Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jósef H Sigurðsson - safn 044
Það ríkir gleði á þessari mynd hjá þeim, frá vinstri: Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011), Jósep Sigurðsson, Axel Gígjar Ásgeirsson og Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001).
Hjördís Sigurðardóttir - safn068
Hjónin Róbert Þórðarson (d.26.11.2011) og Magdalena B. Jóhannesdóttir (d.?). Myndin ver tekin 1994. Róbert var fyrsti útbússtjóri Landsbankans á Skagaströnd eftir að bankinn yfirtók Sparisjóð Skagastrandar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 073
Rækjupökkun í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Þórarinn Hjartarson (d.28.1.1991) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jósef H Sigurðsson - safn 090
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsi heldur hér á Jósep syni sínum. Sigurður eignaðist ellefu börn með tveimur konum sínum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 072
Þessir tveir menn voru verkstjórar í Rækjuvinnslunni hf í fjölda ára. Grétar Haraldsson til vinstri og Kristófer Árnason (d.10.5.2000) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn087
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru konurnar að borða á óþekktum veitingastað. Við borðið nær eru frá vinstri: Eygló Gunnarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, óþekkt, Guðbjörg Viggósdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Aðrar á myndinni eru óþekktar.
Barnaból - safn352
Ásgeir Sigmar Björnsson í leikskólanum Barnaból 2008 - 2009.
Hjördís Sigurðardóttir - safn070
Prúðbúnir í ársbyrjun 1994. Frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Jón Ólafur Ívarsson (Daddi)(d.29.12.2013) og Hendrik Berndsen. Reynir og Daddi voru mágar en Hendrik er systursonur Reynis. Tilefni myndatökunnar er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 795
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af ljósameistaranum Árna Geir Ingvarssyni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 978
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Myndin var tekin í Reykarfirði syðri, sennilega á Djúpavík en ekki er vitað hvenær. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 004
Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri kátur með tvo til reiðar.
Ólafur Bernódusson675
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.
Á myndinni er Sigurður Bjarnason með dætrum sínum, Svövu Sigurðardóttur til vinstri og Ingu Láru Sigurðardóttur til hægri, í vatnspásu á leiðinni á toppinn. Vinstra megin við Sigurð situr Magnús B. Jónsson að fá sér vatnssopa en hægra megin við þau feðgin stendur Stefán Ægir Lárusson og skyggnir umhverfið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Elínborg Jónsdóttir - safn 33
Þetta fólk er í útreiðartúr. Önnur frá hægri er Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður frá Másstöðum í Vatnsdal. Hitt fólkið er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 070
Margrét Sigurðardóttir (d.8.9.1982) frá Mánaskál við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Margrét var oft kennd við Fjallsminni sem er húsið sem hún bjó í á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn105
Golfarar 28. ágúst 1995 líklega fyrir utan golfskálann á Blönduósvelli. Frá vinstri: óþekktur, Sverrir Brynjar Berndsen, Hendrik Berndsen, Davíð Bragi Björgvinsson og Ingibergur Guðmundsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 046
Systurnar Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Þórey Jónsdóttir til hægri með systur sína, Sigrúnu Jónsdóttur, í vagni framan við fjárhús og hlöðu afa síns í Þórsmörk sumarið 1966.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 058
Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) í sparifötunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 003
Þessi mynd var tekin út um lúgu á söluskála Shell á Skagaströnd meðan hann var staðsettur við Bogabraut 3. Björk Sveinsdóttir er með Jón Ólaf Sigurjónsson í fanginu. Myndin var tekin kringum 1980.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn047
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004 ásamt nokkrum fylgifiskum. Á þessari mynd er hluti hópsins á hlaði kirkjunnar. Frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Jóhanna Jónasdóttir, Gestur Jónsson (d. 27.1.2015), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) (nær), óþekktur, Jónína Valdimarsdóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir, Guðný Finnsdóttir, óþekkt, Ottó Ákason (d.17.9.2005), Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og óþekkt.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn023
Konur í peysufötum bjóða gesti velkomna á þorrablót á Blönduósi 27. janúar 1996 með brennivísstaupi og hákarli. Páll Ingþór Kristinsson er til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Konan í bláa jakkanum er Sigurlaug Valdimarsdóttir (d.26.9.2000) en sú sem heldur á hákarlinum er Auður Hauksdóttir. Konan næst myndavélinni er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 095
Hér er Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) með þremur barnabörnum. Standandi er Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir en sitjandi framan við hana er systir hennar Dagný Marín Sigmarsdóttir. Barnið í fangi Dagnýjar er sonardóttir hennar Bjarnlaug Dagný Vilbergsdóttir. Myndin var tekin 1968.
