Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson703
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd er hluti af hópnum sem tók þátt í uppfærslunni. Frá vinstri: óþekktur, Steindór Haraldsson, Bragi Sigurðarson, óþekkt, Fjölnir Ásbjörnsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Helena Velemir, Péturína Jakobsdóttir, Signý Richter, Björk Sveinsdóttir og Davíð Bragi Björgvinsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 420
Jón H. Árnason (d.11.4.1986) frá Steinnýjarstöðum. Jón, sem bjó lengi í Náttbrún/Ólafsvöllum á Skagaströnd, var verkamaður og frístundabóndi.
Ólafur Bernódusson701
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu, eru tæknimennirnir og feðginin Árni Geir Ingvarsson ljósamaður og Silfá Sjöfn Árnadóttir sem sá um hljóðheim sýningarinnar.
Hallgrímur Kristmundsson safn001
Þrír sjómenn frá Skagaströnd gera sér glaðan dag í sparifötunum í Þórskaffi líklega 1968. Mennirnir eru frá vinstri: Ísleifur Haraldsson sem oft var kenndur við Jaðar, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) en hann byggði húsið að Hólabraut 14 og bjó þar. Lengst til hægri er svo Björn Sigmundson úr Stórholti/Bankastræti 3.
Héraðsskjalasafn A-Hún 369
Hjónin Björn Sigurðsson (d. ?) frá Balaskarði og óþekkt kona hans. Ef þú veist hvað konan hét vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 783
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Birnu Blöndal í hlutverki sínu. Birna var einn af burðarásum Leikklúbbsins meðan hann starfaði.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 044
Skemmtiatriði á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Finnur Kristinsson í rauðri peysu og Egill Bjarki Gunnarsson dregnir á snjóþotum á steyptu planinu. Áhorfendur skemmta sér vel. Lengst til vinstri í búnum buxum og með dökk gleraugu er Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002). Næstur honum er Guðmundur Haukur Sigurðsson í brúnum jakka. Ingvar Jónsson er ljóshærður í ljósbláum og dökkbláum jakka og hvítum skóm og við hlið hans í ljósum jakka er Hafþór Gylfason. Hjörtur Guðmundsson er í hvítri peysu og heldur uppi kaðlinum. Við hlið hans í rauðum jakka með krosslagðar hendur er Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Jósef H Sigurðsson - safn 023
Systkini í Hólaneshúsinu. Frá vinstri: Jósep Sigurðsson, Sigríður Sigurðardóttir og Magnús Sigurðsson (d.16.2018). Myndin var tekinn einhverntíma kringum 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 840
Þeir eru sáttir við lífið og hjólin sín Jóhannes Sveinsson til vinstri og Einar Ásgeirsson til hægri fyrir utan verslunina sem þá var útibú Kaupfélags Húnvetninga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma kringum 1980.
Ólafur Bernódusson645
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd er Sara Rut Fannarsdóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, að lesa upp fyrir fullan sal af gestum í félagsheimilinu Fellsborg.
Elínborg Jónsdóttir - safn 26
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) í kyrtli. Myndin var tekin við Másstaði í Vatnsdal en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 967
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók þessa mynd á Reykjarfirði en ekki er vitað hvenær hún var tekin. Báturinn á myndinni er óþekktur en á skiltinu á stýrishúsinu má lesa að hann var frá Höfðakaupstað. Ef þú veist hvaða bátur þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn032
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, óþekkt, Ásthildur Guðmundsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, óþekkt og Bryndís Guðjónsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson685
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni er Ágúst Ingi Ágústsson kennari við Höfðaskóla á þessum tíma.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 038
Mikið fjör á hótel Dagsbrún hjá félögum í kirkjukór Hólaneskirkju. Frá vinstri: Hildur Inga Rúnarsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Myndin var tekin vorið 1994 þegar kórfélagar voru að kveðja Julian og Rosemary Hewlet sem voru að flytja burt. Julian var stjórnandi kórsins en Rosemary söng í kórnum auk þess að spila oft í kirkjunni á þverflautu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 880
Myndin er tekin á svokallaðri lægri-brún beint fyrir ofan Djúpuvík. Þarna hefur vinnuflokkur frá verksmiðjunni nýlokið við að losa krapastíflu í Djúpavíkurá. Hún var þá stífluð vegna kraps fyrir ofan brúnina og óttast var að stíflan mundi að endingu bresta og áin, með sínu krapaflóði, steypast fram af brúninni og lenda á verksmiðjunni. Nokkrar ljósmyndir er til af þessum atburði en þessa mynd tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) árið 1949.
