Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn049
Eldri borgara á ferðalagi skoða Auðunnarstofu að Hólum í Hjaltadal í september 2004. Frá vinstri: óþekkt, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Ottó Ákason (d. 17.9.2005), Guðný Finnsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007), Ardís Ólöf Arelíusdóttir og María Magnúsdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn039
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Hann hefur tyllt sér á kaðalhönk og virðir fyrir sér síldarnótina eða trollið fyrir framan sig. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 445
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Á myndinni eru frá hægri: Guðný Sigurðardóttir, Hrönn Árnadóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Kristín Sigurðardóttir og Svanhildur Lýðsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hallgrímur Kristmundsson safn006
Myndin var líklega tekin í Skagafirði (Þórðarhöfði og Málmey í baksýn?) af þremur sjómönnum á spjalli um borð. Mennirnir eru óþekktir og líka hvenær myndi var tekin. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn045
Myndin var tekin í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950. Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) er til vinstri en maðurinn til hægri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 872
Þetta býli? er óþekkt. Það ætti þó að vera auðþekkt þeim sem þar hafa komið því það hefur tvö bíslög eða forstofur inn á aðra hæð sem er óvenjulegt. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók þessa mynd en ekki er vitað hvenær. Ef þú veist hvaða hús þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn035
Guðmundur Jóhannesson í skemmtiferð í Listigarðinum á Akureyri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið fyrir 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 5
Gylfi Sigurðsson mokar frá útidyrunum á húsi sínu á Bogabraut 12. Eins og sjá má er Bogabrautin á kafi í snjó. Líklega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 -96.
Elínborg Jónsdóttir - safn 5
Með þessari mynd stendur: "Elín í kyrtli". Ekki er vitað hver Elín er en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var líklega tekin við Másstaði í Vatnsdal.
Héraðsskjalasafn A-Hún 300
Sveinsína Bergsdóttir (d. 20.12.1981) frá Mánaskál og Ingimundur Bjarnason (d. 6.3.1976) með þremur dætrum sínum. Líklega eru það frá vinstri: Sigríður Ingimundardóttir, Herdís Helga Ingimundardóttir og Fannlaug Ingimundardóttir. Sveinsína og Ingimundur, sem var járnsmiður, bjuggu á Sauðárkróki þar sem hann rak járn- og eldsmiðju í kjallaranum í húsi þeirra hjóna að Suðurgötu 5 (Árbakka).
Árni Geir Ingvarsson - safn 887
Þessar tvær blómarósir eru óþekktar. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hver né hvenær. Ef þú þekkir aðra hvora konuna eða báðar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn026
Óðinn Örn Sævarsson og Jón Atli Magnússon í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jósef H Sigurðsson - safn 078
Oft er sagt að jólin séu hátíð barnanna. Þessi mynd styður þá fullyrðingu því systkinin á henni eru greinilega mjög glöð og hamingjusöm á jólunum. Þau eru frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir, Jósep Sigurðsson, Magnús Sigurðsson og Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015). Myndin var líklega tekin heima í Hólaneshúsinu á jólunum 1967 eða 1968.
Árni Geir Ingvarsson - safn 966
Bæring Skarphéðinsson að basla við vatnskött í sjónum í Skagastrandarhöfn.
Jósef H Sigurðsson - safn 017
Systkinin Kolbeinn Vopni Sigurðsson og Hugrún Sigurðardóttir heima í Hólaneshúsinu. Myndin var líklega tekin einhverntíma 1975 - 1977.
Árni Geir Ingvarsson - safn 788
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af senu sem gerist á söltunarplaninu. Leikararnir eru frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Herborg Þorláksdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1002
Ragnar Smári Ingvarsson
Guðrún Sigurðardóttir - safn 035
Kvennaskólastúlkur kvennaskólans á Blönduósi veturinn í apríl 1960. Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti á Skagaströnd er önnur frá vinstri en hinar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 457
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju. Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí í Sævarlandi) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997).
Jósef H Sigurðsson - safn 094
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsinu fær sér í pípu við Willis - jeppann sinn á planinu vestan við Hafnarhúsið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 714
Framlag vinnuskólakrakkanna við umhirðu og fegrun bæjarins er oft vanmetið og fólki hættir til að tala niður til þeirra. Það er þó algjör óþarfi því þau leggja gjörva hönd á margt sem til framfara horfir. Á þessari mynd eru þau að þökuleggja sár sem myndaðist við niðurrif hússins sem eitt sinn hýsti verslunina Borg. Krakkarnir eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Silfá Sjöfn Árnadóttir og ?Katrín Guðmundsdóttir?.
