Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn045
Þessi spariklæddu frændsystkini eru, í fremri röð frá vinstri: Laufey Berndsen með Hendrik Berndsen í fanginu, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Guðrún Björg Berndsen og Steinunn Berndsen. Í aftari röð frá vinstri: Guðrún Einarsdóttir, Ernst Berndsen og Adolf H. Berndsen. Myndin var líklega tekin 1967.
Jósef H Sigurðsson - safn 097
Þessi mynd var tekin á skírnardegi Sigríðar Sigurðardóttur árið 1963. Á myndinni er hún í fangi móður sinnar Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Faðir Sigríðar, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002), situr með bróður hennar Magnús Sigurðsson en annar bróðir hennar, Jósep Sigurðsson situr á milli foreldra sinna.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 055
Konan á myndinni er Áslaug Torfadóttir frá Drangsnesi. Hún kom til Skagastrandar sem vinnukona hjá Ole Aamundsen en fór síðan sem kokkur um borð í Aðalbjörgu HU 7. Myndin var líklega tekin í kringum 1960 í óþekktum bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn 916
Fólkið í fremri röðinni er frá vinstri: Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) Kúvíkum, Sigríður Halla Pétursdóttir Djúpuvík, óþekkt barn hennar og Emma Magnúsdóttir (d. júní 2000) Djúpavík. Aftari röð frá vinstri: Skúli Alexandersson (d. 23.5.2015) alþingismaður frá Kjós, Jón Pétursson Reykjarfirði, Matthías Pétursson Reykjarfirði og Þorsteinn Jónsson Gjögri.<br><br>
Ólafur Bernódusson631
Lárus Ægir Guðmundsson kann vel við sig úti í náttúrunni enda göngugarpur með afbrigðum. Á þessari mynd, sem tekin í Hólsdal við Siglufjörð, er Lárus á ferð í miðri lúpínubreiðu.
Óþekktur ljósmyndari380
Útför Guðmundar Sigvaldasonar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag föstudaginn 24. febrúar og hefst athöfnin kl. 13:30. Guðmundur Sigvaldason fæddist 14. apríl 1954 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu, Birkihlíð 6, Hörgársveit þann 8. febrúar 2017. Hann ólst upp í Garði í Kelduhverfi, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1973, BA-prófi í landafræði og prófi í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda við Háskóla Íslands 1978. Eftirlifandi eiginkona hans er Torfhildur Stefánsdóttir grunnskólakennari, frá Tungunesi í Fnjóskadal og eru börn þeirra þrjú; Sigvaldi, Álfheiður og Óðinn. Meginhluta starfsævinnar starfaði Guðmundur í opinberri þjónustu. Hann kenndi við Stórutjarnaskóla, vann hjá Fjórðungssambandi Norðlendinga og var framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. Þá var hann verkefnastjóri hjá Sorpeyðingu Eyjafjarðar og Akureyrarbæ og sveitarstjóri á Stokkseyri, á Skagaströnd og í Hörgárbyggð (síðar Hörgársveit). Síðustu tvö árin sinnti hann bókhaldi fyrir ýmis félög. Guðmundur var sveitarstjóri á Skagaströnd á árunum 1986 – 1990. Hans er minnst fyrir hlýlegt og alþýðlegt viðmót og vönduð vinnubrögð við allt sem hann tók sér fyrir hendur. Síðustu ár þurfti Guðmundur að takast á við erfið veikindi vegna krabbameins í fæti sem varð til þess að taka þurfti fótinn af við mjöðm. Þá kom vel í ljós æðruleysi hans og þrautseigja þar sem hann lét þessa erfiðleika ekki stöðva sig. Krabbamein er hins vegar illvígur sjúkdómur sem lagði góðan dreng að velli eftir snarpa baráttu.