Ólafur Bernódusson648
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd eru Grímur Gíslason og Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) að spjalla saman. Bæði voru þau og eru þekkt fyrir áhuga sinn á íslensku máli, bókmenntum og sagnfræði og fyrir framlag sitt til þeirra fræða.
Héraðsskjalasafn A-Hún 318
Símon Klemensson (d.1932) bóndi frá Kambakoti í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Jósef H Sigurðsson - safn 079
Þessi mynd var tekin yfir flökunarsalinn í frystihúsi Hólaness hf þar sem í dag (2017) er listamiðstöðin Nes. Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri úr Hólaneshúsinu sést neðst í horninu til vinstri. Flakarinn í dökku peysunni með hvítar ermar er Ari Ólafsson úr Sævarlandi, Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði er í dökkri peysu með munstri yfir brjóstið og Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996) úr Sóllundi er lengst til hægri með dökkar ermar. Í miðjunni aftan við bandið er Björn Guðmundsson (Biddi) frá Árbakka og aftan við hann eru Jóhann Jakobsson (d.24.3.2987) frá Blálandi og Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) á Iðavöllum. Maðurinn framan við Bidda er líklega Ólafur Guðlaugsson? (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 919
Konan á myndinni og stúlkan í baksýn eru óþekktar. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir konuna eða stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 064
Kenny Hallbjörnsdóttir einhverntíma á unglingsárunum
Ólafur Bernódusson624
Guðbjartur er einn af fjölmörgum bátum sem gert hafa út frá Skagaströnd gegnum tíðina. 10. október 2007 var hann að fara í línuróður á myrkri nóttu. Á sama tíma var Húnabjörgin, björgunarbátur Landsbjargar á Skagaströnd, að fara í útkall. Þegar Húnabjörgin var við að fara fram úr Guðbjarti, rétt norður af Höfðanum, beygði hann skyndilega á stjórnborð, þvert fyrir Húnabjörgina, sem skall á Guðbjarti af fullum þunga. Afleiðingarnar sjást á þessari mynd því báturinn brotnaði mikið og tæki í stýrishúsinu eyðilögðust. Húnabjörgin skemmdist lítið og gat haldið afram í útkallið eftir að hafa fylgt Guðbjarti til hafnar. Skipstjóri Guðbjarts hafði setið í stólnum, sem var þar sem Húnabjörgin kom á bátinn, niðursokkinn við dýptarmælinn þegar áreksturinn varð. Hann hentist úr stólnum niður á gólf en slapp með skrámur. Á myndinni eru menn að skoða skemmdirnar á Guðbjarti. Frá vinstri: Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013), tveir óþekktir, Hafsteinn Pálsson og Sigurjón Guðbjartsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 877
Myndin var tekin 1960. Vitinn á myndinni er Gjögursviti. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Hjördís Sigurðardóttir - safn119
Feðgarnir Hendrik Berndsen til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri við golfskálann á Háagerðisvelli í september 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 943
Þrímastra skúta kemur til hafnar á Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 930
Bátur kemur til hafnar á Djúpavík hlaðinn fólki. Nafn bátsins er óþekkt en á kinnungnum stendur GK 515. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
Elínborg Jónsdóttir - safn 27
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður frá Másstöðum í Vatnsdal prúðbúin við reynitré í garðinum við Másstaði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 975
Þetta er gömul mynd af Sólvangi. Sólvangur stendur, allmikið breytt, á sjávarbakkanum rétt norðan við Skagaströnd. Húsið er nú notað sem sumarbústaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Herbert Ólafsson (25.4.2007) tók hana.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn038
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn var að fagna á hótel Dagbrún, því að hafði gengið á Spákonufellið fyrr um daginn eða í maí 1996. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri til hægri:Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, tvær óþekktar, Kristín Ólafsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Íris Valgeirsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Halla Lýðsdóttir og Signý Richter.
