Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 64
Sigrún Jónsdóttir
Hjördís Sigurðardóttir - safn114
Í golfskálanum á Háagerðisvelli í júlílok 1996. Hjónin Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018). Börnin á myndinni eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 776
Aflaskipið Arnar Hu 1 nokkru áður en hann var seldur til Akureyrar.
Skagaströnd - safn431
Straumnes á Hólanesi.
Ólafur Bernódusson 644
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slaka nokkrir strákar á eftir að kynningum var lokið og gestum farið að fækka. Frá vinstri: Kristmar Ragnarsson, Arnar Páll Guðjónsson og Ingvar Hallgrímsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 049
Brunaæfing í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960. Námsmeyjar látnar síga niður af þriðju hæð í kaðli.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 10
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á þessari mynd er búið að reka niður stálþilið og koma fyrir ankerunum, sem halda við þilið. Úr ankerunum, sem eru steyptu flekarnir sem sjást hægra megin við miðju myndarinnar, er svo stálteinn út í þilið. Síðan var fyllt að ankerunum með möl og grjóti og þannig tryggt að stálþilið tollir á réttum stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 74
Guðbjörg Gylfadóttir á ferðalagi, líklega kringum 1980.
Ólafur Bernódusson 601
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Arnrúnu Ösp Guðjónsdóttur einbeittri að spila á harmóniku.
Jósef H Sigurðsson - safn 046
Hugrún Sigurðardóttir með Bjarmanes í baksýn. Bjarmanes hefur tekið miklum stakkaskiptum eftir að myndin var tekin því það var fært í sína upprunalegu mynd árið 2004.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 43
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) heima hjá sér á Akri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 010
Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001) (Bogga í Kambakoti) mátar sig í hnakkinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum fyrir utan bæinn á Höfðahólum.
Barnaból - safn386
Ísabella Líf Tryggvadóttir einbeitt í leikskólanum Barnabóli 23. febrúar 2009.
Skagaströnd - safn429
Í tengslum við byggingu síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd 1943-46 voru byggðir tveir risastórir tankar undir lýsi og svartolíu upp undir Höfðanum sunnanverðum. Á þessari mynd er búið að taka ofan af öðrum tankinum og breyta honum í hráolíugeymi fyrir Olís. Hinn tankurinn stendur ónotaður. Báðir þessir tankar hafa verið rifnir enda uppfylltu þeir engan vegin kröfur nútímans um mengunarvarnir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn108
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) með húfu afhendir Stefáni Kristinssyni (d.19.5.2011) verðlaun fyrir golleik á Háagerðisvelli í júlí 1996. Vinstra megin við Stefán sér í Önnu Ármannsdóttur. Á milli þeirra félaga er Rolf Árnason (d.3.6.2014) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 158
Bernódus Óli Einarsson með mömmu sinni á Kántrýhátíð í ágúst 2001.
Barnaból - safn364
Ísabella Líf Tryggvadóttir að leira í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn028
Frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Valgerður Guðmundsdóttir og Arnór Gíslason í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002.
Ólafur Bernódusson 588
Áramótin 2008 - 2009 var þétt logndrífa á Skagaströnd. Fólk lét það ekki á sig fá en mætti með kyndlana sína í gönguna að áramóta-bálkestinum þar sem kyndlarnir voru notaðir til að kveikja í brennunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 78
Í skemmtiferð á vegum Hólaness hf líklega kringum 1980. Aftast er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Magnús Jónsson til vinstri, Ottó Ákason (d. 17.9.2005) til hægri og Hlíf Sveinbjörnsdóttir kona Magnúsar lengst til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 029
Félagarnir Gunnar Lárusson (d.14.2.2016) frá Garðshorni í Kálfshamarsvík til vinstri og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) Skagaströnd til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 969
Vinnuflokkur á Djúpavík líklega að vinna að byggingu síldarverksmiðunnar þar 1934 - 1935. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Lengst til hægri í aftari röð er Þórarinn Eiríksson á Finnbogastöðum. Í fremri röð númer 5 er Bernharð Andrésson Norðurfirði, nr. 6 Benedikt Valgeirsson Árnesi, nr. 8 Jón Guðmundsson Stóru-Ávík og maðurinn lengst til hægri í fremri röð er Sveinn Guðmundsson í Djúpuvík.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn090
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru nokkrar konur að sötra Irish coffee eftir matinn. Frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir (Nær), Gurún Sigurðardóttir (fjær), Helga Bergsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Ásthildur Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 160
Sigursveit karla í kappróðri á sjómannadegi 1993. Frá vinstri: Jóhannes Simonsen, Bjarni Ottósson, Jóhannes Sveinsson, Sigurjón Ingólfsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Ernst Berndsen og Finnur Kristinsson stýrimaður sem heldur á verðlaunabikarnum. Gegnum árin hefur Finnur verið ákaflega sigursæll stýrimaður og eins og sjá má er hann með tvo verðlaunapeninga í barminum því þetta ár stýrði hann líka kvennasveit til sigurs.