Adolf H Berndsen - safn040
Myndin er af fyrstu sjoppunni á Skagaströnd en hún var rekin í græna timburhúsinu sem stendur vinstra megin við við Karlsskála. Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á Karlsskála var umboðsmaður fyrir olíufélagið BP á Íslandi og rak hann sjoppuna með Helgu dóttur sinni. Bensíndæla frá BP var fyrir utan sjoppuna eins og sést á myndinni. Ein af nýungunum sem sjoppan var með á sínum tíma var að fara að selja ís, pinnaís og ís í pökkum, upp úr frystikistu í sjoppunni. Lengst af var ekki fastur opnunartími í sjoppunni heldur þurfti að fara og banka á dyrnar á Karlsskála og biðja um afgreiðslu. Sjoppan var rekin í allmörg ár á árunum um og eftir 1960. Myndin var tekin á sjómannadaginn 1964 og konurnar á myndinni eru Oddný Þórisdóttir og Bára Þórðardóttir. Strákarnir eru Vilhelm Harðarsson nær og Aðalsteinn Jörgensen fjær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 974
Gömul mynd af Skagaströnd sem sýnir mörg þeirra húsa sem nú eru horfin og líka auð svæði sem nú eru þétt byggð. Áberandi til vinstri er húsið Gunnarshólmi eða Grafarbakki eins og það var oft kallað. Það nafn festist við húsið því það stóð nálægt mógröfum sem þarna voru. Húsið endaði svo ævi sína sem æfingahús fyrir slökkviliðið á Skagaströnd eftir að hafa staðið autt í allmörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina
Ólafur Bernódusson638
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að fá kort og blað til að fylla út vegna ratleiks sem haldinn var í sambandi við opnunina. Margir eru lagðir af stað en á myndinni er Sigurður Sigurðarson, með svarta prjónahúfu, að afhenda gögnin. Gylfi Sigurðsson er í brúnum frakka, Guðrún Guðbjörnsdóttir kona hans er með skrautlegan trefil, Steindór Haraldsson er til hægri með gleraugu og Árni Ólafur Sigurðsson rýnir í gögnin. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 451
Páll Jónsson (1893-1910). Páll drukknaði en séra Jón faðir hans var Árnason frá Þverá í Hallárdal og var prestur á Bíldudal.
Hallgrímur Kristmundsson safn068
Guðmundur Jóhannesson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1945.
Héraðsskjalasafn A-Hún 460
Hjónin Elísabet Björnsdóttir (1891-1974) og Fritz Hendrik Berndsen (1895-ágúst 1966) kaupmaður í Reykjavík með dætur sínar þrjár. Dæturnar þrjár heita Birna, Steinunn og Björg Ólöf en ekki er vitað hver þeirra er hver. Birna (d.?) og Steinunn (d. 5.1.2002) eru látnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 980
Konan á myndinni er óþekkt. Myndina tók Herbert Ólafsson (25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar (Siglufjörður?). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 994
Þetta eru systkinin Áslaug Jónsdóttir fædd 1943, Ari Jónsson fæddur 1946 og Aðalheiður Jónsdóttir fædd 1945. Þau eru börn Jóns Áskelssonar (d.26.3.1989) framkvæmdastjóra frystihúss Hólaness hf 1946 - 1959 og konu hans Ingibjargar Sæmundsdóttur (d. 7.2.2012). Fjölskyldan bjó í Hólaneshúsinu til 1959 er þau fluttu í Hafnarfjörð. Þessi mynd var líklega tekin utan við Hólaneshúsið 1947. <br>(Heimild: Ari E. Jónsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 888
Þessir þrír prúðbúnu menn eru óþekktir. Myndin hefur sennilega verið tekin í eða við Djúpuvík einhverntíma kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 059
Bylgja Angantýsdóttir frá Skagaströnd en nú bóndkona á Móbergi í Langadal.
Hjördís Sigurðardóttir - safn096
Þessir golfleikarar slaka á í golfskálanum á Háagerðisvelli meðan beðið er eftir að allir skili sér í hús. Myndin var tekin á golfmóti 30. ágúst 1993. Fólkið er frá vinstri: Jón Jóhannsson, Bryndís Bragadóttir, Rósa Sigursteinsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 022
Helga Berndsen frá Karlsskála heldur utan um Anne (?Jóhannsdóttur?). Líklega var myndin tekin kringum 1950.
Hjördís Sigurðardóttir - safn065
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) situr á tröppunum heima hjá sér á Bankastræti 9 með þrjú elstu börnin sín. Næst honum situr Guðrún Björg Berndsen þá Steinunn Berndsen og lengst til hægri er Adolf H. Berndsen. Myndin var tekin 1965.
Ólafur Bernódusson702
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd er Halldór Gunnar Ólafsson í búningi sínum en hann lék eitt af hlutverkum sýningarinnar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 069
Hér situr Angantýr Jónsson (d.28.7.1983) milli tvíburadætra sinna. Guðrún Angantýsdóttir er til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 075
Þessi mynd prýddi jólakort sem Sjóminja - og munasafnið á Skagaströnd gaf út til að fjármagna starfsemi sína. Myndina tók Jón Karl Snorrason úr lofti yfir Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á níunda áratugnum.
Jósef H Sigurðsson - safn 040
Rósa Dröfn Sigurðardóttir heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Rósa fæddist árið 1967.
