Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Sigrún og Bogi Theodór með börn sín Birnu Sólveigu, Jónann Ö
Sigrún Jónsdóttir heldur á Óla Jóni Bogasyni, Birna Sólveig, Jóhann Örn og Bogi Theódór.
Sigrún amma
Sigrún ? Þessi kona var amma þorgerðar Unu Bogadóttur sem átti þessa mynd. Ef þú veist frekari deili á Sigrúnu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
mundi403
Ferming í Hólaneskirkju 1961. Pétur Jóhannsson og Sigurður Bjarnason ganga niður kirkjutröppurnar. Stúlkan er óþekkt.
Bogi Theodór Björnsson H-97
Bogi Theodór Björnsson, sennilega á blæju willys H-97.
Sigurbjörn Björnsson
Sigurbjörn Björnsson.
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga 1963
Líkfylgd við útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga sem lést af slysförum 1963 og var jarðsettur í Spákonufells kirkjugarði.
larus082
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Full kirkja af fólki í ófrágenginni kirkjunni.
mundi438
Reynir Sigurðsson í fjörunni fyrir neðan Einbúann. Myndin tekin ca 1960.
larus036
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Byggingarnefndin, frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Gylfi Sigurðsson, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, Steinnun Steinþórsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson formaður.
hem025
Réttastörf í óþekktri rétt. Ef þú þekkir réttina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
mundi427
Signý Ástmarsdóttir á fermingardaginn sinn.
larus032
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Skarphéðinn Einarsson leikur á trompet við píanóundirleik Julian Hewlet.
larus073
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 afmæli Höfðahrepps. Troðfullt í hálfkaraðri kirkjunni.
larus060
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Steypuvinna. Gamla kirkjan og Borgin vaka yfir framkvæmdum.
Sóley Benjamínsdóttir
Sóley Benjamínsdóttir alin upp í Skálholti.
mundi413
Bæirnir undir brekkunni Örlygsstaðir til vinstri og Hlíð til hægri. Milli þeirra eru skemmur og útihús.
mundi394
Talið upp úr kjörkössunum. Við borðið sitja kjörstjórnarmennirnir Jóhannes Hinriksson (.27.101973) og Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986). Milli þeirra stendur Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppsstjóri og formaður kjörstjórnar. Fyrir aftan standa, og fylgjast með að allt fari rétt fram, (frá vinstri) Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) fyrir Alþýðubandalagið, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) fyrir Alþýðuflokkinn
Kristinn Ágústsson
Kristinn Ágústsson frá Blálandi
Myndir frá Skagaströnd 003
Þarna sést í Sólheima til vinstri, hornið á efri Sólheimum nær okkur en tvílyfta húsið eru Sólheimar. Bjarmaland til hægri. Næst okkur á myndinni sér ofan á þakið á Valhöll vinstra megin en Steinholt hægra megin.
larus078
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Konurnar tvær fremst á myndini eru óþekktar en á næsta bekk eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) kona hans, Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990) og Guðný Finnsdóttir. Standandi eru frá vinstri: Finnur Kristinsson, Jón Ingi Ingvarsson, Guðný Finnsdóttir, Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992), Birna Blöndal, óþekkt, Gunnar Sveinsson, óþekktur, Rúnar Kristjánsson, Guðrún Hrólfsdóttir og Grétar Haraldsson með kvikmyndatökuvél.
hem004
Frá Spákonufellshöfða myndin er tekin 1910 eða eldri. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
mundi399
Börnin á myndinni eru óþekkt og ekki er heldur vitað hvar myndin er tekin. Ef þú veist eitthvað um það sem er á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
oþekkt134
Starfsfólk frystihús Kaupfélags Skagastrendinga. Kristján Sigurðsson í Þórshamri og Sigurður Sigurðarson íþróttamaður.
mundi346
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver. Þórður Jónsson (d.25.12.2009) sést í dyrunum uppi til hægri.
hem027
Landsendarétt var skilarétt á Skagaströnd áður en Spákonfellsrétt var byggð. Landsendarétt var byggð úr öflugum grjóthleðslum en grjótið var tekið úr fjörunni fyrir neðan hana. Hún stóð á sjávarbakkanum á flatlendinu austan við Landsenda (nyrsta enda Höfðans) og norðan við Réttarholt. Nú eru ummerki um réttina nánast öll horfin vegna sjávarrofs. Torfhúsin uppi í brekkunni í baksýn voru skepnuhús. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hana tók Evald Hemmert (1886 - 1943) verslunarmaður á Skagaströnd og Blönduósi þannig að líklega hefur það verið kringum 1930.
Björn Aðils Kristjánsson
Björn Aðils Kristjánsson frá Þórshamri.
larus010
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991. Á myndinni má sjá Steindór Haraldsson, Elínu Njálsdóttur, Ólaf Magnússon, Gunnar Helgason, Eygló Gunnarsdóttur, Guðrún Angantýrsdóttir, Sigurbjörg Angantýrsdóttir, Jóhann Sigurjónsson og Sigurjón Guðbjartsson. Kirkjukórinn syngur við undirleik Julians Hewlet.
larus015
Predikunarstóll Hólaneskirkju eldri. Myndin tekin 6. október 1991.
Fjóla og Guðný Sigurðardætur
Sigurbjörg Fjóla Sigurðardóttir (1926-2012) og Guðný Sigurðardóttir (1927-) fluttust á Akranes árið 1943 og hafa búið þar síðan. Myndin er tekin 13. maí 1945 af Bjarna Árnasyni á Akranesi

