Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Sigurðardóttir - safn 060
Stúkan Höfðaborg nr. 267 starfaði á Skagaströnd á árunum 1950 - 1954 með fundarhöldum og skemmtunum. 1952 fóru stúkufélagar í ferðalag til Akureyrar og þessi mynd var líklega tekin í þeirri ferð. Í öftustu röð eru frá vinstri: Ásalaug Hafsteinsdóttir, Vera ?? og Guðrún Sigurðardóttir. Næst aftast frá vinstri: Kristinn Ásgrímsson (d.21.12.1971), Arvid ??, óþekktur og Jóhann Bjarnason (d.14.9.2015). Næst fremsta röð frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), óþekktur, Úlfar Björnsson og Jón Jónsson (d.9.7.1991). Fremsta röð frá vinstri: Hörður Ragnarsson, óþekktur og Hallbjörn Hjartarson. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 278-279)<br>
Jósef H Sigurðsson - safn 036
Systkinin Hugrún Sigurðardóttir og Jósep Sigurðsson njóta veðurblíðunnar fyrir utan heimili sitt í Hólaneshúsinu. Það er engu líkara en fíflar séu að vaxa úr nösum Hugrúnar sem var gamansöm og uppátækjasöm stúlka.
Hallgrímur Kristmundsson safn042
Áning líklega í Listigarðinum á Akureyri í kringum 1950. Frá vinstri: óþekktur, Guðmundur Jóhannesson og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994).
Ólafur Bernódusson691
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru nokkrir krakkar að fara að syngja saman á sviðinu í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir og óþekkt stúlka.
Héraðsskjalasafn A-Hún 76
Níels Hafstein Jónsson (d. 22.12.1974) frá Balaskarði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 814
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin í pásu á æfingu af þeim Ástmar Kára Ástmarssyni og Guðbjörgu Viggósdóttur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 433
Ekkert er vitað um þessa mynd annað en að hún kom til Héraðsskjalasafnsins úr búi Ólafs Guðmundssonar í Brautarholti á Skagaströnd. Líklega er hér um að ræða fermingar- eða skólasystkin og ágiskun er að Ólafur sé sjálfur á myndinni annar frá vinstri í miðröð. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 133
Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi verkamaður og hreppsstjóri í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd). Sýslunefndarmaður 1962 - 1970 í sýslunefnd Auastur Húnavatnssýslu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 804
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Magnúsi B. Jónssyni í hlutverki sínu sem sýslumaður.
Ólafur Bernódusson670
Húnabjörg kemur úr útkalli í mars 2008. Tilefnið var að rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fékk gamalt tundurdufl í trollið og fékk Húnabjörgina sem fylgdarskip til hafnar. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Mennirnir á Húnabjörginni eru, uppi í brú: Ágúst Ómarsson gulklæddur og Bjarni Ottósson í rauðri peysu. Framan við brúna eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Reynir Lýðsson, Guðmundur Jón Björnsson og Stefán Sveinsson.
Ólafur Bernódusson630
Reyk- og neftóbakspása á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Óli Axel Óskarsson, Ari Þórsson og Ástmar Sigurjónsson. Óli og Ari eru starfsmenn verkstæðisins en Ástmar er menntaður vélstjóri. Myndin var tekin í febrúar 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 928
Kaupmannshúsið í Kúvíkum. Þekktasti kaupmaður þar undir það síðasta var Jakob Thorarensen en hann var kaupmaður þar um 1900. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940 en þá átti Herbert heima í Kúvíkum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 222
Jón Hansson (d. 22.4.1940) Syðri Þverá í Vesturhópi með konu sinni Guðrúnu Árnadóttur ásamt fjórum börnum þeirra. Ef þú veist eitthvað meira um þetta fólk, t.d. nöfn barnanna, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 412
Þessi mynd sýnir nýstúdenta í garði Hressingarskálans í Reykjavík að gera sér glaðan dag 30.júní 1933. Myndin er frá séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) og er hann einhversstaðar á myndinni. Þér er látið eftir að finna Pétur sem var 22 ára þegar hún var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 263
Systurnar Steinunn Árnadóttir (d. 11.2.2006), Margrét Árnadóttir (d. 2003) og Áslaug Árnadóttir (d. 1996) frá Höfðahólum á Skagaströnd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 024
Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) frá Stóra-Bergi í skemmtiferð í Vaglaskógi kringum 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 772
Þrjú hús á Fellsbraut. Reykholt (Fellsbraut 6) efst, Hjarðarholt (Fellsbraut 4) í miðið er í dag nokkuð breytt m.a. hefur það verið klætt að utan og bætt við það kvisti á þakið. Neðst er svo Litla-Berg (Fellsbraut 2) sem einnig er komið með kvist og hefur verið klætt að utan.