Hallgrímur Kristmundsson safn001
Þrír sjómenn frá Skagaströnd gera sér glaðan dag í sparifötunum í Þórskaffi líklega 1968. Mennirnir eru frá vinstri: Ísleifur Haraldsson sem oft var kenndur við Jaðar, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) en hann byggði húsið að Hólabraut 14 og bjó þar. Lengst til hægri er svo Björn Sigmundson úr Stórholti/Bankastræti 3.
Árni Geir Ingvarsson - safn 841
Hugrún Pálsdóttir fyrir utan útibú Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 853
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Á netinu má finns eftirfarandi lýsingu á Borgarvirki og sögu þess:<br><br>"Borgarvirki er klettaborg er stendur á ásnum milli Vesturhóps og Víðidals og er um 177 metra yfir sjávarmáli. Talið er að Borgarvirki sé gosstapi sem myndaðist við eldgos á hlýskeiði ísaldar. Efst í virkinu er 5-6 metra djúp skeifulaga dæld með skarð er snýr til austurs. Þar er hlaðinni grjótveggur frá fornu en hann var endurhlaðinn á árunum 1940-50 og víðar á Borgavirki má sjá hleðslur. Borgarvirki er friðað vegna minja, en inn í virkinu eru rústir af tveimur skálum og skammt frá þeim hruninn brunnur.<br><br>Samkvæmt sögnum var Borgarvirki nýtt sem virki á þjóðveldisöld. Og segir sagan að þar hafi Víga-Barði Guðmundsson í Ásbjarnarnesi verið á ferð. Hann deildi við Borgfirðinga eins og segir frá í Heiðarvíga sögu. Sagt er að óvinir hans hafi komið að sunnan með óvígan her. En Barði barst af því njósnir og kom sér og sínum mönnum fyrir í Borgarvirki, þar sem ómögulegt reyndist að sækja að honum. Tóku Borgfirðingar á það ráð að ætla að svelta Barða og hans menn inni. Þegar matinn þraut tóku virkisbúar sig til og hentu síðasta mörsiðrinu (sláturkeppnum) út úr virkinu. Voru þá Borgfirðingar vissir um að Barði hefði nægar vistir og héldu heim á leið. Frábært útsýni er úr Borgarvirki og þar hefur verið sett upp útsýnisskífa. Í tengslum við unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi er haldnir einstakir tónleikar í Borgarvirki í júlí hvert ár". <br>( Heimild:http://www.hunathing.is/ferdamenn/athyglisverdir-stadir/borgarvirki)<br>
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn101
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Vinstra megin við borðið sitja frá vinstri: Elva Þórisdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Erna Hreinsdóttir, óþekkt, Ásthildur Guðmundsdóttir, tvær óþekktar. Hægra megin við borðið sitja<br>Þórunn Bernódusdóttir næst okkur, Hjördís Sigurðardóttir er næst og svo Dagný Marín Sigmarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 981
Skrúðganga kvenna farin á Djúpavík. Á síldarárunum fóru konur þar í skrúðgöngu á hverju ári á 17. júní. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Héraðsskjalasafn A-Hún 345
Samkvæmt merkingu Héraðsskjalasafns A-Hún er þetta Jónas Jónasson frá Skagaströnd. Myndin kom til safnsins frá Jóni Steindórssyni frá Höfðahólum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 809
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, tvær óþekktar, Ástmar Kári Ástmarsson og Kristín Jónsdóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 052
Mæðginin Dóróthea Hallgrímsdóttir (d.17.10.2004) og Jósep Sigurðsson. Líklega var myndin tekin á fermingardegi Jóseps vorið 1975.
Hjördís Sigurðardóttir - safn058
Fólkið á þessari mynd hefur stillt sér upp sunnan undir vegg kaupfélagshússins. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1950 en þá var rekið bakarí á Kaupfélagsloftinu. Bakaríinu var svo lokað 1954 vegna taprekstrar. Frá vinstri á myndinni eru: Hjördís Sigurðardóttir, Sigurður Árnason (d.26.3.2013) og Guðrún Sigurðardóttir.
