Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 130
Aftan á þessari mynd stendur að þetta sé Guðrún Jónsdóttir. Annað er ekki vitað um myndina. Líklega er þetta Guðrún Jónsdóttir (d.2.5.1958) frá Kúvíkum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 48
Húsin að Jaðri. Efri -Jaðar er nær okkur með viðbyggðum fjárhúsum og hlöðu til hægri. Hvíta húsið fjær, með flata þakinu, er Neðri - Jaðar. Það hús stendur enn (2017) en allangt er síðan Efri-Jaðar var rifinn.
Hjördís Sigurðardóttir - safn075
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Á henni eru frá vinstri: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Fríða Hafsteinsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 144
Ragnar Smári Ingvarsson heima í eldhúsinu á Bogabraut 16 að hjálpa til við að setja krem á mömmukökurnar vorið 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 139
Systurnar Þórunn Bernódusdóttir til vinstri og Halla Björg Bernódusdóttir til hægri með óþekkt barn á milli sín.
Ólafur Bernódusson 615
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Þorgerði Þóru Hlynsdóttur spilandi á harmóniku.
Ingibergur Guðmundsson 298
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), faðir eigenda Víkur, að salta yfir í kari.
Ingibergur Guðmundsson 284
Myndin var tekin við vígslu skíðaskálans á Skagaströnd 5. apríl 1985. Á henni eru þrír ungir drengir sem höfðu gaman af að fara á skíði í brekkunni við skálann, frá vinstri: Sigurður Berndsen, Arnar Ólafur Viggósson og Gunnar Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 77
Gunnar Gunnarsson til vinstri og Kristján Ólafsson til hægri líklega í skólaferðalagi rétt fyrir 1980.
Jón Jónsson 504
Arnar Hu 1 liggur utan á Örvari Hu 14. Báðir voru þeir togbátar í eigu Skagstrendings hf. Arnar kom til Skagastrandar í janúar 1969 og var seldur aftur 1972. Örvar kom í lok desember 1970 og var svo seldur í maí 1974. Aftan við Örvar sér í Helgu Björg Hu 7, sem var í eigu Útgerðarfélags Höfðakaupstaðar hf. Hún kom til Skagastrandar 1965 og var gerð út þaðan þar til í júní 1971 er hún var seld til keflavíkur. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson) Myndin var tekin sumarið 1971.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 014
Fólk í skemmtiferð líklega í Vaglaskógi kringum 1950. Frá vinstri: hjónin Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) (Elsa) og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) og Vilborg Jónsdóttir (d.?) Stóra-Bergi.
Adolf H Berndsen - safn102
Galvaskir golfarar í golfskálanum á Háagerðisvelli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Rafn Ingi Rafnsson og Vilhelm Jónssson.
Barnaból - safn404
Gunnar Andri Elvarsson í Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn044
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011).
Árni Geir Ingvarsson - safn 939
Maðurinn í trjágróðrinum er Júlíus Ágústsson frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvar eða hvenær.
Ólafur Bernódusson 681
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, hellulagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin. Í baksýn, nær sjónum má sjá þrjá tanka sem voru á vegum Olís. Þeir hafa nú líka verið rifnir enda hættir að geta þjónað hlutverkum sínum vegna aukinna krafna í mengunarvarnamálum.
Árni Geir Ingvarsson 2 36
Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) við kaffiborðið í áhaldahúsi hreppsins þar sem hann vann um tíma
Guðrún Sigurðardóttir - safn 012
Gylfi Sigurðson frá Þórsmörk heldur kátur á lúðu um borð í Aðalbjörg Hu 7. Í brúarglugganum er skipstjórinn, Þórhallur Árnason (d.4.2.2008). Á þessum bát voru þeir hætt komnir ásamt fleirum eitt sinn í línuróðri á Skagagrunni. Leki kom að bátnum þannig að vélarúmið hálf fylltist af sjó. Betur fór þó en á horfðist því þegar drepið var á vélinni hætti lekinn því það hafði farið sundur slanga þannig að vélin dældi kælivatninu út í vélarúmið í stað þess að dæla því út. Eftir að gert hafði verið við slönguna var vélin sett í gang, báturinn lensaður og róðurinn kláraður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 67
Adolf H. Berndsen til vinstri og Haraldur Árnason til hægri við morgunverðarborð á óþekktu hóteli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 610
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Ólafi Halldórssyni þar sem hann fylgist með öðrum spila og bíður eftir að röðin komi að honum sjálfum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 178
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) skoðar sig um í Þórdísarlundi í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 635
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er líkan af eyjunni Heclu þar sem þar sem allmargir Íslendingar settust að á sínum tíma eins og nafn eyjunnar ber með sér. Á spjaldinu við hliðina voru ýmsar nánari upplýsingar um eyjuna og Íslendingana þar.
