Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðbjörnsdóttir111
Kristján Hjartarson þenur nikkuna og Jón Helgason spilar með á gítarinn við Goðafoss í góðu veðri.
Guðmundur Guðnason675
Braggarnir á myndinni gengdu margs konar hlutverkum hver fyrir sig. Braggarnir lengst til hægri voru íbúðabraggar þar til þeir voru rifnir. Sá sem er lengst til vinstri var einnig íbúðabraggi með skrifstofu sveitarfélagsins í norðurendanum, seinna bílaverkstæði. Bragginn í miðið var skátaskáli og seinna mötuneyti. Lenst til vinstri á myndinni sér í hafnarvigtarskúrinn.
Guðrún Guðbjörnsdóttir061
Grasfræi útdeilt í fötur til að dreifa á melinn ofan við Skíðaskálann. Fullorðnir á myndinni eru frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Helga Jóhannesdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Eygló Gunnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason737
Ólína Bjarnadóttir frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8).
Guðrún Guðbjörnsdóttir054
<P>Myndin er tekin við búðina að vetri til. Á henni eru frá vinstri: Atli Þórsson, Jón Jónsson, María Magnúsdóttir og Gunnar Halldór Hallbjörnsson.</P>
Guðmundur Guðnason704
Réttarstörf - rúningur - í Hofsrétt. Lengst til hægri er Rúnar Jósefsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001)snýr bakinu í myndavélina. Þá kemur Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og konan í rauðköflóttu skyrtunni er Sigríður Guðlaugsdóttir (d.23.5.1996) frá Bjarmalandi. Ari Ólafsson hjálpar móður sinni Jóninnu Þórey Hafsteinsdóttur (d.24.11.1994) að troða ull í poka. Ullarpokar sjást á réttarveggnum.
Guðmundur Guðnason739
Systurnar í Bjarnarhöfn með frænku sinni úr Skálholti. Frá vinstri: Pálfríður Bjarnadóttir, Anna Bjarnadóttir, Guðrún Benjamínsdóttir (d. 10. 6.1999), Hjálmfríður Bjarnadóttir og Ólína Bjarnadóttir. Systurnar voru aldar upp í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) en Guðrún ólst upp í Skálholti. Systurnar og Guðrún voru systkinabörn.
Guðrún Guðbjörnsdóttir042
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir selja kæstan hárkarl á Kántrýhátíð 1998 á sölumarkaði á Hnappstaðatúni.
Guðmundur Guðnason695
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á miðri mynd er Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) frá Goðhól. Maðurinn lengt til hægri er Baldvin Jóhannsson (d. 1.1.1981) frá Ásholti og bak við hann er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) einnig frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir108
Uppábúnir á sjómannadegi. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson togaraskipstjóri, Jón Helgason vélstjóri, Gylfi Sigurðsson stýrimaður og útgerðarmaður og Hafþór Gylfason stýrimaður sem leiðir Vigni son sinn.
Guðmundur Guðnason690
Vigfús Elvan Friðriksson sem fórst í sjóslysi við Snæfellsnes.
Guðmundur Guðnason797
Aðalbjörg Sigurðardóttir (Bagga) frá Akurgerði með dóttur sína Kristjönu Þorbjarnardóttur í fanginu.
Jón Jónsson167
Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Svava Magnúsdóttir í búningum sínum. Aftan við þær grillir í mæður þeirra Charlottu Traustadóttur og Halldóru Þorláksdóttur.
Guðmundur Guðnason826
Árni Björn Birgisson á fermingardaginn sinn 1962.
Gunnar Jónsson011
Skaufi. Hleypt niður á millidekk á Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
Guðrún Guðbjörnsdóttir045
Gylfi Sigurðsson veiðir þorsk um borð í Hafrúnu Hu 12. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Jón Örn Stefánsson fylgjast spenntir með.
Guðrún Guðbjörnsdóttir040
Hjördís Sigurðardóttir er til vinstri en Dómhildur Jónsdóttir situr til hægri
Gunnar Jónsson009
Gott hal tekið um borð í Arnar Hu 1, ( Japans-Arnar)
Guðmundur Guðnason705
<P>Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Sigrún Kristófersdóttir frá Sunnuhvoli, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Búi Birgisson frá Straumnesi, og Brynja Axelsdóttir frá Læk. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
Guðmundur Guðnason735
Örn Berg Guðmundsson (Assi) situr á milli fósturforeldra sinna Björgvins Jónssonar og Þorgerðar Guðmundsdóttur á fermingardaginn sinn 1963 heima í Höfðabrekku (Bankastræti 10).