Elínborg Jónsdóttir - safn 17
Textinn með þessari mynd er:"Heimasætur". Ekki er vitað um hvaða heimasætur er að ræða en ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 751
Með tilkomu Nes listamiðstöðvar hafa listamenn af ýmsu þjóðerni og ýmsum gerðum dvalið á Skagaströnd í lengri og skemmri tíma. Margir þeirra hafa auðgað mannlífið með nærveru sinni og uppátækjum. Hér hefur einn listamaðurinn sest upp við vegg Hólanesshússins í góðviðri og er að teikna það sem fyrir augun ber í skissubókina sína. Maðurinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 771
Vinkonurnar Ásdís Birta Árnadóttir og Zelia Kasper. Ásdís Birta er sú ljóshærða á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 825
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin í lokin á æfingu þegar Þröstur var að gefa þreyttum leikurum leiðbeiningar. Frá vinstri: bakið á Þresti leikstjóra, Þórhildur Jakobsdóttir, Fritz Hendrik Berndsen, Sigrún Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Rut Jónasdóttir, Bergþór Gunnarsson, Wiliam Sillar og Þórey Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 990
Rúnar Þór Ingvarsson er fæddur 1950 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1952-53.
Héraðsskjalasafn A-Hún 283
Ólafur Davíðsson (1862- 6.9.1903) cand.phil frá Hofi í Hörgárbyggð. Ólafur var þjóðsagnasafnari og var m.a. ritstóri bókanna: Íslenskar þjóðsögur sem gefin var út af Ísafoldarprentsmiðju í Reykjavík 1895 og Íslenskir vikivakar og vikivakakvæði sem Hið Íslenska bókmenntafélag gaf út 1894. Ólafur menntaði sig í náttúrufræði við Kaupmannahafnarháskóla en lauk ekki prófi. Heimkominn til Íslands 1897 gerðist hann kennari í Möðruvallaskóla en hann drukknaði í Hörgá 6. september 1903 ógiftur og barnlaus.
Jósef H Sigurðsson - safn 020
Þessar prúðbúnu mæðgur eru Dóróthea Hallgrímsdóttir (d.17.10.2004) sem heldur við dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur heima í Hólaneshúsinu. Myndin var sennilega tekin 1964 eða 65.
Ólafur Bernódusson703
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd er hluti af hópnum sem tók þátt í uppfærslunni. Frá vinstri: óþekktur, Steindór Haraldsson, Bragi Sigurðarson, óþekkt, Fjölnir Ásbjörnsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Helena Velemir, Péturína Jakobsdóttir, Signý Richter, Björk Sveinsdóttir og Davíð Bragi Björgvinsson.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 047
Þessir krakkar eru stolt af viðukenningum sínum sem þau fengu að loknu víðavangshlaupi á Skagaströnd. Slík hlaup voru árviss viðburður á vorin í mörg ár á vegum umf Fram oftast undir styrkri stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Elva Dröfn Árnadóttir og fyrir aftan hana er Jóhannes William Grétarsson. Elín Ósk Ómarsdóttir er við hlið hans í appelsínugulri peysu. Birkir Rafn Gíslason er við hlið Elvu í röðinni og síðan kemur Sverrir Brynjar Berndsen með bláa húfu. Aftan við hann er Bjarney Gunnarsdóttir og óþekkt. Í grænni peysu í röðinni er óþekkt, ?Elvar Arinbjörn Grétarsson?, óþekkt, Emelía Rós Sigfúsdóttir, Arís Eva Vilhelmsdóttir og óþekktur drengur. Grétar Haraldsson er í bláum jakka aftarlega á myndinni og við hlið hans er Árný Helgadóttir og ?Svava Magnúsdóttir?. Ef þú þekkir börnin sem eru óþekkt vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 321
Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti á Skagaströnd.
Adolf H Berndsen - safn061
Gísli Ísleifsson (d.9.9.1932) sýslumaður Húnvetning 1897 - 1912 með dætur sínar þrjár. Sorgin átti heldur betur eftir að berja að dyrum hjá Gísla því dæturnar létust allar ungar úr berklum. Nöfn dætranna eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 827
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikaranir á myndinni eru frá vinstri: Ingimar Oddsson, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson, Birna Blöndal og á bak við Magnús grillir í Þorvald Skaftason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 790
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Bergþór Gunnarson, Jón Arnarson, Viggó Magnússon, Ástmar Kári Ástmarsson og Þorvaldur Skaftason.