Adolf H Berndsen - safn089
Júlíus Adolf Berndsen (d.29.9.1888) var bróðir Carls Berndsen (d.15.12.1954) kaupmanns á Hólanesi. Júlíus flutti til Ameríku og dó þar aðeins 25 ára gamall. Frændi hans Adolf Jakob Berndsen fyrrverandi oddviti á Skagaströnd var skýrður í höfuðið á Júlíusi Adolf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 881
Suður af Djúpuvík gnæfir klettabelti og þar fellur Djúpavíkurfoss fram af klettabrúninni. Á síðari tímum hefur fossinn stundum verið nefndur Eiðrofi og fylgir því nafni þjóðsögn um stúlku sem kastaði sér í fossinn vegna svika unnusta síns.
(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=10&id_art=650)
Ólafur Bernódusson 623
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af harmónikuhljómsveit skólans þetta ár. Frá vinstri: Heba Líf Jónsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Guðmann Magnússon, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn061
Guðbjörg Viggósdóttir skreytir matborðið fyrir veislu félagsskaparins Líkami og sál sem haldin var í Fellsborg á þrettándanum 2003.
Jósef H Sigurðsson - safn 067
Kambakot í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) séð úr lofti.
Adolf H Berndsen - safn079
Þetta hús var reist fyrir verslunarstjóra Kaupfélags Vindhælinga - síðar Kaupfélag Skagstrendinga - einhverntíma kringum 1910. Húsið, sem stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið við Einbúastíg, var svo rifið kringum 1980.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 018
Hjördís Sigurðardóttir í frystihúsgallanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 072
Þessar tvær prúðbúnu konur eru tengdamæður barna hvor annarar.Jóhanna Jónasdóttir til vinstri er móðir Bylgju Angantýsdóttur en Helga Ólína Aradóttir (d.27.6.2004) til hægri er móðir Halldórs Einarssonr sem er maður Bylgju. Bylgja og Halldór eru bændur á Móbergi í Langadal.
Hjördís Sigurðardóttir - safn130
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Gísli Snorrason og Stefán Þór Árnason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 141
Systrasynirnir Heiðar Elvan Friðriksson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri sumarið 1963.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 050
Angantýr Jónsson (d. 28.7.1983) skáld og verkamður. Angantýr var sonur Guðrúnar Árnadóttur - Guðrúnar frá Lundi - og Jóns Þorfinnssonar. Hann var í sambúð með Jóhönnu Jónasdóttur á Skagaströnd og eignuðust þau þrjár dætur: tvíburana Guðrúnu og Sigurbjörgu (d. 10.9.1997) og Bylgju. Angantýr gaf út tvær frumsamdar ljóðabækur: Geislar og glæður 1962 og Huldar slóðir 1964 einning skrifaði hann töluvert í blöð og tímarit. Til gamans er hér birt fallegt en stutt kvæði eftir Angantý:
Enn þá vakir einhver þrá
innst í hugans línum.
Alltaf finn ég ylinn frá
æskustöðvum mínum.

Þar var allt til ununar
út við bláan sæinn.
Man ég grænu grundirnar
og gamla sveitabæinn.

Dagný Sigmarsdóttir - safn 037
Ingólfur Bjarnason á heimavelli í Rækjuvinnslunni hf en hann vann þar sem verkstjóri um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 801
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: tveir óþekktir og Kristín Jónsdóttir fjærst, Þorvaldur Skaftason nær, Ingimar Oddsson fjær, Steindór Haraldsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir og William Sillar. Á bakvið sér í Þórhildi Jakobsdóttur spilandi á harmóniku.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn030
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru þáverandi sambýlisfólk, Garðar Geirfinnsson og Íris Valgeirsdóttir að taka sér pásu á leiðinni upp.
Árni Geir Ingvarsson - safn 829
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg þegar fólk skemmti sér við útúrsnúning á texta verksins. Leikararnir eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Ágústa Friðriksdóttir og Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006).
Jón Jónsson 462
Unglingasveit í róðri á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum fyrir sigur í sínum flokki úr höndum Ingvars Jónssonar (d.29.7.1978) kynnis dagsins. Í sveitinni eru frá vinstri: Karl Guðmundsson, Kári Sigurbjörn Lárusson, Böðvar Jónsson, tveir óþekktir og Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001). Myndin hefur líklega verið tekin rétt fyrir 1970. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 838
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af Sigrún Jónsdóttir fyrir útgáfu leikskrár.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 051
Þarna sitja þrjár kynslóðir og sleikja sólina utan við húsið að Sunnuvegi 2. Frá vinstri: Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004), Dagný Marín Sigmarsdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Dagný eldri er föðuramma Dagnýjar yngri en Sigurbjörg er móðir hennar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1
Rúnar Þór Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Rúnar er fæddur 1950.
Skagaströnd - safn438
Brimnes við Hólanesveg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 855
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Þarna spilar Lúðrasveit Reykjavíkur inni í virkinu fyrir fjölmarga gesti sem mættu á vígsluhátíðina þeirra á meðal hópur frá Húnvetningafélaginu í Reykjavík.
