Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðbjörnsdóttir039
Tónlistarfólkið og hjónin Julian og Rosemary Hewlett
Gunnar Jónsson001
Finnur Kristinsson bindur fyrir pokann um borð í Örvari HU 14.
Guðrún Guðbjörnsdóttir041
Myndin er tekin á sjómannadegi. Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason eru fremst á myndinni. Nýbúið að heiðra Gunnlaug með orðu sjómannadagsins. Í ræðustól er Magnús B. Jónsson og konan í brúna jakkanum er Kolbrún Viggósdóttir með syni sína þá Eyþór Kára og Ásþór Egilssyni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir007
Bjarni Helgason skipstjóri blæs í blöðru í leik á sjómannadegi. Í baksýn má þekkja Karl Guðmundsson (með mjótt bindi) og Björn Sigmundson
Guðrún Guðbjörnsdóttir068
Snorri Gíslason í réttarstuði.
068
Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum á Skagaströnd
Evald Hemmert032
Myndin er tekin árið 1906 upp eftir bryggjustúf sem stóð í fjörunni austan við Einbúann. Þar er nú uppfylling og stór tvöföld skemma - síldarskemman. Upp af bryggjunni eru verslunarhús Höphnersverslunar næst en hærra húsið var pakkhús verslunarinnar. Assistentastofa er til vinstri við verslunina en þar bjó verslunarþjónninn sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Lengst til vinstri á myndinni er fjós og hesthús sem tilheyrði versluninni og verslunarstjóranum. Mennirnir sem eru við vinnu á bryggjunni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason709
Bergdís Sigmarsdóttir á sviðinu í Tunnunni upp úr 1960.
Guðrún Guðbjörnsdóttir096
Skötuveisla Skagstrendings hf í skátaskálanum. Frá vinstri á myndinni eru: Guðjón Guðjónsson, Ernst Berndsen, Hafþór Gylfason og Gunnar Reynisson.
Guðmundur Guðnason689
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn lengst til hægri er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási. Aðrir eru óþekktir.
064
Sigmar Hróbjartsson með Gunnlaug son sinn í fanginu við húshornið á Efri-Harrastöðum
Gunnar Jónsson010
Gott hal híft um borð í Arnar Hu 1 (Japans-Arnar)
Sigmar Hróbjartsson - safn009
Strompurinn í byggingu og skemman líka 1945 - 46.
Guðmundur Guðnason699
Tveir óþekktir knapar þeysa af stað í kappreiðum. Mennirnir og staðurinn eru óþekkt.
Guðmundur Guðnason724
Fermingarbörn ganga til kirkju. Frá hægri: Guðbjörg Viggósdóttir, Guðbjörg V. Kristinsdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Heiðar Friðriksson, óþekktur, Ingvar Ástmarsson, óþekktur, Magnús Guðlaugsson, óþekktur.
Þórður Jónsson120
Áhöfnin á Vísi Hu 10. Frá vinstri: Jósef Stefánsson, Sigurður Árnason skipstjóri, Bernódus Ólafsson og Jón Stefánsson.
048
Ósk Þorleifsdóttir Efri-Harrastöðum og Elísabet Þorleifsdóttir systir hennar frá Móbergi í Langadal. Myndin tekin um 1950.
Ólafur Bernódusson016
Helgi Gunnarsson yfirsmiður við endurbygginguna fer yfir sögu framkvæmdanna við vígsluna 19. júní 2004
049
Svava Sigmundsdóttir frá Björgum. Myndin tekin ca 1941
028
Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði bregður á leik. Mynd tekin ca 1948
Guðmundur Guðnasonr680
Óþekktur við réttarstörf í Hofsrétt
Jón Jónsson163

Trillur við Skúffugarðinn í blíðviðri á sjómannadegi. Ekki er búið að koma fyrir grjótvörn vestur úr garðinum. Bátarnir eru: Sunna Hu 2 eigandi Þorvaldur Skaftason. Skagstrendingur H/f keypti úreldingarréttinn og var hann notaður upp í Arnar HU 1. Átti að brenna bátinn með lögregluvaldi en Þorvaldur neitaði og er báturinn nú augnayndi og barnaleiktæki á Kaupfélagstúni. Númer tvö er Steindóra HF í eigu Indriða Hjaltasonar. Sá bátur endaði á leikskólanum Barnaból sem leiktæki barnanna þar. Þriðji er Grímur Magnússon í eigu Inga Grímssonar og fjórði er líklega Lotto HU í eigu Árna Guðbjartssonar í Vík.

