Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson123
Nýja kirkjan steypt. Gamla kirkjan í baksýn.
010
Talið frá vinstri: Björn Arason Örlygsstöðum, Brynhildur Vilhjálmsdóttir Brandaskarði, Gunnar Albertsson Keldulandi, Ásgerður Pálsdóttir Bakka, María Pálsdóttir Bakka, Helgi Pálsson Bakka, Benedikt Vilhjálmsson Brandaskarði, Árni Hólm Skeggjastöðum, Jón Vilhjálmsson Brandaskarði, Páll Vilhjálmsson Brandaskarði, Örn Guðmundsson kennari frá Þverárdal. Myndin tekin ca 1944.
Stefán Jósefsson - safn001
<p>Á þessari merkilegu mynd sést innrásarkarið sem keypt var til Skagastrandar til að nota í hafnargarðinn (Útgarð). Karið kom hingað í júlí 1948 og var þá sett í geymslu þarna sem sést á myndinni. Í desember brotnaði karið og ef myndin er skoðuð vel sést að karið er brotið í tvennt. Karið var síðan notað til að lengja hafnargarðinn eftir mikið japl og jaml og fuður. Þar hefur það verið til endalausra vandræða því það misseig og á það komu göt neðan við sjávarmál. Einnig hefur komið í ljós að verksvik hafa verið stunduð við smíði þess því járnið, sem átti að binda sem stoðgrind í veggjum karsins, var bara skellt í stórum búntum ofan í steypuna og gerði því lítið gagn. Báturinn á myndinni, sem er að koma úr róðri, er Stígandi Hu 9 sem var í eigu Bjarna Helgasonar frá Holti</p>
055
Ósk Þorleifsdóttir Efri-Harrastöðum við heyskap. Í baksýn eru gömlu fjárhúsin á Efri-Harrastöðum
Gunnar Jónsson005
Mokafli um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971- 1973
040
Jóhanna Gunnlaugsdóttir á hlaðinu á Efri-Harrastöðum í Skagahreppi
Guðrún Guðbjörnsdóttir025
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) (með húfu) salta grásleppuhrogn.
Sigmar Hróbjartsson - safn012
Tungunes á Ásunum (Langadal)
Guðrún Guðbjörnsdóttir010
Jón Ingi Ingvarsson (fremst á myndinni) stjórnar reipitogi á sjómannadegi. á reipinu má sjá Gylfa Sigurðsson og Eið Hilmarsson en fleiri þekkjast ekki.
051
Þórey Daníelsdóttir frá Búrfelli með hest ca 1940
Jón Jónsson166
Atli Þórsson í búningi sínum á grímuballi Höfðaskóla.
Gunnar Jónsson003
Jón Jósefsson æfir skotfimi á frívakt á Örvari Hu 14. Gylfi Guðjónsson fylgist með.
Guðmundur Guðnason686
Sunnudagaskólabörn sunnan við gömlu kirkjuna á Skagaströnd. Fólkið sem stendur aftan við börnin er, talið frá vinstri: Hrefna Björnsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir, Guðný Hjartardóttir, Guðrún Teitsdóttir, Herra Sigurbjörn Einarsson biskup, Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú, séra Pétur Ingjaldsson, Páll Jónsson, Björk Axelsdóttir og óþekkt kona. Börnin eru óþekkt en eru æska Skagastrandar á þeim tíma sem myndin er tekin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir004
Pálína Freyja Harðardóttir er hér til vinstri en Kristjana Erlingsdóttir til hægri
Þórður Jónsson121
Bernódus Ólafsson í síldarvinnu á Skagaströnd einhverntíma á sjötta áratugnum.