Adolf H Berndsen - safn074
Þessi mynd var líklega tekin í einhverri starfsmannaferð Hólaness hf. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Fólkið á mydninni er frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Vilhelm B. Harðarson, Sævar Bjarnason, Eygló Guðbjartsdóttir, óþekkt, Jónas Jónasson, Agnes Sævarsdóttir, Valdimar Viggósson, Adolf H. Berndsen og Dagný Sigmarsdóttir. Bak við Dagný sér í Svein Jónasson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 137
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 183
Útskriftardagur Stefáns Ægis Lárussonar úr Menntaskólanum á Akureyri. Frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) afi, Stefán Ægir Lárusson nýstúdent, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) amma og Lárus Ægir Guðmundsson pabbi Stefáns.
Ólafur Bernódusson 595
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Stefáni Jónassyni kennara sem spilar undir blokkflautuleik Daða Snæs Stefánssonar.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn043
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir, Guðný Finnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðrún Angantýsdóttir og óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 237
Félagsstarf aldraðra á Skagaströnd var um tíma í Höfðaskóla og þar var þessi mynd tekin af leiðbeinandanum Guðrúnu Guðmundsdóttur. Það var alltaf líf og fjör í þessum samkomum eldra fólksins með Guðrúnu eins og sést á myndinni þar sem hún er eitthvað að grínast með fólkinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 596
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af þeim stöllum Heklu Guðrúnu Þrastardóttur til vinstri og Örnu Rún Arnarsdóttur til hægri að spila á blokkflauturnar sínar.
Barnaból - safn391
Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 625
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda keppnina en vorið 2010 var hún haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á þessari mynd sitja næst okkur dómarar keppninnar þetta sinn og eru að merkja inn á einkunnablöðin sín. Næst okkur er Magnús B. Jónsson þá Sigrún Grímsdóttir og síðan Gísli Grímsson en þau tvö eru börn Gríms heitins. Auk þeirra er svo dómari sem kemur að sunnan á vegum keppninnar. Aftan við Gísla sitja hjónin Björn Hallbjörnsson og Lilja Ingólfsdóttir. Í öftustu röðinni eru frá vinstri: Ágúst Þór Bragason, Guðrún Benediktsdóttir, Jón Guðmundsson Fagranesi, Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri Blönduskóla, Jón Ægir Jónsson Fagranesi og Jakobína Halldórsdóttir Fagranesi. Aðrir áheyrendur á myndinni eru óþekktir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 015
Helga Berndsen hefur klifrað upp í tré í skemmtiferð líklega í Vaglaskóg kringum 1950.
Hjördís Sigurðardóttir - safn115
Konur í golfskálanum á Háagerðisvelli í lok júlí 1996. Frá vinstri: Helga Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir, Fríða Hafsteinsdóttir, Laufey Berndsen og Þórunn Óladóttir.
Jón Jónsson 460
Miðgil í Langadal. Miðgil er löngu komið í eyði.
Jón Jónsson 488
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga af prúðbúnum hestamönnum.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 074
Ekki ferðuðust þau langar leiðir á Deutzinum, hjónin Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Guðrún Sigurðardóttir. Á þessari mynd eru þau samt saman á dráttarvélinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í baksýn er Straumnes á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn435
Bláland á Hólanesi á Skagaströnd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn071 - Copy
Frá árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Unglingar flytja sitt atriði. Frá vinstri: óþekkt, Katrín Guðmundsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Arnrún Finnsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekktur, Rebekka Þórarinsdóttir, tvær óþekktar stúlkur, Eydís Ósk Einarsdóttir og Lena Rut Jónsdóttir.
Barnaból - safn374
Ásgeir Sigmar Björnsson í leikskólnum Barnabóli 28. nóvember 2008.
Ólafur Bernódusson 680
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, steinlagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 94
Vinirnir Árni Geir Ingvarsson og Hallbjörg Jónsdóttir. Myndin var tekin kringum 1970.
Adolf H Berndsen - safn058
Efri Lækur (Gamli Lækur) á Skagaströnd. Efri Lækur stóð á túninu ca 50 - 100 metra norður af Læk (Neðri Læk) við Strandgötu.