Guðmundur Guðnason749
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd.
Stefán Jósefsson - safn006
Gunnar Sveinsson um borð í Auðbjörgu Hu 6 á leið í netaróður 1968.
015
Hundarnir á Efri-Harrastöðum. Tíkin Halló er til hægri
Jóhanna Gunnlaugsdóttir - safn069
Við lendinguna í Bæjarvíkinni á Finnsstaðarnesi. Maðurinn sem stendur aftan við bátinn er Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum og maðurinn fremst við bátinn er Davíð Sigtryggsson frá Neðri-Harrastöðum. Maðurinn á milli þeirra er óþekktur. Útræði var úr Bæjarvíkinni og enn má sjá ummerki eftir byggingar við víkina. Bátar voru sjósettir með handafli og síðan róið og eða siglt á miðin. Þegar komið var úr róðri var báturinn síðan dregin á land oft með hjálp snúningsspils en einnig oft bara á höndum. Þá skipti miklu máli að hafa góða hlunna til að draga bátinn eftir til að draga úr mótstöðunni. Þegar báturinn var svo kominn á sinn stað var oft borið í hann grjót til að hann fyki nú ekki og skemmdist. Aflanum var svo skipt á milli sjómannanna í fjörunni eftir ákveðnum reglum þar sem eigandi bátsins fékk meira en hinir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir066
Þessar brosandi konur eru, frá vinstri: Hlíf Sigurðardóttir með dóttur sína Aðalheiði Árnadóttur í fanginu, Hjördís Sigurðardóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Laufey Ingimundardóttir. Barnið milli Báru og Laufeyjar er óþekkt.
Jón Jónsson165
Anna Kristjánsdóttir til hægri afhendir óþekktri stúlku (?Elísabet Eik Guðmundsdóttir?) verðlaun á grímuballi Höfðaskóla.
Guðrún Guðbjörnsdóttir020
Tunnuleikur á sjómannadegi. Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) skríður gegnum tunnu og blæs í blöðru í leiðinni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir111
Kristján Hjartarson þenur nikkuna og Jón Helgason spilar með á gítarinn við Goðafoss í góðu veðri.
017

Smári Gunnlaugsson í snjó

Jón Jónsson121
Steypuvinna við turninn á Hólaneskirkju
Guðrún Guðbjörnsdóttir003
Bærinn Brautarholt var byggður inn í Gónhól. Það er hóllinn sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Ólafur Guðmundsson bjó lengi í Brautarholti og var gjarnan kenndur við bæinn - Óli í Braut
Sigmar Hróbjartsson - safn002
Verksmiðjan byggð 1945-46. Á myndinni er verið að byggja þrærnar og rörið milli skemmu og verksmiðju er ekki komið.
059
Hjónin Hróbjartur Jónasson og Vihelmína Helgadóttir frá Hamri í Hegranesi í heimsókn á Skagaströnd
Guðmundur Guðnasonr674
Á þessarri mynd, sem er tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum, eru skólabörn úr núverandi Húnavatnshreppi. Standandi eru, frá vinstri: Tryggvi Jónsson frá Ártúnum, Auður Ísfeld frá Bólstað, Halldóra Jónmundsdóttir frá Auðkúlu, Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum, Ragnheiður Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum, Guðrún Jónsdóttir frá Ártúnum og Heimir Guðmundsson frá Finnstungu. Sitjandi eru, talið frá vinstri: Grétar Guðmundsson frá Finnstungu, Eiríkur Grímsson frá Ljóshólum, Jón Kr. Ísfeld kennari og Bragi Steingrímsson frá Eyvindarstöðum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir029
Kaffitími í saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Gunnar Albertsson, Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir, Erla Theodórsdóttir, Danica Zupancic, Inga Kristjánsdóttir, Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Davíð Reynisson, Sigfús Sævar Sigurðsson, Óþekkt, Sigrún Benediktsdóttir og Ottó Ákason
Guðrún Guðbjörnsdóttir083
Hjónin Sveinn Kristófersson (d.9.5.1991) og Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000) njóta veitinga í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar (d.1.6.1996) 1982 í Fellsborg
Gunnar Jónsson014
Unnið í trolli um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnari)
Guðrún Guðbjörnsdóttir022
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (með húfu) salta grásleppuhrogn
Guðrún Guðbjörnsdóttir012
Kappróður á sjómannadegi, hafís á reki um hafnarsvæðið
016
Óþekkt fólk á hreyfðri mynd
Guðrún Guðbjörnsdóttir026

