Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn097
Þrjár golfkonur í golfskálanum á Háagerðisvelli 30. ágúst 1993. Frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Fanney Zophoníasdóttir og Anna Lára Ármannsdóttir.
Ólafur Bernódusson 682
Ritnefnd Húnavökuritsins kynnir Húnavökuna 2001 í júní það ár í Kántrýbæ. Frá vinstri: Páll Ingþór Kristinsson, Magnús B. Jónsson, Stefán Á. Jónsson (d.29.6.2009) ritstjóri og Ingibergur Guðmundsson. Lengst til hægri er Björgvin Þórhallsson sem var formaður USAH á þessum tíma en ekki í ritnefndinni.
Adolf H Berndsen - safn103
Ungir kylfingar utan við Kántrýbæ eftir að hafa verið á Háagerðisvelli við golfiðkun. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1998.
Ólafur Bernódusson 677
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd er félagsmálaráðherrann Magnús Stefánsson sannarlega á heimavelli með gítarinn í fanginu enda þekktur og vinsæll úr hljómsveitabransanum á Íslandi.
Hjördís Sigurðardóttir - safn112
Fjör í golfskálanum á Háagerðisvelli í júlílok 1996. Frá vinstri: Helga Berndsen, Sverrir Brynjar Berndsen, Laufey Berndsen, Guðrún Björg Berndsen og Þórunn Óladóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 884
Þessi mynd var tekin í Djúpuvík í Reykjarfirði líklega einhverntíma kringum 1940. Maðurinn á myndinni er óþekktur en er sennilega einn af síldarspekúlöntunum eða einhver sem tengist síldarvinnslu á einhvern hátt. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Guðrún Sigurðardóttir - safn 067
Vinahópur á tröppunum á Bogabraut 14. Frá vinstri: Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson og Jóney Gylfadóttir. Myndin var tekin kringum 1980.
Adolf H Berndsen - safn057
Húsin tvö, það með græna þakinu og hitt með dökka þakinu, eru bæði horfin en ný hafa risið í þeirra stað á lóðunum. Húsið til vinstri hét Sóllundur (Hólabraut 8) en það til hægri hét Goðhóll (Hólabraut 10).
Árni Geir Ingvarsson - safn 918
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er lengst til vinstri á þessari mynd og Guðrún Árnadóttir (d.?) er á milli hans og óþekkts manns. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 í Djúpavík. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sednu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 26
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) í Stórholti.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 051
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd, líklega kringum 1960. Maðurinn til hægri í dökku peysunni með húfuna er Gunnar Sveinsson og hægra megin við hann er Ómar Þorbjörnsson frá Akurgerði. Maðurinn til vinstri er óþekktur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Viningslið í róðri á Sjómannadegi. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Lilja Kristinsdóttir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 936
Maðurinn á myndinni er óþekktur en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn044
Þetta hús hét Brautarholt. Brautarholt stóð vestan í hólnum sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Maðurinn framan við húsið er Ólafur Guðmundsson (d.16.10.1985) en hann bjó þar blindur síðustu æviár sín.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn024
Birna Lúkasardóttir býður gestum ískalt brennivínsstaup við komuna á þorrablót á Blönduósi 27. janúar 1996.
Ólafur Bernódusson657
Hljómsveitin Janus kemur fram í samkomutjaldinu á Kántrýdögum 13. ágúst 2010. Frá vinstri: Fannar Viggósson, Þórarinn Grétarsson, Þorvaldur Skaftason, Kristján Blöndal, Hjörtur Guðbjartsson og Guðmundur Jónsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn102
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli 25. júlí 1994. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Guðmundur Kristinsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 020
Þessi mynd var tekin í skemmtiferð, líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Á henni eru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) í Stórholti og Vilborg Jónsdóttir (d.?) Stóra -Bergi.
Hjördís Sigurðardóttir - safn072
Mynd tekin heima á Karlsskála. Systurnar Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) til vinstri og Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1986) til hægri með barnahóp. Börnin eru frá vinstri: Karl Berndsen (d.28.1.2020), Hendrik Berndsen, Laufey Berndsen og Guðrún Björg Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 579
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 3. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Viktor Már Einarsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Jóhannes Sigurpálsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Valgerður Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Auður Eva Guðbjargardóttir, Tryggvi Fjölnisson Arnrún Ösp Guðjónsdóttir og Sigurður Aron Björnsson.