Guðmundur Guðnason745
Ólöf Una Jónsdóttir frá Ártúnum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir049
Ferming í Hólaneskirkju (gömlu) 1978. Aftasta röð frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Guðjón Pálsson, Vilhelm Jónsson. Miðröð frá vinstri: Vilborg Másdóttir, Hjalti Indriðason, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir, Einar Karlsson, Soffía Guðmundsdóttir, Sveinn Kristjánsson, Sigurður Georgsson. Fremsta röð frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson, Bergþór Gunnarsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Karl Berndsen og Axel Gígjar Ásgeirsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir110
BNörn í biðröð á jólaballi í Fellsborg einhverntíma á áttunda áratugnum. Lengst til vinstri er Kristján Blöndal og framan við hann er Sigþrúður Magnúsdóttir. Drengirnir í skræpóttu skyrtunum eru Guðjón Pálsson (Dúi), og Árni Geir Ingvarsson. Fullorðnu mennirnir tveir eru Sigurður Magnússon og Rafn Sigurbjörnsson frá Hlíð. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir097
Valdimar Valdimarsson heiðraður á sjómannadegi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir078
Ungar skólasystur úr Höfðaskóla syngja á skólaskemmtun í Fellsborg. Fremst situr Steinunn Berndsen og leikur undir á gítar. hinar eru frá vinstri: Valdís Edda Valdimarsdóttir, Kenny Hallbjörnsdóttir, Elín Íris Jónasdóttir, Erna Högnadóttir og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir084
Jólaball í Fellsborg. Orri Blöndal er drengurinn lengst til vinstri. Aðrir eru: Friðjón Guðmundsson, Teitný Guðmundsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir034
Úr saltfiskvinnslu Hólaness hf. Bíbí á Bergi (til hægri) og Sjana frá Júgóslavíu salta fisk ásamt Davíð Reynissyni.
Guðmundur Guðnason853
Áslaug Jónsdóttir Hólanesi og Margrét Anna Þórðardóttir Brimnesi. Báðar fæddar 1943. Myndin líklega tekin sumarið 1958.
Guðrún Guðbjörnsdóttir057
Guðmundur Skúli fiskifræðingur við rækjurannsóknir um borð í Helgu Björg Hu 7 inn á Ingólfsfirði.
Guðrún Guðbjörnsdóttir091
Steindór Gíslason sem var framkvæmdastjóri frystihúss Hólaness hf um árabil.
042
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum og Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði bregða á leik í karlmannsfötum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir018
Leikur á sjómannadegi. Reynir Sigurðsson þræðir nál meðan bróðir hans Gylfi fylgist með. Gunnar Sveinsson fylgist með konunni negla nagla í planka. Meðal áhorfenda má þekkja Gunnlaug Björnsson frá Efri-Harrastöðum með hatt og gleraugu, Jón Geir Jónatansson sem er að stinga hendinni í jakkavasa sinn og lengst til hægri er Karl Guðmundsson
Guðmundur Guðnason696
Hjónin á Syðra-hóli þau Björn Magnússon og Ingunn Lilja Hjaltadóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir100
<P>Frjálsíþróttalið USAH á íþróttamóti á óþekktum stað. Myndin sennilega tekin upp úr 1980 á henni eru, talið frá vinstri: standandi: Helgi Þór Helgason, óþekkt, Sigríður Gestsdóttir, Kári Kárason, Guðbjörg Gylfadóttir, Jóhann Sigurðson, Þórhalla Guðbjartsdóttir, Laufey Vilmundardóttir, Hafþór Gylfason og Hjörtur Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Kári Einarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Sigurður Guðmundsson, Kristján Frímannsson frá Breiðavaði, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Guðbjartur Guðmundsson, Steinunn Snorradóttir, Helga Yngvadóttir, Kristjana Jónsdóttir og Þórhildur Jakobsdóttir. </P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason687
Rúningur í réttunum. Þá var fénu smalað um mitt sumar og kindurnar voru rúnar því ullin var verðmæt. Myndin er úr Hofsrétt á Skagahreppi (nú Skagabyggð) og var tekin rétt fyrir 1960. Konan sem situr með lamb í fanginu er Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d.7.4.2011) frá Brandaskarði en aðrir myndinni er óþekktir. Hundurinn á réttarveggnum hét Kópur og var í eigu Páls J. Pálssonar frá Bakka. Kópur var felldur haustið 1960.
Guðmundur Guðnason711
<P>Sennilega var þessi mynd tekin á leikriti um Bakkbræður á sýningu á Blönduósi. Leikararnir eru líklega Skúli Pálsson (d.3.3.2001), Tómas R. Jónsson (d. 10.5.1986) og Bjarni Einarsson (d. 15.8.1978) ásamt Nönnu Tómasdóttur (d. 2013). Ef þú getur staðfest nöfn leikaranna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
Guðmundur Guðnason706
Mynd tekin af Höfðanum yfir Skagaströnd. Fremst fyrir miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali gekk undir heitinu Grafarbakki vegna nálægðar sinnar við mógrafir Skagtrendinga.
