparibúnu stúlkur. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.42007) en ekki er vitað hvar eða hvenær. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 284
Anna Stefanía Berndsen (1.3.1868 - 15.4.1941).
Hallgrímur Kristmundsson safn013
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af þessu prúðbúna fólki né hvenær. Í aftari röð frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi, Anna eða Ingibjörg Kristmundsdóttir og Árni Kristófersson (d.11.10.1982) í Árnesi. Fólkið í fremri röðinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern í þeirri röð vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 931
Tveir menn að lagfæra bát, líklega á Djúpavík. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 309
Magnús Daníelsson (d. 1.6.1993) frá Syðri-Ey og Jón Karlsson (d. 20.4.1997) frá Holtastaðakoti.
Hjördís Sigurðardóttir - safn050
Bræðurnir Adolf H. Berndsen og Hendrik Berndsen til vinstri ásamt frænda sínum Ernst Berndsen til hægri árið 1971.
Héraðsskjalasafn A-Hún 356
Steinunn Jónsdóttir (d. 6.4.1982) frá Stórholti (Bankastræti 3) á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 738
Reglulega þarf að dæla eða moka sandi af botninum í Skagastrandarhöfn. Sandurinn berst inn í höfnina frá ánum á ströndinni inn með landinu. Á þessari mynd er verið dýpka með því að moka sandi í pramma sem síðan fer með hvert fullfermið á fætur öðru fram fyrir Höfðann þar sem botninn er opnaður og sandinum hleypt niður.
Jósef H Sigurðsson - safn 031
Magnús Sigurðsson (d.16.9.2018) úr Hólaneshúsi með barn. Barnið er ókunnugt en gæti verið eitt af fjórum börnum hans.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 096
Kristín Kristmundsdóttir við vinnu á barnum í Kántrýbæ 26. júní 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 727
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Alma Eik Sævarsdóttir og Ellen Lind Sigurjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 836
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af William Sillar fyrir útgáfu leikskrár.
Jósef H Sigurðsson - safn 013
Jósep Sigurðsson slakar á í sólinni um borð í óþekktum ísfiskstogara.
Héraðsskjalasafn A-Hún 308
Sigurður Jónsson (d.16.5.1987) smiður frá Balaskarði sonur Guðnýjar Pálsdóttur (d.13.6.1942) frá Ytra-Hóli og Jóns Sigurðssonar (d.1945).
Jón Jónsson 385
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Það hefur/hafði sínar ljósu hliðar m.a. að þá kom nægur snjór í skíðabrekkuna í Spákonufelli þegar þar var skíðalyfta og oft mikið fjör. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er ungur skíðamaður Brynjar Pétursson? á fleygiferð í brekkunni.
Jón Jónsson 386
Mánavör hf byggði marga stóra og smáa plastbáta. Til þess þarf að hafa mót til að steypa skrokkinn. Á myndinni er eitt af þessum mótum sem Mánavör notaði til að steypa 13 tonna báta.
Héraðsskjalasafn A-Hún 179
Ós í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Eins og sjá má eru húsin að falla þegar myndin var tekin enda hefur Ós verið í eyði mjög lengi. Til hægri sér heim að bænum Tjörn en í forgrunni er Laxá í Nesjum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 465
Gunnar Grímsson (d.11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955 fyrir Höfðahrepp.
Héraðsskjalasafn A-Hún 466
Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) verslunarmaður frá Ásgarði á Skagaströnd. Björn var oddviti Höfðahrepps 1939 - 1942 eða fyrsti oddviti hins nýstofnaða hrepps. Áður hafði hann verið oddviti Vindhælishrepps sem skipt var upp í hreppana þrjá 1939: Skagahrepp, Höfðahrepp og Vindhælishrepp.
Héraðsskjalasafn A-Hún 474
Sólbjörg Benediktsdóttir (d.1.10.1984) frá Balaskarði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson668
Myndin var tekin í 35 ára afmæli Barnabóls 7. júní 2012. Þá komu Skoppa og Skrítla í heimsókn og skemmtu. Krakkarnir á leikskólanum tóku fullan þátt í skemmtuninni en eins og svo oft þá gekk fullorðna fólkinu illa að finna barnið í sér og hélt að sér höndum.
1
…
147
148
149
…
167
Leita í myndasafninu
Leita