Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
myndir frá Skagaströnd 053
Líkfylgdin við útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga, sem lést af slysförum 1963.
Jón Ólafur Ívarsson og fjölskylda
Jón Ólafur Ívarsson og Guðrún Sigurðardóttir með börnum sínum. Frá vinstri:
Sigrún Jónsdóttir, Jón Ólafur, Hallbjörg Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Guðrún og Ingvar Þór Jónsson.
Soffía Karlsdóttit
Soffía Karlsdóttir ættuð frá Skagaströnd sem gerði það gott sem revíu- og dægurlagasöngkona. Sama mynd er hjá Ljósmyndasafni Akraness nr. 23867 og þar kemur fram að ljósmyndarinn er Bjarni Árnason.
Árni Björn Birgisson
Árni Björn Birgisson.
Spansflugan, f.h Bíbí á Karlskála,-,Kristinn P,Gerða Boga,In
Leikendur í uppfærslu á Spanskflugunni á Skagaströnd . Frá vinstri á myndinni, sem er tekin í Tunnunni, eru leikararnir: Helga Berndsen, Ægir Einarsson, Kristinn Pálsson, Þorgerður Bogadóttir, Ingvar Jónsson, Hjördís Sigurðardóttir, Ástmar Ingvarsson, Fríða Hafsteinsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Bernódus Ólafsson, Friðjón Guðmundsson og Steingrímur Jónsson.
mundi458
Hátíðargestir.Frá hægri: Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993), Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010), Halla Jökulsdóttir (d.16.9.2016), systurnar Svanfríður Sigurðardóttir og Þórdís Sigurðardóttir í rauðum kápum. Stúlkan í bláu kápunni með veski er Anna Kristjánsdóttir frá Háagerði þá kemur Sigríður Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) frá Lækjarbakka. Maðurinn með sígarettuna er Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) og maðurinn með hattinn og gleraugun er Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi439
Léttklædir vinir á góðviðrisdegi einhverntíma kringum 1960. Frá vinstri: Óskar Kristinsson Héðinshöfða, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Karl Lúðvíksson Steinholti og Ólafur Bernódusson Stórholti.
oþekkt135
Starfsfólk frystihús Kaupfélags Skagastrendinga.
Frá vinstri: Sigmund Jóhannsson vélgæslumaður, teiknari og málari, Sigurður Magnússon bílstjóri.
Þórarinn Hjartarson
Þórainn Hjartarson frá Vík.
Myndir frá Skagaströnd 002
Kappróður á sjómannadegi á bátunum Gusti og Golu.
hem029
Fremsta húsið er verslunarstjórahúsið því næst er verslunin sem er ljós á litinn og pakkhúsið. Við pakkhúsið sér í Assistentastofu en þar bjó verslunarþjónninn - aðstoðarmaður verslunarstjórans. Fyrir ofan sést í Læk og Jaðar.
Að sögn Þorvaldar Skaftasonar var svarti skúrinn, sem stendur við Einbúann, fluttur inn á Ennismela við Blönduós og var notaður sem vegavinnuskúr. Þar keypti Skafti Fanndal Jónasson frá Fjalli skúrinn árið 1942 og flutti til Skagastrandar. Stækkaði síðan skúrinn um helming og hóf sinn búskap ásamt Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur og tveim sonum, Hjalta og Jónasi. Skúrnum var gefið nafnið Dagsbrún og þar bjó fjölskyldan til 1958 en þá var fjölskyldan orðin sjö manns og þá hafði verið byggt við skúrinn sem er á myndinni..
Gerða Boga og óþekktur
Þorgerður Bogadóttir og óþekktur maður
jón114
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli á hestbaki.
larus057
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991. Ólafur Skúlason biskup predikar en í kórnum sitja prestarnir Egill Hallgrímsson, Guðni Þór Ólafsson og Pétur Þ. Ingjaldsson sem er innstur.
larus081
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps.
mundi407
Hyrnt kind með lamb.
mundi425