Ólafur Bernódusson 651
Árið 2006 var piparkökudagurinn var haldinn í Barnabóli 21.desember. Á þessari mynd eru hjónin Þórunn Ævarsdóttir og Björn Sigurðsson með syni sína þá Sindra til vinstri og Sigurð Aron til hægri á milli sín. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 960
Á þessari mynd er Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) lengst til vinstri. Hún sendi móður sinni, Þórunni Samsonardóttur (d.11.10.1986) myndina og skrifaði aftan á hana:" Mamma herna serðu fagra mind af okkur Stellu og ungum manni hún er nú ekki góð af mer því nefið á mer er utá annari kynn, frá Boggu. á engra fyrir hebba og pabba". Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 578
Fólk fylgist með áramótabrennunni 2006. Frá vinstri: Signý Richter, María Guðrún Guðmundsdóttir, Ingibergur Guðmundsson leiðir dóttur sína Laufey Lind, óþekkt kona og Þorlákur Guðjónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn350
Óðinn Örn Gunnarsson í útivist í Barnabóli 2008 - 2009.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 001
Fólk á ferðalagi líklega kringum 1945. Maðurinn lengst til vinstri er Högni Sigurðsson (d.?), sem var maður Jakóbínu Pálsdóttur (d.?) frá Bakka. Næst koma hjónin frá Jaðri, Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) og Björn Sigurðsson (d.15.10.1999) en lengst til hægri er óþekktur maður. Björn styður hönd á höfuð syni sínum, Sigurði Björnssyni. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn048
Ekki er vitað um tilefni að töku þessarar myndar en það gæti hafa verið barnaafmæli einhverntíma kringum 1964. Í fremri röð eru frá vinstri: Laufey Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Unnur Gunnarsdóttir, Baldur Hannesson og Adolf H. Berndsen. Í aftari röð frá vinstri: Brynja Axelsdóttir, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Ester Axelsdóttir?, Anna Hannesdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 768
Tveir heiðursmenn í þungum þönkum er þeir tylltu sér niður í Söluskálanum á Skagaströnd. Lárus Ægir Guðmundsson fyrrverandi sveitarstjóri á Skagaströnd til vinstri og Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn og fyrrverandi oddviti Skagahrepps til hægri.
Adolf H Berndsen - safn054
Myndin var tekin á Hveravöllum 1994 af gestum frá Finnlandi á vinabæjarmóti á Skagaströnd. Frá vinstri: hjónin Matti og Aila Saarinen og svo gestgjafarnir og hjónin Adolf H. Berndsen og Dagný Sigmarsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn062
Fólkið á þessari mynd er óþekkt en aftan á henni stendur:" Herra Carl Berentsen ! Með þöck fyrir þófann sem því miður varð eftir á Þingeyrum hjá Jóni Pálmasyni, og ekki síður fyrir góða viðkynningu". Gaman væri að fá upplýsingar um fólkið á myndinni þannig að ef þú veist eitthvað um það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 012
Ekki er vitað hvar myndin var tekin en það hefur sennilega verið við gamla bæinn í Höfðahólum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri og svo kemur Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001)með börnin sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Guðríður Gígja Axelsdóttir er í fangi móður sinnar, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) er í röndóttri peysu og Óskar Axelsson er lengst til hægri. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54.
Adolf H Berndsen - safn055
Hólaneskirkja í byggingu. Myndin var tekin kringum 1990.
Hjördís Sigurðardóttir - safn051
Kirkjukór Hólaneskirkju. Fremst situr stjórnandinn Julian Hewlett. Í fremstu röð kórfélaga frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Brenda Wilkinson, Rosemary Hewlett, Dagný Hannesdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Í miðröð frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Ása Jóhannsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Ian Wilkinson. Aftasta röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Sigurður Bjarnason og Gylfi Sigurðsson. Myndin var líklega tekin kringum 1995.