Sigmar Hróbjartsson - safn003
Skemman, strompurinn og verksmiðjan rísa 1945 - 46
062
Aðalheiður Frímannsdóttir og Lilja Andrésdóttir á Skagaströnd. Myndin tekin um 1940. Húsið í baksýn er Árnes en til vinstri, með hvítum gafli, er Sæból
030
Þorsteinn Guðlaugsson á Litla-felli við sláturhúsið á Skagaströnd ca 1938
Guðmundur Guðnason715
Þessi mynd var tekin á kvikmyndasýningu í Tunnunni. Myndin var tekin áður en reglulegar kvikmyndasýningar hófust þar á vegum Skagastrandarbíós. Á þessum árum voru stundum haldnar kvikmyndasýningar á vegum MÍR ( Menningarsamtökum Íslands og Ráðstjórnarríkjanna) og á vegum Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna. Yfirleitt var ókeypis inn á þessar sýningar sem oftar en ekki byggðust upp á einhverri skemmtimynd í bland við áróðursmyndir viðkomandi aðila.
006
Anna Pálsdóttir frá Húnsstöðum og Þuríður Steingrímsdóttir frá Reykjavík. Myndin var tekin 1946
053
Una Jónsdóttir frá Steinnýjarstöðum á hestbaki með hund með sér
Ólafur Bernódusson014
Frá vígslu Bjarmaness eftir endurbyggingu. Á myndinni má þekkja frá vinstri: Halldór G. Ólafsson, Elías Björn Árnason, Sigríði Stefánsdóttur, Adolf J. Berndsen og Sigurð Björnsson
Guðrún Guðbjörnsdóttir082
Myndin er tekin á jólaballi í Fellsborg. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Charlotta Traustadóttir, Magnús Sigurðsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Karla Helgadóttir.
012
Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum
Jón Jónsson124
Steypuvinna við Hólaneskirkju.
Sigmar Hróbjartsson - safn011
Fjögur af húsunum á þessari mynd eru nú horfin. Myndi er tekin úr garðinum á Hólabraut 6. Húsið lengst til vinstri er hét Sóllundur og stóð þar sem nú er Hólabraut 8. Næsta hús hét Goðhóll og stóð þar sem nú er Hólabraut 10. Fyrir ofan Goðhól er svo hlaða/fjárhús. Fyrir aftan drenginn - Braga Þór Haraldsson - glittir í Vinaminni eða Hólabraut 16 í dag. Húsið fyrir miðri mynd hét Baldursheimur og stóð við Sólarveg.
005
Gunnar Albertsson frá Keldulandi og Jón Vilhjálmsson frá Brandaskarði. Á myndinni eru þeir ca 11 - 13 ára gamlir
Ólafur Bernódusson012
Fjölmenni var við vígslu Bjarmaness eftir endurbygginguna 19. júní 2004
Stefán Jósefsson - safn009
Frá vinstri eru: Eiður Hilmarsson frá Hofi, Jón Stefánsson frá Kambakoti og Sigmar Jóhannesson. Myndin er tekin á sjómannadegi og þeir eru með verðlaunapening fyrir unninn kappróður í barminum. Myndin er tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum fyrir utan Skjaldbreið, sem þá var heimili Eiðs.
Guðmundur Guðnason751
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu.
Ólafur Bernódusson010
Frá vígslu Bjarmaness 19. júní 2004. Lárus Ægir Guðmundsson flytur ávarp af tröppum hússins.
008
Guðmundur Guðnason í Ægissíðu, póstur á Skagaströnd. Mynd tekin ca 1939
021
Ingibjörg Daníelsdóttir Búrfelli, Erlendur Hallgrímsson Tungunesi, Þórey Daníelsdóttir Búrfelli
Jón Jónsson 119
Frágangur við topp kirkjuturnsins á Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason688
<P>Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Inga Stefánsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Jósef Sigurðsson. Þrjú barnanna voru börn Sigurðar Magnússonar og Dórotheu Hallgrímsdóttur frá Hólanesi. Inga dvaldi hjá þeim hjónum á táningsárum sínum.</P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir021
Tunnuleikur á sjómannadegi. Jón Pálsson skólastjóri skríður í gegnum tunni og blæs í blöðru í leiðinni. Meðal áhorfenda má þekkja Helgu Berndsen, og Guðrúnu Sigurðardóttur. Drengurinn með gleraugun á milli þeirra er Jón Hallur Pétursson og ungi maðurinn aftan við hann er Árni Björn Birgisson.