Andrésarbúðin eða verslun A. Guðjónssonar (Verslun Andrésar Guðjónssonar) Lengst til vinstri var heyhlaða síðan fjós og verslun Andrésar Guðjónssonar. Þegar Guðjón Andrésson tók við versluninni af föður sínum var fjósið gert að verslun líka og hlöðunni breytt í lager. Eftir 1970 hét versluninn Fellskjör um tíma en síðan verslun Hallbjörns Hjartarsonar. Hallbjörn hætti svo verslun í húsinu og stofnaði Kántribæ. Húsið brann en fjósið og hlaðan standa enn endurbyggð ásamt nýjum Kántrýbæ.

mundi395
Stefán Ágústsson frá Ytri-ey. Myndin er tekin árið1970.
mundi411
Séra Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996) prestur og prófastur á Skagaströnd og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.12.2012), kona hans, með syni sína Jón Hall og Pétur Ingjald. Myndin tekin fyrir utan bæinn Kurf í Skagahreppi
Guðrún Guðbjörnsdóttir002
Brautarholt var bær sem byggður var inn í Gónhól - hólinn sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Þar bjó lengi Ólafur Guðmundsson sem í daglegu tali var kenndur við Brautarholt
hem022
Bærinn Spákonufell og útihús honum tilheyrandi eru til vinstri. Spákonufellskirkja er til hægri, á hlaðinu á Spákonufelli. Spákonufell var landnámsjörð Þórdísar spákonu og höfuðból sem átti stærstan hluta þess lands sem byggðin á Skagaströnd stendur á í dag. Kirkja stóð um það bil þar sem kirkjugarður sóknarinnar er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en kirkan var aflögð 1928 þegar ný kirkja - Hólneskirkja - var vígð niður á Skagaströnd.
Jón Jónsson160
Lúðrasveit leikur á sjómannadegi á Skagaströnd undir stjórn Skarphéðins Einarssonar.
mundi421
Páll Ísólfsson situr við orgelið og Guðmundur Guðnason stendur hjá.
hem019

Millilanda- og Strandferðaskipið Laura - Lára - á strandstað á Bótinni, í mars 1910. Allir björguðust en skipið brotnaði á strandstað því ekki tókst að draga það á flot aftur. Í baksýn sér í norðanverðan Höfðann. Svo vildi til að Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi - Guðrún ljósa - var farþegi með skipinu í þessari síðustu ferð Lauru. Hér fyrir neðan fer frásögn Guðrúnar af strandinu en frásögnin er tekin af vefsíðu sem afkomendur Guðrúnar hafa sett út á netið, Myndina tók Evald Hemmert. "Haustið 1909 fór ég til Akureyrar til að læra að sauma. Ég hélt til hjá Valgerði Ólafsdóttur frænku minni. Hún bjó hjá syni sínum Halldóri. Hún kom mér fyrir hjá konu sem kenndi saumaskap. Og var ég þar í 6 mánuði. Mér langar mjög mikið til að læra dönsku því frænka mín var alltaf að lesa dönsku. Kom hún mér þá fyrir hjá Jórunni Sigurðardóttur sem hafði kvennaskóla og tók hún mig í dönskutíma og hafði ég gott af því. Svo fór ég heim í mars með gömlu Láru. Gekk Laura það allt vel þar til við komum inn í Húnaflóa. Þar var hríðarveður. Stýrimaður kom inn til okkar stúlknanna um morguninn og sagði okkur að við skyldum liggja í rúminu þar til við kæmum til Skagastrandar um hádegisbil. Kojurnar okkar voru inn af matsalnum en í honum sátu 13 Fransmenn sem höfðu brotið skip sitt fyrir austan land og voru nú á leið suður. Svo þegar skipið fór að taka niður þá fór að heyrast í körlunum og bar mest á orðinu „malestia“ sem mér var sagt að væri svart blótsyrði og er það eina orðið sem ég kann í frönsku. Við þurftum að drífa okkur í fötin því skipið hallaði gífurlega. Og fórum upp á þiljur þá var skipið strandað og hvítfrissandi bárur allt í kring. Við sáum til lands framundan og okkur var sagt að við hefðum strandað fyrir utan höfðann á Skagaströnd. Svo voru settir út tveir bátar og vorum við stúlkurnar settar ofan í annan bátinn ásamt öðrum. Og kom fyrsti stýrimaður og settist undir stýrið svo var lagt af heimleiðis. Ferðin tók klukkutíma og var það köld ferð. Við komu
Guðrún Guðbjörnsdóttir015