Hjördís Sigurðardóttir - safn073
Myndin var tekin á fermingardegi Ásdísar Þórbjarnardóttur vorið 1975 í Hólaneskirkju (eldri). með henni á myndinni eru amma hennar Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi og presturinn séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Jón Jónsson 477
Þessi mynd sýnir þorpið Drangsnes í Strandasýslu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 642
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Einn hópurinn fjallaði um þekkta vestur-Íslendinga. Einn þeirra var Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður og á myndinni er hluti af kynningu hópsins á honum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn054 - Copy
Sungið og spilað í Kántrýbæ 2. október 2004. Tilefni gleðinnar er óþekkt en skemmtikraftarnir á myndinni eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Dagný Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Hjörtur Guðbjartsson,
Adolf H Berndsen - safn075
Myndin var tekin af útbænum á Skagaströnd. í forgrunninum eru hús frystihúss kaupfélagsins. Til vinstri er verslunarstjórahúsið, þá Kaupfélagið og ljósa húsið hægra megin er Gamla búðin. Hægra megin við Einbúann eru, frá vinstri: skúr, Karlsskáli, Lækur og Lækjarbakki. Norðan við (vinstra megin við) Karlsskála er Efri Lækur og fjær, Jaðar. Á myndinni sést vel hvernig Einbúinn skagaði fram í fjöruna, sem annars var óslitin frá Höfðanum inn að Bjargi. Kanturinn sem liggur til hægri var byggður á uppfyllingu úr grjóti úr Höfðanum út í Spákonufellsey þar sem höfnin var byggð. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Hjördís Sigurðardóttir - safn089
Það lá vel á körlunum við þökulagningu á flötinni á 4. braut á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Guðmundur Kristinsson, Guðmundur Ólafsson og Adolf H. Berndsen.
Skagaströnd - safn445
Verslunin Borg var í þessu húsi sem stóð við Strandgötu rétt norðan við stóru skemmuna. Seinna, eftir að verlun lagðist af í húsinu, var þar aðsetur rafmangsfyrirtækisins Neistinn. Húsið var rifið fyrir allnokkrum árum. <br>
Guðrún Sigurðardóttir - safn 037
Námsmeyjar í kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 á tröppunum á íþróttahúsinu - skólanum - á Blönduósi ásamt íþróttakennaranum Axel ?. Lengst til vinstri er Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk og standandi fjórða frá vinstri er Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Aðrar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 667
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. á myndinni eru Sigríður Gestsdóttir til vinstri og Elín Líndal til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 064
Tveir af starfsmönnum Rækjuvinnslunnar hf. Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 059
Jón Ólafur Sigurjónsson er hér í góðum höndum þeirra Sigríðar Bjarkar Sveinsdóttur til vinstri og Bryndísar Guðjónsdóttur á sólríkum degi. Myndin hefur sennilega verið tekin 1979 eða 1980.
Ólafur Bernódusson706
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd eru leikstjórinn Bryndís Petra Bragadóttir og leikararnir Bragi Sigurðarson til vinstri og Steindór Haraldsson til hægri að fra yfir athugasemdir eftir æfingu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 64
Sigrún Jónsdóttir
Hallgrímur Kristmundsson safn059
Fjórir félagar í sparigallanum við innsiglingavörðuna á Hólanesinu. Húsið til hægri er Bjarmanes (Gamli skólinn). Mennirnir eru frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), óþekktur, Birgir Árnason (d.2.2.2005) og Guðmundur Jóhannesson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 776
Aflaskipið Arnar Hu 1 nokkru áður en hann var seldur til Akureyrar.