Árni Geir Ingvarsson - safn 959
Sennilega voru þetta starfstúlkur í síldarmötuneytinu í Djúpuvík. Efst í hópnum trónir Ester Magnúsdóttir í Djúpuvík seinna í Hafnarfirði. Hinar stúlkurnar eru óþekktar. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir einhverja stúlknanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 005
Þessi skólamynd var tekin af stúlkum úr Höfðaskóla á tröppum "Gamla skólans" eða Bjarmaness eins og húsið heitir. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigurbjörg Kristjánsdóttir frá Háagerði, Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála, Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Sigríður ?, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti og Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti. Aftari röð frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti, Ástríður Bertelsdóttir í Drangey, Dagný Þórðardóttir, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún, Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi og Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi. Tröppurnar sem stúlkurnar sitja í voru austan á húsinu með forstofu sem sér í. Tröppurnar og forstofan hafa nú verið brotin niður og húsið sjálft verið sett í sitt upprunalega horf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma rétt fyrir 1958 þegar Höfðaskóli var færður í nýtt hús.
Ólafur Bernódusson639
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er einn af nokkrum hópum sem mættu við opnunina og gengu Höfðann. Samfara því tóku hóparnir þátt í ratleik sem haldinn var í tilefni opnunarinnar. Á myndinni er hópurinn að ráða ráðum sínum og hvíla sig augnablik uppi á Spönskudys sem er norðast á Höfðanum. Í hópnum eru, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Magnús B. Jónsson (snýr baki í myndavélina), óþekktur strákur, Steindór R. Haraldsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Ívan Árni Róbertsson (snýr baki í myndavélina) nær, Sigurbjörg Birta Berndsen fjær, Róbert Björn Ingvarsson nær, Björk Sveinsdóttir fjær og Guðrún Pálsdóttir. Með rauðröndótta húfu er Guðrún Anna Halldórsdóttir en með svart/græn köflótta húfu er Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
Adolf H Berndsen - safn072
Á myndinni situr Ernst Berndsen (d.21.8.1983) í Karlsskála á rúmstokknum hjá vini sínum Gísla Einarssyni (d. 27.10.1969) frá Viðvík.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 038
Hulda Á. Stefánsdóttir (d.26.4.1989) skólastýra Kvennaskólans á Blönduósi spilar á píanó fyrir skólastúlkur veturinn 1959 - 1960.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 064
Hér er fólk að koma sér af stað af náttstað í ferðalagi með Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma kringum 1974. Fremst á myndinni er Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015) og maðurinn í svörtu jakkafötunum til hægri er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 957
Þegar síldarverksmiðjan var reist á Djúpavík 1934 - 1935 var ekki vegasamband þangað því vegur var ekki lagður norður í Árneshrepp fyrr en 1965. Þess vegna var sjórinn í raun þjóðvegurinn þangað og þaðan. Á myndinni má sjá litla trillu, fulla af fólki, líklega á leiðinni frá Kúvíkum inn að Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
Guðrún Guðbjörnsdóttir118
Damian Lukasz Kacica að beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 017
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið um 1950. Á henni eru frá vinstri: óþekkt kona, Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) (Elsa), Ernst Berndsen (d.21.8.1983) í Karlsskála, Anne (?Jóhannsdóttir?), Unnur G. Björnsdóttir (d.14.12.1990) í Þórshamri og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) í Stórholti. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 013
Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) í Þórsmörk á sjómannadegi 1965. Húsið sem sér í vinstra megin við höfuð Sigurðar er Efri-Lækur, sem nú er löngu horfinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 843
Hulda Magnúsdóttir fyrir utan útibú Kaupfélags Húnvetninga líklega um 1980.
Hjördís Sigurðardóttir - safn078
Hjónin Gunda Cecelie Jóhannsdóttir (d.9.11.2013) og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985). Myndin var tekin 1971 líklega á Akureyri.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn027
Ívar Gylfason í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 064
Hjónin Lúðvík Jóhann Ásgeirsson og Guðrún Björg Berndsen.
Adolf H Berndsen - safn107
Ungur nemur, gamall temur segir máltækið. Á myndinni er Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) að kynna leikskólakrökkum úr Barnabóli golfíþróttina. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 580
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 8. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: óþekktur, Ernst Guðni Hólmgeirsson, óþekkt, Alma Dröfn Vignisdóttir, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Erna Ósk Björgvinsdóttir, Linda Rós Ómarsdóttir og Saga Lind Víðisdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 897
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær né hvar. Ef þú þekkir einhvern mannanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 043
Hrönn Árnadóttir til vinstri og Guðrún Angantýsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1

157
158
159

167
Leita í myndasafninu
Leita