Adolf H Berndsen - safn078
Stúlkurnar á myndinni skarta áramótahöttum þó ekki sé víst hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.?), Ásta Georgsdóttir og Guðrún Einarsdóttir. Myndin var líklega tekin í gömlu Tunnunni einhvertíma kringum 1970
Hjördís Sigurðardóttir - safn095
Þeir eru galvaskir ungu golfararnir á þessari mynd sem tekin var 30. ágúst 1993. Þeir eru, frá vinstri: óþekktur, Gunnar Dór Karlsson, Birkir Rafn Gíslason og Sigurður Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 847
Hér eru vinirnir Áslaug Gunnarsdóttir og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) fyrir utan útibú Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 949
Þessi mynd var tekin í Listigarðinum á Akureyri 1956. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er lengst til vinstri en hinir mennirnir eru óþekktir. Ef þú þekki þá vinsamlega sendu okkur þá athuagsemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 063
Prúðbúnir fulltrúar frá Skagaströnd á vinabæjarmóti í Växjö í Svíþjóð í ágúst árið 2000. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Jensína Lýðsdóttir og Adolf H. Berndsen.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 011
Jón Sigurðsson (d.26.7.1967). Jón var sonur Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) og Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) í Þórsmörk en alinn upp í Broddanesi hjá systur Hallbjargar.
Jósef H Sigurðsson - safn 068
Kenny Hallbjörnsdóttir .
Árni Geir Ingvarsson - safn 911
Séð heim að byggðinni í Djúpavík í Reykjarfirði syðri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 af Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) sem ólst upp í Kúvíkum og á Gjögri. Kúvíkur var lengi eini verslunarstaðurinn í Strandasýslu eða allt til ársins 1846 þegar Borðeyri fékk löggildingu sem verslunarstaður. Í dönskum skjölum voru Kúvíkur kallaðar lýsishöfn, sú eina á landinu sem þannig var flokkuð. Kemur þetta til vegna þess að mikilvægasta verslunarvara Árneshreppsbúa var hákarlalýsi. Eftir að einokunarverslun var lögð af höfðu kaupmenn fasta búsetu á staðnum. Verslunarstaðurinn var þá oftast nefndur eftir firðinum og kallaður Reykjarfjörður. Í dag er byggðin löngu horfin en reist hefur verið sumarhús á svæðinu og vegslóði lagður að því. <br>(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=8&id_art=653)
Hallgrímur Kristmundsson safn044
Myndin var líklega tekin í Listigarðinum á Akureyri kringum 1950. Á henni eru félagar í skemmtiferð í sparifötunum, frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 054
Myndin var tekin um borð í Aðalbjörgu Hu 7 á síldveiðum líklega sumarið 1961. Maðurinn á myndinni er Snorri Gíslason (d.29.5.1994).
Þórunn Bernódusdóttir - safn 025
Þetta eru skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd í "hike" ferð nálægt Skagaströnd vorið 1963. Slíkar ferðir voru gjarnan farnar á vorin og stóðu yfirleitt nokkuð langan dag þó stöku sinnum væru þær tveggja daga með gistingu einhversstaðar yfir nótt. Skátarnir eru frá vinstri: Helgi Bjarnason (d.1.3.2007) í Holti, Steindór Haraldsson í Höfðakoti, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) í Herðubreið félagsforingi Sigurfara , Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016) í Steinholti, Ester Axelsdóttir (d. ?) frá Læk, Helga Guðmundsdóttir úr Skeifunni, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti, Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti, Sigurður Pálmason í Pálmalundi og Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 055
Ekki er vitað um tilefni veislunnar sem er í gangi á myndinni. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Eðvarð Hallgrímsson og Sigurður Bjarnason.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 049
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) landar grásleppum um borð í Ósk Hu 33 þar sem Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) tók við þeim og skar. Óskin dróg skektuna sem Indriði fór svo um borð í og vitjaði um netin. Aflanum var síðan skilað um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppurnar meðan Indriði hinir fór í næstu trossu.
Ólafur Bernódusson678
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. Leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns á aldrinum 6 til 74 ára kom með í gönguna í blíðu veðri. Að fjallgöngunni lokinni beið göngufólksins kaffiveisla í golfskálanum á vegum kvennanna í Spákonuhofinu. Á myndinni eru þeir Stefán Jósefsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að njóta veðurblíðunnar uppi á Borgarhausnum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn117
Adolf H. Berndsen á Háagerðisvelli í september 1996. Adolf er meðal ötulustu forystumönnum Golfklúbbs Skagastrandar.
Elínborg Jónsdóttir - safn 20
Fjölskyldan á Másstöðum í Vatnsdal. Frá vinstri: Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977), Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jón Kristmundur Jónsson (d.1947).
Árni Geir Ingvarsson - safn 779
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Ekki mátti miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Á þessari mynd er Sigurjón Ástmarsson vörubifreiðastjóri að koma fyrir böndum á bílinn til að geta lyft honum upp úr gjótunni með krananum á bílnum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 724
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru ?Ellen Lind Sigurjónsdóttir? til vinstri og Indriði Björnsson til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 067
Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) fyir utan heimili sitt á Hólabraut 3. Í barminum er hann með heiðursorðu sjómannadagsins, sem hann hlaut 1998, og líklega hefur myndin verið tekin á sjómannadaginn það ár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 464
Haraldur Jónsson (1907-1981) á Skagaströnd frá Ósi á Blönduósi.