Jón Jónsson 487
Hátíðahöld vegna 100 ára afmælis Íslandsbyggðar 1974. Ekki er vitað hvar myndin var tekin,?Húnaver?, Kirkjuhvammur? . Ef þú veist hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 605
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af nafnlausri hljómsveit sem lék á tónleikunum. Lengst til vinstri stendur Benedikt Blöndal kennari en framan við hann situr Ernst Guðni Hólmgeirsson og spilar á bassa. Páll Halldórsson leikur á trommur, Elías Gunnar Hafþórsson handleikur gítar, Aron Breki Hjartarson blæs í saxófón en píanóleikarinn er Sigurbjörg Birta Berndsen.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 021
Þessi mynd var tekin í skemmtiferð líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Á henni eru frá vinstri: Ásdís Pálsdóttir Breiðabliki, Anna H. Aspar (d.1.9.1999) í Stórholti og Guðný Pálsdóttir (d.?) Breiðabliki.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn064
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Þetta frétti Kertasníkir á leið sinni aftur í fjöllin og hann gat ekki stillt sig um að kíkja við hjá konunum. Við borðið lengst til vinstri eru frá vinstri: Kristjana Jóhannsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir. Milli Hjálmfríðar og Sólrúnar sér í Báru Þorvaldsdóttur. Hægra megin við Kertasníki eru frá vinstri: óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Helga Ólína Aradóttir, Elva Þórisdóttir, Björk Hlöðversdóttir, óþekkt og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 96
Þessi tvö börn eru úr stórum systkinahópi þeirra Þorbjörns Jónssonar (d.2.9.1986) og Aðalbjargar Sigurðardóttur (d.10.12.2015) sem bjuggu í Akurgerði (Hólabraut 9). Ekki er vitað hvað börnin heita.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 085
Frænkurnar Sigrún Kristófersdóttir til vinstri og Vala Rós Ingvarsdóttir til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 004
Systurnar Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Þórey Jónsdóttir til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1966 en græna húsið í baksýn er Brautarholt.
Jón Jónsson 472
Fjölskyldan í Réttarholti og gestir. Aftari röð: Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008), Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017) kona hans vinstra megin en Sigurður Ísólfsson og óþekkt kona hans hægra megin. Lengst til hægri er Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988). Framar standa frá vinstri Erla Björg og Vilborg Másdætur. Myndin var tekin við Réttarholt sumarið 1972.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 016
Nokkur hópur fólks frá Skagaströnd fór í skemmtiferð, líklega í Vaglaskóg, kringum 1950. Á þessari mynd er Ásdís Pálsdóttir búin að klifra upp í tré en Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) styður við hana.
Elínborg Jónsdóttir - safn 16
Texti með þessari mynd segir:"Guðrún". Líklega er þetta Guðrún Halldórsdóttir (d.2.5.2012) forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur, kennari og alþingismaður. Hún var mikil vinkona Elínborgar M. Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara og fræðimanns frá Másstöðum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 118
Myndin var tekin þegar Arnar Hu 1 kom í heimahöfn 15. október 1973 eftir siglingu frá Japan, þar sem hann var smíðaður. Fólki var boðið um borð að skoða og þiggja veitingar. Lengst til vinstri má þekkja Gissur Jóhannsson með sítt hár og framan við hann er lítill frændi hans, Arnar Arnarsson. Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er í dökkum jakka og hvítri rúllukragapeysu en framan við hann, í smekkbuxum, er sonur hans Þórarinn Brynjar Ingvarsson. Til hægri er Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og horfir út úr myndinni til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson672
Viggó Brynjólfssyni er margt vel gefið. Eitt af því er mikil tónlistargáfa. Á myndinni, sem tekin var 31. júlí 2010, heldur hann á geisladiskinum "Viggó B. í tónum", sem hann gaf út. Þar spilar hann á harmoniku þekkt og óþekkt lög með aðstoð Fannars sonar síns á bassa og gítar.
Elínborg Jónsdóttir - safn 25
Það þótti aumt bú í gamla daga sem ekki átti að minnsta kosti eina kú. Fólkið í slíkum þurrabúðum var alltaf upp á aðra komið með mjólk og smjör var verðmikill gjaldmiðill í viðskipum manna á milli. Þess vegna þótti sveitafólki vænt um kúna sína og gerði henni til góða eins og það gat. Kýrin á myndinni hét Skrauta og var á bænum Másstöðum í Vatnsdal þegar Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) var að alast þar upp.
1
…
160
161
162
…
167
Leita í myndasafninu
Leita