Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Sigurðardóttir - safn 042
Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti við vefstólinn í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960.
Ólafur Bernódusson 702
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn með Karli. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen (aftar), Dagný Marín Sigmarsdótir (framar), Magnús B. Jónsson (aftar), Snjólaug Jónsdóttir (framar), Guðrún Soffía Pétursdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Jóhann Hafsteinsson, Guðrún Magnúsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Karl Lúðvíksson kennari.
Adolf H Berndsen - safn063
Þessi mynd af Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1930 - 1934. Eins og sjá má er ekki byrjað að keyra út uppfyllingu fram í Spákonufellsey en það var gert 1934 þegar framkvæmdir hófust við hafnargerðina. Kaupfélagið var byggt 1929-1930 en verslunarstjórahúsið, sem er vinstra megin við kaupfélagið, var byggt kringum 1910. Næst okkur á myndinni er frystihúsið eins og það var á þessum tíma.
Hjördís Sigurðardóttir - safn107
Mágkonurnar Fríða Hafsteinsdóttir til vinstri og Helga Berndsen til hægri í eldhúskróknum í golfskálanum á Háagerðisvelli í ágúst 1995.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 005
Auðbjörg Hu 6 í slipp á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 920
Guðrún Árnadóttir (d.?) með svuntu. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Adolf H Berndsen - safn098
Þessi hópmynd af golfurum var tekin eftir lokahóf í Kántrýbæ. Hófið var haldið eftir fjölmennt golfmót á Háagerðisvelli en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á miðri mynd er Kúreki Norðursins, og eigandi Kántrýbæjar, Hallbjörn J. Hjartarson með kúrekahatt.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Þórir GK 116 í slippnum á Skagaströnd. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd. Vörubílinn á myndinni var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar. <br>
Jón Jónsson 503
Örvar Hu 14 að koma í höfn á Skagaströnd sumarið 1971. Tvö af rörunum, sem sjást á myndinni, lágu frá höfninni og upp á Höfða í olíutanka sem þar voru frá olíufélögunum Shell (Skeljungur) og BP (Olís). Hin tvö lágu svo í stóru tankana tvo upp við Höfða, norðan við frystihúsið. Skúrarnir sem glittir í á myndinni voru útgerðar- og beitningaskúrar.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn051
Í september 2004 fóru eldri borgara í ferðalag m.a. heim að Hólum til að skoða byggingarnar þar. Á myndinni eru á spjalla í góðviðrinu, frá vinstri: Gestur Jónsson (d.27.12015), Ottó Ákason (d. 17.9.2005), Jónína Valdimarsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) og óþekktur.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn029
Ester Ösp Víðisdóttirn til vinstri og Fjóla Dögg Björnsdóttir til hægri í skíðaferðalagi í Hlíðarfjalli með bekknum sínum í mars 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 41
Helga Björg Hu 7 var rækjuveiðiskip sem frysti aflann um borð. Skagtrendingur hf átti skipið í nokkur ár.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn105
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er Jensína Lýðsdóttir að flytja skemmtiatriði.
Ólafur Bernódusson 582
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Tanja Rán Einarsdóttir og Stefán Velemir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Björn Ingi Óskarsson starfaði fjölda ára í Rækjuvinnslunni hf. Á myndinni er hann að vinna við þrif í vinnslusalnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn041
Eldri borgara á ferðalagi skoða dómkirkjuna að Hólum. Frá vinstri: Gestur Jónsson (d.27.1.2015), Ottó Ákason (d. 17.9.2005) stendur aftan við Sigríði Vilhjálmsdóttur (d.21.1.2012), Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jónína Valdimarsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn104
Ungir verðlaunahafar í golfi stilla sér upp til myndatöku með kántrýkónginum Hallbirni J. Hjartarsyni í Kántrýbæ eftir að hafa spilað golf á Háagerðisvelli. Myndin var líklega tekin kringum 1998.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 008
Guðríður Gígja Axelsdóttir fær að prófa að fara á bak með stuðningi móður sinnar Sveinbjargar Óskar Björnsdóttur (d.12.7.2001). Bróðir hennar Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) heldur í hestinn. Finnur Frímannsson (d.18.3.1969) frá Jaðri stendur við lend hestsins og sennilega var hann eigandi hans. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54 fyrir utan gamla bæinn á Höfðahólum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 084
Jóhanna Jónasdóttir er lengst til vinstri á myndinni og önnur frá vinstri er skáldkonan Guðrún Árnadóttir (Guðrún frá Lundi) (d.22.8.1975), sem var tengdamóðir Jóhönnu. Þá koma Magnea Árnadóttir (d.18.12.1968) frá Syðri-Ey, Kristín Árnadóttir?, Ingibjörg Árnadóttir, Jónína Árnadóttir og Helga Daníelsdóttir sem er dóttir Magneu. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 684 - Copy
Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) Myndin var tekin 15. október 2017 á 100 ára afmælisdegi hennar.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 019
Þessi mynd var tekin í skemmtiferð, líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Á henni eru Helga Berndsen frá Karlsskála og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) í Stórholti.