Frá vinstri á myndinni: Hallgrímur Kristmundsson, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (Daddi). Þeir sitja við borðið niðri í lúkarnum á Helgu Björgu Hu 7 sem þeir áttu og réru til fiskjar á í 20 ár. Hallgrímur V. Húnfjörð Kristmundsson (d. 9.10.1998) var vélstjóri um borð en hann átti þrjú börn með konu sinni Ingibjörgu Axelmu Axelsdóttur áður en þau skildu. Börnin voru: Jóhanna, Sævar Rafn og Axel Jóhann. Gylfi var stýrimaður um borð í Helgunni. Hann á þrjú börn: Hafþór, Guðbjörgu og Jóney með Guðrúnu Guðbjörnsdóttur konu sinni. Lengst til hægri er Jón Ólafur eða Daddi eins og hann er alltaf kallaður. Daddi var skipstjóri á Helgu Björgu og hann á fjögur börn með konu sinni Guðrúnu Sigurðardóttur - sem er reyndar systir Gylfa. Börn þeirra Dadda og Guðrúnar eru: Þórey, Hallbjörg, Sigrún og Ingvar Þór. Þessir þrír menn voru ákaflega samhentir um að láta hlutina ganga í útgerðinni og þrátt fyrir titlatogið hér að ofan gengu þeir allir í öll störf um borð Í Helgu Björgu, enda gekk útgerðin vel hjá þeim félögum.

Guðrún Guðbjörnsdóttir109
Fermingarbörn 1975 á skólatröppunum. Frá vinstri: Egill Bjarki Gunnarsson, Þórey Jónsdóttir, Lilja Kristinsdóttir, Ásdís Þórbjörnsdóttir ?, Hjálmfríður Bjarnadóttir, Guðrún Berndsen, Hafþór Gylfason, Jósef Sigurðsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Páll Jónsson.
Ólafur Bernódusson015
Adolf H. Berndsen oddviti þakkar Lárusi Ægi Guðmundssyni vel unnin störf í framkvæmdanefnd um endurbyggingu Bjarmaness 19. júní 2004.
Guðrún Guðbjörnsdóttir043
Snemma beygist krókurinn. Á myndinni eru sjómennirnir Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Jón Örn Stefánsson (sitjandi) um borð í Hafrúnu Hu 12 frá Skagaströnd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir033
Davíð Reynisson frá Neðri-Harrstöðum og Gunnar Albertsson frá keldulandi í saltfiskvinnslu
Guðmundur Guðnason681
Myndin var tekin á Lions-dansleik á Siglufirði 15. júní 1968. Til vinstri er Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og kona hans Þórhildur Ísberg. Maðurinn til hægri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir070
Ingibjörg Skúladóttir á skautum á Vindhælistjörninni.
045
Myndin er af Sandkúlunni sem er syðst í Katlafjalli ofan við bæinn Brandaskarð
Guðmundur Guðnason798
Fossinn fyir ofan bæinn Hof. Í baksýn eru Fjallsöxlin til vinstri og Steinnýjarstaðafjall til hægri. Milli þeirra er Litla skarð.
Guðmundur Guðnason722
Gengið til kirkju á fermingardegi. Frá vinstri: Óþekktur, Magnús Guðlaugsson, óþekktur, Ingvar Ástmarsson, óþekktur, Hilmar Gunnarsson, Heiðar Friðriksson og Hallbjörn Ágústsson.
Sigmar Hróbjartsson - safn004
Á þessari mynd er verið að byggja húsin sem voru upp á þrónum beggja megin við þrærnar sjálfar 1945 - 46
Guðmundur Guðnason726
Björn Magnússon Syðra-hóli.
046
Hyrntur hrútur frá Brandaskarði í taumi
Guðmundur Guðnason784
Börnin á myndinni eru frá Holti. Frá vinstri í aftari röð: Guðrún Pálmadóttir, Vilhjálmur Pálmason og Hrafnhildur Páladóttir. Fremri röð: Elísabet Pálmadóttir, Bryndís Pálmadóttir, Þorgrímur Pálmason og Ólöf Pálmadóttir.
Guðmundur Guðnason770
Séra Pétur Ingjaldsson sóknarprestur flytur predikun í Höskuldsstaðakirkju við vígslu hennar 1963. Í kórnum sitja prestar þeirra á meðal herra Sigurbjörn Einarsson biskup til hægri. Prestarnir til vinstri eru séra Þorsteinn B. Gíslason í Steinnesi og Jón Kr. Ísfeld í Bólstað.
Guðmundur Guðnason764

Leikarar frá hægri eru: Steindór Haraldsson og Pétur Jóhannsson en hinir tveir eru óþekktir.

Guðrún Guðbjörnsdóttir017
Snorri Kárason mátar sig í skipstjórastólinn í brúnni á Húna Hu 1 árið 1963.
Guðmundur Guðnason701
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, óþekkt og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti.
1

20
21
22

167
Leita í myndasafninu
Leita