Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
38_Skemmtun_i_Vatnsdalnum
Skemmtun í Vatnsdal
44_Rosa_Jonsdottir_fra_Spakonufelli
Rósa Jónsdóttir frá Spákonufelli í heyskap.
Mynd_tekin_af_SM
Netin dregin með góðum afla á Húna Hu1
Óþekkt064
Lögreglumaður bíður eftir forsetanum 1988
33_Þuridur_Hermann_og_Arni_Litla_Bergi
Systkinin frá Litla Bergi. Hermann Haraldsson sem deyr um 8 ára aldur, Þuríður Haraldsdóttir sem deyr rúmlega tvítug og
Árni Max Haraldsson sem er um það bil 3 ára þegar myndin var tekin.
46_Skagatrond_fra_Hofdanum_postkort
Skagastrandarmynd tekin af Höfðanum rétt fyrir 1950 (líklega 1948 þegar stálþil var rekið niður á Skúffugarði)
Óþekkt012
Daníel Guðmundsson er framar á myndinni en systir hans Júlíana Guðmundsdóttir fyrir aftan.
37_ElisabetFerdinandsdottir_Beta_i_Brautarholti
Elisabet Ferdinandsdóttir frá Brautarholti fædd 1865 dáin í desember 1958. Hún var móðir Ólafs Guðmundssonar sem gekk undir nafninu Óli Gón í Brautarholti
50_Brim_vid_Skagastrond_postkort
Brim við Skagaströnd. Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1905 - 1910. Á myndinni sést Spákonufellsey sem seinna varð undirstaða hafnargerðar á Skagaströnd.
Óþekkt060
Fólk safnast saman til að taka á móti forsetanum á Hnappstaðatúni 1988
Óþekkt082
Snjómokstur fyrir víkina.
Óþekkt045
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir við þökulangningu á Hnappstaðatúni fyrir forsetaheimsókn 1988.
Þórður006
Skátar í gönguferð í Gilwell skólanum að Úlfljótsvatni líklega 1964. Steindór Haraldsson tók myndina. Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félgasforingi Sigurfara á Skagatrönd er annar frá hægri hinir eru óþekktir.
Óþekkt040
Hallbjörn Hjartarson á hestbaki á Kántrýhátíð. Fremst á myndinni til hægri eru konur að sýna kántrýdans.
Óþekkt028
Halldór Hermannsson verslunarstjóri í Versluninni Borg.
Þórður002

Skátar heiðraðir á Þingvöllum á 50 ára afmælismóti BSÍ (Bandalags Íslanskra skáta) í júlí 1962 af mótsstjóranum Páli Gíslasyni frá Akranesi. Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd er fyrir miðri mynd í grárri peysu og með prjónahúfu og við hlið hans er Tryggvi Þorsteinsson frá Akureyri. .

53_Kirkjan_gamla_ad_innan
Mynd tekin inn að altarinu í gömlu kirkjunni á Skagaströnd.
Óþekkt098
Malarkjarna keyrt út í Miðgarð 1991
Guðmundur051
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Elísabet Árnadóttir, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) á sviðinu í Fellsborg. Georg Hjartarson (d. 13.9.2001) sést bak við píanóið.
Þórður013
Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi Sigurfara á Skagatrönd er lengst til vinstri í öftustu röð en Hörður Zophaníasson er þriðji frá vinstri. Jónas Jónsson skátahöfðingi er fyrir miðju í fremstu röð og Ingólfur Ármannsson er þriðji frá hægri í þeirri röð. röð Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur043
Kvartett syngur í óþekktu samsæti í Fellsborg. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Óþekkt019
Lárus Ægir Guðmundsson í ræðustól í veislu í Fellsborg á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989. Fremst á myndinni er Kristján Hjartarson. Til vinstri eru hjónin Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir og Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti. Fyrir aftan Lárus má þekkja Vilhjálm Skaftason.
Óþekkt043
Þökulagning á Hnappstaðatúni 1988. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson, Rúnar Jóhannsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
Þórður009

Tjaldbúðir skáta í útilegu að vetri til. Staðurinn óþekktur.