Elínborg Jónsdóttir - safn 5
Með þessari mynd stendur: "Elín í kyrtli". Ekki er vitað hver Elín er en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var líklega tekin við Másstaði í Vatnsdal.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 080
Þetta eru tvíburasysturnar Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Guðrún Angantýsdóttir. Ljósmyndasafnið veit þó ekki hvor er hvað þannig að ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn040
Nokkrar óþekktar stúlkur að salta síld. Konur voru yfirleitt alltaf með slæðu eða eitthvað annað yfir hárinu við söltunina. Ekki er víst að það hafi verið gert til að hár færu ekki í tunnuna með síldinni heldur vildu konur ekki fá hreistur, sem er mikill fylgifiskur síldarinnar, í hár sitt. Konurnar á myndinni eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 841
Hugrún Pálsdóttir fyrir utan útibú Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 853
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Á netinu má finns eftirfarandi lýsingu á Borgarvirki og sögu þess:<br><br>"Borgarvirki er klettaborg er stendur á ásnum milli Vesturhóps og Víðidals og er um 177 metra yfir sjávarmáli. Talið er að Borgarvirki sé gosstapi sem myndaðist við eldgos á hlýskeiði ísaldar. Efst í virkinu er 5-6 metra djúp skeifulaga dæld með skarð er snýr til austurs. Þar er hlaðinni grjótveggur frá fornu en hann var endurhlaðinn á árunum 1940-50 og víðar á Borgavirki má sjá hleðslur. Borgarvirki er friðað vegna minja, en inn í virkinu eru rústir af tveimur skálum og skammt frá þeim hruninn brunnur.<br><br>Samkvæmt sögnum var Borgarvirki nýtt sem virki á þjóðveldisöld. Og segir sagan að þar hafi Víga-Barði Guðmundsson í Ásbjarnarnesi verið á ferð. Hann deildi við Borgfirðinga eins og segir frá í Heiðarvíga sögu. Sagt er að óvinir hans hafi komið að sunnan með óvígan her. En Barði barst af því njósnir og kom sér og sínum mönnum fyrir í Borgarvirki, þar sem ómögulegt reyndist að sækja að honum. Tóku Borgfirðingar á það ráð að ætla að svelta Barða og hans menn inni. Þegar matinn þraut tóku virkisbúar sig til og hentu síðasta mörsiðrinu (sláturkeppnum) út úr virkinu. Voru þá Borgfirðingar vissir um að Barði hefði nægar vistir og héldu heim á leið. Frábært útsýni er úr Borgarvirki og þar hefur verið sett upp útsýnisskífa. Í tengslum við unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi er haldnir einstakir tónleikar í Borgarvirki í júlí hvert ár". <br>( Heimild:http://www.hunathing.is/ferdamenn/athyglisverdir-stadir/borgarvirki)<br>
Jósef H Sigurðsson - safn 042
Hugrún Sigurðardóttir í slökun með kettlinginn sinn heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hugrún var fædd 1973.
Árni Geir Ingvarsson - safn 913
Óþekktir menn í Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir manninn fremst á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 472
Signý Benediktsdóttir (d.7.1.1991) frá Balaskarði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 964
Á myndinni er verið að vinna að grjótvörn sunnan við gamla frystihúsið við Einbúastíg. Grjótlagerinn er í baksýn.
Hjördís Sigurðardóttir - safn083
Eftir nokkra undirbúningsvinnu er hér verið að koma golfskálanum á Háagerðisvelli fyrir á undirstöðum sínum sumarið 1991. Skálinn hafði áður gegnt hlutverki rafmagnsverkstæðis Hólaness hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 837
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Fritz Hendrik Berndsen fyrir útgáfu leikskrár.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 017
Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) frá Þórsmörk með sonarson sinn, Hafþór Gylfason, í fanginu fyrir utan Þórsmörk. Myndin var líklega tekin 1964.
Ólafur Bernódusson632
Vogmær er fremur sjaldgæfur fiskur sem rekur stundum á fjörur eftir brim. Þetta eintak, ásamt nokkrum öðrum, rak í fjöruna utan við Skagaströnd um áramótin 2006-7. Vogmær er mjög fallegur fiskur en þykir ekki góður til átu. Útlit Vogmeyjarinnar er afar sérkennilegt og frábrugðið öðrum fiskum við strendur Íslands. Fiskar af vogmeyjarætt eru þekktir fyrir hversu langir og þunnvaxnir þeir eru. Vogmærin er yfirleitt 1,5- 3.5 m á lengd en hefur þó fundist allt að 6 metra löng. Augun eru stór og munnurinn sérstakur þar sem hann lengist fram í trjónu þegar hann er opnaður. Stirtlan og sporðurinn eru skærrauð ásamt löngum bakugganum sem gengur eftir endilöngu bakinu. Aðrir uggar eru annað hvort afar litlir eða ekki til staðar. Sporðurinn er líka rauður og vísar upp á við. Í kringum augun er hún svört og einnig ofan á höfði og hnakka. Fyrir ofan raufina og hryggjarliði má sjá stóran, kringlóttan, svartan blett en að öðru leyti er hún silfurgljáandi. <br>(Heimild: https://is.wikipedia.org/wiki/Vogm%C3%A6r)
Árni Geir Ingvarsson - safn 945
Líklega er þetta færeyskur kútter á Íslandsmiðum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) úti á rúmsjó sennilega einhverntíma kringum 1960.