Adolf H Berndsen - safn055
Hólaneskirkja í byggingu. Myndin var tekin kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 127
Mynd tekin í Reykjarfirði syðri á Ströndum. Konan er Unnur ?? og maðurinn er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940. <br>
Guðrún Sigurðardóttir - safn 006
Guðrún Guðbjörnsdóttir
Guðrún Sigurðardóttir - safn 030
Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) frá Þórsmörk fyrir utan heimili sitt með fallegan hrút. Siggi Mona, eins og hann var kallaður, átti nokkrar kindur í kofa lóðinni hjá sér eins og svo margir aðrir Skagstrendingar á sínum tíma. Myndin hefur líklega verið tekin á sjötta áratugnum.
Adolf H Berndsen - safn106
Þessir tveir kylfingar eru heiðurfélagar í Golfklúbbi Skagastrandar. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013). Myndin var tekin í Kántrýbæ á 25 ára afmæli klúbbsins árið 2010.
Skagaströnd - safn440
Iðavellir var byggt í Kálfshamarsvík en tekið niður þar einhverntíma á fjórða áratugnum. Það var svo endurbyggt á Skagaströnd þar sem það stendur enn sunnan við kirkjuna. Fleiri hús voru færð þannig frá Kálfshamarsvík til Skagastrandar en Iðavellir er líklega það eina af þeim sem enn stendur.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 016
Systkinin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson (d.26.7.1967) nálægt Broddanesi á Ströndum þar sem Jón var alinn upp. Myndin var tekin einhvertíma á fimmta áratugnum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn102
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli 25. júlí 1994. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Guðmundur Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 861
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Fólk kom víða að til að vera við hátíðina t.d. var farin hópferð á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík norður og gisti það fólk og fleira í tjöldum á svæðinu. Eftir vígsluna sjálfa var dansað á palli sem hafði verið komið fyrir á hátíðasvæðinu utan við virkið.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 058
Þessi mynd var tekin sumarið 1964 af Jóni Sigurðssyni (d.26.7.1967) með lítinn óþekktan dreng með sér á heyvagni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 955
Brúarfos í höfn á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1940. Á netsíðunni: http://fragtskip.123.is/blog/2015/02/05/bruarfoss-i/ segir meðal annars um þetta skip: "BRÚARFOSS I var fyrsta skipið sem kom frá útlöndum eftir að WW2 skall á Hann kom til Reykjavíkur þ 14 sept 1939 með fullfermi af vörum og um 100 farþega.Meðal farþega voru knattspyrnumenn sem höfðu farið til Þýskalands í keppnisferðalag Skipið var mikið happaskip Sigldi áfallalítið WW 2 Og áhöfn hans varð þeirri ánægju aðnjótandi að takast að bjarga yfir 70 manns af sökkvandi skipum".
Árni Geir Ingvarsson - safn 954
Djúpavík á velmektardögum sínum 1940. Prúðbúið fólk á ferð á hátíðardegi. Húsið hægra megin á myndinni var "Kvennabragginn" sem hýsti stúlkurnar sem unnu við síldarsöltun á Djúpavík. Í húsinu er nú rekið Hótel Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 107
Kátir karlar frá Skagaströnd sumarið 1964. Neðst er Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) frá Vík, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka er í miðjunni og Árni Björn Ingvarsson í Sólheimum er efstur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 066
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) við pillunarbandið í Rækjuvinnslunni hf.