mundi477
báturinn á myndinni ber einkennisstafina SH 5. Nafn bátsins og undarleg staðsetning hans er óþekkt þannig að ef þú veist eitthvað um það sem er á þessari mynd vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
larus074
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30 júlí 1989. Messan haldin í tilefni 50 ára afmælis Höfðahrepps. Á fremsta bekk eru, frá vinstri: Guðný Hjartardóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Elsa Kristjánsdóttir og Jóna Vilhjálmsdóttir. Á næsta bekk eru: Guðbjörg Ólafsdóttir með barn í fanginu, Teitný Guðmundsdóttir,Sigurbjörg Angantýrsdóttir. Á bekknum þar fyrir aftan eru: Bernódus Ólafsson (hálfur inn á myndinni) Guðný Finnsdóttir og Sigurður Magnússon. Standandi aftast má þekkja Gunnar Sveinsson, Rúnar Kristjánsson, Guðrúnu Hrólfsdóttur og Grétar Haraldsson sem er með myndavél fyrir hálfu andlitinu.
mundi380

Gréta Jónsdóttir Laufási og Aðalheiður Másdóttir Réttarholti í sundi

larus008
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.
Steindór R. Haraldsson meðhjálpari les.
mundi326
Ragnar Ingvarsson á fermingardaginn vorið 1968. Myndin tekin í skólanum.
mundi432