Héraðsskjalasafn A-Hún 473
Ingvar Stefán Pálsson (d. 18.10.1968) bóndi á Balaskarði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jósef H Sigurðsson - safn 025
Veisla heima í Hólaneshúsinu hjá hjónunum Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004) og Sigurði Magnússyni (d.2.8.2002). Ekki er vitað hvaða barn Dóróthea situr með en þau hjónin eignuðust átta börn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 121
Guðný Jónsdóttir (d. ?) frá Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jósef H Sigurðsson - safn 022
Þessi mynd er af þremur systkinum í Hólaneshúsinu. Frá vinstri: líklega Jósep Sigurðsson, Sigríður Sigurðardóttir og líklega Rósa Sigurðardóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 053
Feðgarnir Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) og Jósep Sigurðsson. Myndin var líklega tekin á fermingardegi Jóseps vorið 1975.
Jón Jónsson 360
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Krakkarnir sem syngja eru, talið frá vinstri: Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg /Áslaug Jóhannsdóttir, Særún Níelsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Þröstur Árnason, óþekkt, Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), Guðbjörg Kristmundsdóttir, óþekkt,Berglind Karlsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Hólmfríður Oddsdóttir?, Jóhanna Karlsdóttir, Sandra Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 845
Haukur Ragnarsson. Myndin var líklega tekin á leikskólalóðinni en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 987
Þessi kona er óþekkt en ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 82
Björn Lárusson Blöndal (d.1906) prestur á Hofi í Skagahreppi og á Hvammi í Laxárdal í Skefilsstaðahreppi 1900-1906 og hreppsnefndaroddviti þar 1902 -1906.
Jósef H Sigurðsson - safn 088
Á þessari mynd eru börn Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) sem hann eignaðist með tveimur konum sínum. Því miður var myndin ekki nógu vel tekin en í aftari röðinni eru frá vinstri: Björn Sigurðsson (d.30.12.1996) en hann heldur á Hugrúnu Sigurðardóttur. Þá koma Jósep Sigurðsson, Þórunn Sigurðardóttir og Árni Sigurðsson (d. 14.11.2006). Í fremri röð eru frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir (sést bara hálf), Hjörtur Sigurðsson (d. 9.5.2015), Magnús Sigurðsson, Rósa Sigurðardóttir og Kolbeinn Sigurðsson.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn008
Skátaforingjar gefa sér tíma til myndatöku utan við fundarstaðinn (? gömlu Tunnuna?). Fremst sitja frá vinstri: Tryggvi Þorsteinsson (d.16.7.1975) skátaforingi á Akureyri, Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd og óþekktur. Í miðröðinni frá vinstri: Þórður Jónsson (d.25.10.2009) síðar félagsforingi á Skagaströnd, Gunnhildur Þórmundsdóttir félagsforingi á Blönduósi og fjórar óþekktar konur. Jón Ísberg (d. 24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi er þriðji frá vinstri í öftustu röð en aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Jósef H Sigurðsson - safn 009
Það liggur vel á Heimi Sigurbjörnssyni um borð í óþekktum bát. Maðurinn á bak við dekkið er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 421
Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) frá Kárastöðum á Skagaströnd. Sigurbjörn var bóndi og verkamaður sem rak heimili með bróður sínum, Kára, að Kárastöðum og ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur þar til þau fluttu á dvalarheimilið Sæborg 1988.
Jón Jónsson 400
Þessi mynd var tekin af húsnæði plastverksmiðjunnar Mark hf við Oddagötu eftir bruna sem þar varð 14. apríl 1989. Var það í annað sinn á þremur árum sem stórbruni varð hjá fyrirtækinu. Eins og sjá má var húsið mjög illa farið eftir brunan og öll verkfæri og mót ónýttust.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 16
Fermingarsystkin vorið 2001 í Hólaneskirkju með presti sínum. Presturinn er séra Magnús Magnússon en fermingarbörnin eru, frá vinstri í aftari röð: Hanna Lísa Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Katrín Hólmsteinsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson. Í fremri röð frá vinstri: Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Linda ??, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Ernstsson og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn063
Mennirnir, sem stilla sér upp á tröppunum við Hólaneshúsið, eru óþekktir nema maðurinn með hattinn er Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. Ef þú þekkir menninina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 925
Myndin var líklega tekin í Fögrubrekku sem er stutt frá Gjögri. Konan lengst til hægri er Lilja Jónsdóttir sem bjó á Djúpuvík í áratugi. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega kringum 1940. Ef þú þekkir hinar konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 065
Bræðurnir Jósep Sigurðsson (nær) og Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015) (fjær) vinna saman að einhvers konsar viðhaldi á gólfi heima í Hólaneshúsinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 19
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 279
Sigurður Indriðason (1863- 25.11.1949) frá Ytri-Ey með tvö af börnum sínum sjö. Sigurður var tvígiftur og bjó með fjölskyldu sinni til skiptis á Íslandi og í Kanada þar sem hann lést 25.11.1949. Sigurður var bróðir Indriða Jóns á mynd 10016 og Regínu Sigríðar á mynd 10017. Önnur mynd af Sigurði er númar 10018.