Steingrímur Einarsson frá Drangsnesi og Úlfar Jónsson frá Bæ við vinnu sína um borð í Húna Hu 1 1962 - '63.

031
Gunnlaugur Björnsson við slátt
30680040
Löndunarkraninn og færiböndin tengd við síldarverksmiðuna. Unnið að málningu og viðhaldi. Takið eftir málaranum sem hangir neðst á stokknum hægra megin. Inni í stokkunum tveimur, sinn hvoru megin á krananum, voru skóflufæribönd. Endinn á stokkunum var látinn síga niður í lest skipanna og þannig var síldinni mokað upp á færibandið sem flutti hana upp í þrærnar við verksmiðjuna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960.
larus005
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson, til vinstri, hættir störfum 1981 og Séra Oddur Einarsson tekur við, milli þeirra eru bræðurnir Kristján Hjartarson organisti og kórstjórnandi vinstra megin og Hallbjörn Hjartarson meðhjálpari hægra megin.
hem021
Til vinstri er Einar Blandon en hægra megin er Carl Hemmert í Höephnersverslun á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin,
myndir frá Skagaströnd 033
Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Bogi Ingvar Traustason, Þorgerður Una Bogadóttir, Birna Sólveig Lúkasdóttir og óþekktur maður (? Herbert Ólafsson ?).
larus016
Myndin er af kirkjuskipinu inni í Hólaneskirkju eldri. Á henni er Steindór Haraldsson meðhjálpari lengst til hægri en hitt fólkið er óþekkt. Myndin var tekin 6. október 1991.
oþekkt140
Adolf J. Berndsen oddviti ræðir við forseta Íslands frú Vigdísi Finnbogadóttur. Með þeim er Erla María Lárusdóttir sem afhenti Vigdísi blómvönd við komu hennar til Skagastrandar
mundi347
Grímuball í Tunnunni. Beinagrindin er Ingibjörg Axelma Axelsdóttir en Sveinbjörn Blöndal málaði hana.
Gerða Boga2
Gerða Boga (Þorgerður Una Bogadóttir)
mundi342
Einbeittur köttur.
oþekkt132

Starfsfólk frystihús Kaupfélags Skagastrendinga. Aftari röð f.v. : Baldvin Jóhannesson, Jóhanna Thorarensen, Hallgrímur Guðjónsson, Elsa Pétursdóttir, Hrólfur Jónsson, Vilborg Jónsdóttir, Guðmundur Pétursson, Hjördís Sigurðardóttir, Albert Haraldsson,Björn Jóhannesson. Fremri Röð f.v.: Kári Kristjánsson, Hrólfur Jakobsson, Hörður Ragnarsson og Lúðvík Kristjánsson

larus064
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Kirkjuturninn steyptur 24. maí.
mundi408
Gígja Axelsdóttir frá Felli (Litla-felli)
mundi396

Mynd frá jólaskemmtun á Njálsstöðum 1960. Ekki hefur tekist að bera kennsl á öll börnin á myndinni en í öftustu röð eru, talið, frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir, sr. Pétur Ingjaldsson, Filipía Helgadóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir, óþekkt kona, Magnús Daníelsson, Jónas Hafsteinssson. Erla Jakobsdóttir er síðan framan við Magnús. Í annarri röð má sjá tvíburabræðurna Ellert og Jakob Guðmundssyni.