Skagaströnd - safn426
Höfðaberg er nú horfið. Húsið stóð uppi í Höfðanum norðan við brekkuna upp í Bankastræti. Í baksýn sér í hlöðu sem var sambyggð við Höfðakot sem var beint upp af brekkunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 953
Þessi óþekkti ræðumaður er líklega að flytja hátíðarræðu við vígslu Borgarvirkis 23.júní 1950 eftir miklar viðgerðir og endurbætur á virkinu. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú veist hver ræðumaðurinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 624
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af stórhljómsveit skólans þetta starfsár. Frá vinstri: Laufey Lind Ingibergsdóttir með þverflautu, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennari og stjórnandi sveitarinnar, Valgerður Ingvarsdóttir á þverflautu (nær), Páll Halldórsson á trommur (fjær), Benedikt Blöndal kennari með ásláttarhljóðfæri, Auðunn Árni Þrastarson með ásláttarhljóðfæri (fjær), Aldís Björnsdóttir með klarinet (nær), Elías Gunnar Hafþórsson með gítar, Elín Ósk Björnsdóttir með trompet, Sigurlaug Máney Sæmundsen með saxófón og Aron Breki Hjartarson einnig á saxófón.
Ólafur Bernódusson 658
Biopol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri hafa starfað náið saman frá stofnum Biopol 2007. Þessi mynd var tekin eftir undirskrift á endurnýjuðum samstarfssamningi milli aðila 2013. Frá vinstri: óþekkt, Stefán B. Sigurðsson rektor HA, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Adolf H. Berndsen oddviti og stjórnarformaður Biopol og Dr. Magnús Stefánsson starfsmaður HA með starfsstöð hjá Biopol á Skagaströnd.
Barnaból - safn378
Stefanía Hrund Stefánsdóttir með bangsann sinn í leikskólanum Barnabóli 24. mars 2009.
Ingibergur Guðmundsson 287
Veturinn 1984-85 vann fjöldi sjálfboðaliða, um helgar, að því að klæða skíðaskálann innan með panel og innrétta hann. Á myndinni er kaffipása hjá þeim sem þá voru að vinna. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Halldór Gunnar Ólafsson, Þorbjörg Magnúsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Ingibergur Guðmundsson 143
Magnús B. Jónsson kennari við Höfðaskóla kringum 1975 fer yfir nemendaverkefni á kennarastofunni. Magnús er líklega betur þekktur í dag sem sveitarstjóri á Skagaströnd en sem kennari.
Adolf H Berndsen - safn047
Vinirnir Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Jón Ingi Ingvarsson til hægri í nóvember 1997.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 45
Systkinin Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og Karitas Ólafsdóttir (d.15.10.2019) á góðri stund eftir að hafa verið að vaða á óþekktum stað. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 048
Námsmeyjar í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 stilla sér upp til myndatöku á efstu hæð skólans. Í miðjunni í öftustu röðinni eru Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk til vinstri og Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti til hægri. Aðrar eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn109
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál nokkra vetur í röð. Þessi mynd var tekin í hófi/skemmtikvöldi félagsskaparins í október 2005. Á myndinni er verið að flyta sér útgáfu af ævintýrinu um Rauðhettu. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir sögumaður, Jóhanna Sigurjónsdóttir Rauðhetta, Þórunn Bernódusdóttir veiðimaður, Bára Þorvaldsdóttir amman og Jensína Lýðsdóttir sem lék úlfinn.
Ingibergur Guðmundsson 167
Gunnar Albertsson heiðraður á sjómannadegi 2000 fyrir farsælt starf sem sjómaður og fiskvinnslumaður í áratugi.
Ólafur Bernódusson 630
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti hópsins sem fjallaði um þekkta vestur íslendinga. Krakkarnir kynntu þekktustu persónur úr þeim hópi með söng, upplestri, veggspjöldum og líkönum. Á myndinni eru frá vinstri: Daði Snær Stefánsson í fanginu á Ernu Björgvinsdóttur, Viktor Einarsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, María Gret Gunnarsdóttir, Sigurður Aron Björnsson stendur aftan við Maríu, Alma Vignisdóttir, Leifur Ragnarsson og Gunnþór Kristjánson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 99
Halla Björg Bernódusdóttir um tveggja ára aldur.
Adolf H Berndsen - safn 094
Þessi mynd var tekin í Noregi í desember 1992 þegar Skagstrendingi hf var afhentur nýsmíðaður frystitogari Arnar Hu 1. Á myndinni eru eiginkonur nokkurra áhafnarmeðlima eða stjórnarmanna í fyrirtækinu eða starfsmenn þess. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir,Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Ólafur Bernódusson 629
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda hana en vorið 2010 var keppnin haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á myndinni eru sigurvegarnir í þetta skipti. Albert Óli Þorleifsson úr Blönduskóla er í miðjunni en hinir krakkarnir eru óþekktir. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 068
Brosandi frændsystkin. Frá vinstri: Halla Kristín Árnadóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson og Jóney Gylfadóttir. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 065
Hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir með dætur sínar. Árni situr með Elvu Dröfn Árnadóttur og Hlíf með Höllu Kristínu Árnadóttur. Milli þeirra situr Aðalheiður Sif Árnadóttir. Myndin var tekin 1981 eða 1982.
1
…
163
164
165
166
167
Leita í myndasafninu
Leita