Guðmundur Guðnason700
Myndin er tekin í Spákonufellsrétt. Stúlkan í köflóttu skyrtunni er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi og ljóshærða stúlkan er Guðbjörg Kristinsdóttir. Skeggjaði maðurinn með húfuna er Einar Haraldsson fá Kjalarlandi (seinna í Dagsbrún). Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Bernódus Ólafsson og til hægri við hann er Jóhann Jakobsson.
058
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó. Spákonufell í baksýn.
Gunnar Jónsson012
Trollið tekið um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
054
Jón Árnason frá Steinnýjarstöðum - seinna á Ólafsvöllum á Skagaströnd
Gunnar Jónsson004
Um borð í Örvari Hu 14. Jón Jósefsson bíður á dekkinu meðan verið er að hífa.
Sigmar Hróbjartsson - safn006
1945 - 46 verið að byggja strompinn og stoðirnar í skemmuna eru að rísa. Maðurinn á myndinni vinnur við fráslátt.
035
Skemma úr torfi og timbri við Efri-Harrastaði
Sigmar Hróbjartsson - safn001
Á myndinni er verið að byggja færibandið á löndunarbryggjunni 1945 - 46. Skipið sem sjá má við bryggju er varðskipið Ægir, smíðað árið 1929.
Stefán Jósefsson - safn004
Sýnd notkun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Báturinn á myndinni er Vísir Hu 10 en maðurinn í stólnum í sjónum er óþekktur.
Stefán Jósefsson - safn003
Vísir Hu 10 heldur í róður frá Skagaströnd upp úr 1960
013
Björgvin Guðmundsson frá Saurum. Myndin tekin ca 1939
Guðrún Guðbjörnsdóttir014
<P>Þorskanet dregin í góðu veðri á Húna Hu 1. Gunnlaugur Árnason er við rúlluna en maðurinn í stakknum er Þorleifur Þórarinsson (Diddi) frá Neðstabæ.</P>
029
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum og Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði bregða sér í karlmannsföt. Myndin tekin ca 1948.
Guðmundur Guðnason707
<P>Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum, Bergdís Sigmarsdóttir, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti, Búi Birgisson frá Straumnesi, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Birna Guðjónsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum og Jóhann Ingibjörnsson. </P>
Ólafur Bernódusson007
Hrólfur Pétursson og Sigurður Björnsson við vinnu að endurbyggingu Bjarmaness 2003 - 2004
037
Ásgerður, helgi og María Pálsbörn frá Bakka í Skagahreppi (nú Skagabyggð)
Guðrún Guðbjörnsdóttir048
Lúðvík Kristjánsson til vinstri og Gunnar Helgason til hægri heiðraðir á sjómannadegi.
Gunnar Jónsson013
Ólafur Ingibjörnsson við vinnu um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar)
Sigmar Hróbjartsson - safn010
Strompurinn að ná fullri hæð 1945 - 46
Guðrún Guðbjörnsdóttir052
Birkir Rafn Gíslason fær að prófa að sitja á fjórhjóli. Stúlkan í bláu úlpunni er líklega Rakel Sara Gunnarsdóttir. Rússajeppann í baksýn átti Guðmundur Björnsson
Guðmundur Guðnason710
Smalamennska í Borginni. Féð rekið heim að rétt.
Gunnar Jónsson007
Finnur Kristinsson bátsmaður á Örvari Hu 14 leysir frá fullum poka af fiski.
Gunnar Jónsson006
Allar stíur fullar af fiski um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973.
043
Kári Kristjánsson ? snýr heyi einhverntíma í kringum 1938 með snúningsvél frá bænum Efri-Harrastöðum.
1
…
19
20
21
…
167
Leita í myndasafninu
Leita