Jón Jónsson 459
Við Stafnsrétt í Svartárdal.
Ólafur Bernódusson 640
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd hvíla þær sig Saga Lind Víðisdóttir til vinstri og Amla Vignisdóttir til hægri. Framan við þær situr Sandra Ómarsdóttir.
Helga Berndsen 031
Þessi mynd var tekin 1960 þegar Guðrún Einarsdóttir, sem situr á sleðanum, var tveggja ára. Barnapían sem stendur hjá henni er frændi hennar, Sævar Rafn Hallgrímsson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn066
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Þá var þessi mynd tekin af frumkvöðlum félagsskaparins. Frá vinstri: Eva Dögg Berþórsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og Hjálmfríður Guðjónsdóttir,
Ólafur Bernódusson 602
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Sunnu Steingrímsdóttur að spila á gítar. Hjá henni situr Benidikt Blöndal kennari og spilar með.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn050
Ottó Ákason(d. 17.9.2005) í Auðunnarstofu að Hólum í Hjaltadal. Ottó var á ferðalagi með eldri borgurum í september 2004 þar sem m.a. var stoppað á Hólum og byggingar þar skoðaðar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn082
Þessi mynd var tekin við komu nýsmíðarinnar Arnars Hu 1 frá Japan 15. október 1973. Á henni spjallar Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til vinstri við Pálma Jónsson (d.9.7.2017) alþingismann frá Akri og konu hans Aðalbjörgu Helgu Sigfúsdóttur.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 052
Þrír Ingvar Jónssynir saman í andyri Fellsborgar. Frá vinstri Ingvar Jónsson (Jóns Inga Ingvarssonar), Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppstjóri frá Brúarlandi og Ingvar Þór Jónsson (Jóns Ólafs Ívarssonar). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn089
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru konurnar að borða á óþekktum veitingastað. Vinstra megin við borðið er Hildur Ingólfsdóttir og nokkrar óþekktar konur en hægra megin eru frá vinstri: Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir, Elva Þórisdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Svandís Hannesdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.
Ingibergur Guðmundsson 170
Myndin var tekin af þeim Lúðvík Kristjánssyni (d.10.2.2001)til vinstri og Gunnari Helgasyni (d.19.10.2007) til hægri þegar þeir voru heiðraðir á sjómannadegi 1994.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 105
Þrír menn á útkíkki uppi á stýrishúsinu á Sæljóninu RE 317 í svarta þoku sumarið 1960.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn093
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru nokkrar kvennanna að fá sér drykk eftir matinn á óþekktum veitingastað. Frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, Guðrbjörg Viggósdóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 39
Óþekktur starfsmaður Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar sandblæs litla vog. Við þessa vinnu þarf starfsmaðurinn að vera vel varinn og m.a. fá hreint loft í hjálminn svo hann sé ekki að anda að sér sandryki og öðrum óþverra.
Barnaból - safn426
Málningavinna í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Málararnir eru frá vinstri: Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Andri Már Gunnarsson og Sindri Freyr Björnsson.
Jón Jónsson 479
Feðgarnir Ragnar Jónsson til vinstri og Jón Jónsson til hægri staddir úti á Skaga við ?Þangskála?
Jón Jónsson 454
Fjárrekstur að Stafnsrétt í Svartárdal
Hjördís Sigurðardóttir - safn122
Hjördís Sigurðardóttir við gróðursetningarvinnu á Háagerðisvelli sumarið 1996.
Guðrún Guðbjörnsdóttir115
Beitingamenn í skúrnum að beita fyrir Vík - útgerðina stoppa augnablik í febrúar 2016 fyrir ljósmyndara úr Listamiðstöðinni Nes. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jóhann Ásgeirsson, Damian Lukasz Kacica og Hjalti Hólmar Indriðason.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 073
Hjónin Jón Hall Magnússon og Guðrún Bjarnadóttir með barnabarnabarn sitt Guðjón Hall Sigurbjörnsson ný skýrðan í fanginu.