Ólafur Bernódusson649
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd spilar Guðrún Anna Halldórsdóttir úr Höfðaskóla á píanó fyrir fólk í hléi meðan dómnefnd ræður ráðum sínum og finnur í sameiningu þrjá bestu lesara kvöldsins.
Jón Jónsson 379
Rækjuvinnslan hf var í áratugi einn af burðarásum atvinnulífsins á Skagaströnd. Fyrirtækið var ávallt búið nýjustu tækni við vinnsluna og var í fremstu röð í heiminum í framleiðslu á frosinni rækju í neytendapakkningum. Á tímabilum var fyrirtækið keyrt á þremur vöktum dag og nótt og hafði fjölda starfsmanna. Á þessari mynd sem tekin var 1985, af einni vaktinni, má telja a.m.k. 16 konur við að hreinsa og pakka rækju. Hinum megin við plexiglervegginn voru síðan starfsmenn við móttöku, suðu og frystingu í "vélasalnum". Starfssemi við rækjuvinnslu var síðan lögð niður þegar Skagstrendingur hf, sem átti vinnsluna undir það síðasta, fór undir eignarhald Fisk Seafood á Sauðárkróki.
Ólafur Bernódusson697
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni syngja saman, frá vinstri: Andrea Björk Kristjánsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn004
Sennilega eru skátarnir á myndinni við fánahyllingu á einhverju skátamóti kringum 1960. Fólkið er frá vinstri talið: óþekktur maður, óþekkt kona, Jónas B. Jónsson (d.1.4.2005) skátahöfðingi frá Torfalæk, Jón Ísberg (d.24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, Gunnhildur Þórmundsdóttir skátaforingi á Blönduósi og Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 24
Þetta eru hjónin Árni Ó. Guðmonsson (d.7.11.1948) og Halla Júlíusdóttir (d.6.11.1980). Þau hjón bjuggu vestur á Ströndum en fluttu til Skagastrandar sumarið 1948. <br>Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908- 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo m.a. á bls 147: <br>"....Sumarið 1948 fluttu Árni Ólafur Guðmonsson og kona hans, Halla Júlíusdóttir, til Skagastrandar frá Ströndum og með þeim synir þeirra, Baldur og Júlíus. Síðsumar þetta sama ár keyptu þeir feðgar, Árni, Júlíus og Baldur, bátinn Vin ÍS 101 frá Hnífsdal. Þetta var mikil ólánsfleyta og hafði tvisvar týnt manni meðan hann var þar vestur frá og síðan gerðist það að Árni féll útbyrðis af bátnum og drukknaði. Báturinn var seldur til Steingrímsfjarðar og sökk hann á Húnaflóa 28. nóvember 1949. Vinur var líklega aldrei skráður HU. "<br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 963
Snjómokstur í Bankastræti líklega vorið 2013.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 023
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Björn Ingi Óskarsson, Óli Axel Óskarsson og Jensína Lýðsdóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 077
Samkvæmt áletrun á þessari mynd var hún tekin á síldarmatnsmannanámskeiði í júní 1955. Ekki er vitað hvar myndin var tekin og mennirnir eru óþekktir nema Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) sem er lengst til vinstri í aftari röð. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 876
Hrefna Björnsdóttir er konan sem stendur hærra á myndinni en hin konan er óþekkt. Þegar myndin var tekin af þeim voru þær úti í Árbakkasteini, sem er ekki fjölfarinn staður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 468
Ólafur Björnsson (d. 1950) bóndi á Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Ólafur var oddviti Vindhælishrepps hins forna um það leiti sem hreppnum var skipt upp í Skagahrepp, Höfðahrepp og Vindhælishrepp (1939)
Árni Geir Ingvarsson - safn 904
Hlaðinn síldarbátur á Reykarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Jósef H Sigurðsson - safn 007
Jósep Sigurðsson við stýrið á óþekktum bát (? Hafrún Hu 12?).