larus021
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Helgi Gunnarsson byggingameistari tekur við viðurkenningu fyrir vel unnin störf úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar formanns byggingarnefndar.
Jóhanna Bryndís Hallgrímsdóttir, Bogi Ingvar Traustason og B
Jóhanna Bryndís Hallgrímsdóttir, Bogi Ingvar Traustason og óþekkt barn
mundi412
Hlíð í Skagahreppi
hem006
Fragtskipið Ísafold í ís norðan við Höfðann í júní 1915. Á þessum árum var komu fragtskipanna beðið með eftirvæntingu því með þeim barst vara til landsins sem beðið var eftir. Þess má geta að Eimskipafélag Íslands -"'Óskabarn þjóðarinnar" - var stofnað 1915 og var af mörgum talið risaskref fyrir Íslendinga í átt að sjálfstæði. Þessa mynd tók Evald Hemmert sem var kaupmaður á Skagaströnd og átti því hagsmuna að gæta í sambandi við es Ísafold sem flutti m.a. vörur í verslunina.
Kristinn Á
Kristinn Ágústsson frá Blálandi
mundi414
Axel Ásgeirsson (d.21.9.1965) bóndi á Litla felli.
mundi431
Sjósund, Karl Lúðvíksson ca 1960.
larus080
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989. Kirkjukórinn sem söng við athöfnina. Frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Kristján Hjartarson, Sigmar Jóhannesson, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Rosemary Hewlett. Við hljóðfærið situr Julian Hewlett.
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga 1963 að mig mynni
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga árið 1963 frá Hólaneskirkju. Fólkið á myndinni er,
talið frá vinstri: Kristinn Jóhannsson, Jóhann Pétursson. Guðmundur Jóhannesson, Karla Berndsen kona Þórarins, Þórbjörn Jónsson, Magnús Daníelson frá Syðri-ey, Óli Jón Bogason og Guðmann Magnússon frá Vindhæli.
Palli
Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði
mundi371
Hvolpur
myndir frá Skagaströnd 025
Jakobína Helga Axelsdóttir frá Læk
oþekkt138
Sigurður Magnússon bílstjóri á Volvo vörubíl, á þvottaplaninu sem var við hlið Einbúans. Fyrir aftan bílinn má sjá dúfnakofann sem var á lagerhúsi Sigurðar Sölvasonar kaupmanns í versluninni Borg.
023
Ingibjörg og Þórey Daníelsdætur frá Búrfelli
mundi430
Sólveig Georgsdóttir á fermingardaginn sinn.
mundi339
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver. Þórður Jónsson (d.25.12.2009) er lengst til vinstri uppi á sviðinu.
mundi397

Þessi mynd er tekin á jólaskemmtun um eða upp úr 1960 á Njálsstöðum. Frá vinstri: Björgvin Kemp Efri-Lækjardal, Guðrún Guðmundsdóttir Neðri-Mýrum, séra Pétur Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum, seinna á Skagaströnd, þá Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, Magnús Daníelsson (d.1.6.1993) frá Syðri-Ey, Sigurður Jónsson (d. 11.1.1968) Mánaskál, Guðlaug Sigurðardóttir (d.17.1.2002) Kúskerpi, Agnes Sigurðardóttir (d. 15.1.2003) Mánaskál, Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) Mánaskál og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum.

hem030
Frú Jóhanna Hemmert kaupmannsfrú við orgelið í stofunni heima hjá sér.
mundi404
Ferming í Hólaneskirkju 1961. Sigrún Kristófersdóttir gengur niður tröppurnar en Steinunn Margrét Ellertsdóttir er í kirkjudyrunum
hem003
Spákonufellshöfði 1915 eða eldra.
mundi419
Guðrún Elvan Friðriksdóttir (14.2.2008) dóttir Friðriks Elvan (d.?) og Bjargar Ólafsdóttur (d.1.3.2007).
1

16
17
18

167
Leita í myndasafninu
Leita