Jósef H Sigurðsson - safn 083
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) heldur hér á einu af börnum sínum á skírnardegi þess. Ekki er vitað hvert barnið er né hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 576
Egill Örn Ingibergsson með kyndilinn sinn að fylgjast með áramótabrennunni 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 915
Skólamynd Finnbogastaðaskóla tekin á Naustvíkurskörðum. Frá vinstri : drengur sem kallaður var Benni og var Sigurðsson frá Djúpuvík. Sörli Ágústsson frá Kjós. Herbert Ólafsson frá Gjögri. Þorsteinn Jónsson frá Gjögri. Helgi Jónsson frá Reykjarnesi. Svanur Jóhannsson frá Djúpuvík. og drengur lengst til hægri sem er óþekktur.<br>(Heimild: Valgeir Benediktsson eftir munnlegri heimild Skúla Alexanderssonar frá Kjós)<br>
Ólafur Bernódusson 594
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Stefáni Jónassyni kennara að spila undir hjá Viktoríu Hólmgeirsdóttur sem leikur á blokkflautu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 813
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: óþekkt, Þórhildur Jakobsdóttir, Ingimar Oddsson, William Sillar, Kristín Jónsdóttir, Fritz Hendrik Berndsen og Þórey Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson681
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er fólk komið niður af Borgarhausnum aftur en þá beið hópsins veislukaffi í golfskálanum á vegum Spákonuhofsins. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Jónmundur Ólafsson og Magnús B. Jónsson að gæða sér á veitingunum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 996
Hér grúir Ragnar Smári Ingvarsson sig yfir heimalesturinn fyrir skólann við eldhúsborðið heima á Bogabraut 16. Myndin var líklega tekin kringum 1964.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 9
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á þessari mynd eru byrjunarframkvæmdir í gangi. Verið er að byggja vinnupall á staurum sem hafa verið reknir niður. Vinnupallurinn var svo notaður til að reka niður fleiri staura og síðan til að stilla af stálplöturnar sem reknar voru niður og mynda viðlegukantinn í dag. Maðurinn á flekanum er Ólafur Bernódusson og yfir honum stendur Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri. Magnús Blöndal (d.7.9.2001) stendur við plankastaflann við kranann.
Hjördís Sigurðardóttir - safn124
Rolf Árnason (d.3.6.2014) að mála golfskálann á Háagerðisvelli líklega 1992.
Elínborg Jónsdóttir - safn 19
Jón Kristmundur Jónsson (d. 1947) bóndi á Másstöðum í Vatnsdal á hestbaki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 895
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn060
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Þessi mynd var tekin af nokkrum konum í eldhúsinu í Fellsborg að undirbúa kvöldverð og skemmtikvöld sem þær héldu í hópnum. Vigdís Elva Þorgeirsdóttir til vinstri og Eygló Gunnarsdóttir til hægri undirbúa veisluna ásamt fleirum sem eru óþekktar.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn031
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Linda Kristjánsdóttir (nær), Bryndís Guðjónsdóttir (fjær), baksvipur Signýjar Richter, Jóel Kristjánsson og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn054
Adolf H. Berndsen á fermingardaginn sinn ásamt séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) sem fermdi hann í Hólaneskirkju vorið 1973.
Héraðsskjalasafn A-Hún 351
Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd. Jóhann sem var vélstjóri var oft kallaður Jói Norski. Um hann skrifaði Erling Davíðsson bókina: "Jói Norski: á selveiðum með norðmönnum" en þar segir Jóhann frá ævihlaupi sínu. Í bókinni, sem kom út 1972, segir Jói meðal annars frá sextán selveiðiferðum sem hann fór norður í höf með Norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar ásamt fleiri ævintýrum sem á daga hans dreif. Jóhann bjó í mörg ár á Skagaströnd og vann sem vélstjóri í frystihúsinu og seinna hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Hann var völundur við smíðar hvort sem um var að ræða tré eða járn.
Skagaströnd - safn430
Ásholt stendur utan í Ásholtshólnum norðan við aðal byggðina á Skagaströnd. Íbúðarhúsið er til hægri á myndinni og síðan koma sambyggð skepnuhús og hlaða eins og oft var gert á þeim tíma er Ásholt var byggt, enda töluverður búskapur stundaður af ábúendum í Ásholti.
Jósef H Sigurðsson - safn 041
Á myndinni eru fjórir ungir, hraustir menn. Frá vinstri: Axel Gígjar Ásgeirsson, óþekktur, Ólafur Ásgeirsson og Vilhelm Jónsson. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin en ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
155
156
157
…
167
Leita í myndasafninu
Leita