Héraðsskjalasafn A-Hún 418
Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002) frá Óseyri og seinna Bjargi og Breiðabliki. Var sambýliskona Bjarna Jóhanns Jóhannssonar (d. 12.9.1971). Þau áttu saman átta börn en eitt þeirra dó í frumbernsku.
Héraðsskjalasafn A-Hún 352
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni og karlarnir komnir út á ísinn í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 044
Myndin var tekin í sundi sem var á milli Skálholts og Þórshamars. Í þessu sundi lagði Gunnar Helgason (d.19.10.2007) gjarnan vörubíl sínum, sem sést í baksýn, enda bjó hann í Stórholti, sem er húsið með kvistinum aftan við mennina. Mennirnir eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), óþekktur, Karl Guðmundsson ? (d.11.12.2011) og Gunnar Sveinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jósef H Sigurðsson - safn 066
Frænkurnar Drífa Kristjánsdóttir og Kenny Hallbjörnsdóttir eru bræðradætur.
Jósef H Sigurðsson - safn 062
Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir. Myndin var tekin í júlí 1991.
Adolf H Berndsen - safn060
Aftan á myndinni stendur: "Gísli Þorsteinsson og frú". Fleira er ekki vitað um fólkið á myndinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 419
Ole Aamundsen (d.?) - Óli norski - í Lundi á Skagaströnd. Ole var athafnamaður og rak lifrarbræðslu og útgerð á Skagaströnd jafnframt því að vera umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið.
Héraðsskjalasafn A-Hún 369
Hjónin Björn Sigurðsson (d. ?) frá Balaskarði og óþekkt kona hans. Ef þú veist hvað konan hét vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 833
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Herborgu Þorláksdóttur fyrir útgáfu leikskrár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 786
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af hljóð - og ljósamönnunum. Guðjón Árnason hljóðmaður er til vinstri og Árni Geir Ingvarsson ljósameistari er til hægri.
Ólafur Bernódusson664
Púttað á flötinni á fjórðu braut á Háagerðisvelli sumarið 2007 á punktamóti. Þessi flöt er af mörgum talinn gimsteinninn á vellinum. Golfararnir á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013).
Adolf H Berndsen - safn085
Fiskpökkun hjá Marska ehf. Þórey Jónsdóttir og sonur hennar Guðjón Hall Sigurbjörnsson pakka sjófrystum fiskflökum í neytendapakkningar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 830
Myndin var tekin á árshátíð eða innanfélags skemmtifundi Leikklúbbs Skagastrandar. Þar gerði fólk sér margt til skemmtunar og á þessari mynd er Kristján Blöndal með óborganlega túlkun á hinum fræga Gísla frá Uppsölum. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin
Ólafur Bernódusson660
Blysför á gamlárskvöldi 2010. Samkvæmt venju hefst blysförin við Fellsborg og endar við brennustæðið við endann á Vetrarbrautinni. Þá eru kyndlarnir notaðir til að kveikja í bálkestinum þannig að allir fá að taka þátt í að kveikja áramótabálið.
Jósef H Sigurðsson - safn 024
Ekki er vitað hvaða barn úr Hólaneshúsinu er í skírnarkjólnum á þessari mynd. Hjónunum þar, Sigurði Magnússyni (d. 2.8.2002) og Dórótheu Hallgrímsdóttur (d. 17.10.2004), fæddust átta börn á árunum 1961 - 1973 og barnið í stólnum er eitt þeirra.
Jón Jónsson 380
Þessi mynd var tekin 1985 í Rækjuvinnslunni hf. Konurnar við færibandið hreinsuðu skeljabrot og annað, sem ekki átti að vera með, úr soðinni rækju á bandinu áður en rækjan fór svo til baka í frystingu og þaðan í pökkun. Færiböndin voru þrjú á þessum tíma og við hvert band unnu sex konur ef fullskipað var. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir snýr baki í okkur, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), óþekkt og Guðmundur Jóhannesson. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 879
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er fyrir miðri mynd an aðrir eru óþekktir. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
152
153
154
…
167
Leita í myndasafninu
Leita