Hjördís Sigurðardóttir - safn049
Frændurnir Sverrir Brynjar Berndsen til vinstri og Birkir Rafn Gíslason til hægri sitjandi á tröppunum á Fellsborg kringum 1984 sælir með kókið sitt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn106
Golfkonur fyrir utan golfskálann á Háagerðisvelli 23. ágúst 1995. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Dagný Sigmarsdóttir, óþekkt, Fanney Zophoníasdóttir, Fríða Hafsteinsdóttir, Rósa Sigursteinsdóttir, Anna Ármannsdóttir, Bryndís Bragadóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn059
Fríða Hafsteinsdóttir til vinstri með dóttur sína Laufey Berndsen í fanginu og Hjördís Sigurðardóttir með son sinn Adolf H. Berndsen. Fríða og Hjördís eru svilkonur. Myndin var líklega tekin 1959.
Ólafur Bernódusson689
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni er Alma Vignisdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði á dagskránni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 076
Þessi mynd prýddi jólakort sem Sjóminjasafnið á Skagaströnd gaf út til að fjármagna starfsemi sína. Myndina tók Guðrún Guðmundsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið upp úr 1990. Ljósa húsið til vinstri er Drangey sem hefur nú verið rifið. Brúna húsið er Ásgarður en lengst til hægri er Herðubreið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 979
Myndin af þessum konum var tekin á þeim fáfarna stað, Árbakkasteini. Til vinstri er Hrefna Björnsdóttir en hin konan er óþekkt. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 832
Myndin var tekin á árshátíð eða innanfélags skemmtifundi Leikklúbbs Skagastrandar. Þar gerði fólk sér margt til skemmtunar en á þessari mynd er fólk að drekka kaffi og gæða sér á bakkelsi. Við borðið nær okkur eru: Anna Sjöfn Jónasdóttir vinstra megin við borðið. Hægra megin við borðið frá vinstri: Ólöf Ardís Árelíusdóttir, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Adolf H. Berndsen og Dagný Marín Sigmarsdóttir. Við borðið fjær, vinstra megin frá vinstri: Tveir óþekktir, Herborg Þorláksdóttir, óþekkt, Guðbjörg Viggósdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Vilhelm Þórarinsdóttir. Hægra megin við borðið frá vinstri: Jane Sillar, óþekkt, Rut Jónasdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir?, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Elín Njálsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn093
Þessar golfkonur unnu til verðlauna á golfmóti á Háagerðisvelli 30. ágúst 1993. Frá vinstri: Fríða Hafsteinsdóttir, Rósa Sigursteinsdóttir og Fanney Zophoníasdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 33
Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) með þrjú barnabörn líklega heima á Bogabraut 16. Börnin eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson684
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni eru kennararnir Elva Þórisdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri í gervum sínum þetta kvöld.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn070 - Copy
Kynnar á árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Helga Dögg Jónsdóttir og Ívar Gylfason kynna næsta atriði á dagskránni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn099
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli 11. júlí 1994. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Ingibergur Guðmundsson og Guðmundur Kristinsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 092
Jósep Sigurðsson í sínu fínasta pússi á jólum með dóttur sína Helgu Sigurbjörgu sem fæddist 14. júní 1985.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 020
Reynir Sigurðsson í Þórsmörk. Myndin var tekin kringum 1957. Húsið aftan við Reyni er Stórholt en til hægri við það glittir í lítið hús, Draumaland, sem horfið er fyrir áratugum síðan.
Árni Geir Ingvarsson - safn 870
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af virkinu yfir hátíðasvæðið og hluta tjaldsvæðisins. Til vinstri er danspallurinn sem settur var upp því dansað var þar eftir formlega vígslu virkisins. Í baksýn er Vesturhópsvatn.
Elínborg Jónsdóttir - safn 28
Á myndinni er verið að breiða úr ull á grasvelli til þurkunar eftir að hún hafði verið þvegin í stórum potti með sjóðandi vatni og síðan skoluð í bæjarlæknum. Myndin var tekin hjá bænum Másstöðum í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær og fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 997
Ragnar Smári Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Ragnar fæddist árið 1954 þannig að myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma rétt eftir 1960.
1
…
153
154
155
…
167
Leita í myndasafninu
Leita