Héraðsskjalasafn A-Hún 123
Kristín Indriðadóttir (d.1941) frá Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) í söðli á hestbaki.
Jósef H Sigurðsson - safn 076
Þessi prúðbúnu börn eru: Jósep Sigurðsson aftast, Sigríður Sigurðardóttir og Magnús Sigurðsson í miðröðinni en börnin í fremstu röðinni eru Páll Stefánsson, Inga Stefánsdóttir með Hjört Sigurðsson (d.9.5.2015) í fanginu. Lengst til hægri er svo "Krissa" Stefánsdóttir. Hjörtur fæddist 1965 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1965 eða 1966.
Ólafur Bernódusson694
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Myndin var tekin af leikurum í hlutverkum sínum í óþekktu leikriti. Leikararnir eru frá vinstri: Telma Bjarnadóttir, Svandís Hallgrímsdóttir, Birta Bessadóttir, Egill Örn Ingibergsson og Aldís Björnsdóttir.
Jón Jónsson 432
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987), sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á henni eru tengdadætur hennar, frá vinstri: Hlíf Sigurðardóttir, Anna Heiður Guðmundsdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 902
Kamburinn er fjallið á milli Veiðleysufjarðar og Reykjarfjarðar syðri. þessi mynd sýnir fjallið að norðanverðu - Reykjarfjarðar megin - og ef vel er skoðað má sjá byggðina í Kúvíkum við víkina á myndinni. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Héraðsskjalasafn A-Hún 331
Hjónin Sigurlaug Margrét Eðvarðsdóttir (d. 16.11.2005) og Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti á Skagaströnd. Jóhannes var bóndi og verkamaður en gegndi jafnframt ýmsum trúnaðarstörfum í sínu samfélagi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 157
Hjónin Sigríður F. Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) og Jóhann F. Pétursson (d. 13.1.1999) Lækjarbakka á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 424
Hjörleifur Sigfússon (1872 -22.2.1963), Marka-Leifi frá Hátúni í Skagafirði. Hjörleifur var oft kallaður "Lifandi markaskrá" því hann kunni markaskrár utanað. Markaskrár voru skrár yfir eyrnamörk kinda og hvaða bóndi átti hvaða mark. <br>Sú saga er sögð af Marka-Leifa að eitt sinn mætti hann ungri stúlku á fjallvegi einhversstaðar. "Hvaðan ert þú?" spyr hann. Stúlkan nefnir bæjarnafnið en þá segir Leifi umhugsunarlaust: "Stendur heima, stýft og gagnbitað", en það var fjármrk föður stúlkunnar. Síðan hefur þetta gjarnan verið notað sem orðtak ef eitthvað kemur heim og saman eða stenst fulla skoðun. (heimild: Verkamaðurinn 45. tbl. 1960 bls 6. Höf. Rósberg G. Snædal)
Hallgrímur Kristmundsson safn004
Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin af þessu glaða fólki á bílpallinum en ekki er ólíklegt að það hafi verið einhverntíma á fimmta áratugnum. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Einnig væri vel þegið að fá upplýsingar um bílinn á myndinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 405
Halldóra Aðalbjörg Eggertsdóttir (1916 -27.11.2000) frá Skúfi í norðurárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Halldóra var kennari, skólastjóri og svo námsstjóri húsmæðrafræðslunnar 1948 til 1969 þegar staðan var lögð niður. Eftir það varð hún fulltrúi í heimilisfræði á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur til 1986. Hún var mikil félagsmálamanneskja og starfaði mikið með Soroptamistahreyfingunni á Íslandi og var heiðursfélagi hreyfingarinnar á Íslandi. Halldóra var sæmd riddarkrossi hinnar íslensu fálkaorðu 1977. Halldóra var ógift og barnlaus. (Heimild: Mbl.is 6.desember 2000)
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 4
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er af systkinum, frá vinstri: Kristófer Árnason (d.10.5.2000), Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Elínborg Árnadóttir (d. 7.4.1979) og Guðmunda Árnadóttir (d. 27.1.2017). Systkinin voru börn Guðrúnar Teitsdóttur (d. 7.6.1978) ljósmóður og Árna Kristóferssonar (d.11.10.1982) sem lengi bjuggu í Árnesi á Skagaströnd. Systkinin voru fædd á árunum 1916 - 1921 þannig að myndin gæti hafa verið tekin einhverntíma kringum 1930.
1
…
149
150
151
…
167
Leita í myndasafninu
Leita