Guðrún Guðbjörnsdóttir062
Grasfræ gengur á milli manna fyrir dreifingu þess í hlíðum Spákonufells. Frá vinstri: Elísabet Kristjánsdóttir (Elsa), Elínborg Jónsdóttir kennari, Jón Ingi Ingvarsson rafvirki, Sigfús Jónsson sveitarstjóri og Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
Guðrún Guðbjörnsdóttir076
<P>Útmessa á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Hallbjörn Hjartarson meðhjálpari les úr Ritningunni. Séra Oddur Einarsson við altarið og Kristján Hjartarson við orgelið. Félagar úr kirkjukórnu bíða eftir að röðin komi að þeim.</P>
Stefán Jósefsson - safn011
Gissur Jóhannsson situr í léttabát frá dýpkunarskipinu Gretti en þar starfaði Gissur sem aðstoðarkokkur. Hinn maðurinn á myndinni er óþekktur en gæti verið kokkurinn um borð. Myndin er tekin við Hrísey á Eyjafirði.
Guðmundur Guðnason703
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Þórunn Bernódusdóttir frá Stórholti, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti, Tveir óþekktir leikarar, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) frá Höfðaborg (Bankastræti 9) og tveir óþekktir leikarar. Ef þú þekkir óþekktu leikarana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir087
Sveinn Ingólfsson og Helga Jóhannesdóttir kona hans í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar í Fellsborg 1981.
Guðrún Guðbjörnsdóttir023
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d. 19.10.1998) (með húfu) salta grásleppuhrogn.
Guðmundur Guðnason702
Réttastörf í Hofsrétt á Skaga. Fremst á myndinni er Páll Jóhannesson en maðurinn vinstra megin á myndinni í ljósum jakka er Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og stúlkan í köflóttu skyrtunni í miðjum fjárhópnum er Áslaug dóttir hans. Stúlkan í grænu peysunni er Guðbjörg Kristinsdóttir. Maðurinn lengst frá okkur fyrir miðju í ljósum buxum og brúnni peysu er Jón Hinrik Árnason (d.4.11.1986) sem var bóndi á Steinnýjarstöðum.
Guðmundur Guðnason828
Vinirnir Guðmundur Guðnason póstur (til vinstri) og Kristján Hjartarson frá Grund á góðri stund að spila saman á orgel.
Guðmundur Guðnason683
<P>Guðbjartur Sævarsson</P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir103
Þessir hressu krakkar ólust upp á Skagaströnd þó þau búi ekki öll hér í dag. Þessa mynd tók Guðrún Guðbjörnsdóttir einhverntíma á árunum upp úr 1970 en á henni eru, í neðri röðinni frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Sigþrúður Magnúsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Þórey Jónsdóttir með Ingvar bróður sinn í fanginu. Krakkarnir í aftari röðinni eru óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á netfangið: <a href="mailto:
[email protected]
">
[email protected]
</a> eða í síma 8993172.
Guðrún Guðbjörnsdóttir077
Vaskir menn ríða um hátíðarsvæðið á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Frá vinstri: Ásgeir Axelsson, Hallbjörn Hjartarson, Magnús Blöndal og óþekktur.
020
Óþekktir menn á Skagaströnd
Guðrún Guðbjörnsdóttir027
Kátar stúlkur í saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Inga Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum, Aðalheiður Emma Harðardóttir (Dússý) og Danica Zupancic.
Guðmundur Guðnason678
Fermingarmynd af Líney Jósefdóttur.
Guðmundur Guðnason804
Gunnar Jón Jónsson á fermingardaginn 1970
Ólafur Bernódusson013
<P>Frá endurvígslu Bjarmaness 19. júní 2004. Elías Björn Árnason spilar á hljómborð en einnig má þekkja Adolf H. Berndsen, Helgu Berndsen, Ingiberg Guðmundsson, Magnús B. Jónsson og Björn Hallbjörnsson</P>
Guðmundur Guðnason851
Stoltir eigendur verðlaunahrúta á hrútasýningu í Húnaveri. Mennirnir eru óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir035
<P>Úr saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt kona og tveir menn, Þórhalla Þóhallsdóttir og Danica Zupancic.</P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir028
Á myndinni er verið að meta saltfisk. fremst til vinstri er Guðmundur Árnason matsmaður frá Akranesi. Á móti honum við borðið er Stefán Þór Árnason matsmaður frá Skagaströnd. Aftan við Guðmund sér í Högna Jensson og Ottó Ákason stendur á móti honum .
Guðrún Guðbjörnsdóttir093
Krakkarnir sem hér njóta vetursins á Bogabrautinni eru: í efri röð frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Valdimar Valdimarsson (Númason), Hafaþór Gylfason, Kristín Jónsdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir. Sitjandi eru: Ingvar Jónsson, Vala Ingvarsdóttir, Ólafur Valdimarsson (Númason) og Árni Geir Ingvarsson
Guðmundur Guðnason777
Eitt af uppáhalds myndefnum Guðmundar Guðnasonar (d.21.11.1988) frá Ægissíðu , sem tók þessa mynd, voru kindur. Þetta er eitt sýnishorn af slíkum myndum sem eru fjölmargar til eftir hann.
Guðmundur Guðnasonr679
Hjalti Árnason frá Skeggjastöðum við réttastörf í Hofsrétt.
063
Bærinn að Brandaskarði í Skagahreppi (nú Skagabyggð)
1
…
21
22
23
…
167
Leita í myndasafninu
Leita