Ingibergur Guðmundsson 114
Jónína Valdimarsdóttir til vinstri og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) hægra megin í 85 ára afmælisveislu Láru Kristjánsdóttur (d.6.9.1993) 6. apríl 1986.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn037
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin eftir að hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Katrín Sigurjónsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Signý Richter, Guðrún Sigurðardóttir sem heldur um axlir Báru Þorvaldsdóttur, Þórólfur Tómasson, Elva Dröfn Árnadóttir og Geirþrúður Guðmundsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Björk Sveinsdóttir og Bryndís Hrönn Kristjánsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Rósa Jónsdóttir, Helga Bergsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn056
Kaffifundur í Bankastræti 9. Á myndinni eru: Sveinn Ingólfsson með gleraugu, Guðjón Valgeirsson (d.1993) til hægri, baksvipur mannsins í dökka jakkanum er sennilega Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993) og maðurinn í köflótta jakkanum til vinstri er líklega Karl Berndsen (d.12.2.1995). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn036
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, óþekkt, Ragnheiður Magnúsdóttir (nær), Björk Sveinsdóttir (fjær), Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Íris Valgeirsdóttir, tvö óþekkt, Garðar Geirfinnsson og óþekkt kona. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 252
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan bát: "Bjarni Helgason Hu 109 1890. Báturinn var smíðaður úr stáli á Ísafirði árið 1988 og var 12 brl. með 218 ha. Caterpillar vél. Hann hét Jón Helgason ÁR 12 þegar Ólafur Ingibjörnsson keypti hann árið 1988 og gerði út þar til báturinn var seldur í maí 1990 til Hornafjarðar". Myndin var líklega tekin 1989 af bátnum í höfn á Skagaströnd.
Barnaból - safn411
Krakkarnir á leikskólanum Barnaból að leika sér á rampinum utan við skólann með starfskonunni Helenu Möru Velemir veturinn 2009 - 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Thelma Sif Jónasdóttir, María Gret Gunnarsdóttir, Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Helena Mara og óþekkt stúlka.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 056
Hér er hópur fólks á ferðalagi árið 1961. Ekki er vitað á hvaða bjargbrún myndin var tekin (Gullfoss?). Fólkið í myndinni er frá vinstri: óþekktur (?Ingvar Jónsson í Sólheimum?), Hörður Ragnarsson, Sigmundur Magnússon frá Sólvangi, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Gunnar Sveinsson og óþekkt kona. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 62
Hjónin Þórey Jónsdóttir og Sigurbjörn Björgvinsson
Ólafur Bernódusson 597
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Birgittu Rut Bjarnadóttur að spila á þverflautu við undirleik kennara síns Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 63
Hallbjörg Jónsdóttir
Jón Jónsson 458
Hólaneskirkja eldir var byggð á árunum 1926 - 1928 og vígð 17. júní 1928. Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins teiknaði hana eins og fjölmargar aðrar kirkjur og byggingar um allt land. Kirkjan var svo rifin sumarið 1992 eftir að ný kirkja hafði verið reist nánast á sama stað og vígð haustið 1991. (heimild: "Ágrip af sögu Spákonufells - og Hólaneskirkna 1300 - 2012", eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Húsið hægra megin við kirkjuna er Stóra - Berg sem nú er löngu horfið.
Barnaból - safn423
Strákar í útivist í leikaskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Frá vinstri á myndinni: Brynjar Daði Finnbogason, Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Almar Atli Ólafsson og Mikael Garðar Hólmgeirsson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn103
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er einhvert skemmtiatriði í gangi. Frá vinstri: Jensína Lýðsdóttir, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Einar Sigurbergur Arason og óþekkt kona.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 83
Guðbjörg Gylfadóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 645
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slakar Vikor Einarsson á og kíkir í Andrésblað milli kynninga.
Helga Berndsen 037
Þessi mynd var tekin 29.8. 1961 í þriggja ára afmæli Guðrúnar Einarsdóttur í Karlsskála. Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Ester Axelsdóttir, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Brynja Axelsdóttir, Anna Hannesdóttir og Eygló Gunnarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Laufey Berndsen, afmælisbarnið Guðrún Einarsdóttir, Axel Hallgrímsson, Unnur Gunnarsdóttir, Baldur Hannesson og Adolf H. Berndsen.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 089
Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) með dætur sínar Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttur til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1975.
Ólafur Bernódusson 618
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Valgerði Ingvarsdóttur að spila á þverflautu við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur kennara og Elínar Óskar Björnsdóttur (til hægri) sem spila fjórhent á píanóið.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn067
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Á þessari mynd eru konurnar að æfa kántrýdans undir leiðsögn Lindu Ævarsdóttur. Á myndinni eru frá vinstri: Bryndís Guðjónsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, óþekkt, Linda Ævarsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir og Kristjana Jóhannsdóttir.
Ólafur Bernódusson 599
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Lindu Rún Einarsdóttur eftir að hún hefur lokið leik sínum.
1
…
163
164
165
166
167
Leita í myndasafninu
Leita