Ólafur Bernódusson 584
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 6. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: óþekkt, óþekkt, Sunna Guðlaugsdóttir, óþekktur, Ásdís Birta Árnadóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Aldís Björnsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir, Kristján Róbertsson og Aron Breki Hjartarson. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 899
Myndin var tekin á bryggjunni framan við síldarverksmiðjuna á Djúpuvík. Mennirnir tveir eru óþekktir en Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina líklega á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 111
Jóhannes Sveinsson í september 2002 í bílskúrnum að Fellsbraut 15.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn078
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru þær í "strætisvagni" í Hrísey. Strætóinn er í raun heyvagn með bekkjum dregin af dráttarvél. Frá vinstri: óþekkt, Hildur Ingólfsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Dagný Úlfarsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 057
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) frá Ægissíðu spilar á harmoniku 1967.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 014
Ingvar Þór Jónsson í vörubílaakstri fyrir utan heimili sitt að Bogabraut 14. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 162
Frændurnir Heiðar Elvan Friðriksson til vinstri og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Myndin var tekin 7. maí 1968 á ljósmyndastofu Lofts í Reykjavík.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 011
Finnur Frímannsson (d.18.3.1969) frá Jaðri með tvo hesta.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 046
Adolf J. Berndsen heldur á afastrák í Kálfshamarsvíkinni líklega Sverri Brynjari Berndsen.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 075
Þetta prúðbúna fólk er frá vinstri: hjónin Aðalbjörg Sigurðardóttir (d. 10.12.2015) og Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) frá Akurgerði og Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk, systir Aðalbjargar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 179
Á myndinni er verið að koma fyrir grjótvörn í víkinni frá Hólsnefinu að uppfyllingunni vestan við verksmiðjuna.
Ólafur Bernódusson 668
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni er Þorbjörg Bjarnadóttir starfsstúlka greiðslustofu ásamt manni sínum Búa Þór Birgissyni (d.18.9.2009).
Ólafur Bernódusson 652
Guðlaug Grétarsdóttir skreytir piparkökur með dætrum sínum þeim Guðrúnu Rós Hjaltadóttur til vinstri og Lilju Dögg Hjaltadóttur til hægri í Barnabóli á piparkökudaginn 21. desember 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 60
Ekki er vitað um tilefni samsætisins á myndinni. Myndin, sem var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd, var líklega tekin seint á áttunda áratugnum eitthvað í tengslum við hestamennsku. Greinilega var ekkert kynslóðabil í samkvæminu og dansinn stiginn af hjartans list. Á myndinni eru frá vinstri: þrjú óþekkt, Gunnar Tryggvi Ómarsson, Gunnar Sveinsson bak við Gunnar Tryggva, Jóhannes Sveinsson, Ásta Ásgeirsdóttir og Salóme Rúnarsdóttir að dansa en yfir höfuð Salóme sér í Jón Gunnar Jósefsson. Lengst til hægri dansa Þorvaldur Skaftason og Kristín Sigurðardóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 081
À tessari mynd er Sigurbjörg Jònasdòttir með tvíburadætur dòttur sinnar Jôhönnu Jònasdòttur, Guðrúnu Angantýsdóttur og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d.10.9.1997). Ekki er vitað hvor stúlknanna er hver.
Barnaból - safn344
Sóley Sif Jónsdóttir einbeitt við að byggja í Barnabóli 2008 - 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 159
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með Silfá Sjöfn Árnadóttur frænku sína í fanginu. Í baksýn er Herdís Jakobsdóttir, móðir Silfáar, að grilla. Myndin var líklega tekin sumarið 1995 eða 96.
Elínborg Jónsdóttir - safn 25
Það þótti aumt bú í gamla daga sem ekki átti að minnsta kosti eina kú. Fólkið í slíkum þurrabúðum var alltaf upp á aðra komið með mjólk og smjör var verðmikill gjaldmiðill í viðskipum manna á milli. Þess vegna þótti sveitafólki vænt um kúna sína og gerði henni til góða eins og það gat. Kýrin á myndinni hét Skrauta og var á bænum Másstöðum í Vatnsdal þegar Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) var að alast þar upp.
Guðrún Guðbjörnsdóttir116
Beitingamenn í skúrnum að beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016. Lengst til vinstri er Jóhann Ásgeirsson að beita. Gylfi Sigurðsson bíður meðan Damian Lukasz Kacica losar þorsk af línunni svo hægt sé að halda áfram að beita.
Adolf H Berndsen - safn097
Ungir golfarar á Háagerðisvelli. Á myndinni eru frændurnir, frá vinstri: Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sverrir Brynjar Berndsen og Davíð Bragi Björgvinsson. Myndin var tekin sumarið 1994.
Guðrún Guðbjörnsdóttir117
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Jóhann Ásgeirsson til hægri, beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn081
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Í slíkum ferðum þarf oft að taka þátt í ýmsum skrítnum uppátækjum. Á þessari mynd eru þær Þorbjörg Magnúsdóttir til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttir til hægri að dorga með heimatilbúnum færum sem búin voru til á staðnum út í Hrísey. Ekki fer neinum sögum af aflanum.
1
…
161
162
163
…
167
Leita í myndasafninu
Leita