Þórður004
Óþekktir ungir skátar á skátamóti á óþekktum stað.
Þórður017
Frá vinstri á þessari mynd af skátaforingjum eru: Hörður Zóphaníasson úr Hafnarfirði, óþekkt, Tryggvi Þorsteinsson frá Akureyri, óþekkt, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) frá Skagatrönd og Páll Pálsson frá Akureyri. Tilefni myndarinnar er óþekkt.
Steina_netatrossu_i_Grindavik_SM
Unnið við að steina niður netatrossu um borð í Húna Hu 1 í höfn í Grindavík. Dökkhærði maðurinn aftast til vinstri er Snorri Gíslason og ungi maðurinn fremst á myndinni er Gylfi Sigurðsson. Bogni maðurinn í dökku peysunni er Indriði Hjaltason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Sigmar Jóhannesson. Lengst til hægri er Hákon Magnússon.
Óþekkt008
Særún Jónsdóttir og Linda dóttir hennar í sölugámi áhátíðarsvæðinu þesgar Höfðahreppur varð 50 ára 1989
Óþekkt053
Mikið á sig lagt til að skreyta bæinn með fánum fyrir forsetaheimsókn 1988. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri að störfum.
Óþekkt128
Frá samkomu í Fellsborg að lokinni vígslu kirkjunnar. Talið frá vinstri. Julian Hewlet organisti kirkjunnar og þáverandi kona hans Rosemary á tali við Guðmund Sigvaldason sveitarstjóra. Í baksýn má sjá Hlíf Sigurðardóttur, Árna Ó. Sigurðsson og Adolf J. Berndsen.
41_GudmundaPetursd_med_sonm_Margret_Peturs_med_syni
Guðmunda Pétursdóttir með son sinn og Margrét Pétursdóttir með syni sína. Myndin tekin um1946
Texti1_ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Albertsson með rígaþorsk um borð í Húna ll Hu 2 frá Höfðakaupstað (Skagatrönd)
43_Sera_Petur
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson nýlega orðinn prestur.
30_Spakonufell
Bærinn að Spákonufelli sem stóð u.þ.b. þar sem kirkjugarður Skagstrendinga er í dag.
47_Kaupfelagid_fra_Hofdanum_Postkort_E_Hemmert
Myndin er tekin ca 1930 af Höfðanum yfir Kaupfélagið og verslunarhúsin í útbænum eða á Skagaströnd eins og kallað var. Húsin á myndinni eru frá hægri: verslunarstjórahús, Kaupfélag Skagstrendinga (KAST), Assistentahús sem stendur þvert á háreist pakkhúsið sem er með viðbyggingu til norðurs. Ljósa húsið nær okkur er Garður. Vinstra megin við pakkhúsið er Sæmundsenbúð.
48_Barnaskolinn

Skólahúsið var tekið í notkun 1958. Húsið við norðurenda skólans var í eigu Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd en var alltaf kallað Þorfinnshús því í því bjó Þorfinnur Bjarnason oddviti með fjölskyldu sinni.

51_Hafis_vid_Skagastrond_postkort
Mynd þessi er tekin fyrir 1915 og sýnir ís við land austan við Einbúann sem er þarna til vinstri hálfur falinn af ísjaka
Óþekkt016

Áhorfendur hlíða á söng Hallbjörns Hjartarsona á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989.

HuniHU1_Landad_med_gomlu_adferdinni_SM
Síld landað á skagaströnd úr Húna Hu 1. Hér hefur Húni fengið fullfermi og karlarnir eru að vinna við að landa. Löndun þótti þrældómur því allri síld þurfti að moka í málin með þar til gerðum háfum. Fjalir voru lagar yfir stíurnar til að merja ekki síldina meðan verið var að moka henni. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema dökkhærði maðurinn í bússunum er Björn Haraldsson og sá sem er lengst til hægri og snýr baki í ljósmyndarann er Gunnar Sveinsson. Aðrir eru óþekktir
45_Helga_Dan_sidari_madur_hennar_Einar
Helga Daníelsdóttir frá Syðri-ey og maður hennar Einar Soderholm
HuniHU2_3_SM

Síld landað úr Húna ll Hu 2 einhversstaðar á austfjörðum.

guðmundur002
Myndin er tekin á fallegum sumardegi frá húsinu Ægissíðu og upp að bænum Melstað sem nú er löngu horfinn en við Melstað var löngum kenndur Björgvin Guðmundsson frá Saurum á Skaga.
HuniHU1_4_SM
Netaumvitjun um borð í Húna Hu 1. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ, óþekktur og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) sem er á rúllunni lengst til hægri. Indriði og Eðvarð eru að greiða fiskinn úr netinu meðan Þorleifur dregur af spilinu og hjálpar til við úrgreiðsluna ef færi gefst. Gunnlaugur fylgist með á rúllunni með gogginn klárann ef fiskur er að losna úr netinu þegar það kemur upp úr sjó. Bogni óþekkti maðurinn er að blóðga fiskinn og setur hann svo niður í lest gegnum gatið sem sést á netaborðinu við hlið hans.
Óþekkt030
Laikskólabörn syngja á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989 undir stjórn Báru Þorvaldsdóttur leikskólastjóra, Guðrúnar Hrólfsdóttur og Laufeyjar Ingimundadóttur.
HuniHU2_Verid_ad_hafa_SM
Síld háfuð um borð í Húna ll Hu 2.
Guðmundur041
Myndin var tekin í Fellsborg líklega á 1. maí skemmtun þó ártalið sé óþekkt. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) frá Bjarmalandi, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) frá Litla-Bergi og Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) frá Jaðri. Myndin var tekin í tilefni af heiðrun þeirra fyrir langt og gott starf með kirkjukór Skagastrandar.