Karl Lúðvíksson sýnir fimi sína við að standa á höndum ca 1960

larus035
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Frá vinstri: Helgi Gunnarsson byggingameistari, Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall arkitektar kirkjunnar, Gunnar Einarsson innanhússarkitekt, Karl Ómar Jónsson rafmagnsverkfræðingur. Allir lögðu þeir hönd á plóginn.
Unnur og Kristján í Þírshamri
Hjónin Unnur Gíslína Björnsdóttir (d.14.12.1990) og Kristján Sigurðsson (d.3.11.1966) í Þórshamri.
Halla Bernódusdóttir
Halla Björg Bernódusdóttir
mundi424
Kranabíllinn H-533 var í eigu Skagastrandarhafnar. Þetta var REO bíll með nokkuð öflugum krana og var alltaf kallaður hafnartrukkurinn. Líklega kom bíllinn frá Bandaríska setuliðinu á sínum tíma. Stjórnhúsið á krananum sjálfum var smíðað af vélaverkstæði Karls Berndsen. Bíllinn var mikið notaður við hífingar í löndunum á fiski, steypuvinnu og fleiru. Einnig var hann leigður út, með manni, í ýmis verkefni í héraðinu. Bíllinn endaði svo ævi sína sem brotajárn. Myndin var tekin af bílnum utan við Héðinshöfða en þar bjó, í suðurendanum, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) með sinni fjölskyldu. Kristinn var hafnarvörður í nokkur ár og sá um bílinn og vann á honum. Til gamans má geta þess að bíllinn í baksýn var í eigu Ástmars Ingvarssonar (d. 10.10.1972) sem bjó í norður enda Héðinshöfða með sínu fólki. Á þessum bíl ók hann fólki í hópferðum á böll hingað og þangað og fór einnig í lengri ferðir um land allt.
oþekkt133
Starfsfólk frystihúss Kaupfélags Skagstrendinga. Elsa Pétursdóttir Lækjarbakka, Kári Kristjánsson Kárastöðum, Jóhanna Thorarensen, Vilborg Jónsdóttir Bergi , Hrólfur Jakobsson og Hjördís Sigurðardóttir.
larus029
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, sem var lengi í sóknarnefnd kirkjunar og mjög öflugur liðsmaður í fjáröflun fyrir byggingu hennar, flytur ræðu.
Erla Lárusd, Gerða Bogad, Bogi og Binna
Erla Lárusdóttir og Þorgerður Bogadóttir. Börnin fyrir framan þau eru Bogi og Birna
mundi364
Frá vinstri. Hörður Ragnarsson (Dengsi), Trausti Bertelssson og Ólafur Bertelsson. Myndin er tekin við Bjarmanes.
mundi386
Sundlaugin fyrir endurbætur. Byggingin til vinstri var kyndiklefi með stórum kyndikatli sem brenndi svartolíu. Búningsklefarnir eru svo til hægri með starfsmannaaðstöðu á milli klefanna. Á þeim tíma sem myndin var tekin var laugin ekki opin nema ca þrjár vikur á sumri og þá fór þar fram sundkennsla skólabarna.
mundi418
Heiðar Elvan Friðriksson (Teni)
mundi362
Ólafur Bertelsson oft kallaður Óli pungur vegna þess að hann hafði pungur sem áhersluorð. T.d. ef skoðaður var flottur bíll sagði Ólafur: "Heldurðu að sé nú pungur maður".
larus012
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.
Séra Egill Hallgrímsson predikar.
larus063
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Smiðir á vegum Helga Gunnarssonar vinna við þakfrágang á kirkjuskipinu 1989.
mundi398
Talið frá vinstri: Petrea Jónsdóttir (d.22.3.1972) Skrapatungu heldur á dótturdóttur sinni Elinbjörgu Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum, Helga Guðmunsdsóttir með Önnu Kristjánsdóttur dóttur sína. Myndin er líklega tekin á prestbústaðnum á Höskuldsstöðum (kjallara).
mundi454
Helga Björg HU-7 skreytt á sjómannadegi. Verið að undirbúa sýningu á björgun með fluglínutækjum.
Sigrún Jónsd, Bogi Th Björnsson og Gúrý
Sigrún Jónsdóttir, Bogi Th. Björnsson og Gúrý.
Mamma, Dúddi ,Sæbjörg og Bogi
Þorgerður Bogadóttir (d. 29.1.2002) Þórarinn Guðlaugsson ( Dúddi ) (d. 19.4.2005) maður hennar og börnin þeirra Sæbjörg og Bogi
larus088
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Frá vinstri: Páll Þorfinnsson rafvirki, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og Örnólfur Hall arkitekt.
oþekkt139
Erla María Lárusdóttir afhendir forsetanum frú Vigdísi Finnbogadóttur blóm, Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumaður fylgist með. Myndin var tekin þegar Vigdís kom í opinbera heimsókn í Húnavatnssýslu sumarið 1988.
Binna og Óla í Höfðakoti
Birna Lúkasdóttir og Ólína Steingrímsdóttir í Höfðakoti (til hægri)
mundi328
Kjartan Bjarnasson á fermingardaginn sinn vorið 1968.
larus075
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Frá vinstri: Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri, óþekkt barn, Hrólfur Pétursson, Torfhildur Stefánsdóttir, óþekkt, Sylvía Hrólfsdóttir, óþekktur, Pétur Eggertsson, Ólafur Bernódusson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Finnur Kristinsson, Jón Ingi Ingvarsson og Guðný Finnsdóttir.
mundi344
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver.
larus061
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Sökkullinn frágengin en unnið að steypuvinnu við byrjun á kirkjuturninum. Gamla kirkjan í baksýn.
larus016
Myndin er af kirkjuskipinu inni í Hólaneskirkju eldri. Á henni er Steindór Haraldsson meðhjálpari lengst til hægri en hitt fólkið er óþekkt. Myndin var tekin 6. október 1991.
1

15
16
17

167
Leita í myndasafninu
Leita