Óþekkt015
Hallbjörn Hjartarson eða "Kúreki norðursins" syngur á hátíðarpalli á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989
2_Ovedur_ca_80-90_AJ_Berndsen
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Vesturhliðin á verksmiðjunni.
Óþekkt024
Hluti áheyrenda á hátíðasvæðinu vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 1989.
guðmundur014
Myndin er tekin framan við Skálholt þegar Engilbert og kona hans, Sigríður Helgadóttir, héldu uppboð á hluta eigna sinni vegna þess að þau voru að flytja til Reykjavíkur. Á myndinni má þekkja: Önnur frá vinstri er Guðmunda Árnadóttir frá Flankastöðum, þá Elísabet Frímannsdóttir á Jaðri og Margrét Sigurðardóttir í Fjallsminni, óþekkt kona og Hallbjörg Jónsdóttir í Þórsmörk. Svo kemur óþekkt fólk en konan við hlið óþekkta mannsins með húfuna er annað hvort Þórunn eða Margrét Stefánsdóttir frá Kambakoti. Konan lengst til hægri er óþekkt en næst henni er Elísabet Kristjánsdóttir þá Fanney Jónsdóttir og Helga Berndsen. Strákurinn í ljósu peysunni sem ber í Helgu Berndsen er Rúnar Hartmannsson.Aðrir á myndinni eru óþekktir.
06_Skagastrond_fra_Hofda_vetur
Þessi mynd er tekin 1942 eða 1943. Húsin næst okkur á myndinni eru öll horfin Höfðakot næst okkur, Dvergasteinn næst og Draumaland er pínulitla húsið til hægri. Stóru húsin tvö eru Skálholt til vinstri og Þórshamar til hægri en litla húsið hægra megin við Þórshamar er Þórsmörk sem nú er horfin.
Þórður005
Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd er til hægri en hinn maðurinn er óþekktur. Myndin er tekin á skátamóti á óþekktum stað.
HuniHU2_1_SM
Húni ll HU-2 Höfðakaupstað í reynslusiglingu á Eyjafirði í júní 1963. Báturinn var smíðaður á Akureyri fyrir Björn Pálsson og Hákon Magnússon 130 brúttótonn með 450 hestafla Stork vél og þótti lista smíð á sinum tíma. Hét seinna Haukafell SF-111. Gauti HU ? Sigurður Lárusson SF ? og síðan Húni ll og heitir það enn og er varðveittur á Akureyri.
Óþekkt007
Myndin er tekin árið 1989 á tjaldsvæðinu en þar var gestum boðið upp á grillmat á hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps.Á myndini eru kokkarnir talið frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson, Gunnar Reynisson, Rakel Jónsdóttir, Steindór Haraldsson og Kristín Jóna Sigurðardóttir.
Óþekkt044
Rúnar Jóhannsson við þökulagningu á Hnappstaðatúni fyrir forsetaheimsókn 1988
Óþekkt111
Söngtafla úr Hólaneskirkju eldri.
Þórður010
Skátar í útilegu að fá sér að borða. Fólkið er óþekkt en stúlkan með flétturnar gæti verið Sigríður Pálsdóttir og stúlkan lengst til hægri er ein af systrunum frá Læk (?Magdalena Axelsdóttir?). Strákarnir eru sennilega Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) í doppóttu peysunni og Hallbjörn Björnsson. Stúlkan lengst til vinstri er líklega Helga Guðmundsdóttir en stúlkan sem sýpur á glasi er óþekkt.
05_Kaupfelagid_vetur

Myndin er tekin af Höfðanum sennilega 1942 eða 1943. Byggingar sem tengdust byggingu verksmiðjunnar og/eða hernum, braggar og skemmur, eru ekki komnar.

Óþekkt027
Hluti kirkjukórsins syngur á hátíðarpalli á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989 við undirleik Þorvaldar Skaftasonar.
HuniHU2_gott_kast_SM
Síld háfuð um borð í Húna ll Hu 2.
1
2
3
4
5

167
Leita í myndasafninu
Leita